Dagur - 28.09.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 28.09.1990, Blaðsíða 11
fþróttir Föstudagur 28. september 1990 - DAGUR - 11 I Handknattleikur: - Þórsarar leika tvo leiki á Suðurnesjum Keppni í 2. deild íslandsmóts- ins í handknattleik hefst um helgina. Völsungar frá Húsa- vík bíöa enn um sinn en Þórs- arar frá Akureyri leika tvo leiki á útivelli, í Njarðvík á föstudagskvöldiö og Keflavík daginn eftir. „Ég held að við séum tilbúnir i slaginn og ieikmennina er farið að langa til að spila,“ sagði Jan Larsen, þjálfari Þórs, aðspurður um hvernig það Iegðist í hann að vera að byrja. Hann sagði að undirbúningstíminn hefði reynd- ar ekki verið langur og stutt væri síðan að þeir leikmenn, sem leika jafnframt knattspyrnu, hefðu byrjað af krafti. „Eg hafði ekki nema 10-11 manna hóp til að byrja með en núna erum við orðnir 15-16 og það er ágætt. Það er erfitt að segja hvar við stöndum, maður veit nánast ekk- ert um hin liðin. Við förum að sjálfsögðu inn á völlinn hverju sinni til að sigra og vonum að það takist. Ef hugarfarið er rétt, við höldum einbeitingu í 60 mínútur og gerum það sem við erum búnir að æfa þá tel ég að við eigum möguleika á sigri í leikjunum um helgina," sagði Jan Larsen. Ingólfur Samúelsson og Ólafur Hilmarsson leika um helgina á Suðurnesjum ásamt félögum sínum í Þór. íþróttafélagið Akur: Vetrarstarfið að hefjast Vetrarstarf íþróttafélagsins Akurs á Akureyri hefst þriðju- daginn 2. október. Æflngar verða fjóra daga í viku en félagið stendur fyrir æfíngum í borðtennis, boccía og sundi. Æfingar í borðtennis fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17-19 og á laugardögum frá kl. 10-12. Æfingar í boccía verða á laugardögum frá kl. 10- 12 og í sundi á sunnudögum frá kl. 17-18. Borðtennis- og boccíaæfing- arnar fara fram í endurbættri aðstöðu að Bjargi en sundæfing- arnar fara fram í Sundlaug Akur- eyrar. Stjórn Akurs hvetur alla félagsmenn, jafnt unga sem gamla til þess að æfa vel í vetur. Lokahóf yngri flokka KA fór fram í KA-heimilinu um síðustu lielgi. Gripið var í bingó og snæddar pylsur auk (fess sem kjörinn var knattspyrnumaður hvers flokks. A myndunum hér að ofan má sjá knattspyrnumenn flokkanna, á efri niyndinni eru f.v. Finnur Bessi Sigurðsson, 7. flokki, og Lárus Víðir Stefánsson, 6. flokki. Á neðri myndinni eru f.v: Ása Karen Guðmundsdóttir, 4. flokki kvenna, Þorbjörg Þórsdóttir, 3. flokki kvenna, Iris Gunnlaugsdóttir, 2. flokki kvenna, ívar Bjarklind, 3. flokki karla og Ingibjörg Stefánsdóttir, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Matthíasar Stefánssonar, knattspyrnumanns 3. flokks en hann varð einnig markakóngur KA með 38 mörk. Á niynd- irnar vantar Hörð Flóka Ólafsson, knattspyrnumann 5. flokks. Myndir: jhb Jaðar: Nýliðamót í golfi Á sunnudaginn fer fram á Jað- arsvelli á Akureyri nýliðamót í golfl. Mótið er ætlað þeim sem eru byrjendur í golfí, hafa t.d. verið á nýliðanámskeiðum í sumar þó að það sé ekki skil- yrði. Ekki er nauðsynlegt að vera félagi í GA til að taka þátt í mótinu. verða kynntar. Mót þetta átti upphaflega að vera 19. september sl. en var frestað vegna snjókomu. Golf: Bændaglíman um helgina Keppni í 2. deildinni af stað um helgina 1X2 1X2 1X21X2 1X2 1X21X21X21X2 Stefán búinn að jafna - fellur metið í þessari viku? Stefán Thorarensen jafnar í þessari viku met Rúnars Sigurpáls- sonar í getraunaleik