Dagur


Dagur - 28.09.1990, Qupperneq 3

Dagur - 28.09.1990, Qupperneq 3
Föstudagur 28. september 1990 - DAGUR - 3 fréttir Umsókn Svæðisstjórnar um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra til Framkvæmdasjóðs fatlaðra: Sambýli á Akureyri fyrir Qöl- fatlaða efst á óskalistanum - horft til breytinga á starfsemi Sólborgar á Akureyri Skaðscmi reykinga kynnt fyrir nemendum og kennurum. Hættu að reykja - til vinnings: Nemendum FÁS kynnt keppnin Halldóra Bjarnadóttir frá Krabbameinsfélagi íslands hélt stuttan fyrirlestur fyrir nemendur Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í fyrradag um skað- semi reykinga og hina norrænu keppni í reykbindindi sem fer senn af stað. Halldóra sagðist vera að kynna keppnina fyrir nemendum vegna þess að þeir hefðu ítök bæði hjá vinum og vandamönnum til að ýta sér og öðrum út í bindindið. Hún sýndi einnig skjal þess efnis að Sauðárkróksbær myndi veita einum þátttakanda í keppninni frá Sauðárkróki 60.000 króna verðlaun, en auk þess eru fleiri verðlaun í boði fyrir þá sem standast bindindið frá 15. okt. til 12. nóv. Sauðárkrókur varð fyrir valinu vegna þess að vinabæir hans á Norðurlöndum samþykktu að vera með, en auk Sauðárkróks eru Selfoss og Kópavogur með hér á landi í bæjakeppninni. Sá af vinabæjunum sem nær bestum árangri fær síðan sérstaka viður- kenningu frá krabbameinsfé- lögunum á Norðurlöndum sem standa fyrir þessu átaki í reyk- ingavörnum. SBG Þessa dagana er verið að ganga frá umsókn Svæðisstjórnar um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra til Framkvæmdasjóðs fatlaðra vegna úthlutunar sjóðsins árið 1991. Bjarni Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Svæðisstjórnar, segist vonast til að fjármagn fáist úr sjóðnum til byggingar sambýlis fyrir fjölfatlaða á Akureyri, en þetta verkefni hefur verið ofar- lega á óskalista Svæðisstjórnar undanfarin misseri. Bjarni segir að bygging sam- býlis á Akureyri fyrir fjölfatlaða sé mjög brýn framkvæmd, en til hennar hafi ekki fengist fjármagn á undanförnum árum. Þá segir Bjarni að ef til þess fæst fjármagn úr Framkvæmdasjóði fatlaðra sé hugmyndin að breyta starfsemi Sólborgar í þá veru að hluti vistmanna flytji þaðan burtu, en önnur þjónusta, t.d. dagþjónusta og ýmiss konar stuðnings- og ráð- gjafarþjónusta komi í það hús- næði sem við það myndi losna. „Ástæðan fyrir þessu er að við teljum alveg skilyrðislaust að stefna beri að því að þetta fólk Norðlendingar panta vélsleða grimmt fyrir veturinn: ,Entm alsælir með söluna og bjartsýnir á veturinn“ - segir Haukur Sveinsson hjá Bílavali „Já, við höfum þegar selt fremst gengi dollars og verði um nokkuð af nýjum sleðum fyrir talsverða lækkun að ræða milli ára. Fyrstu sleðarnir verði til afgreiðslu innan tíðar þannig að sleðaáhugamenn ættu að geta tryggt sér nýjan sleða fyrir snjóa. veturinn og búið að staðfesta mikið af pöntunum. Við erum því alsælir með söluna og biartsýnir á veturinn,“ sagði Haukur Sveinsson hjá Bílavali á Akureyri, umboðsaðila á Akureyri fyrir Ski doo vél- sleða. Umboðsmönnum ber saman um að eftirspurnin eftir sleðum sé með meira móti þetta haustið og mun skýringin fyrst og fremst vera sú að verð hefur ekki hækkað síðan í fyrra heldur þvert á móti lækk- að í flestum tilvikum. Einar Gylfason hjá Hjólbarða- þjónustunni, umboðsaðila Polar- is, sagði verð á sleðum gott um þessar mundir. Því ráði fyrst og Haustmót SA: Arnar og Þór með forystu Eftir fimm umferðir á Haust- móti Skákfélags Akureyrar eru Arnar Þorsteinsson og Þór Valtýsson efstir og jafnir með 4 vinninga hvor. Tvær umferð- ir eru eftir og verða þær tefldar í næstu viku. í 3.-5. sæti eru þeir Smári Ólafsson, Rúnar Sigurpálsson og Gylfi Pórhallsson með 3 vinninga og í 6.