Dagur - 16.10.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 16. október 1990
Vilhjálmur Ingi Árnason:
Neytandinn og tannlæknirinn
Enn er ríkjandi stríðsástand á
milli heilbrigðisráðuneytisins og
tannlækna. Orsökin er sú, að
ráðuneytið hefur talið suma tann-
lækna nota ríkissjóð sem féþúfu
með þeim hætti að framkvæma á
fólki aðgerðir sem tæpast væru
nauðsynlegar heilsu þess vegna.
Þar sem Guðmundur Bjarna-
son heilbrigðisráðherra telur að
senn fari að draga til lokaorrustu
er ekki úr vegi að rifja upp
nokkrar orsakir stríðsins, þó að
ég hafi áður fjallað um þær í öðru
blaði en Degi, fyrr á þessu ári.
Tannlæknar sviptir rétti
til einhliða ákvarðana
Guðmundur Bjarnason skipaði í
ágúst 1989, nefnd þriggja manna
(tveggja lækna og eins lögfræð-
ings), til að gera tillögur að
endurbótum. Nefndin komst
fljótlega að því að róttækra
aðgerða væri þörf, því fyrstu til-
lögur hennar gengu út á það að
svipta tannlækna þeim rétti að
gera vissar aðgerðir á kostnað
ríkisins, nema að fengnu sam-
þykki. Nefndin taldi með öðrum
- 9. grein
orðum að þessi stétt lækna hafi
misnotað svo aðstöðu sína að
setja yrði hömlur á ákvarðanarétt
hennar. Enda liggur fyrir opin-
bert skja! sem staðfestir þá skoð-
un eins tannréttingalæknis, að ef
einhver vill láta gera á sér aðgerð
eingöngu í fegrunarskyni, og láta
síðan ríkið greiða helminginn, þá
sé sú ákvörðun leikmannsins
engu réttlægri en ákvörðun lækn-
is eða sjúklings um aðgerð vegna
sjúkdóms. Menn geta gert sér í
hugarlund hvort ekki séu margir
sem væru tilbúnir til að láta
„fegra“ sig ef þeir fengju aðgerð-
ina á „hálfvirði".
Tekjur tannréttingalækna
lækka um 5 milljónir á ári
Talið er að lækka megi brúttó-
tekjur tólf tannréttingalækna um
60 milljónir eða sem svarar 5
milljónum á hvern. Sú niðurstaða
nefndarinnar er í góðu samræmi
við könnun DV á tekjusköttum
tannlækna. Nú kann einhver að
spyrja, hvernig geti staðið á því
að heilbrigðisstétt sem vinnur eft-
ir samningi við tryggingastofnun
Tilkynning til launa-
skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi
launaskatts fyrir september er 15. október. Sé launaskatt-
ur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar
því sem vangreitt er, talið frá og meö gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu-
manns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um
leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Skipstjórafélag
Norðlendinga
heldur almennan félagsfund að Skipagötu 14,
miðvikudaginn 17. október kl. 15.00.
1. Uppstilling til stjórnarkjörs.
2. Kjaramál.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
geti haft tugi milljóna í brúttó-
tekjur á ári? Svarið er einfalt:
Duglaus og ósanngjörn samn-
inganefnd.
Duglaus samninganefnd
tryggir tólf þúsund króna
tímalaun
Árið I987 þegar ég hóf fyrst að
skrifa um gjaldskrá tannlækna,
færði ég rök fyrir því að samn-
inganefnd ríkisins hefði tryggt
tannréttingalæknum um 12 þús-
und króna tímalaun við vissar
aðgerðir. Eftir eitt ár og margar
blaðagreinar, viðurkenndi for-
maður samninganefndarinnar
loksins formlega að tannréttinga-
mönnum hefði verið reiknaðar of
háar greiðslur. Samninganefnd
sem vísvitandi samdi um of háar
greiðslur, var sannarlega dug-
laus.
Ósanngjörn samninga-
nefnd stuðlar að misrétti
Á Akureyri starfa tveir bræður
samkvæmt samningum við þessa
margumtöluðu samninganefnd,
annar er sjúkraþjálfari en hinn er
tannlæknir. Þeir vinna í sama
húsi, sjúkraþjálfarinn á jarðhæð
en tannlæknirinn í kjallara.
Samkvæmt samningum eiga
báðir að hafa minnst 80 fm
gólfflöt. Nú skyldi maður ætla að
í samningunum hafi verið reikn-
að með sambærilegum kostnaði
fyrir sambærilegt húsnæði, en svo
var ekki. Á meðan sjúkraþjálfar-
anum voru reiknaðar um 90 kr. á
klukkustund þá voru tannlæknin-
um bróður hans reiknaðar rúmar
300 krónur á klukkustund fyrir
jafn stórt pláss. Samninganefnd
sem gerði þannig upp á milli
stétta, var sannarlega ósann-
gjörn.
Á Akureyri er sérhönnuð
tannlæknaaðstaða þar sem í ára-
raðir unnu þrír tannlæknar. í dag
hefðu þeir með átta stunda
vinnudegi, um 100 þúsund krón-
um meira á mánuði upp í húsa-
leigu, en nemur raunverulegu
leigugjaldi. „Góður“ samningur
það.
