Dagur - 16.10.1990, Side 13
Þriðjudagur 16. október 1990 - DAGUR - 13
Ráðstefiia um atvinnuþróun og sam-
starf fvrirtækja á Norðurlandi
Laugardaginn 20. október
verður haldin ráðstefna á
Akureyri, á vegum Lands-
sambands iðnaðarmanna og
svæðisskrifstofu iðnaðarins á
Norðurlandi, um byggðaþró-
un, samstarf fyrirtækja og
atvinnuþróun á Norðurlandi.
A ráðstefnunni verða flutt all-
mörg erindi, og verður hún
haldin á 4. hæð Alþýðuhúss-
ins.
Klukkan 8.30 verður afhend-
ing gagna á ráðstefnustað, en
setning verður kl. 9.00. Ráð-
stefnustjóri er Tómas Ingi
Olrich, en Haraldur Sumarliða-
son, forseti Landssambands iðn-
aðarmanna, flytur setningar-
ávarp.
Síðan er dagskráin á þá leið að
iðnráðgjafar á Norðurlandi,
Ásgeir Leifsson, Unnur Ólafs-
dóttir og framkvæmdastjóri
I.E., Sigurður P. Sigmundsson,
fara ofan í saumana á norð-
lensku atvinnulífi, fjölda fyrir-
tækja, mannafla, framleiðslu
o.fl. þáttum.
Kristján Jóhannsson, rekstrar-
hagfræðingur hjá V.S.Í., fjallar
um samstarf fyrirtækja, fyrir-
tækjanet og skilyrði sem þurfa að
vera til staðar til að slík net virki,
stjórnun í fyrirtækjanetum,
hvernig varðveita má sjálfstæði
fyrirtækja í slíku samstarfi,
miðlun, fjármögnun, opinberan
stuðning, dæmi um slíkt frá Dan-
mörku o.fl.
Guðmundur Guðmundsson,
verkfræðingur hjá Landssam-
bandi iðnaðarmanna, fjallar um
möguleika á samstarfi sjávar-
útvegs og iðnaðar í þróun véla og
tækjabúnaðar til að auka fram-
leiðni í sjávarútvegi.
Pétur Reimarsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf., flytur
erindi um landsbyggðina og
markaðinn, og kosti og galla þess
að reka fyrirtæki á landsbyggð-
inni. Velt verður upp spurning-
unni um hvort fjarlægðin frá
Reykjavík sé kostur eða galli.
Einnig ræðir hann um iðnaðar-
hefð á Akureyri, og orsakir þess
að vinnuafl er talið stöðugra á
landsbyggðinni en á höfuðborg-
arsvæðinu.
Torfi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vélsmiðjunnar
Odda hf., talar um samstarf í
markaðshópi um útflutning, lýs-
ingu á samstarfshópum eða fyrir-
tækjanetum.
Hilmar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri verktakafyrirtækis-
ins Stíganda á Blönduósi, ræðir
um samstarf fyrirtækja í bygging-
ariðnaði um stærri framkvæmdir,
og möguleika byggingariðnaðar-
ins á Norðurlandi.
Valtýr Sigurbjarnarson hjá
Byggðastofnun á Akureyri fjallar
um möguleika Byggðastofnunar til
að styðja fyrirtæki til að koma á
fyrirtækjanetum.
Erindi Guðlaugs Stefánssonar,
hagfræðings hjá Landssambandi
iðnaðarmanna, fjallar um fjár-
mögnun smáfyrirtækja á Islandi
og samanburð við Norðurlönd.
Örn D. Jónsson, formaður
FORM ísland (Félags áhuga-
manna um hönnun) og forstöðu-
maður Sjávarútvegsstofnunar
Háskóla íslands, er með erindi
sem hann nefnir vangaveltur um
möguleika iðnaðar á Norður-
landi, samstarf iðnaðar- og sjávar-
útvegsfyrirtækja, vöruþróun,
menntunarkröfur til stjórnenda
og starfsmanna, hugvit og
hönnun.
Að erindum þessum fluttum
verða „panel“- umræður, og
stjórnar Tómas Ingi Olrich þeim.
