Dagur


Dagur - 25.10.1990, Qupperneq 4

Dagur - 25.10.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 25. október 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGA, ÍSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASfMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÓNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Lækkun lyflakostnaðar Útgjöld vegna lyfja eru orðin einn af kostnaðar- sömustu þáttunum í ríkisfjármálum. Nú bendir allt til að lyfjakostnaður ríkissjóðs verði um 3,5 milljarðar á þessu ári og fari að minnsta kosti 700 milljónir fram úr áætlun. Á síðasta ári nam útsöluverð lyfja úr lyfja-* verslunum um 4,1 milljarði króna. Af því var innkaups-1 verð til heildsala aðeins um 1,8 milljarðar. Lyfja- pakkinn hækkaði því um 128,9% frá heildsölu til smá- sölu ef söluskattur er reiknaður með. Ef útsöluverð lyfja fyrir 4,1 milljarð er reiknað til verðlags í janúar 1990 lætur það nærri að vera um 5 milljarðar króna eða um 80 þúsund á hverja fimm manna fjölskyldu á land- inu. Þessar upplýsingar koma fram í grein í 9. tbl. tímaritsins Frjálsrar verslunar. í sömu grein er gerður samanburður á verðmyndun lyfja á íslandi og í nokkrum öðrum löndum. Þar kemur í ljós að framleiðandi lyfja fær aðeins 36%, innflytjandi tekur 11 % en lyfsali fær í sinn hlut 53% af því heildar- verði sem greitt er fyrir lyf í lyfjabúðum á íslandi. í Danmörku er þessu öðruvísi háttað. Smásöluálagning lækkar eftir því sem lyfið er dýrara. Ódýrustu lyf bera 65% álagningu, svipaða og hér, en álagningin lækkar síðan í 55% og 35% eftir því sem framleiðsluverð fer hækkandi. Sami háttur er hafður á í Svíþjóð. Þar er hæsta smásöluálagning 52% en 28% á dýrari lyfjum. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið lét gera samanburð á lyfjakostnaði á íslandi og í Svíþjóð fyrir ári. í þeim samanburði kom meðal annars í ljós að inn- kaupsverð lyfja var hærra á íslandi í 9 hverra 10 til- vika. í athuguninni voru borin saman 977 lyf, sem voru á boðstólum í báðum löndunum. Samanlagður pakki þessara lyfja kostaði 402,2 milljónir króna í Svíþjóð en 625,9 milljónir á íslandi á verðlagi ársins 1987. Þótt söluskattur á íslandi sé dreginn frá þessum mismun er hann eftir sem áður geysimikill. í könnun sem Frjáls verslun birtir um verðmismun 22 lyfja kemur í ljós að hann er á bilinu 33% til 182% eða að meðaltali um 70% hærri á íslandi en í Svíþjóð. Stéttarfélag lyfjafræðinga hefur sent frá sér tillögur starfshóps þar sem lagt er til að stofnað verði hlutafé- lag um rekstur lyfjaverslana, sem fái einkarétt á allri smásöludreifingu lyfja í landinu. Lyfjafræðingar benda á að með þessari lausn náist verulegur sparnaður. Eitt fyrirtæki hafi betra yfirlit yfir lyfjamarkaðinn og nái því hagkvæmari innkaupum. Á þennan hátt sé einnig unnt að tryggja öllu landinu sambærilega þjónustu án tillits til stærðar markaðar á hverjum stað. Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, segir alveg ljóst að fram að þessu hafi ekki náðst nægilegur árangur varðandi lækkun lyfjakostnaðar. Smá- söluálagning sé alltof há og þótt ráðstafanir sem gerð- ar voru hafi skilað nokkrum árangri, megi betur gera ef duga skal. Hann segir að í ráðuneytunum sé nú ver- ið að huga að ýmsum leiðum til að ná lyfjaverði niður. Endanlegar niðurstöður séu ekki fengnar en reifaðar hafi verið hugmyndir um stofnun hlutafélags um rekstur lyfjaverslunarinnar eða gefa hana meira frjálsa í einhverju formi. Lækkun lyfjakostnaðar er mikið hagsmunamál fyrir íslendinga og því tímabært verkefni sem Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráð- herra, hefur