Heilbrigðisráðuneytið
tekur í taumana
Þegar ljóst var að samninga-
nefndin yrði ekki í bráð fær um
að gera raunhæfa og sanngjarna
Vilhjálmur Ingi Arnason.
samninga við tannlækna, lét
Guðmundur Bjarnason semja
lagafrumvarp sem átti að hindra
óheftan fjáraustur til þeirra. Lög-
in tóku gildi um síðustu áramót
og viðbrögð tannlækna létu ekki
á sér standa. Þeir neituðu að
sjúkdómsgreina og meta ástand
skjólstæðinga sinna, þannig að
hægt væri að skera úr um það hve
hátt hlutfall af kostnaðinum ætti
að falla á ríkissjóð. Tannlækn-
um, og þá einkum tannréttinga-
læknum, virðist það meira í mun
að viðhalda kerfi sem tryggir
þeim sjálfum auðvelda leið til
veraldlegra gæða, en veita sjúkl-
ingum sínum eðlilega þjónustu.
Læknar sem beita sjúklingum
fyrir sig í kjarabaráttu, ættu ekki
að eiga heima í heilbrigðisstétt,
og spurning hvaða hvatir hafa
legið að baki vali þeirra á ævi-
starfi.
Fórnarlömb kjaradeilunnar
vita brátt hvar þau standa
Það styttist óðum biðin fyrir þá
sjúklinga sem tannlæknar hafa
látið gjalda fyrir kjarabaráttu
sína. Samkvæmt fullyrðingum
heilbrigðisráðherra verður nú
bráðlega samið, eða höggvið á
hnútinn ella.
Hvernig verða nýju
samningarnir?
Tannlæknafélagið kolfelldi nú
nýlega fyrirliggjandi samnings-
drög. Tannréttingamenn berjast
af hörku gegn nýrri kostnaðar-
skiptingu. Tekst þeim að tryggja
sér áframhaldandi sjálftöku úr
ríkissjóði? Tekst þeim að tryggja
sér áfram allt að 12.000 króna
tímalaun? Tekst þeim að kné-
setja Guðmund Bjarnason og
menn hans, eins og þeir áður
gjörsigruðu Ragnhildi Helgadótt-
ur, sem á endanum varð að láta í
minni pokann gegn því einu að
„fá að halda andlitinu“? Neyt-
endur fylgist vel með lokaorrust-
unni, hún er háð ykkar vegna!
Fjölmargir gestir mættu á austurlcnska kvöldiö í fyrra og gæddu sér á yfir 20
gómsætum austurlenskum réttum.
Akureyri:
Austurlenskt kvöld
á Hótel KEA
Slysavarnadeild kvenna á
Akureyri og Hótel KEA gang-
ast fyrir austurlensku kvöldi á
Hótel KEA laugardaginn 20.
okt. nk. Þar veröur boöiö upp
á yfir 20 austurlenska rétti á
hlaðborði en borðhaldið hefst
íþróttavörur í hœsta
gœðaklassa
er íþróttavöniverslun
Nœg
Skíðagallar,
úlpur,
gallar,
skór,
töskur,
bolir,
húfur,
lúffur,
sokkar,
inniskór,
stuttbuxur,
sundfatnaður,
skautar,
boltar o.fl.
Opiðfrá kl. 09.30-18.00,
laugardaga 10.30-12.30.
stœði
bœjarins við Strandgötu 6, sími 27771
stundvíslega kl. 20.00.
Veislustjóri verður Pétur Þór-
arinsson sóknarprestur í Glerár-
kirkju. Á meðan á borðhaldinu
stendur, verður boðið upp á
skemmtiatriði en að því loknu
leikur hljómsveitin Miðaldamenn
fyrir dansi til kl. 03.00. Húsið
verður opnað fyrir aðra en mat-
argesti kl. 23.00.
Miðasala fer fram á Hótel
KEA föstudaginn 19. okt. frá kl.
17-19 og laugardaginn 20. okt.
frá kl.14-16.
Námsgagnastofnun:
Ný bók í lesarka-
safhi grunnskóla
Hjá Námsgagnastofnun er komin
út lesörkin Kveðja og er hún
nýjasta bókin í flokknum les-
arkasafn grunnskóla.
Kveðja er ætluð nemendum í
5.-7. bekk grunnskóla og hefur
skilnað og söknuð að meginefni.
Efni bókarinnar er úr ýmsum
áttum, fruinsamið og þýtt,
gamalt og nýtt. Þórður Helgason
valdi efnið og samdi kennsluleið-
beiningar. Aðalheiður Skarphéð-
insdóttir teiknaði myndir. Bók-
inni fylgja kennsluleiðbeiningar.
Bóicin er 128 bls. í brotinu A5,
sett og brotin um hjá Náms-
gagnastofnun, prentuð í Stein-
holti hf. og bundin hjá Félags-
bókbandinu - Bókfelli hf.