Þátttakendur verða: Haraldur
Sumarliðason, forseti L.i., Jón
Þórðarson, Háskólanum á Akur-
eyri, Ófeigur Gestsson, sveitar-
stjóri á Blönduósi, Einar
Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík,
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, Bjarni Grímsson,
bæjarstjóri í Ölafsfirði, Ingunn
St. Svavarsdóttir, formaður
Fjórðungssambands Norðlend-
inga og sveitarstjóri á Kópaskeri,
Snorri Björn Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Sauðárkróki og Valtýr
Sigurbjarnarson, Byggðastofnun
á Akureyri.
I lok ráðstefnunnar mun ráð-
stefnustjóri draga saman helstu
niðurstöður hennar. Þeir sem
áhuga hafa á að sitja ráðstefnuna
þurfa að tilkynna sig sem fyrst til
Svæðisskrifstofu iðnaðarins á
Akureyri, s. 11222. Ráðstefnu-
gjald er kr. 4.500,- EHB
Ferð Sléttbaksmanna til Bandaríkjanna:
„Við kostuðum ferð okkar sjálfír“
- segir Gunnar Jóhannsson, stýrimaður
Slcttbakur EA-304, frystitog-
ari Útgerðarfélags Akureyr-
inga, hélt til veiða um síðustu
helgi eftir um hálfs mánaðar
stopp, en unnið var að við-
gerðum á skipinu. Áhöfnin
ásamt mökum nýttu tímann og
Af frétt í Degi um heilsufar
íbúa á Akureyri fyrir septem-
bermánuð, sem fengin var úr
skýrslu frá Heilsugæslustöð-
inni á Akureyri, mætti ætla að
lungnabólgufár væri í bænum,
en svo er ekki. Skýrslan var
ranglega útfyllt af starfsmanni
Hcilsugæslustöðvarinnar og
Hvíti stafurinn er aðalhjálpar-
tæki blindra og sjónskertra við að
komast leiðar sinnar. Hann er
jafnframt forgangsmerki þeirra í
umferðinni.
Það krefst langrar þjálfunar að
læra að nota hvíta stafinn svo að
hann komi að sem mestum
notum. Þjálfunin er fólgin í að
læra að beita stafnum á réttan
hátt, læra ákveðnar leiðir og að
þekkja kennileiti. Mikilvægt er
að hlusta eftir umhverfishljóð-
um, t.d. eru fjölfarnar götur gott
kennileiti. Þegar blindur eða
sjónskertur þarf að komast yfir
götu, heldur hann hvíta stafnum
skáhallt fyrir framan sig.
Ökumenn og aðrir vegfarend-
ur taka í ríkari mæli tillit til
heldu til Bandankjanna í
skemmti- og kynnisför.
„Já, það er rétt, við erum
nýkomin frá Bandaríkjunum úr
ágætri ferð. í fréttum var sagt, að
við hefðum verið í boði Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, en
gefur því alranga mynd.
I fréttinni segir að greind
lungnabólgutilfelli séu 302, en
hið rétta er að þau voru 7. Kvef-
og hálsbólgutilfellin eru hins veg-
ar 302 og inflúensa greindist ekki
í mánuðinum. Þessari leiðrétt-
ingu er komið á framfæri og beð-
ist velvirðingar. ój
blindra og sjónskertra sem nota
hvíta stafinn. Eitt aðalvandamál
þess sem ferðast um með hjálp
hvíta stafsins eru kyrrstæðir bílar
á gangstéttum. Þessir bílar geta
valdið stórhættu, sérstaklega
vörubílar og aðrir háir bílar.
Stafurinn lendir undir bílnunt og
sá blindi verður ekki var við hann
í tæka tíð.
Skorað er á ökumenn að virða
hvíta stafinn sem stöðvunar-
merki. Vegfarendur eru hvattir
til að sýna blindum og sjónskert-
um fyllstu tillitssemi í umferðinni
og að bjóða fram aðstoð sína ef
þurfa þykir, með því að rétta
fram handlegginn svo að hinn
blindi eða sjónskerti geti fylgt
honum eftir.
