Dagur - 25.10.1990, Page 9

Dagur - 25.10.1990, Page 9
Fimmtudagur 25. október 1990 - DAGUR - 9 Fæddur 9. júlí 1925 - Dáinn 17. október 1990 Genginn er góður drengur, langt um aldur fram. Þegar „sláttu- maðurinn slyngi" heggur skarð í raðir okkar samferðamannanna verður okkur hverft við, jafnvel þótt aðdragandi hafi verið nokk- ur og endalokin auðsæ. Þannig var það miðvikudaginn 17. októ- ber, er okkur bárust þau tíðindi, að vinur okkar og frændi Sigurð- ur Gunnarsson væri allur. í nokkra mánuði hafði hann barist við sjúkdóm sinn, æðrulaus og yfirvegaður, umvafinn ástúð og umhyggju Öddu systur sinnar. Hann kvartaði ekki þótt líðanin væri ekki alltaf sem best. Sigurður var fæddur á Brett- ingsstöðum, sonur hjónanna Emilíu Sigurðardóttur og Gunn- ars Tryggvasonar sem lengst af bjuggu þar. Þeirra hjóna minnast margir vegna hjálpsemi þeirra, góðvildar og gestrisni. Á Brett- ingsstöðum ólst Sigurður upp ásamt systkinum sínum Tryggva, Óla, Ingveldi og Öddu. Á næstu bæjum, Efri-Brett- ingsstöðum og Jökulsá, uxu einnig úr grasi frændsystkini Sigurðar og var mikill samgangur og vinátta á milli heimilanna. Flateyjardalur er afskekkt byggð- arlag sem hlaut þau örlög að leggjast í eyði, sem svo mörg önnur í okkar landi. Akvegur var enginn til annarra byggða og átti það stóran þátt í brottför fólksins. Fljótlega var þó ruddur vegur yfir Flateyjardalsheiði og Sigurður eignaðist trausta fjalla- bifreið. Nú gafst tækifæri fyrir Dalbúa að leita á fornar slóðir til sumardvalar á æskustöðvum. Margar ferðirnar ók Sigurður yfir heiðina, fram og til baka með fólk og farangur. Það taldi hann ekki eftir sér. Þetta var hans líf og yndi. Síðar þegar fleiri fjöl- skyldur eignuðust eigin bifreið var oft farið í samfloti yfir heið- ina og var þá Sigurður sjálfkjör- inn fararstjóri, sem vísaði veginn og gaf góð ráð. Við áttum því láni að fagna að slást í hóp frænd- fólksins á Flateyjardal, er við hófum sumardvalir okkar þar og ljúfar eru minningarnar sem tengjast öllu þessu fólki. Gott var að leita til Sigurðar, ef eitthvað vantaði við endurbyggingu húss- ins okkar. Hann lagði alltaf gott til málanna og oft var hann mætt- ur með verkfæratöskuna sína til- búinn með sína högu hönd. Margar stundina sátum við á spjalli innan dyra eða utan, drukkum ómælt kaffi og rifjuðum upp sögur af mönnum og málefn- um. Okkur er kunnugt um að margir sem til okkar komu á Efri- Brettingsstöðum eru þakklátir fyrir kynnin af Sigurði. Frá þeim viljum við nú senda kveðjur, ekki síst föður og tengdaföður okkar Birni Þórðarsyni á Akureyri. Sigurður var vinmargur maður, enda ræktaði hann vinátt- una á einstakan hátt. Hann var margfróður, ljóðelskur og gest- risinn svo af bar. Margir munu nú sakna vinar í stað. Síðastliðið sumar þegar Sigurður var sjúkur orðinn ósk- aði hann þess heitast að komast til æskustöðvanna strax og snjóa leysti. Sannaðist þá best hið forn- kveðna: „Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til.“ Sú ósk rættist og þegar haust- litirnir höfðu sett inn svip á óvenjufagran gróður sumarsins kvaddi hann Dalinn sinn í síðasta sinni. Að leiðarlokum viljum við þakka Sigurði og jafnframt Öddu systur hans órofa vináttu öll árin, allar góðu gjafirnar sem minna okkur á hvers virði góður vinur er í lífi hvers manns. Orð milli vina gerir daginn góðan það gleymist ei en býr í hjarta þér sem lítið fræ það lifir og verður að blómi og löngu seinna góðan ávöxt ber. (Gunnar Dal) Við sendum systkinum Sigurð- ar, fjölskyldum þeirra, frænd- fólki og vinum innilegar samúð- arkveðjur. Erla og Örn. Við fráfall Sigurðar Gunnarsson- ar rifjast upp minningar um góð- an og greiðvikinn granna. Sigurð- ur var fæddur á Brettingsstöðum Flateyjardal, elstur fimm syst- kina. Þar sleit hann barnsskónum í sveitasælu við fjall og strönd. Barnaskólanám sitt stundaði hann í Flatey undir handleiðslu Jóhannesar Bjarnasonar