Dagur - 28.09.1990, Page 6

Dagur - 28.09.1990, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 28. september 1990 nl spurning vikunnar t R Húsvíkingar spurðir: Hvernig líst þér á hraðahindranirnar á Garðarsbrautinni? Kristinn V. Magnússon: Þær eru alveg gjörsamlega ómögulegar og stöðva alla umferð. Maður verður að stoppa við hraðahindranirnar til að stórskaða ekki bifreiðina, og svo er ég alltaf hræddur um að fá næsta bíl aftan á mig þegar ég stoppa við þær. Jósteinn Finnbogason: Ég hef ekkert vit á því, heillin. Ég keyri ekkert nema hjólbörur og mundi ekki finna þær. Þetta eru engar mishæðir á við marg- ar sem ég hef farið yfir. Brynhildur Bjarnadóttir: Alveg sérlega vel og fagna þeim mikið. Ég á heima þarna við Garðarsbrautina og finnst þær draga mjög mikið úr umferðarhraðanum. Mér finnst að þær hefðu þurft að vera komnar fyrir löngu. Jóhannes Sigurjónsson: Þetta eru smekklegar hæðir á götunni og ég held að þær dragi úr hraðanum en þó held ég að þær hafi að einhverju leyti fært hraðakstur niður á Mararbraut- ina. Það þyrfti hraðahindranir þar líka en mér skilst að það megi ekki af því að þetta er þjóðvegur sem liggur í gegnum bæinn. Rósa Þórðardóttir: Mjög vel. Þær draga úr umferð- arhraða og ég tek eftir hvað ég keyri mikið hægar eftir að þær voru settar upp. Það er ekki vanþörf á að gera eitthvað til að draga úr hraðanum. Það er best að sjá fyrst hvernig þessar hindranir virka og setja svo upp fleiri ef þær reynast vel. Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði: Hvaða áhrif hafa flsk- veiðar á byggðaþróun? - erindi flutt á Fjórðungsþingi Norðlendinga Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði flutti erindi um sjávarútveg og byggðaþróun á fjórðungsþingi Norðlendinga í lok síðasta mánaðar. Erindið nefndi hann: „Hvert stefna fiskveiðar og framleiðsla sjávarafurða með tilliti til byggðar?“ Hugleiðingar Bjarna eiga erindi til fleiri en full- trúa á fjórðungsþingi. Þær snerta í raun alla sem byggja lífs- afkomu sína á sjávarútvegi á norðanverðu landinu. Erindið birtist hér lítið eitt stytt og fyrirsögn og millifyrirsagnir eru blaðsins. ÞI Fátt er íslendingum hugstæöara en fiskveiðar og fiskverkun hvers konar, nema ef vera skyldi veðrið. Ástæða þess er að veðrið hamlar sjósókn eða atvinnu- rekstri á einhvern hátt. Þessar fullyrðingar voru hárréttar og eru það vonandi enn. Hins vegar líð- ur óðum að því að þær fái ekki staðist, því allt of stór hluti þjóð- arinnar veit ekki hver undirstaða okkar er. Áður fyrr fæddi landið ekki nema 50 til 70 þúsund manns í gamla bændasamfélag- inu. Síðan hófu menn fiskveiðar og fiskverkun. Eftir það hefur okkur fjölgað og grundvöllur myndaðist fyrir þéttbýlisstöðum. Þéttbýlisstaðirnir mynda síðan grunninn að þjónustu og verslun. Allt þetta styður hvað annað. Ef þetta er ekki til, er landið ekki eins áhugavert í augum útlend- inga og ferðaiðnaður ekki hálf- drættingur á við það sem hann er í dag. Þá má nefna stóriðju. Stóriðja er ekki háð undirstöðunni. Eða hvað? í dag er rætt um staðsetn- ingu álvers. Álver verður ekki staðsett nema þar sem nægjan- legur mannafli er fyrir þótt í hæfi- legri fjarlægð verði að vera. Eins og fram hefur komið hafa forsend- ur þéttbýlis fyrst fremst verið fiskveiðar og fiskvinnsla. Þetta er rifjað upp til þess að ekki fari fyr- ir mönnum eins og kóngulónni sem einu sinni kom á þræði sín- um ofan úr tré niður á milli tveggja runna. Þar bjó hún til vef og veiddi vel. Dag nokkurn var hún að snyrta vefinn og rak sig þá á streng sem hún kannaðist ekki við. Hún klippti þá á strenginn og allur vefurinn hrundi. Ég tel að smám saman fari eins fyrir íslendingum ef þeir hafa ekki á sér andvara og mun ég þá snúa mér að aðalmálinu sem ég er að tengja saman. Fiskveiðum, fisk- vinnslu, samgöngum, byggða- málum og byggðaröskun. Frystingin hefur dregist saman um 17,6% Ef skoðaðar eru tölur um inn- lagðan heildarafla á íslandi, má sjá glögg merki um þá þróun sem á sér stað. Á töflum sem ég hef látið útbúa, kemur fram að á fimm árum, frá 1979 til 1983, var frystingin með 32,9% hlutdeild af heildarfiskverkunaraðferðum. Saltið var með 15,5%, herslan með 5,7%, bræðsla með 41,4% og er það að mestu leyti sem í dag er talað um að sé útflutning- ur ísfisks, þar er að segja það sem landað er erlendis, flutt út í gám- um eða með skipum, eða ráðstaf- að á annan hátt, til dæmis til inn- lendrar neyslu. Á tímabilinu 1984 til 1989, hef- ur frystingin hins vegar misst