Dagur


Dagur - 16.10.1990, Qupperneq 16

Dagur - 16.10.1990, Qupperneq 16
Akureyri, þriðjudagur 16. október 1990 Kodak Express ★ Tryggðu f ilmunni þinni Gæóaframköllun \SH Jbesta ^PedíSmyndir S^Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324. Akureyri: Þrír árekstrar og einn grunaður um ölvun - umferðin hefur gengið mjög vel þrátt fyrir fremur erfiðar aðstæður Róiegt var hjá lögreglunni á Akureyri um helgina. Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur og þrír árckstrar urðu í bænum, einn þeirra all harður. Fáar rjúpur á fyrsta veiðidegi Rjúpnaveiðimenn þyrptust til fjalla snemma í gærmorgun, enda fyrsti leyfilegi rjúpna- veiðidagurinn. Samkvæmt sam- tölum við veiðimenn og tíð- indamenn síðla dags í gær var eftirtekjan á þessum fyrsta degi heldur léleg. Algengt var að menn hefðu fimm eða færri rjúpur eftir daginn. Veður var heldur óhagstætt til rjúpnaveiða í gær víða á Norður- landi. Á Norðausturlandi gekk á með rigningu og slyddu í gær, veðurlag sem rjúpnaveiðimenn hrópa ekki húrra fyrir. Páll Þormar, vel þekkt aflakló á Raufarhöfn, fór til rjúpna og hafði níu upp úr krafsinu. Hon- um þótti ekki mikið til koma, enda náði hann yfir 70 rjúpum á einum degi í fyrra þegar best lét. Páll sagðist hafa spurnir af nokkrum veiðimönnum sem hefðu náð þrem til fimm rjúpum. Nokkrir veiðimenn gengu til rjúpna á Holtavörðuheiði í gær og hafði Dagur spurnir af einum þeirra sem náði sex rjúpum. Nálægt 30 veiðimenn, flestir úr höfuðborginni, gistu í skála Ferðafélags íslands á Hveravöll- um í fyrrinótt. Peir gengu til rjúpna þar innra í gær, flestir í Þjófadal, en höfðu lítið upp úr krafsinu, að sögn Hörpu Lindar Guðbrandsdóttur, veðureftirlits- manns. Veður til rjúpnaveiða var heldur leiðinlegt á Hveravöllum í gær, skafrenningur og slæmt skyggni. óþh Húsavík: Tvítugurmaður varðúti Hörmulegt slys varð á Húsa- vík aðfaranótt laugardags er ungur maður varð úti. Það var um miðnætti á föstu- dagskvöld sem maðurinn fór úr húsi í miðbænum. Á laugardagsmorgun var hafin eftirgrennslan, en það var fyrir tilviljun um kl. 13 sem maðurinn fannst, og var þá látinn. Hinn látni fannst á óupplýstum vegi í fjörunni neðan við bakkann við Marar- braut og er vegurinn lokaður fyrir umferð. Hinn látni hét Karl Jakob Hinriksson og varð hann tví- tugur sl. föstudag. Hann lætur eftir sig unnustu. IM Að sögn Matthíasar Einars- sonar. varðstjóra lögreglunnar á Akureyri, var mjög tíðindalítið í umferðinni og virðist sem öku- menn hafi gengið hægt inn um gleðinnar dyr, keyrt varlega og ekið í samræmi við aðstæður. Matthías segir að vetrarhjól- barðar séu komnir undir bróð- urpart bifreiða í bænum og öku- menn fari varlega í þeirri hálku sem hefur myndast á götum bæjarins síðustu daga. „Mér finnst frekar ástæða til að gleðjast yfir því en hitt, eins og færðin hefur verið undanfarna daga. Ökumenn hafa brugðist mjög skjótt við og ekki tekið neina óþarfa áhættu," sagði Matthías. Samkvæmt nýlega settum lög- uni má fyrst setja nagladekkin undir bifreiðar 1. nóvember. Hins vegar gera löggæslumenn síður en svo athugasemd við notkun nagladekkja fyrir þann tíma, ef akstursskilyrði eru með versta móti, eins og þau hafa reyndar verið á Akureyri og víða á Norðurlandi síðustu daga. óþh Hatbjörg EA-23 strandaði á sandrifi skammt frá Torfunefsbryggju á Akureyri í gær. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir tókst dráttarbáti ekki að ná Hafbjörgu af strandstað um hádegisbil í gær. Það var síðan laust fyrir kl. 20 í gærkvöld sem báturinn losnaði af sandrifinu. Bátur strandaði á Pollinum Hafbjörg EA, 84 brúttólesta eikarbátur frá Hauganesi, strandaöi í gærmorgun skammt frá landi á Pollinum á Akur- eyri. Pað var um tíuleytið sem bát- urinn kenndi grunns, og stóð hann fastur á sandrifi sem geng- ur suður úr fjörunni við Strand- götu. