Dagur - 16.10.1990, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 16. október 1990
íþróttir
SheÉSeld Wed. á toppinn í 2. deild
Vegna landsleiks Englendinga
gegn Pólverjum í Evrópu-
keppninni í vikunni var ekkert
leikið í 1. deild um helgina.
Leikmenn 1. deildar fengu því
frí, en heil umferð var leikin í
2. deild og þar tók nýtt lið við
forystuhlutverkinu af Oldham
sem lengi hefur setið í efsta
sætinu.
Sheffield Wed. sem féll úr 1.
deild í fyrra hefur leikið mjög vel
í 2. deildinni og átti stórleik á
laugardag er liðið lagði Plymouth
3:0. írski landsliðsmaðurinn John
Sheridan sem Nottingham For.
gat ekki notað lék mjög vel og
skoraði tvö af mörkum liðsins
sem með sigrinum skaust í efsta
sætið í 2. deild.
Oldham lenti í kröppum
dansi gegn Hull City sem tapaði
7:1 gegn West Ham um síðustu
helgi og mátti þakka fyrir að tapa
ekki fyrsta leik sínum í deildinni í
haust. Leigh Palin náði forystu
fyrir Hull með marki úr víta-
spyrnu á 23. mín. sem dæmd var
á hendi eftir að Peter Swan hafði
sent fyrir mark Oldham. Andy
Payton bætti öðru marki við fyrir
Hull rétt eftir hlé, en Oldham
gafst ekki upp og náði að jafna
með tveim mörkurn á síðustu 10
mín. leiksins. Nick Henry skor-
aði af stuttu færi og Neil Read-
fern jafnaði síðan með glæsilegu
langskoti.
Wolves náði jafntefli gegn
Notts County á útivelli í baráttu-
leik þar sem Steve Bull dró ekk-
ert af sér þrátt fyrir að hann sé í
enska landsliðshópnum gegn
Pólverjum. Notts County hafði
þó undirtökin í leiknum og
Tommy Johnson sem leikur með
21 árs landsliði Englendinga átti
stórleik. Það var hins vegar
Shane Westley sem náði forystu
fyrir Wolves eftir hálftíma leik
með marki eftir hornspyrnu.
County sótti látlaust í síðari hálf-
leiknum og á 78. mín. átti Mark
Draper hörkuskot að marki
Wolves sem Mike Stowell í marki
Úlfanna varði glæsilega í þverslá.
En á síðustu mín. leiksins tókst
þó heimaliðinu loks að jafna með
marki Dean Thomas.
Watford vann sinn fyrsta sigur
í deildinni er liðið lagði Blackburn
2:0 á útivelli.
Þá vekur athygli sigur Bristol
Rovers á útivelli gegn Swindon
2:0.
Efstu lið 3. deildar eru
Grimsby og Southend með 25
stig og Stoke City hefur 20 stig.
A botninum eru Crewe,
Shrewsbury og Fulham með 7
stig og Rotherham hefur 5 stig.
I 4. deild er Torquay með 24
Þeir Ronnie Whelan og Steve Bruce, fyrirliðar Man. Utd. og Livcrpool, skiptu með sér verðlaunum í haust eftir
ágóðaleikinn á Wembley. Þeir munu hins vegar ekki skipta neinu með sér er lið þeirra mætast í stórleiknum í 3.
umferð dcildabikarins.
Dregið í
í vikunni fóru fram síðari
leikirnir í 2. umferð deildabik-
arsins. Úrslit leikjanna urðu
sem hér segir, (samanlögð úrslit
beggja leikjanna í sviga).
Arsenal-Chester 5:0 (6:0)
Barnsley-Aston Villa 0:1 (0:2)
Blackburn-Rotherham 1:0 (2:1)
Bolton-Coventry 2:3 (4:7)
Bradford-Luton 1:1 (2:2)
Brentford-Sheffield Wed. 1:2 (2:4)
Bristol City-Sunderíand 1:6 (2:6)
Burnley-Nottingham For. 0:1 (1:5)
Chelsea-Walsall 4:1 (9:1)
Crewe-Liverpool 1:4 (2:9)
Derby-Carlisle 1:0 (2:1)
Everton-Wrexham 6:0 (11:0)
Hartlepool-Tottenham 1:2 (1:7)
Ipswich-Shrewsbury 3:0 (4:1)
Leeds Utd.-Leicester 3:0 (3:1)
Leyton Orient-Charlton 1:0 (3:2)
Manchester City-Torquay 0:0 (4:0)
Manchester Utd.-Halifax 2:1 (5:2)
Millwall-Bournemouth 2:1 (2:1)
Newcastle-Middlesbrough 1:0 (1:2)
Oldham-Notts County 5:2 (5:3)
Oxford-Port Vale 0:0 (2:0)
Peterboroug”h-Q.P.R. 1:1 (2:4)
Portsmouth-Cardiff City 3:1 (4:2)
Sheffield Utd.-Northampton 2:1 (3:1)
Southampton-Rochdale 3:0 (9:0)
Southend-Crystal Palace 1:2 I (1:10)
Stoke City-West Ham 1:2 (1:5)
Swindon-Darlington 4:0 (4:3)
Watford-Norwich 0:3 (0:5)
Wimbledon-Plymouth 0:2 (0:3)
Wolves-Hull City 1:1 (1:1)
Hull City komst áfram á útimark-
3. uinferð deildabikarsins
inu og Bradford sigraði Luton 5:4
í vítaspyrnukeppni. 1. deildarlið-
in Luton og Wimbledon eru því
fallin úr keppninni, en flest 1.
deildarliðin komust án erfiðleika
áfram í 3. umferð keppninnar.