verulega hlutdeild og hefur dreg- ist saman um 17,6%, farið úr 32,9% af heildarráðstöfun niður í 27,1. Söltunin hefur dregist sam- an um 25,8% og er nú komin í 11,5% úr 15,5%. Herslan hefur dregist verulega saman eða um 87,7%, úr 5,7% í 0,7%. Bræðsi- an hefur hins vegar aukist veru- lega enda hefur afli að meðaltali á ári aukist, þannig að hún er komin upp í 50,3% og hefur auk- ist um 21,5%. Síðan er útfluttur ferskur fiskur. Þar hefur aukningin orðið gífurleg eða um 133% og af heildinni erum við farin að ráð- stafa í þennan lið um 10,5% af öllum okkar afla á móti 4,5 á árunum 1983 og fyrr. Þetta sýnir að átt hefur sér stað þróun í sjáv- arútvegi. Þróun sem bendir til þess að hefðbundnar verkunar- greinar, söltun og hersla séu á verulegu undanhaldi. Frystingin er einnig á undanhaldi en vax- andi atvinnugrein er að flytja fiskinn út ferskan. Þetta gerir það að verkum að þeir aðilar sem standa hvað best að samgöngum, hafa líka aðgang að fiskmörkuð- um. Þeir eru hvað atkvæðamestir í þessu og má sjá að mesta magn- ið kentur frá Reykjanesi, Suður- landi og Vesturlandi. Þeir eru atkvæðamestir en fast á hæla þeirra þeirra koma Vestfirðir, Austfirðir og Norðurland eystra. Norðurland vestra virðist hreint ekki vera með í kapphlaupinu, Aukning í ársverkum á Norðurlandi 12,3% 1981 til 1987 Þetta sýnir að vinnslan hér heima hefir minnkað. Ísfiskútflutningur er að vísu ákveðin verðmæta- sköpun en deila má um það út af fyrir sig. Verðmæti pr. kíló til útgerðar verður mun meira í ísfiskinum heldur en í frysting- unni eða verkun hérlendis og um það er hægt að finna mjög mis- ntunandi tölur en að meðaltali eru þær talsvert hærri. Breytingar sjást einnig ef skoðaðar eru tölur um störf í atvinnugreinum. Förum yfir þróun starfa í atvinnugreinum á nokkrum stöðum hér á Norður- landi og Norðurlandi í heild og miöum við ársverk í atvinnu- greinum. Þá er það alveg ljóst að á tímabilinu frá 1981 til 1987 hef- ur störfum í landbúnaði fækkað um 18,6%, en þeim hefur fjölgað verulega í fiskiðnaði eða um 20%. Fiskvinnslan er með 3% aukningu, iðnaður hefur aukn- ingu um 13,6%. Byggingar hafa hins vegar dregist saman um 4,3%. Verslunin hefur aukist gíf- urlega eða um 27,4% en sam- göngur hafa hins vegar dregist saman, sem er forvitnilegt en bendir þó til þess að þær hafi færst á færri hendur og afkasta- meiri tæki séu notuð í samgöng- um. Starfsemi banka hefur aukist um 36% þannig að meðaltals- íslendingar í Svíþjóð: F.fnisinikill íslandspóstur með bókmenntalegu ívafi Islandspóstur er kominn út, tímarit íslendinga í Svíþjóð. Ritið er að þessu sinni meira um sig og veglegra en áður og er það meðal annars í tilefni af tíu ára afmæli Islenska lands- sambandsins í Svíþjóð. Upplag ritsins er 3000 eintök. Samkvæmt síðustu tölum eru yfir 5000 íslendingar búsettir í Svíþjóð og hafa þeir aldrei verið fleiri. Á íslandi teldist fimm þús- und manna byggð til stærri kaupstaða. íslandspóstur vill eins og landsmálablöðin íslensku, hvort sem er í Keflavík eða á Neskaupstað, minna á tilveru og hagsmunamál sinna heima- manna. í nýjasta tölublaði íslands- póstsins eru kallaðir til fjölmargir höfundar sem eiga það sameigin- legt að hafa dvaiist í Svíþjóð um lengri eða skemmri tíma. Meðal höfunda eru: Haukur Þorsteinsson, forseti Landssam- bandsins, Þórður Einarsson, sendiherra, rithöfundarnir Einar Bragi, Steinunn Jóhannesdóttir og Hrafn Gunnlaugsson, auk fsienskra skálda sem búsett eru í Svíþjóð. Þá eru í ritinu fréttir af féiagsstarfsemi íslendinga og við- töl við Georg Franklínsson, starfsmann Landssambandsins, og Brittu Gíslason, einn af stofn- endum sambandsins. Ritstjórar íslandspóstsins eru að þessu sinni þeir Jóhann árelíus og Anton Helgi Jónsson, en þeir eru báðir kunnir hér á landi fyrir skáldskap. Jóhann árelíus, Já, er nú staddur á heimaslóðum á Akur- eyri og notar tækifærið til að kynna íslandspóstinn. Hann sagði í spjalli við Dag að ritinu hefði vaxið fiskur um hrygg á síð- ustu árum og væri nú orðið öflugt bókmenntarit sem ætti erindi við fleiri íslendinga en bara þá sem búa í Svíþjóð. íslandspósturinn er jafnframt gluggi að samfélagi íslendinga í Svíþjóð, eða eins og segir á titilsíðu: „Okkur er það mikið ánægju- efni að hafa fengið ljóð og grein- ar frá jafnt nafnkunnum höfund- um sem ókunnu alþýðufólki. Stoltir getum við sagt að þessi íslandspóstur sýni þverskurð af því samfélagi sem við tilheyr- um.“ SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.