Dagur - 27.09.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 27. september 1990 - DAGUR - 3
fréttir
í
Skylt er að baða sauðfé og geitur í vetur:
Mikilvægt til að f\TÍr-
bvggja fjárkláða og lús
- segir Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir
Lögum samkvæmt ber að baða
allt sauðfé og geitur á komandi
vetri. Böðunin skal fara fram á
tímabilinu 1. nóvember til 15.
mars. Brynjólfur Sandholt,
yfirdýralæknir, segir að til að
lyrirbyggja lús og fjárkláða sé
mikilvægt að farið sé að lögum
í þessu.
Sauðfjárböðun er framkvæmd
MiðQarðarnetadeilan:
Málið komið
tilsakadóms
Netadeilumálið sem upp kom í
Miðfirði í sumar milli eigenda
neta sem lögð voru í sjó og
veiðieftirlitsmanns er nú kom-
ið aftur norður. Ríkissaksókn-
ari hefur skilað því af sér og
sent til Jóns Isbergs, sýslu-
manns í Húnaþingi.
Jón sendi málið áfram norður
til sakadóms á Akureyri. Ólafur
Ólafsson, héraðsdómari, mun
því eiga næsta leik.
í bréfi ríkissaksóknara leggur
hann til að dómssátt verði gerð
þar sem netaeigendur greiði
málskostnað og netin verði gerð
upptæk. Dómara er síðan að
meta þetta og hann getur ekki
krafist meira en saksóknari fer
fram á, en hann þarf samt ekki að
fara eftir þeirri kröfu.
Jón ísberg, sýslumaður, sagð-
ist hafa sent málið til Ólafs vegna
þess að hans lögreglumenn voru
inni í ákærunni. Ennfremur sagð-
ist Jón búast við að málið myndi
enda fyrir Hæstarétti. Ekki náðist
í Ólaf Ólafsson í gær til að fá álit
hans og hvað hann muni gera.
SBG
annað hvert ár. samkvæmt lögum
'frá 1977. Við böðunina skal nota
sérstakt baðlyf er nefnist
gammotox. Héraðsdýralæknar
og baðstjórar í viðkomandi sveit-
arfélögum sjá um að þessum lög-
um sé framfylgt. „Æskilegast er
að menn baði tiltölulega tíman-
lega til að sleppa við slæm vetrar-
veður og fari gætilega með bað-
lyfin." sagði Brynjölfur.
Hann sagði að almennt hafi
verið góður skilningur hjá bænd-
um á því að baða sauðfé. ..Það er
mun minna um lús en áður. en
kláði finnst á nokkrum stöðum á
landinu."
Að sögn Brynjólfs er landbún-
aðarráðherra heimilt að veita
undanþágu frá sauðfjárböðunar-
skyldu og er hún háð meðmælum
yfirdýralæknis og héraðsdýra-
lækna. Umsóknum um undan-
þágu skal fylgja vottorö héraðs-
ráðunauta í sauðfjárrækt og
garnaveikibólusetningarmanna.
gærumatsmanna og heilbrigðis-
eftirlitsmanna í sláturhúsum á
svæðinu um aö þeir hafi ekki orð-
ið varir við kláða eða önnur óþrif
í sauöfé og geitfé í hólfinu síðast-
liðin fjögur ár. óþh
Þátttakendur á námskeiðinu.
Mynd: SBG
Hólar í Hjaltadal:
Norrænt námskeið í markaðsfræðum
Á Hólum í Hjaltadal stendur
nú yfír námskeið á vegum
norrænu ráðherranefndarinnar
í markaðsfræðum og markaðs-
færslu. Á námskeiðinu eru um
20 þátttakendur frá öllum
Norðurlöndunum, en fyrirles-
arar eru tveir danskir og fjórir
Menntamálaráðuneytið •
Efnisgjaldið alræmda
veldur fjaðrafoki
Álitsgerð umboðsmanns Ál-
þingis um efnisgjöld í grunn-
skólum og umræður í fram-
haldi af því hafa valdið miklu
fjaðrafoki. Menntamálaráðu-
neytið hefur nú óskað umsagn-
ar Sambands íslenskra sveitar-
Háskóli íslands:
Nýtt tölvukerfi eykur afköstin
Á þessu ári tekur Háskóli
Islands nýjan tölvubúnað í
notkun sem gjörbreytir
aðstöðu hans til töluvinnslu
rannsóknarverkefna, opnar
dyr að myndrænni vinnslu og
eykur möguleika á þjónustu
við aðrar stofnanir og aðila í
þjóðfélaginu. Tölvubúnaður-
inn heitir RISC System/6000
og er framleiddur af IBM.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá Háskóla íslands.
Þar er einnig greint frá því að
undirritaður hefur verið saming-
ur milli Reiknistofnunar Háskól-
ans og IBM á Islandi um upp-
setningu á þremur vélum í
Reiknistofnun auk þess sem
fimm vélar verða settar upp í
öðrum stofnunum og deildum
Háskólans. Tölvurnar verða
tengdar saman og veita jafnframt
aðgang að gagnaneti Háskólans
sem verið er að taka í notkun.
Nýi tölvubúnaðurinn hefur í
för með sér tíföldun á reikni-
hraða og þegar öllum vélbúnað-
inum hefur verið komið fyrir
verða afköstin enn meiri. Reikni-
stofnun Háskólans tölvukeyrir
mörg reikniþung verkefni og
eykst vinnsluhraði þeirra nrjög.
Flókið líkan sem áður tók heilan
dag að reikna verður nú unnið á
innan við klukkutíma.