-7. sæti eru Þórleifur Karls- son og Magnús Teitsson með 2xh vinning. Næstu menn eru Torfi Stefáns- son, Friðgeir Kristjánsson og Stefán Andrésson með 2 vinn- inga, en þeir Torfi og Friðgeir eiga frestaða skák til góða. SS Oddur Óskarsson hjá Höldi, umboðsaðila Arctic Cat, sagðist reikna með verðlækkun frá því sem var í fyrra. „Jú, það er geysi- lega mikið spurt eftir sleðum. Reynslan er sú að alltaf hefur verið mikil hreyfing á þessum markaði á haustin en mér finnst hún í fyrra lagi núna,“ sagði Oddur. Gunnar Gíslason hjá Þórs- hamri, umboðsaðila Yamaha, sagði að þegar hafi nokkrir sleðar verið seldir. Verð þessara sleða standi nánast í stað en þeir eru fluttir hingað til lands frá Dan- mörku. „Fyrstu sleðarnir eru að koma um mánaðamótin þannig að þeir verða tilbúnir til af- greiðslu tímanlega fyrir vetur- inn,“ sagði Gunnar. JÓH búi í almennu íbúðarhúsnæði í almennum íbúðahverfum og skynsamlegast sé að húsnæði Sól- borgar verði nýtt til annarra hluta,“ segir Bjarni. Lögum samkvæmt á Fram- kvæmdasjóður fatlaðra að standa undir byggingu sambýla fyrir fatl- aða og einnig er honum ætlað að fjármagna ýmis önnur verkefni. Umsóknir um fjárframlög úr sjóðnum hafa verið langt umfram það sem hann getur annað og hefur í auknum mæli verið litið til þess að færa húsnæðismál fatl- aðra einstaklinga yfir í almenna húsnæðiskerfið. Bjarni Kristjáns- son segir að hugmyndir hafi kom- ið upp um það hjá Svæðisstjórn á Norðurlandi eystra að fötluðum einstaklingum, sem vildu deila húsnæði, yrði gert kleift að sam- einast um kaup á húsnæði og fengju til þess lánafyrirgreiðslu úr félagslega kerfinu. Til þess þurfi hins vegar að breyta núgild- andi löggjöf. óþh Hlutabréfasalan í Sæplasti: Röskur helmingur bréfaima seldur - reiknað með að selja öll bréfin á einum og hálfum mánuði - Sala á hlutabréfum í Sæplasti á almennum markaði er nú ríf- lcga hálfnuð cn eins og fram hefur komið seldist tæpur helmingur bréfanna strax á fyrsta degi útboðsins. Nafn- verð þeirra bréfa sem nú eru í sölu er 6 milljónir króna en gengi bréfanna er 6,8. Jón Hallur Pétursson hjá Kaup- þingi Norðurlands hf. segir að salan hafi verið nokkuð jöfn ef fyrsti dagurinn er undanskilinn en heldur hefur verið líflegra yfir sölunni í Reykjavík. „Samt býst ég við að fjöldi kaupenda sé meiri hér fyrir norðan sem þýðir að hver einstaklingur í Reykjavík kaupir fyrir hærri upphæð,“ segir Jón Hallur. Jón Hallur segir að reiknað hafi verið með að selja hlutabréf- in í Sæplasti á einum og hálfum mánuði og ekkert bendi til ann- ars en það takist. Þrátt fyrir að hér sé um sterkt fyrirtæki að ræða þá sé það óþekkt á hlutabréfa- markaði og því hafi ekki verið reiknað með jafn sterkum við- brögðum a markaðinum eins og -J bridds i Bautamót Bridgefélags Akureyrar: Hörður og Om efstir því lýkur þriðjudaginn 9. okt. Allir áhugasamir eru velkomnir í að loknu fyrsta spilakvöldi af þremur Keppni í Bautamóti Bridgefé- lags Akureyrar hófst sl. þriðju- dagskvöld í Hamri, félags- heimili Þórs. Spilaður er þriggja kvölda tvímenningur með Mitchell fyrirkomulagi og taka 26 pör þátt í mótinu. Eftir fyrsta spilakvöldið eru þeir Hörður Steinbergsson og Örn Einarsson efstir með 290 stig. Meðalárangur er 216 stig en staða efstu para er annars þessi: st'g 1. Hörður Steinbergsson/Örn Einarsson 290 2. Páll Pálsson/Þórarinn B. Jónsson 272 3. Ásgeir Stefánss./Hermann Tómass. 271 4. Magnús Aðalbjörnsson/ Gunnlaugur Guðmundsson 261 5. Hörður Blöndal/Ólafur Ágústsson 258 6. Ormarr Snæbjörnsson/ Sturla Snæbjörnsson 250 Mótinu verður fram haldið í Hamri n.k. þriðjudagskvöld og Hamar til að fylgjast skemmtilegri keppni. með -KK Norðurlandsmótið í bridds framundan: Tekst Antoni og Pétri að verja titilnm? Norðurlandsmótið í tvímenn- ingi í bridds verður haldið á Akureyri laugardaginn 6. októ- ber. Mótið fer fram í Hamri, félagsheimili Þórs við Skarðs- hlíð og hefst kl. 10.00. Allir briddsarar á Norðurlandi vestra og eystra hafa rétt til þátt- töku. Núverandi Norðurlands- meistarar í bridds eru þeir Anton Haraldsson og Pétur Guðjónsson en þeir hafa reyndar sigrað tvö síðustu ár. Það má því búast við að þeir muni berjast af hörku til þess að halda titlinum eitt árið enn. Þátttökugjald er 3000 kr. fyrir parið og í Hamri verður hægt að kaupa léttar veitingar. Skráning fer fram í símum 24624 (Ormarr) og 25788 (Reynir) eða á keppnis- stað. -KK þegar hlutabréfin í ÚA komu á markað á dögunum. JÓH DAGIJR Sauðárkróki S 95-35960 Norðlenskt dagblað GRAM frystikistnr Fyrstd flokks kr. 43.990 (kr. 41.790 stgr.) kr. 51.990 (kr. 49.390 stgr.) kr. 59.890 (kr. 56.890 stgr.) kr. 82.980 (kr. 78.830 stgr.) Góðir skilmálar Traust þjónusta 3ja ára ábyrgð f/j Rafland hf. raftækjaverlsun Sunnuhlíð 12, sími 25010

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.