Dagur - 16.10.1990, Qupperneq 1
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
- -- - »— ' .........................
Sviplegt fráfall Vals Arnþórssonar, bankastjóra Landsbankans:
Fórst í flugslysi á laugardag
Valur Arnþórsson, banka-
stjóri Landsbanka Islands,
fórst í flugslysi í Skerjafirði á
laugardaginn. Klukkan 16.53,
aðeins þremur niínútum eftir
llugtak, tilkynnti Valur flug-
turni að báðir hreyflar vélar-
innar væru að missa afl og
kvaðst ætla að reyna að nauð-
lenda á flugbraut 1-4. En
áður en vélin næði inn á
brautina brotlenti hún á sjón-
um og sökk á skammri stund.
Valur var látinn er kafarar
Slysavarnafélags Islands
komust niður að flakinu.
Áhöfnin á Aðalbjörgu RE og
kafarar úr Reykjavíkurlög-
reglunni náðu flakinu upp
aðfaranótt sunnudags og
stendur nú yfir rannsókn á
Með Val Arnþórssyni, fyrrver-
andi kaupfélagsstjóra KEA, er
genginn einn ötulasti baráttu-
maður samvinnuhreyfingarinn-
ar á íslandi.
Valur Arnþórsson varð starfs-
maður KEA 1965 og tók við
starfi kaupfélagsstjóra KEA
árið 1971 og gegndi því allt fram
í janúar á liðnu ári þegar hann
gerðist bankastjóri Landsbank-
ans í Reykjavík.
Strax og Valur hafði tekið við
stjórnartaumunum hjá KEA
kom í ljós hvaða mann hann
hafði að geyma. Hann stýrði
félaginu af ák/eðni og festu,
vegum Rannsóknarnefndar
flugslysa á orsökum slyssins.
Ekkert hefur enn komið fram
sem skýrt getur bilun í báðum
hreyflum flugvélarinnar. Vél-
in var af gerðinni Piper Pa-34
Seneca, í eigu Flugtaks hf.
Hún var smíðuð árið 1977 og
keypt til landsins í fyrra.
Valur Arnþórsson var fæddur
á Eskifirði 1. mars árið 1935,
sonur hjónanna Arnþórs Jensen
og Guðnýjar P. Jensen. Hann
lauk námi í Samvinnuskólanum
á Bifröst árið 1953 og sama ár
hóf hann störf hjá Samvinnu-
tryggingum. Veturinn 1955-56
nam Valur verslunar- og trygg-
ingafræði í Pitman’s College í
London og árið 1965 stundaði
hann nám í sænska Sanivinnu-
lagði grunninn að fjölmörgum
verkefnum og leiddi KEA í
gegnum ólgusjó erfiðs efna-
hagsumhverfis.
Fyrir hönd stjórnar KEA,
samvinnumanna við Eyjafjörð
og starfsmanna KEA minnist ég
mcð þakklæti þess mikla starfs
sem Valur innti af hendi í þágu
KEA og raunar samvinnumanna
um land allt. Þá vil ég einnig
votta fjölskyldu Vals samúð
mína á þessum erfiðu tímum,
en minningin um góðan dreng
mun lifa.
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri.
skólanum í Saltsjöbaden. Valur
varð deildarstjóri í Samvinnu-
tryggingum árið 1958 en síðla
árs 1965 var hann ráðinn fulltrúi
kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Eyfirðinga. 1 ársbyrjun 1970 var
Valur gerður að aðstoðarkaup-
félagsstjóra og fyrri hluta árs
1971 tók Valur við starfi kaup-
félagsstjóra Kaupfélags Eyfirð-
inga. Því starfi gegndi hann í 18
ár, eða allt þar til hann var ráð-
inn bankastjóri Landsbanka ís-
lands í ársbyrjun 1989.