hrundið af stað í þeim efnum. ÞI Sjallinn á Akureyri: Rokk-trúður og tryllar meyjar Veitingahúsið Sjallinn á Akur- eyri hóf um síðustu helgi sýning- ar á verkinu Rokk-trúður og trylltar meyjar. í sýningunni er fylgst með ungum sveitapilti, Lúðvíki Lyngdal og fyrstu ferð hans til höfuðborgarinnar. í sýningunni koma fram fjórir landsþekktir söngvarar ásamt hljómsveit, dansarar frá Dans- skóla Sibbu og dansarnir Jóhann- es Bachmann og María Huldars- dóttir en Jóhannes er jafnframt höfundur handrits. Kynnir er Rósa Ingólfsdóttir. Kristján Logason ljósmyndari Dags mætti með myndavélina á sýningu Sjallans um síðustu helgi og tók þá þessar myndir. -KK Eigendaskipti hafa orðið á tískuvöruversluninni Amor í Hafnarstræti 88 á Akureyri. Sólveig Sigurjónsdóttir hefur keypt verslunina af Erling Aðalsteinssyni kaupmanni í Herrabúðinni. Sólveig verður áfram með sömu vörumerki í versluninni og einnig nýjar vörur frá París og Amsterdam og nærfatnað frá Skiny. A myndinni er hinn nýi eigandi Amors, ásamt starfsmanni sínum Katrínu Rögnvaldsdóttur. Mynd: Goiii Hátíðarkór í minningu Björgvins Guðmundssonar Árið 1991 verður 100 ára afmæli Björgvins Guðmundssonar tón- skálds haldið hátíðlegt með ýmsu móti á Akureyri og minning þessa merka tónlistarmanns Föstudaginn 26. október næst- komandi verður gestum Sjallans Akureyri: Kynningáþró- unarheimspeki Kynning verður haldin á Akur- eyri, ef næg þátttaka fæst, á þróunarheimspeki, stöðu mannsins í þróuninni og skyldu efni. Skráning fer fram í kvöld, laugardaginn 27. okt. og þriðju- daginn 30. okt., frá kl. 18-19 alla dagana. Skráning fer fram í símum 22093 (Anna) og 25728 (Gunnar). Skráningargjald er kr. 1500.-. heiðruð. Að þessu tilefni verður m.a. stofnaður sérstakur kór, hátíðar- kór, sem mun æfa og flytja ora- tóríuna Strengleika eftir Björgvin, boðið upp á dansatriði á heims- mælikvarða en þá skemmta í Sjallanum tvö danspör frá Dan- mörku. Pörin eru Danmerkur- meistarar í Lambada, hvort í sín- um flokki, það er að segja ungl- inga- og fullorðinsflokki. Pörin koma við hér á íslandi á leið sinni á heimsmeistaramótið í Lambada sem fram fer í New York innan skamms. Pörin verða hér á landi einungis þessa helgi |og koma fram á einni skemmt- un í Reykjavík og svo í Sjallan- um á Akureyri. Það er því ástæða til að hvetja fólk til þess að missa ekki af þessu einstæða tækifæri til að sjá fremstu danspör frænda Okkar Dana. (Fréttatikynning) með texta Guðmundar Guð- mundssonar, í samvinnu við Kammerhljómsveit Akureyrar og landsþekktra einsöngvara, á sérstökum minningartónleikum sem haldnir verða í íþrótta- skemmunni í júní á næsta ári, undir stjórn Roars Kvam. Hann hefur að þessu tilefni, síðastliðin tvö ár, unnið að útsetningu undirleiks verksins fyrir sinfóníuhljómsveit. En þetta verk var sérstaklega valið eftir ábendingu dóttur tónskálds- ins, Margrétar Björgvinsdóttur. Verður þetta frumflutningur Strengleika í þessum búningi og jafnframt í fyrsta sinn sem verkið er flutt í heild. En áður hefur Kantötukór Akureyrar, ásamt einsöngvurum, undir stjórn höfundar flutt verkið hérlendis og erlendis, en þá með píanó- undirleik og í styttri mynd. Allir söngunnendur á Akureyri og nágrenni eru boðnir velkomn- ir til að taka þátt í þessum flutn- ingi og heiðra þar með minningu tónskáldsins. Æfingar verða á sal Tónlistar- skólans á Akureyri laugardaga kl. 15.00-17.00. Þeir sem áhuga hafa á að starfa í þessum kór, mæti á æfingu nk. laugardag, eða hafi samband við Roar í síma 21429, eða 24769 á kvöldin. Sjallinn: Fremstu danspör Dana í heimsókn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.