Dagur - 18.10.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 18.10.1990, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 18. október 1990 - DAGUR - 13 Grenivíkurkirkja. Messa n.k. sunnudag kl. 11.00 árdegis. Sóknarprestur. Akureyrarkirkja. Sunnudagur 21. október: Sunnudagaskóli kl. 11.00. Öll börn velkomin. Guðsþjónusta kl. 14.00. Ræðuefni: Frelsið og syndir feðr- anna. Sálmar: 3, 9, 532. Eftir predikun sálmar: 23, 292. Bræðrafélagsfundur eftir messu. Mánudagur 22. okt: Biblíulestur kl. 20.30. Fimmtudagur 25. okt: Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 17.15. Sóknarprestar. Safnahúsið Hvoll Dalvík opið á sunnudögum frá kl. 13-17. Náttúrugripasafnið á Akureyri, sími 22983. Opið sunnudaga frá kl. 13.00-16.00. Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást í Bókabúð Jónasar. Minningarspjöld Styrktarsjóðs Kristnesspítala fást í Bókvali og á skrifstofu Kristnesspítala. Minningarkort Sjálfsbjargar Akur- eyri fást hjá eftirtöldum aðilum: Bókabúð Jónasar, Bókvali, Akri, Kaupangi, Blómahúsinu Glerárgötu 28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1. Yinarhöndin, Styrktarsjóður Sól- borgar, selur minningarspjöld til stuðnings málefna þroskaheftra. Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð og Blómahúsinu við Glerárgötu. Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöldum stöðum: Hjá Ásrúnu Skarðshlíð 16a, Rammagerðinni Langholti 13, Judith Langholti 14, í Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlfð, versluninni Bókval, Bókabúð Jónasar, Akri Kaupangi, Blóma- húsinu Glerárgötu og hjá kirkju- verði Glerárkirkju. Grýtubakkahreppur - Grenivík. Munið eftir minningarspjöldum Steinunnar Sigursteinsdóttur. Til sölu hjá Eydísi í Litluhlíð 2g, sími 21194. Minningarspjöld Náttúrulækninga- félagsins á Akureyri fást í Bókvali, Amaró og Blómabúðinni Akri í Kaupangi. Minningarkort Heilaverndar fást f Blómahúsinu Glerárgötu 28. Stöllurnar á myndinni, þær Sigrún María Hallsdóttir og Rakcl Geirsdóttir, efndu til hlutaveltu og söfnuðu kr. 1732,00, sem þær hafa afhent Barnadeild FSA. Mynd: KL Mynd: KL Akureyri: Mannabreytingar í Karakter Hljómsveitinni Karakter á Akureyri hefur bæst góður liðsauki. Til liðs við sveitina eru gengin þau Ásgrímur Ang- antýsson, hljómborðsleikari, og söngkonan Linda Mjöll Gunn- arsdóttir. Aðrir í Karakter eru Ármanu Gylfason, bassaleikari, Trausti Ingólfsson á trommur og Ingvar Grétarsson, sem sér um gftarinn og sönginn. Níels Ragnarsson, hljómborðsleikari, er hættur í hljómsveitinni cn skarð hans fyllir Ásgrímur Angantýsson. Ilvur fórstu úr sokkunum Svava? - kabarett Freyvangsleikhússins Árlegur kabarett Freyvangsleik- hússins verður í Freyvangi dag- ana 19. og 20. október nk. Að venju er efnið sótt í atburði þá í sveitinni sem teljast markverðir og að þessu sinni er af nógu að taka þar sem sameining sveitar- félaganna innan Akureyrar er á næstu grösum. Allt ritað mál sem þarna verður flutt er frumsamið og tekur sýningin um klukku- stund í flutningi. Sýningar hefjast báða dagana kl. 22.00. Á föstudagskvöldið verður kaffihlaðborð innifalið í verði sýningarinnar en þá kostar miðinn kr. 1.000,- Á laugardaginn verður dans- leikur eftir sýningu og er þá miða- verð kr. 2.000,- Forsala aðgöngumiða verður í Freyvangi fimmtudagskvöldið 18. október og hefst kl. 20.00. Á undanförnum árum hefur verið uppselt á seinni sýningu kabaretts- ins þannig að vissara er að tryggja sér miða í tíma. Hjartans þakkir sendi ég börnum mínum, barnabörnum, langömmubörnum, ættingjum og vinum sem glöddu mig á 80 ára afmæli mínu 9. október. Guð blessi ykkur öll. ANNA SIGURÐARDÓTTIR, Norðurgötu 60. Ingólfur Kristinsson verður 80 ára laugardaginn 20. október. Hann tekur á móti gestum að Lóni milli kl. 15.00 til 18.00 á afmælis- daginn. HEILSUQÆSLUSTÖÐIN A AKUREYRI Inflúensu- bólusetning Bólusett verður við inflúensu 15.-30. nóvember 1990. Þeir einstaklingar sem bólusettir voru á síðasta ári og vilja fá bólusetningu nú, þurfa ekki að panta. Aðr- ir þurfa að panta á Heilsugæslustöðinni sími 22311 í síðasta lagi 26. okt. Fyrirtæki eða hópar þurfa að panta, þó að bólu- sett hafi verið í fyrra. JM Framsóknarfólk á Dalvík Aðalfundur Framsóknarfélags Dalvíkur verður í Jónínubúð þriðjudaginn 23. okt. kl. 20.30. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf, lagabreitingar, kosning fulltrúa á kjördæmisþing, kosning fulltrúa á flokksþing, til- nefning fulltrúa til kjörnefndar v/alþingiskosninga, önnur mál. Kaffiveitingar. Stjórnin. Framsóknarmenn Framsóknarfélag Aðaldæla, heldur aðalfund sunnudaginn 21. október í Ýdölum, kl. 13.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Inntaka nýrra félaga. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Kosning fulltrúa á flokksþing. Tilnefning fulltrúa í prófkjör vegna alþingiskosninga. Önnur mál. Féiagar fjölmennið á fundinn. Stjórnin. Lagerstjóri Óskum eftir að ráða lagerstjóra til fyrirtækisins. Um er að ræða stjórnun á lager sem sendir vörur til margra landa, auk vörudreifingar innanlands. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða þekkingu á tölvu- skráningu, auk góðrar tungumálakunnáttu, að minnsta kosti ensku. Skriflegar umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir 24. október n.k. og gefur hann nánari upplýsingar í síma 21900 (220). Álafoss hf. Akureyri *t Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, PÁLL EMILSSON LÍNBERG Löngumýri 32, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. október. Jarðarförin fer fram föstudaginn 19. október, kl. 13.30 í Akur- eyrarkirkju. Þórhildur Skarphéðinsdóttir, Jónína Pálsdóttir, Ásta Pálsdóttir, Rósa Pálsdóttir, Arnór Þorgeirsson, Páll Þór Ómarsson Hillers, Guðmundur Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.