Að loknum leikjunum í 2.
umferð var dregið um hvaða lið
leika saman í 3. umferð keppn-
innar, en hún fer fram í síðustu
viku október. Þá er um hreina
útsláttarkeppni að ræða og lið
sem tapar leik er því úr leik.
Aðalleikur umferðarinnar er
án efa viðureign FA-bikarmeist-
ara Manchester Utd. heima gegn
Englandsmeisturunum Liverpool,
en það er einn fjögurra leikja þar
sem 1. deildarlið mætast. Leikur
Manchester City gegn Arsenal er
einnig áhugaverður. Deildabik-
armeistarar Nottingham For.
leika á útivelli gegn Plymouth
sem sló Wimbledon úr keppn-
inni. 3. deildarlið Bradford sem
sló 1. deildarlið Luton úr keppni
eftir vítakeppni mætir Totten-
ham á útivelli. Leyton Orient
mætir Crystal Palace á útivelli
eftir að hafa slegið Charlton úr
keppni, en Palace og Charlton
leika bæði á Selhurst Park í
London. Everton sem vann
stærsta sigurinn í síðustu umferð
fær erfiðan útileik gegn Sheffield
Utd. Derby leikur á heimavelli
gegn Sunderland og þar mætast
1. deildarlið. Oldham sem lék til
úrslita í keppninni í fyrra leikur á
útivelli gegn Leeds Utd., en Old-
ham sló Leeds Utd. úr keppninni
í fyrra.
Óvænt úrslit gætu orðið í leikj-
um Norwich sem leikur á útivelli
gegn Middlesbrough og Sout-
hampton sem er á útivelli gegn
Ipswich.
En drátturinn í heild lítur
þannig út:
Crystal Palace-Leyton Orient
Middlesbrough-Norwich
Sheffield Utd.-Everton
Plymouth-Nottingham For.
Oxford-West Ham
Manchester Utd.-Liverpool
Chelsea-Portsmouth
Coventry-Hull City
Manchester City-Arsenal
Tottenham-Bradford
Sheffield Wed.-Swindon
Áston Villa-Millwall
Derby-Sunderland
Q.P.R.-Blackburn
Ipswich-Southampton
Leeds Utd.-Oldham
Úrslit
2. deild
Blackburn-Watford 0:2
Brístol City-West Ham 1:1
Charlton-Leicester 1:2
Hull City-Oldham 2:2
Ipswich-Port Vale 3:0
Middlesbrough-Millwall 2:1
Notts County-Wolves 1:1
Oxford-Newcastle 0:0
Portsmouth-Barnsley 0:0
Sheffield Wed.-Plymouth 3:0
Swindon-Bristol Rovers 0:2
W.B.A.-Brighton 1:1
stig, Rochdale 19 og Darlington
og Northampton hafa 18 stig.
A botninum eru Wrexham
með 6 stig og Halifax með 5 stig,
en Halifax vann sinn fyrsta leik í
haust, 3:0 gegn Carlisle og voru
það jafnframt fyrstu mörk liðsins
í deildinni. Léttir fyrir Manchest-
er Utd., því þrátt fyrir að Halifax
gæti ekki skorað í 4. deild þá
hafði liðið skorað í báðum leikj-
um sínum gegn Man. Utd. í
deildabikarnum. Þ.L.A.
John Sheridan skaut Sheffield Wed.
á toppinn í 2. deild.
Staðan
1. deild
Liverpool 8 8-0-0 19: 5 24
Arsenal 8 5-3-0 16: 5 18
Tottenham 8 4-4-0 11: 3 16
Crystal Palace 8 4-4-0 13: 6 16
Manchester City 8 4-3-111; 815
Manchester Utd. 8 4-1-310:1013
Luton 8 4-1-3 10:12 13
Leeds Utd. 8 3-3-2 11: 8 12
Nottingham For. 8 3-3-212:1112
Aston Villa 8 3-2-3 13:10 11
Wimbledon 8 2-4-2 8: 9 10
Q.P.R. 8 2-3-3 12:11 9
Chelsea 8 2-3-3 13:16 9
Coventry 8 2-2-4 9:11 8
Southampton 8 2-2-4 11:15 8
Sunderland 8 1-3-4 10:15 6
Norwich 8 2-0-6 7:17 6
Everton 8 1-2-5 12:16 5
Sheffield Utd. 8 0-3-5 6:14 3
Dcrby 8 0-2-6 4:15 2
2. deild
Sheffield Wed. 10 8-2-0 25: 6 26
Oldham 11 7-4-0 20: 9 25
West Ham 11 5-6-0 20: 8 21
Millwall 10 5-4-119:10 19
Notts County 10 6-1-3 18:13 19
Middlesbrough 10 5-3-2 17: 7 18
Wolves 11 4-5-2 19:1117
Barnsley 10 5-2-3 18:13 17
Newcastle 10 4-4-2 10: 7 16
Swindon 11 4-3-4 15:16 15
Brighton 10 4-3-3 16:19 15
Ipswich 11 4-3-4 13:16 15
Bristol City 9 4-2-3 12:1414
Leicester 11 4-0-7 14:26 12
Port Vale 11 3-2-6 16:20 11
Plymoufh 11 2-5-4 11:16 11
HuII City 11 2-5-4 16:26 11
W.B.A. 10 2-4-4 10:13 10
Blackburn 11 3-1-7 16:20 10
Portsmouth 11 2-3-6 15:21 9
Bristol Rovers 9 2-2-5 12:14 8
Charlton 101-3-6 9:15 6
Oxford 101-3-612:22 6
Watford 101-2-7 6:15 5