Dagur - 16.10.1990, Qupperneq 3
Þriðjudagur 16. október 1990 - DAGUR - 3
fréftir
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Norðurlandi eystra:
KjömeMkannihugflokksmaiina til framhoösmálanna
Á fundi kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra á Akureyri sl.
föstudagskvöld var kosin
kjörnefnd, sem mun á næstu
dögum kanna hug flokksmanna
í kjördæminu til framboðslista
Alþýðubandalagsins fyrir næstu
alþingiskosningar.
Kjörnefndin mun kanna
afstöðu alþýðubandalagsfólks til
þess hvaða leið það telji rétta við
val frambjóðenda á lista
flokksins. Til greina kemur upp-
stilling með gamla laginu, skoð-
anakönnun eða forval. Síðast-
nefndi kosturinn varð ofan á fyrir
alþingiskosningarnar 1983 og
1987. Nefndinni var ekki út-
hlutaður ákveðinn tími til þessa
verkefnis, en innan tíðar verður
boðað til framhaldsaðalfundar
kjördæmisráðsins, þar sem línur í
framboðsmálunum verða vænt-
anlega skýrari og jafnvel er gert
ráð fyrir að listi flokksins verði
- lítil hrifning flokksmanna með stöðu álmálsins
þar ákveðinn. miklar umræður um stjórnmálin
Öruggt má telja að Steingrím- almennt og álmálið hafi sérstak-
lega borið á góma.
skák
ur J. Sigfússon, landbúnaðar- og
samgönguráðherra, skipi áfram
efsta sætið. Skipan næstu sæta er
hins vegar óráðin gáta. Svanfríð-
ur Jónasdóttir, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra, sem skipað
hefur annað sætið síðustu tvö
skipti, lýsti því yfir í viðtali við
Dag 7. október í fyrra að hún
myndi ekki taka aftur annað sæti
á lista Alþýðubandalagsins í
kjördæminu. Angantýr Einars-
son, formaður kjördæmisráðs,
segir að engin yfirlýsing hafi
komið frá Svanfríði um hug
hennar til framboðs, en ekki sé
annað vitað en að fyrri yfirlýsing
hennar standi.
Angantýr sagði að vegna
veðurs hafi fundarsókn verið
dræmari en búist hafði verið við
og af þeim sökum hafi engar
ályktanir verið samþykktar á
fundinum. Hins vegar hafi orðið
I
„Fram kom að það er ósköp
lítill spenningur fyrir gangi mála í
álmálinu. Sumir og þar á meðal
ég telja að bygging álvers sé ákaf-
lega siðiaust athæfi. Á meðan
forsvarsmenn vestrænna þjóða
heimta það af Kínverjum og Ind-
verjum að þeir snúi sér ekki að
iðnaði samkvæmt vestrænni fyrir-
mynd vegna þess að hann eyði-
leggi jörðina, þá teljum við það
sjálfsagðan hlut að hrúga niður
álveri hér á landi.
Svo eru menn, ekki bara
alþýðubandalagsmenn, ekki
sáttir við hvernig samningamálin
hafa þróast. Þá eru menn í þriðja
lagi ekki spenntir fyrir að þetta
álver þurfi að vera syðra," sagði
Angantýr. óþh
Sauðárkrókur:
Endurskipulagningu Loð-
skinns hf. frestað fram í vikuna
„Þrátt fyrir ætlun okkar um
ganga frá málum fyrir 15. okt.
þá varð að fresta bankafundi,
sem vera átti sl. föstudag, fram
í þessa viku,“ sagði Birgir
Bjarnason, rekstrarstjóri hjá
Loðskinni, í gær.
Eins og fram hefur komið áttu
í gær að liggja fyrir endanlegir
Deildakeppnin í skák:
Skin og skúrir hjá
norðlensku sveitunum
Fyrri hluti Deildakeppni
Skáksambands íslands fór
fram um síðustu helgi og var
kcppt í 1. deild á Akureyri.
Átta sveitir leiddu saman hesta
sína og voru tefldar fjórar
umferðir. Eins og búist hafði
verið við komu Reykvíkingar
sterkir til leiks og er forystan í
höndum borgarbúa.
Fall er fararheill, hugsuðu
mótshaldarar þegar mótið byrj-
aði með því að fresta þurfti
viðureign Skáksambands Vest-
fjarða og Taflfélags Garðabæjar
vegna þess að Vestfirðingar kom-
ust ekki í tæka tíð sakir óveðurs.
Þessar sveitir tefldu því aðeins
þrjár umferðir um helgina.
Staðan að loknum fyrri hluta
keppninnar er þessi: 1. TR (sa)
25 vinningar. 2. TR (nv) 22 v. 3.
SA a-sveit 19'/2 v. 4. SH a-sveit
15'Á v. 5. SV 13 v. 6. TG 9'A 7,-
8. SA b-sveit og UMSE 7 vinn-
ingar. Og rétt er að ítreka að SV
og TG hafa náð þessum vinning-
um eftir aðeins 3 umferðir en hin-
ar sveitirnar tefldu 4 umferðir.
Eins og sjá má er A-sveit Skák-
félags Akureyrar í toppbarátt-
unni en hjá B-sveitinni svo og
sveit UMSE gekk allt á afturfót-
unum. Til dæmis tapaði sveit
Eyfirðinga 0:8 fyrir Taflfélagi
Reykjavíkur (suðaustur).
Keppni í 2. deild fór fram í
Reykjavík og er staða efstu
sveita þannig: 1. TR d-sveit 18
vinningar. 2. Taflfélag Akraness
a-sveit 14'/2 v. 3. USAH 14. v. 4.
SA c-sveit 12 vinningar. Þarna
eru Austur-Húnvetningar í topp-
baráttunni og ungu strákarnir í
C-sveit Skákfélags Akureyrar
standa sig líka mjög vel.
Seinni hluti deildakeppninnar
fer að öllum líkindum fram í
apríl. SS
útreikningar að endurskipulagn-
ingunni hjá sútunarverksmiðj-
unni Loðskinni hf. á Sauðárkróki.
Sá frestur teygist aftur á móti
fram í vikuna, en á miðvikudag
eða fimmtudag er áætlað að
halda bankafund sem er loka-
punkturinn áður en ráðist verður
í hlutafjáraukningurta af krafti.
Að sögn Birgis þarf upp úr
næstu mánaðamótum að hefja
eðlilega starfsemi hjá verksmiðj-
unni aftur. Til að það geti orðið
segir hann endurskipulagninguna
þurfa að vera gengna í gegn að
mestu leyti, en nú er aðeins unn-
ið í verksmiðjunni við móttöku
og söltun á gærum. SBG
ISBUI
gerir einfalda máltíð að spennandi athöfn
MUNDU EFTIR OSTINUM
I