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem skip stranda á þessum stað, en þau nást jafnan á flot sam- dægurs. Rétt fyrir hádegi kom dráttarbátur Akureyrarhafnar á vettvang til að draga Hafbjörgu af strandstað, en það tókst ekki í það sinn, því óheppilega stóð á sjávarföllum. Lágflæði var um kl. 14.00. Ákveðið var því að bíða þess að flæddi aftur að, og það var síð- an um kl. 19.40, á háflóði, sem Hafbjörgin losnaði af strand- stað. Síðast strandaði bátur á þess- um stað að vorlagi fyrir tveimur árum. EHB Tekist á um álmálið utan dagskrár á Alþingi: ;1 mikilvægt að styrkja ikjama eins og Akureyri sagði forsætisráðherra m.a. í umræðunum í gær Utandagskrárumræður fóru fram á Alþingi í gær um stööu álsamninga að beiðni Friðriks Sophussonar, fyrsta þing- manns Reykvíkinga. Friðrik beindi mörgum spurningum til ráðherra í ríkisstjórninni og fjöldi þingmanna tók til máls um álversmálið. Umræðu var frestað síðdegis í gær og Athugun lögreglunnar á Akureyri: Flestir spenntir í aftursæti Samkvæmt athugun lögregl- unnar á Akureyri var nokkuð almenn notkun bílbelta í aftur- sæti bifreiða í bænum fyrstu dagana eftir að lög þar að lút- andi tóku gildi þann 1. október sl. „Við gerðum þessa athugun bæði að morgni og kvöldi fyrstu dagana eftir að bílbeltanotkun í aftursæti var lögleidd. Við vorum satt að segja undrandi hversu alrnenn bílbeltanotkunin var,“ sagði Matthías Einarsson, varð- stjóri hjá lögreglunni á Akureyri. „Hins vegar er ég hræddur um að farþegar hafi slakað á bílbelta- notkuninni síðustu dagana. Reynslan er sú að það þarf stöð- ugt að reka áróður fyrir þessu.“ Síldarvertíðin: Búið að salta í 1500 tunnur - þar af 414 á Vopnafirði Það sem af er síldarvertíð hef- ur fremur lítið aflast. í gær fengust þær upplýsingar hjá Síldarútvegsnefnd að í það heila væri búið að salta 1500 tunnur. Mest hefur verið salt- að á Fáskrúðsfiröi, en á Vopnafirði var í gær búið að salta í 414 tunnur. Vertíðin hefur farið rólega af stað og fremur lítið hefur aflast. Bátarnir hafa verið að fá nokkuð væna síld inni á fjörðunum eystra og hentar hún vel til söltunar fyr- ir síldarkaupendur í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Saltað hefur verið á verstöðv- um á svæðinu frá Vopnafirði í norðri til Hafnar í Hornafirði í suðri. óþh þráðurinn aftur tekinn upp kl. 21 í gærkvöld. Þá var fjöldi þingmanna á mælendaskrá. Fátt nýtt kom fram í umræðunum, en meira um að ræða endurtekið efni. Friðrik Sophusson gagnrýndi viss vinnu- brögð iðnaðarráðherrra í álmál- inu og sagði að sú ríkisstjórn ætti skilyrðislaust að víkja sem ekki gæti náð samstöðu um svo mikil- vægt mál sem nýtt álver væri. Friðrik sagði að lokum. „Þetta er ekki spurning um hvað var gert rangt, heldur hvernig það var gert.“ Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, hóf mál sitt á þessa leið: „Stóran hlut á sá sem upphafinu veldur,“ og vísað þar til setu Friðriks í stóli iðnaðar- ráðherra þegar viðræðum um nýtt álver var hrundið af stað. Steingrímur sagði að óháð nýju álveri þyrfti að endurskoða byggðamótun í landinu og minnti á starf byggðanefndarinnar svo- kölluðu í því sambandi. „Stað- setning nýs álvers mun ekki stuðla að þeirri byggðaþróun sem menn dreymdi um. Ég tel mikil- vægt að Byggðastofnun verði efld, landinu verði skipt upp í þjónustusvæði og byggðakjarnar verði styrktir. Sem dæmi um byggðakjarna nefni ég Akur- eyri,“ sagði forsætisráðherra. Hann sagði að ríkisstjórnin væri ekki búin að samþykkja neinn þátt álmálsins, en vonaðist til að það yrði gert í heild sinni um næstu mánaðamót. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, rakti gang álmálsins og útskýrði fyrir þingheimi einstaka þætti þess. Hann kvaðst vera bjartsýnn á niðurstöðu málsins eftir að þingmenn væru búnir að kynna sér málið betur. Jón endaði mál sitt á svohljóð- andi vísu: Tækifærín gríptu greitt, giftu mun það skapa. Álið skaltu hamra heitt, að hika er sama og tapa. -bjb Hrafnagil í Eyjafirði: Piltur féll af flórhjóli Piltur hlaut áverka í andliti þegar hann féll af fjórhjóli skamnit frá barnaskólanum á Hrafnagili í Eyjafirði um kl. 16 í gær. Pilturinn, sem ekki hafði réttindi til aö aka fjórhjóli, ók því aftan á annað fjórhjól og féll viö það af hjólinu. Hann var fluttur á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri síðdegis í gær, en meiðsli hans voru minni en óttast var. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.