það er ekki rétt. Við félagarnir af
Sléttbak kostuðum þessa ferð
sjálfir, hún var greidd að miklum
hluta úr sjóði sem við höfum
safnað og það sem vantaði upp á
var greitt af okkur. Hins vegar er
rétt að Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna sá um undirbúninginn
fyrir vestan og greiddi götu okk-
ar og okkur var boðið að skoða
verksmiðjuna þeirra," sagði
Gunnar Jóhannsson, fyrsti stýri-
maður á Sléttbak. ój
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum eignum
fer fram í skrifstofu embættis-
ins á neðangreindum tíma:
Aðalbraut 46, Raufarhöfn (neðri
hæð), eigandi Albert Leonardsson,
mánudaginn 22. okt., ’90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Trygginga-
stofnun ríkisins.
Akurgerði 7, Kópaskeri, þingl. eig-
andi Ástráður Berthelsen, mánu-
daginn 22. okt., '90, kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
íslandsbanki, Jón Ingólfsson hdl.,
Örlygur Hnefill Jónsson hdl. og
Kristinn Hallgrímsson hdl.
Brekknakot 1, Svalbarðshreppi,
þingl. eigandi Jósep Leósson,
mánudaginn 22. okt., '90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands og
Sigríður Thorlacius hdl.
Höfn II, Svalbarðsstr.hreppi, þingl.
eigandi Soffía Friðriksdóttir, föstu-
daginn 19. okt., '90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., innheimtumað-
ur ríkissjóðs, Árni Pálsson hdl. og
Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn í Húsavík.
Sýslumaður í Þingeyjarsýslu.
Skýrsla Heilsugæslustöðvarinnar ranglega útfyllt:
Lungnabólgutilfellin
eru 7 en ekki 302
15. október - alþjóðlegur dagur hvíta stafsins:
Staftirinn er forgangsmerki
blindra í umferðinni
’----------------------------------------------^
Hey til sölu!
Hef til sölu vélbundna, súgþurrkaöa tööu.
Hef leyfi sauðfjárveikivarna til aö selja hey hvert á
land sem er.
Ingimar Brynjólfsson, Ásláksstöðum.
Upplýsingar í síma 96-21956 og 91-17097 á
kvöldin.
Húsvörður óskast!
Frá og með 1. desember n.k. vantar húsvörð að
Félagsheimilinu Laugarborg í Hrafnagilshreppi.
Upplýsingar veitir Eiríkur Hreiöarsson, Grísará, í
síma 31132.
Húsnefndin.
Framkvæmdastjóri
Starf framkvæmdastjóra Ungmennasambands
Eyjafjarðar (U.M.S.E.) er laust til umsóknar.
Um er aö ræöa fjölbreytt og skemmtilegt starf sem
felst í vinnu á skrifstofu, undirbúning íþróttamóta,
samskiptum viö aöildarfélög U.M.S.E. o.fl.
Æskilegt er aö umsækjendur hafi einhverja reynslu
eða þekkingu á starfsemi ungmenna- og íþrótta-
félaga.
Gert er ráö fyrir aö viðkomandi geti hafiö störf um
áramót 1990-91 en umsóknarfrestur er til 1.
nóvember nk. Umsóknir um starfiö sendist til for-
manns U.M.S.E. Jóhanns Ólafssonar Ytra-Hvarfi
Svarfaðardal 620 Dalvík sem veitir einnig nánari
upplýsingar um starfið, sími 96-61515.
Lagerstjóri
Óskum eftir að ráða lagerstjóra til fyrirtækisins.
Um er aö ræöa stjórnun á lager sem sendir vörur til
margra landa, auk vörudreifingar innanlands.
Viðkomandi þarf aö hafa haldgóða þekkingu á tölvu-
skráningu, auk góörar tungumálakunnáttu, aö
minnsta kosti ensku.
Skriflegar umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir
24. október n.k. og gefur hann nánari upplýsingar í
síma 21900 (220).
Álafoss hf. Akureyri
Hjartans þakkir sendi ég börnum mínum,
bróöur, ættingjum og vinum sem glöddu
mig á 75 ára afmæli mínu, 7. október,
með gjöfum, blómum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
ANNA KRISTINSDÓTTIR,
Víðilundi 6 e,
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
PÁLL EMILSSON LÍNBERG
Löngumýri 32, Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. október.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 19. október, kl. 13.30 í Akur-
eyrarkirkju.
Þórhildur Skarphéðinsdóttir,
Jónína Pálsdóttir, Ásta Pálsdóttir,
Rósa Pálsdóttir, Arnór Þorgeirsson,
Páll Þór Ómarsson Hillers,
Guðmundur Garðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.