Dags. Rúnar tók á sínum tíma þátt í leikn- ‘ um 14 sinnum í röð og þetta er 14. vika Stefáns. Hann sigraði Sigurð Hauksson með yfirburðum ( síðustu viku, hlaut 8 rétta en Sigurður 3. Rétt er þó að taka fram að Rúnar var ekki sleginn út heldur dró hann sig út vegna anna og er því enn ósigraður. Stefán skorar á Kristin Sævarsson, nema í VMA, og mætast þeir í þessari viku. Stefán er bjartsýnn á sigur, telur tvö fyrstu merki Kristins vafasöm. Gangi spá hans eftir er Stefán Thorar- ensen hinn nýi getraunakóngur Dags. Ekkert keppnisgjald verður innheimt af keppendum. Leiknar verða 9 holur og í för með hverj- um hóp verður reyndur golfleik- ari sem segir mönnum til og leið- beinir þeim varðandi reglur. Mótið hefst kl. 13 og að því loknu býður klúbburinn kepp- endum upp á veitingar í golf- skálanum þar sem golfreglurnar Á laugardaginn kl. 10 hefst hin árlega bændaglíma í golfí á Jaðarsvellinum á Akureyri. Hér er um að ræða 18 holu holukeppni þar sem leikið er í tveimur liðum undir forystu tveggja „bænda“. Að þessu sinni taka kylfingar frá Húsavík, Sauðárkróki og Ólafsfirði þátt í glímunni að Jaðri. Bændur verða Árni Björn Árnason, GA, og Gísli Friðfinns- son, GÓ. Að mótinu loknu verð- ur boðið upp á kaffi og meðlæti í golfskálanum. Þetta verður næst síðasta mót tímabilsins hjá GA. Aðeins er ólokið úrslitum firmakeppninnar sem fram fara í næsta mánuði. Æfingatafla handkn.deildar Þórs Stefán: Chelsea-Sheff. Utd. 1 Coventry-Q.P.R. 1 Derby-C. Palace 2 Everton-Southampton 1 Leeds-Arsenal 2 Man. Utd.-Nott. Forest 1 Norwich-Luton X Sunderland-Liverpool 2 Tottenham-Aston Villa 1 Wimbledon-Man. City 1 Bristol City-Newcastle X Sheff. Wed-West Ham 1 Kristinn: Chelsea-Sheff. Utd. 2 Coventry-Q.P.R. 2 Derby-C. Palace 1 Everton-Southampton 1 Leeds-Arsenal X Man. Utd.-Nott. Forest 1 Norwich-Luton 1 Sunderland-Liverpool 2 Tottenham-Aston Villa 2 Wimbledon-Man. City X Bristol City-Newcastle 1 Sheff. Wed-West Ham 1 Vetrarstarf handknattleiksdeild- ar Þórs er að komast í fullan gang. Hér á eftir fer æfingatafla félagsins Mcistaraflokkur karla þjálfari: Jan Larsen Mánud. kl. 19-20.30 Skemman Þriðjud. kl. 20.30-22 Höllin Miðvikud. kl. 20.30-22 Skemman Fimmtud. kl. 19-20.30 Höllin 3. fl. karla (15-16 ára) Þjálfarar: Jan Larsen/Ólafur Hilmarsson Mánud. kl. 17-18 Skemman Miðvikud. kl. 17-18 Skemman Sunnud. kl. 16-17 Höllin 4. fl. karla (13-14 ára) Þjálfari: Árni Stefánsson Þriðjud. kl. 21-22 Glerársk. Fimmtud. kl. 19-20 Glerársk. Sunnud. kl. 15-16 Höllin 5. fl. karla (11-12 ára) Þjálfari: Gunnar M. Gunnarsson Þriðjud. kl. 19-20 Glerársk. Fimmtud. kl. 20-21 Glerársk. Sunnud. kl. 14.15-15.45 Glerársk. 6. fl. karla (9-10 ára) Þjálfarar: Ingólfur og Jóh. Samúelss. Þriðjud. kl 18-19 Glerársk. Sunnud. kl. 15.45-17.30 Glerársk. 2. fl. kvenna (17-18 ára) Þjálfari: Sigurður Pálsson Mánud. kl. 20.30-22 Skemman Þriðjud. kl. 22-23 Höllin Miðvikud. kl. 18-19 Skemman 3. fl. kvenna (15-16 ára) Þjálfari: Sigurpáll Á. Aðalsteinsson Þriðjud. kl. 20-21 Glerársk. Sunnud. kl. 15-16 Skemman 4. fl. kvenna (13-14 ára) Þjálfari: Þórunn Sigurðardóttir Þriðjud. kl. 20-21 Glerársk. Sunnud. kl. 13.15-14.15 Glerársk. Byrjendafl. 10 ára og yngri (stúlkur/piltar) Þjálfari: Árni Stefánsson Mánud. kl. 17-18 Glerársk. Miðvikud. kl. 17-18 Glerársk. Æfingar hófust mánudaginn 24. september. 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.