Dagur - 16.10.1990, Síða 8

Dagur - 16.10.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 16. október 1990 fþróttir F Tveir bestu menn vallarins, Jón Örn Guðmundsson með boltann en Jón Kr. Gíslason til varnar. Mynd: Golli Úrvalsdeildin í körfuknat Stólamir lögðu Grú fyrir troðfullu - Ivan með 33 stig Tindastóll lagði UMFG að velli 96:85 í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik sl. sunnudagskvöld. Stólarnir spiluðu á heimavelli í íþróttahúsinu á Sauðárkróki sem var troðfullt af áhorfend- um á þessum fyrsta heimaleik liðsins. Tékkinn Ivan Jonas var stigahæstur hjá heima- mönnum með 33 stig, en Kan- Úr leik Tindastóls og Grindvíkinga. Mynd:íSBG Úrvalsdeildin B-riðill ÍBK 2 2-0 198:176 4 Tindastóll 2 2-0 187:170 4 Valur 2 1-1 193:187 2 Þór 3 1-2 307:304 2 Gríndavík 3 0-3 247:293 0 Handknattleikur 1. deild ÍBV-Valur 26:28 Stjarnan-KA 20:29 FH-Haukar 20:18 ÍR-Grótta 16:20 Víkingur-Fram 23:18 KR-Selfoss 24:19 Víkingur 6 6-0-0 156:126 12 Valur 6 6-0-0 151:129 12 Stjarnan 6 5-0-1 139:127 10 KR 6 3-2-1 141:134 8 KA 6 3-0-3 146:128 6 Haukar 5 3-0-2 111:116 6 FH 6 2-1-3 135:136 5 ÍBV 5 2-0-3 122:120 4 Grótta 6 1-1-4 122:137 3 ÍR 6 1-0-5 133:147 2 Fram 6 0-1-5 116:142 1 Selfoss 6 0-1-5 112:142 1 2. deild Þór-Ármann 25:19 ÍS-Njarðvík 16:29 V ölsungur-Armann 24:24 Keflavík-IH 21:18 Afturelding-LBK 18:26 Njarðvík 4 3-1-0 104: 77 7 Þór 4 3-1-0 98: 85 7 HK 3 3-0-0 78: 44 6 UBK 3 3-0-0 76: 46 6 Árniann 5 2-1-2 94: 99 5 Völsungur 4 1-1-2 85:102 3 Keflavík 4 1-0-3 83: 91 2 Afturelding 3 1-0-2 51: 64 2 ÍH 4 0-0-4 77: 94 0 ÍS 4 0-0-4 58:102 0 Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Endaspretturínn kom of seint - þegar Þórsarar töpuðu 105:107 fyrir ÍBK Þórsarar biðu nauman ósigur er þeir mættu ÍBK í íþrótta- höllinni á Akureyri á sunnu- dagskvöldið. Lokatölur leiks- ins urðu 105:107 en Keflvík- ingar höfðu yfirhöndina í leik- hléi, 50:46. Gestirnir héldu reyndar forystunni mest allan leiktímann en lokamínúturnar voru æsispennandi. Þegar aðeins nokkrar mínútur voru eftir höfðu Keflvíkingar 17 stiga forskot en Þórsarar rifu sig upp í lokin og náðu að minnka muninn í tvö stig. Lengra komust þeir þó ekki og Keflvíkingar fögnuðu sigri. Leikurinn var í járnum fyrstu mínúturnar og jafnt á flestum töl- um allt þar til staðan var 15:15. Þá sigu Keflvíkingar framúr þrátt fyrir að munurinn yrði aldrei mikill. í fyrri hálfleik varð hann mestur 7 stig, 35:42. í seinni hálfleik byrjuðu Þórs- arar með miklum látum og mest fyrir góðan sprett Guðmundar Björnssonar náðu þeir að jafna og komast yfir, 62:60. Keflvík- ingar virtust vera að ná áttum og þegar það hafði tekist sigu þeir aftur framúr og á tímabili stefndi í stórsigur. Þegar 4 mínútur voru til leiksloka var staðan 70:87 en þá kom góður kafli hjá Þórsur- um. Vel hvattir af fjöldamörgum áhorfendum náðu þeir að saxa á forskotið þangað til staðan var orðin 98:100. Þá kom þriggja stiga karfa frá Fal Harðarsyni og hún gerði útslagið. Lokatölurnar urðu 105:107 eins og fyrr segir. Þórsarar léku þennan leik ekki vel og það er greinilegt að liðið getur betur. Lykilmenn eins og Cedric Evans og Sturla Örlygs- son náðu sér ekki á strik langtím- um saman þótt þeir ættu góða spretti. Sturla vaknaði eiginlega ekki til lífsins fyrr en í lokin þeg- ar hann skoraði þrjár þriggja stiga körfur á örskömmum tíma en þá var of seint í rassinn gripið. Evans átti spretti en hvarf þess á milli og það vakti athygli hversu linur hann var oft í fráköstunum miðað við hæðina og stökkkraft- inn sem hann hefur. Langbesti inaður liðsins var Jón Örn Guðmundsson sem hélt Þórsur- um á floti með stórgóðum leik. Þá var Guðmundur drjúgur, sér- staklega í upphafi seinni hálf- leiks. Keflavíkurliðið er sterkt og sýndi mikinn karakter. Sigurður Ingimundarson er seigur og Falur Harðarson skemmtilegur en höf- uð og herðar yfir aðra ber þó Jón Kr. Gíslason sem var allt í öllu í flestum aðgerðum liðsins. Stig Þórs: Jón Örn Guðmundsson 27, Cedric Evans 23, Sturla Örlygsson 23, Guðmundur Björnsson 23, Konráð Ósk- arsson 5, Jóliann Sigurðsson 4. Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 26, Sigurður Ingimundarson 23, Tom Lytle 18, Falur Harðarson 18, Egill Viðarsson 11, Júlíus Friðriksson 4, Hjörtur Harðarson 4, Albert Óskarsson 3. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristján Möller. Dæmdu þokkalega. Cedric Evans náði sér ekki nægilega vel á strik en hér læðir hann boltanum með tilþrifum í körfu ÍBK. Mynd: Golli

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.