Valur gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum á starfsferli
sínum. Hann átti sæti í stjórn
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga um 14 ára skeið, fyrstu
þrjú árin sem ritari en varð
stjórnarformaður Sambands
íslenskra samvinnufélaga árið
1978 og gegndi því embætti til
ársloka 1988. Valur sat sem full-
trúi Framsóknarflokksins í
Bæjarstjórn Akureyrar 1970-
1978 og gegndi embætti forseta
bæjarstjórnar 1974-1977. Val-
ur var stjórnarformaður Laxár-
virkjunar frá 1970 þar til Laxár-
virkjun sameinaðist Landsvirkj-
un árið 1983 og stjórnarmaður í
Landsvirkjun um nokkurra ára
skcið. Hann var nefndarmaður
í ýmsum stjórnskipuðum nefnd-
um á sviði orkumála, m.a. í
Orkuráði 1975-79. Hann átti
sæti í atvinnumálanefnd
Norðurlands sem starfaði á veg-
um ríkisstjórnarinnar 1969-70
og í olíuviðskiptanefnd sem
starfaði 1979-8(5. Valur var
varaformaður stjórnar Sam-
vinnutrygginga hf., Endurtrygg-
ingafélags Samvinnutrygginga
hf. og Andvöku frá 1977 og síð-
ar formaður og varaformaður
stjórnar Olíufélagsins hf. 1978
og síðar formaður. Hann sat í
stjórn Vinnumálasambands
samvinnufélaganna og Sam-
vinnuferða hf. um tíma. Valur
var um árabil stjórnarformaður
Plasteinangrunar hf., stjórnar-
formaður Kaffibrennslu Akur-
eyrar, stjórnarformaður Útgerð-
arfélags KEA hf. og í stjórn
Útgerðarfélags Dalvíkinga hf.
Valur var varaformaður stjórnar
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
hf. frá stofnun 1982. Þá var
hann formaður stjórnar Útgáfu-
félags Dags um tæplega 18 ára
skeið. Valur lét af öllum þess-
um störfum er hann hóf störf
sem bankastjóri Landsbankans.
Auk þeirra starfa sem þegar er
getið, sinnti hann ýmsum öðr-
um félagsmálastörfum og þar á
meðal gcgndi hann miklum
trúnaðarstörfum innan Frímúr-
arareglunnar.
Valur kvæntist Sigríði Ólafs"-
dóttur 16. júlí 1955. Þau eign-
uðust fimm börn.
Dagur sendir Sigríði Ólafs-
dóttur, börnum og öðrum að-
standendum hugheilar samúð-
arkveðjur og biður þeim Guðs
hlessunar. BB.
Kveðja frá Kaup-
félagi Eyfírðinga
Milliuppgjör Kaupfélags Skagfirðinga:
30 mflljóna kr. rekstrarhagnaður fyrstu 8 mánuðina
Rekstrarhagnaður Kaupfélags
Skagfirðinga, samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri fyrir fyrstu 8
mánuði þessa árs, er eftir
skatta 30 milljónir króna.
Samskonar uppgjör í fyrra
sýndi 300 þús. króna hagnað,
svo rekstrarbati milli ára á
sama tímabili er rúmar 30
milljónir.
Astæðurnar fyrir þessum
rekstrarbata segja stjórnendur
vera betra rekstrarumhverfi með
lækkandi nafnvöxtum og lágri
verðbólgu, auk þess sem ýmsar
rekstrarhagræðingar á síðasta ári
hafi skilað sér í bættum rekstri á
þessu ári.