kenn- ara, höfundar bókarinnar, Fagurt er í Fjörðum. Þá lá leiðin að Laugum í Reykjadal. Að því loknu hóf hann margvísleg störf við sjávarútveg og var á skipum flotans m.a. við síldveiðar. Sigurður átti ekki langt að sækja sjómannsblóðið, því afi hans Sigurður Hrólfsson á Jökulsá var þekktur fyrir trúmennsku og seiglu sem hákarlaskipstjóri. Við Vélskóla íslands öðlaðist hann réttindi sem vélstjóri og starfaði fumlaust og af festu lengst af á skuttogaranum Brett- ingi. Efst í huga Sigurðar var þó það sem fram kemur í kvæðinu, „Blessuð sértu sveitin mín“, því á j vordögum gekk hann frá borði og j hélt á sínum ljósbrúna Land Rover út á Dal, oftast í för með systur sinni Öddu. Þar var hann í essinu sínu og því ánægðari sem fleiri farartæki nálguðust hlaðvarpann. Þau voru grandskoðuð í stórum stjörnu- sjónauka, sem stóð utandyra. Öllum var vel tekið, er knúðu dyra og leyst var úr málum á far- sælan hátt. Ég minnist sérstaklega allra ferðanna yfir Flateyjardalsheiði. Stundum beið hann mín ferðbú- inn á Akureyrarflugvelli fullur eftirvæntingar, að komast út eftir sem fyrst. Á leiðinni var farið upp „Mannvitsbrekku“ og niður „Áf- glapaskarð" (örnefni Sigurður). Oftar var þó lagt af stað í bíla- lest, því engu mátti muna, ef vatnavextir hlupu í árnar. Þá var ekki ónýtt að hafa yfirvegaðan og þaulkunnugan ferðafélaga í broddi fylkingar. Ég þakka sam- fylgdina um leið og ég sendi syst- kinum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur. Björn Arnarson, Efri-Brettingsstöðum. Patons garnið nýkomið: Knit“n save (100 gr), Diana (100 gr), Fairytale, Soyth Pacific (nýtt). ★ ★ ★ Léreft hvítt og óbleikjað. Popiin, hvítt og rautt. Áteiknuð vöggusett, punt handklæði og dúkar með og án blúndu. Aida efni, 4 litir. Hör. Skábönd rauð og drapplit. Rauð satínbönd. Ámálaðar strammamyndir. Hafnarstræti 103, sími 24364. Akureyringar! Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins veröa til viðtals á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti 90, fimmtudaginn 25. október frá kl. 20.00-22.00. Heitt á könnunni! Framsóknarfélag Akureyrar. Aðalfundur Landverndar og ráöstefna um sjálfbæra þróun (Brundtland- skýrslan) verður haldin í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði 17. og 18. nóvember 1990. Dagskrá verður send aðildarfélögunum. Landvernd. Félagsvist og bingó verður haldið að Freyjulundi, föstudagskvöldið 26. október og hefst kl. 21.00. 3ja kvölda keppni. Góðir vinningar. Nefndin. Starfskraftur óskast í mötuneyti Þarf að geta hafið störf strax. Upplýsingar aðeins gefnar á staðnum, föstudag- inn 26. október, milli kl. 10.00 og 12.00. Víking - Brugg hf./Sanitas hf. Norðurgötu 57. Vantar blaðbera strax í syðri hluta Glerárgötu, Fjólugötu, Lundargötu, Geislagötu og efri hluta Strandgötu. Vantar blaðbera frá 1. nóvember í: Ytri hl. Byggðavegar, ytri hl. Löngumýrar, Kringlu- mýri, Hrafnabjörg og Klettaborg. .t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILJA SIGURÐARDÓTTIR, Ásvegi 17, Akureyri, sem lést 19. október, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 26. október kl. 13.30. Ágúst Ólafsson, Rannveig Ágústsdóttir, Þórður Hinriksson, Ólafur Ágústsson, Guðríður Þorsteinsdóttir, Þórarinn Agústsson, Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Sigríður Ágústsdóttir, Erlingur Bergvinsson og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR HELGA JÓNSDÓTTIR, Sunnuhvoli, Glerárhverfi, Akureyri, verður jarðsungin föstudaginn 26. október kl. 14.30, í Glerár- kirkju. Jón Hilmar Magnússon, Sóley Jónsdóttir, Margrét Magnúsdóttir, Bogi Pétursson, Friðrik Magnússon, Kristbjörg Magnúsdóttir, Stefán Pétursson, Jósefína Magnúsdóttir, Sigursveinn Magnússon, Inga Magnúsdóttir, Rósa Magnúsdóttir, Jógvan Purkhús, Þórarinn Magnússon, Bergrós Sigurðardóttir, Skarphéðinn Magnússon, Sigríður Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.