Dagur - 25.10.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 25.10.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 25. október 1990 fréttir Vöruílutningur fyrir KEA: Samningur við Skipadeild Sambandsms undirritaður vörubifreiðafloti KEA notaður fyrst um sinn Eins og áður segir mun Skipa- deildin taka við þessum flutning- um næstkomandi fimmtudag. Til að byrja með verður vörumót- taka á Akureyri í því húsnæði sem Bifreiðaafgreiðsla KEA hef- ur haft til umráða en í Reykjavík hjá Landflutningum. Skip á vegum Skipadeildar munu koma til Akureyrar hvern mánudag og lestar skip á norður- leið í Reykjavík á miðvikudög- um. Stefán Eiríksson, staðgengill forstjóra Skipadeildar Sam- bandsins, segir samninginn hag- stæðan. Aðspurður hvort Skipa- deildin muni kaupa bifreiðaflota KEA svarar hann á þann veg að viðræður séu í gangi um ýmsa hliðarþætti þessa samnings, m.a. Dögun hf.: Röst SK með sfldarafla tfl Danmerkur góð innflarðarrækja á Skagafirði Undirritaður hefur verið samningur milli Kaupielags Eyfírðinga og Skipadeildar Sambandsins þess efnis að Skipadeildin muni taka við öll- um vöruflutningum fyrir KEA frá 1. nóvember næstkomandi. Skipadeild Sambandsins átti lægsta tilboð í þessa flutninga þegar þeir voru boðnir út fyrr í haust. Skipadeildin bauð bæði sjó- og landflutninga. Árleg flutninga- þörf KEA og samstarfsfyrirtækja er um 10 þúsund tonn og er talið að flytja megi um þriðjung þessa með skipum. Að samkomulagi varð að Skipadeildin muni reka umrædda bifreiðastarfsemi að miklu leyti á Akureyri og til að byrja með nota hluta af þeim bifreiðum sem eru eigu KEA. Ekið verður daglega milli Akureyrar og Reykjavíkur, þ.e. hvern virkan dag fer bíll frá Akureyri og samtímis annar frá Reykjavík. Til að nýta bílaflot- ann eins vel og kostur er munu bílarnir flytja vörur fyrir hvern sem er. Góð veiði er þessa dagana hjá þeim bátum, er leggja upp hjá Dögun hf. á Sauðárkróki, í innfjarðarrækju á Skagafírði. Fjórir bátar eru að veiðum, þar af einn frá Hofsósi. Röst SK, bátur Dögunar, er farinn á síld austur fyrir land og búið er að fá heimild frá utanríkis- og sjávarútvegsráðuneytinu til að sigla með aflann á erlendan markað. Skilyrði fyrir því að leyfi til síldveiða væru veitt hingað til hefur verið að landað væri innan- lands og langt er síðan siglingar voru leyfðar síðast. Að sögn Ómars Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Dögunar hf., var kastað fyrst í gær og reiknaði hann með því að Röstin sigldi í dag með 130-150 tonn af síld ísaðri í kassa. Selja á á fiskmark- aði í Hirtshals í Danmörku. Ómar sagðist búast við því að fá Atvinnumálanefnd Akureyrar hefur auglýst eftir starfsmanni til að vinna að uppbyggingu og nýsköpun atvinnutækifæra. Starfsmaðurinn verður ráðinn um óákveðinn tíma, en atvinnumálanefnd hefur ekki haft sérstakan starfsmann undanfarið eitt og hálft ár. Heimir Ingimarsson, formaður atvinnumálanefndar, segir að ráðning þessi sé í samræmi við minnsta kosti betra verð fyrir síldina með þessu móti, en með því að setja hana i bræðslu. Ef siglingin gengur vel fyrir sig má reikna með fleiri ferðum hjá Röstinni að sögn Ómars. Úthafsrækjukvótinn hjá Dög- un og þeim bátum er leggja upp hjá henni, er uppurinn og inn- fjarðarrækjan því ein eftir. Þeir bátar sem eru of stórir fyrir inn- málefnasamning meirihlutaflokk- anna í bæjarstjórn. Verksvið starfsmannsins sé að vinna við atvinnuþróun og einbeita sér að nýsköpun, atvinnutækifæra í bænum, Að sögn Heimis álitu margir að samstarf atvinnumálanefndar og Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar dreifði kröftunum um of. Því væri besta ráðið að fá sérstakan starfsmann til atvinnumálanefnd- ar. „Brýn þörf er á að hafa mann flutningabílana. Samningurinn er tímabundinn og uppsegjanlegur af beggja hálfu. „Þetta er því ekkert sem varir til eilífðar þótt við ætlum okkur að vera í þessu a.m.k. fram á næstu öld,“ segir Stefán. JÓH fjarðarveiðar eru því farnir í annað eins og til að mynda Röstin. Bátar hjá Dögun hf. sem eru í innfjarðarrækju leggja upp 20- 25 tonn á viku til samans og segir Ómar að það dugi fyllilega til að halda uppi vinnu í rækjuvinnsl- unni. Hann sagði jafnframt að kvótamálin stæðu nokkuð vel, en þó yrði trúlega eitthvert stopp í desember til viðhalds á bátum og öðru. SBG í fullu starfi á þessu sviði, að minnsta kosti um óákveðinn tíma. Við teljum að maður með mikið frumkvæði og dugnað, með sterka bæjarstjórn að baki sér, geti skilað miklum árangri. Við trúum því. Verkefnin eru ærin, og aldrei meiri þörf en nú á að leggja kapp á þessi mál,“ segir Heimir. Umsóknarfrestur um starf þetta rennur út 5. nóvember. EHB Þtö gerfö befri mafarkaua iKEAHETTO Atvinnumálanefnd Akureyrar: Auglýst eftir starfsmanni Fransman franskar kartöflur 1,5 kg ... kr. 260 Kjúklingavængir stubbar 1 kg.......kr. 150 Blanda 1 lítri ....................kr. 146 Blanda Vi lítri ...................kr. 73 WC pappír m/8 rúllum ..............kr. 149 Eldhúspappír m/2 rúllum ...........kr. 84 Barnableyjur 1 pakki...............kr. 530 Athugið opið virka daga frá kl. 13.00-18.30. Laugardaga frá kl. 10.00-14.00. iCynnist NEITTÓ-ver&M KEANETTÓ Laxárfélagið: Stórveisla í Ýdölum á laugardag - 50 ára afmælisins minnst með bændum Mikiö verður um dýrðir í Ýdöl- laugardagskvöld þegar Laxár- um í Aðaldal næstkomandi félagið efnir til veislu í tilefni af Veiðimaður mundar stöngina á bökkum Laxár. 50 ára afmæli félagsins. Bænd- um á bökkum Laxár í Aðaldal verður boðið til veislunnar og er búist við um 200 manns. Orri Vigfússon, formaður Lax- árfélagsins, segir að til veislunnar komi fjöldi gesta úr Reykjavík, ásamt félögum frá Akureyri og Húsavík. Veislan hefst með for- drykk en síðan verða veisluföng á hlaðborði þar sem að sjálfsögðu verða laxaréttir ýmiss konar í önd- vegi. Nægir þar að nefna graflax, sítrónulax, reyktan lax, innbak- aða laxaböku og lax í krydd- hlaupi af fjölmörgum réttum á matseðlinum. í afmælishófinu verða flutt ávörp, nokkrir bændur heiðraðir og annað gert til að minnast þess- ara tímamóta. JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.