Rekstrartekjur hafa aukist um
23% frá fyrra ári og eigið fé sam-
kvæmt þessu uppgjöri er 744
milljónir, sem er 40% eiginfjár-
hlutfall. Samt er samtals um 5
milljóna króna halli þessa 8 mán-
uði á útibúunum á Hofsósi og í
Fljótum og 7 milljónir hjá mjólk-
ursamlaginu. Að sögn Þórólfs
Gíslasonar, kaupfélagsstjóra,
hefur sameining verslana KS á
Sauðárkróki á síðasta ári skiiað
töluverðum hagnaði og eins til-
færsla ýmissa deilda. Á blaða-
mannafundi í gær kom m.a. fram
að veruleg magnaukning varð hjá
verslunarútibúinu í Varmahlíð á
þessum 8 mánuðum, en að öðru
leyti hefur vörusala í verslunum
KS verið eins og verðlag gefur
Þórshamar GK. landaði um
200 tonnum af loðnu á Þórs-
höfn í gærkvöld, sem hann
fékk á Kolbeinseyjarsvæðinu
tvær síðustu nætur. Uppistaða
í aflanum var tveggja ára gömul
smáloðna. Hilmir SU var einnig
á Kolbeinseyjarsvæðinu í gær,
en hafði lítið upp úr krafsinu.
Þriðji báturinn, sem leitaö hef-
ur að loðnu undanfarna daga,
tilefm til.
„Kaupfélagið er að fást við
sama rekstur að uppistöðu til líkt
og undangengin tvö ár. Það eina
sem hefur gerst og er í rauninni
ekki marktækt, er að við tókum á
leigu fóðurstöðina Melrakka, en
það samkomulag er bara til ára-
móta og við okkur hefur ekki
verið rætt um lengri rekstrartíma
Börkur NK, er farinn af mið-
unum.
„Þetta er bara smáfiskadráp.
Að mínu mati á að banna þetta.
Svo er talað um að togararnir séu
að drepa smáfiskinn. Uppistaðan
í þessu er tveggja ára loðna, en
hún þyrfti að vera þriggja, fjög-
urra ára,“ sagði háseti á Þórs-
hamri GK í samtali við Dag í
gær.
Hann sagði að töluvert magn
á henni.
Kaupfélagið er tilbúið, eins og
það hefur verið í gegnum tíðina,
til að taka virkan þátt í atvinnu-
lífinu í Skagafirði og leggja sitt af
mörkum til að halda hér uppi
þróttmikilli atvinnu. Það er það
sem við leggjum áherslu á í okkar
rekstri fyrir utan það auðvitað að
hafa rekstur kaupfélagsins í
af smáloðnu væri á Kolbeinseyj-
arsvæðinu, en ekkert yrði enn
vart við veiðanlega loðnu. „Þetta
er eins og fyrra. Þá voru menn að
drepa smáloðnuna hér í stórum
stíl. En menn hafa ekki þorað að
loka þessu svæði.“
Hilmir SU var á Kolbeinseyj-
arsvæðinu í gær, en fékk lítið sem
ekkert. Börkur NK hefur einnig
verið á miðunum, en hann er nú
farinn til hafnar. Þcssir þrír bátar
lagi," sagði Þórólfur.
Á stjórnarfundi hjá KS þann
12. okt. sl. var ákveðið að auka
hlutafé í Fiskiðju Sauðárkróks
h.f. um 15 milljónir króna vegna
skipakaupa á þessu ári, en FISK
er búin að kaupa 11-1200 tonn í
þorskígildum það sem af er árinu
t'yrir utan kvóta sem nýtist ekki á
hafa leitað af veiðanlegri loðnu
um allan sjó, en án árangurs.
Meðal annars fóru þeir norður að
miðlínu og Börkur fór meira að
segja norður undir Jan Mayen.
Árni Friðriksson, skip Hafrann-
sóknastofnunar, hefur leitað að
loðnu undanfarna daga fyrir
vestan, en hún hefur enn engan
árangur borið. Bjarni Sæmunds-
son er væntanlegur á loðnumiðin
í byrjun nóvember. óþh
næsta ári. SBG
Þórshamar GK landaði 200 tonnum af loðnu á Þórshöfn í gærkvöld:
Ætti að banna þetta smáfiskadráp
- sagði háseti á Pórshamri í samtali við Dag