Dagur - 18.10.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 18.10.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 18. október 1990 - DAGUR - 11 Þjódleg list frá Túrk- menistan kynnt á íslandi - sýningar bæði á Akureyri og Húsavík Þjóðlaga- og dansflokkurinn Súmbar frá Túrkmenistan, einu af Mið-Asíulýðveldum Sovétríkj- anna, er væntanlegur til íslands í síðustu viku október. Kemur flokkurinn fram á tónleikum og danssýningum víða um land, m.a. á Akureyri og Húsavík. Súmbar-flokkurinn og nokkrir framámenn í menningarmálum í Túrkmenistan koma hingað til lands í tilefni Sovéskra daga MÍR, Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna, en félagið hefur efnt til slíkra daga undanfarin 14 ár og kynnt hverju sinni sérstakiega þjóðlíf og menningu einstakra sovétlýð- velda. Túrkmenistan er 15. og síðasta lýðveldið, sem sovéskir dagar MÍR eru þannig sérstak- lega helgaðir. Gestirnir frá Túrkmenistan koma til íslands þriðjudaginn 23. október. Sama kvöld verður opn- uð sýning á ljósmyndum og ýms- um þjóðlegum munum frá Túrk- menistan í sýningarsalnum að Vatnsnesvegi 12 í Keflavík. Dag- inn eftir, miðvikudaginn 24. okt. kl. 20.30, verður svo fyrsta sýn- ing Súmbar-flokksins í íþrótta- húsinu við Sunnubraut í Keflavík. Á fimmtudag, 25. okt., liggur leið Túrkmenanna til Akureyrar og verður sýning í Sjallanum um kvöldið kl. 20.30. Daginn eftir, föstudaginn 26. okt., verður svo sýning í íþróttahúsinu á Húsavík. Eftir ferðina til Norðurlands verður Súmbar-flokkurinn með sýningu í félagsheimilinu Gunn- arshólma í Áustur-Landeyjum kl. 14 sunnudaginn 28. okt. og lokasýning flokksins verður í Háskólabíói, sal 2, mánudags- kvöldið 29. okt. kl. 20.30. Súmbar - þjóðlaga- og dans- flokkurinn, kemur frá Kara- Kalinsk, fjallahéraði í Túrkmen- istan. Flokkurinn var stofnaður 1976 og starfa með honum konur og karlar úr ýmsum starfsgrein- um. Á efnisskrá flokksins eru verk túrkmenskra tónskálda og tónskálda frá öðrum sovétlýð- veldum, svo og þjóðdansar frá Túrkmenistan og víðar. Hefur ætíð verið lögð áhersla á mjög vandaða efnisskrá og sérstæða. Flokkurinn hefur sýnt víða í Sovétríkjunum og hlotið marg- víslega viðurkénningu, m.a. í Moskvu 1985 og 1987. Þá kom hann og fram á hátíð á Spáni fyrir nokkrum árum. í sýningum sínum segja lista- menn Súmbar-flokksins frá Túrk- menistan, þessu syðsta lýðveldi Sovétríkjanna á litríkan, og Barnaskóli Akureyrar: Boðið til kaffi- drykkju í dag á vígsluaftnæli í tilefni af 60 ára vígsluafmæli skólahúss Barnaskóla Akureyrar 18. október 1990 býður skólinn skólanefnd Akureyrar, bæjar- stjóra og bæjarráði ásamt full- trúum úr hópi kennara og ann- arra starfsmanna til kaffidrykkju að loknum skólanefndarfundi í dag, 18. október, kl. 15.30. Klukkan 17 er starfsmönnum skólans boðið í kaffi. Foreldrafélag Barnaskóla Akureyrar hefur haft forgöngu um prentun merkis til minningar um þessi tímamót, sem verður afhent nemendum á afmælisdag- inn. áhrifamikinn hátt án nokkurra orða. Þegar þeir koma fram á sviðið í þjóðbúningum og við seiðandi hljóðfæraslátt, draga þeir upp mynd af sérstæðu þjóð- lífi Túrkmena. í dansinum endur- speglast hefðir, siðir og venjur þjóðarinnar og þjóðareinkennin. Þar er sagt frá lífi og starfi liirð- ingjanna, gestrisni Túrkmena, brúðkaupssiðum og virðingu fyrir ellinni Styrkir til bifreiðakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihömluðu fólki styrki til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1991 fást hjá upplýsinga- og afgreiðsludeildum Tryggingastofnun- ar ríkisins, Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Tryggingastofnun ríkisins. +reyndir matreiðslumenn +úrvals hráefni Svínalæri- steik úrb. 998 V. Fylltar svínasíður 625. J V Svínahnakki sneiddur 747 J V

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.