Þessi samningur er sérstakur
að því leyti að ýmsir einstakling-
ar sem fengið hafa styrk úr Vís-
indasjóði til rannsóknarvcrkefna
eiga saman 20% hlut í tölvubún-
aðinum. í þessum hópi eru
veðurfræðingar og nokkrir aðrir
styrkþegar. SS
félaga, ríkislögmanns og ann-
arra lögmanna svo og Náms-
gagnastofnunar.
í tilkynningu frá ráðuneytinu
kemur fram að skólastjórum allra
grunnskóla landsins hefur verið
sent bréf þar sem óskað er eftir
greinargerð um hversu háa upp-
hæð foreldrar og börn greiða í
efnisgjöld og bækur. Gera á grcin
fyrir gjöldum í hverjum árgangi
og gjöldum vegna valgreina sér-
staklega. Skólastjórar hafa verið
beðnir um að skila greinargerð
fyrir 15. október nk.
Menntamálaráðuneytinu þýkir
rétt, í tilefni af álitsgerð umboðs-
manns Alþingis, að skólar reyni
að komast hjá því að láta
nemendur kaupa bækur í skyldu-
námsgreinum þar til athugun
ráðuneytisins á málinu er lokið.
Þessi skoðun ráðuneytisins hefur
komið fram í bréfi til allra
fræðslustjóra landsins. SS
þátttakendur af öllum Norðurlöndum
íslenskir. Fólkið kom til Hóla
þann 23. og námskeiðinu lýkur
á morgun.
Námskeið á vegum norrænu
ráðherraiiefndarinnar eru haldin
á hverju ári og skipt á milli land-
ánna. Fyrir nokkrum árum var
eitt slíkt á Akureyri í fiskiðnaði,
en þetta er fyrsta námskeiðið
þessarar tegundar sem haldið er
hér á landi. Þátttakendurnir eru
bæði kennarar, fólk sem annast
starfsfræðslu í fyrirtækjum og
ráögjafar.
Bændaskólinn á Hólum tók aö
sér að halda námskeiðið og fram-
kvæmdastjóri þess er Valdimar
Gunnarsson, kennari á Hólum.
Valdimar situr einnig námskeiðið
og Dagur spjallaði aðeins við
hann.
„Námskeiðið kemur bæði inn á
fiskeldi og afurðir í sjávarútvegi.
Hluti af því er að skoða ýmislegt
tengt þessu og m.a. förum við í
Útgerðarfélag Akureyringa, Sölt-
unarfélagið á Dalvík og Miklalax
Vopnafjörður:
Köfimarstöðin dýpkar
höftiina í næsta mánuði
Köfunarstöðin í Reykjavík var
með lægra tilboð í dýpkun
hafnarinnar á Vopnafírði, en
auk hennar bauð Dýpkunarfé-
Tagið í verkið. Ákveðið er að
ráðast í dýpkunina í næsta
mánuði og er gert ráð fyrir að
Ijúka verkinu fyrir mánaða-
mótin október-nóvember.
Að sögn Vilmundar Gíslason-
ar, sveitarstjóra, er um að ræða
16 þúsund rúmmetra dýpkun
hafnarinnar og er áætlaður kostn-
aður um 8 milljónir króna. Bróð-
urpartur þeirrar upphæðar kcm-
ur í hlut ríkisins en um fjórðung-
ur í hlut hreppsins. Vilmundur
sagði að ekki hafi verið gert ráð
fyrir þessu verki í ár, en ákveðið
ha/i verið að ráðast í það þar sem
fyrir hefði legið að stærri loðnu-
skip gætu ekki lagst að bryggju
að óbreyttu. Eins og fram hefur
komið hafa Pétur Antonsson og
fleiri keypt loðnubræðslu Tanga
hf. á Vopnafirði og hyggjast
landa þar á komandi vertíð miklu
magni af loðnu, að hluta til úr
stórum loðnuskipum. óþh
í Fljótum.
Þetta komst í okkar hendur í
vor og við sjáum bara um fram-
kvæmdina, ekki innihald nám-
skeiðsins. Hólar eru góður staður
til námskeiðahalds og ódýrari en
Reykjavík. Hér er ágætis gisti-
aðstaða og fundaraðstaða, enda
töluvert um að námskeið séu
haldin.
Tilgangurinn með þessum
námskeiðum norrænu ráðherra-
nefndarinnar er að auka tengslin
og samhæfinguna milli Norður-
landa og einnig að láta fólk
kynnast. í upphafi voru smá
tungumálaörðugleikar, en það
var fljótt að koma,“ sagði Valdi-
mar.
Námskeiðið byggist aðallega
upp á fyrirlestrum og skoðunar-
ferðum, en aðeins er þó slegið á
léttari strengi inn á milli og sl.
þriðjudag var m.a. farið á
hestbak. Hópurinn fer síðan í
skoðunarferð um Skagafjörð í
dag. SBG
Langar þíg
að starfa í
hjálparsveit?
Nú fer nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta Akureyri að
hefjast, því verður efnt til kynningarfundar á starfsemi
sveitarinnar, þriðjudaginn 2. október kl. 20.00.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði sveitarinnar Lundi
v/Skógarlund.
Við leitum að fólki 17 ára og eldra sem hefur áhuga á
björgunarstörfum hvar sem er og hvenær sem er. Fólki
sem er tilbúið að leggja á sig mikla vinnu við margvísleg
störf.
Allir sem áhuga hafa og vilja kynna sér málið ættu að
koma á kynningarfundinn. Þar verður gerð grein fyrir
starfinu í máli og myndum.