Dagur - 25.10.1990, Blaðsíða 12
BYGGINGAVORUR LONSBAKKA
Akureyri, fímmtudagur 25. október 1990
LEIDIN ERGREID!
í gær var unnið að því að prenta kápu fyrsta bindis Sögu Akureyrar í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri.
Hér eru Jón Hjaltason, söguritari, og Jóhann Mikaelsson, prentari, með bókarkápuna. Mynd: kl
Fyrsta bindi Sögu Akureyrar að fæðast
Þessa dagana er unnið að
prentun fyrsta bindis Sögu
Akureyrar í POB á Akureyri
og verður vinnslu bókarinnar
lokið fyrripart nóvember-
mánaðar. Má ætla að hún
verði tilbúin til dreifingar um
miðjan nóvember.
í fyrsta bindi ritverksins, sem
í allt verður þrjú bindi, varpar
söguritarinn, Jón Hjaltason,
ljósi á sögu Akureyrar frá land-
námsöld til ársins 1862, þegar
bærinn fékk kaupstaðarréttindi
öðru sinni. Annað bindið, sem
væntanlegt er á markaðinn árið
1992, fjallar um tímabilið frá
1862 til 1940 og þriðja bindið
tekur til síðustu áratuga, frá
1940 til vorra daga.
Það var í tiíefni 125 ára
afmælis Akureyrar árið 1987
sem bæjarstjórn samþykkti að
saga bæjarins skyldi rituð. Jón
Hjaltason réðist til verksins og
hóf hann störf 1. september
1987.
Fyrsta bindið er prentað í
2000 eintökum og er mjög veg-
legt að öllu leyti. F>að verður
selt bæði í áskrift og í verslun-
um.
í vikulokin verður sendur
kynnisbæklingur inn á öll heim-
ili á Akureyri og víðar, þar sem
öllum áhugamönnum verður
boðin bókin til kaups á kr.
5.350 krónur. Staðgreiðsluverð
er kr. 5000. óþh
Algjör óvissa ríkir um sfldarsöltun:
Búið að salta í 400 tunnur
fyrir Sovétríkin hjá Tanga
- „Petta er mjög slæmt mál“
„Þetta er mjög slæmt mál,“
sagði Aöalstcinn Sigurðsson,
verkstjóri í söltun hjá Tanga
hf. á Vopnafirði, en tilkynning
Sovétmanna í fyrradag þess
efnis að þeir sjái sér ekki fært
að standa við kaup á 50 þúsund
tunnum af saltsíld, kemur illa
við Tanga eins og aðrar sölt-
unarstöðvar.
„Við vitum ekki enn hvað
þetta þýðir. Hugsanlegt er að
saltað verði hjá okkur á morgun
(í dag),“ sagði Aðalsteinn.
Að sögn Aðalsteins hefur aðal-
lega verið saltað upp í Skandi-
navíusamninginn hjá Tanga og
einungis eftir 127 tunnur af þeim
samningi, sem var um 60 þúsund
tunnur. Þá er búið að salta í um
400 tunnur fyrir Sovétmarkað-
inn, en óljóst er hvað verður um
þær. „Kannski verður maður
bara að horfa á þær,“ sagði Aðal-
steinn. óþh
Sfldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði:
Beðið eftir loðnunni
Engin loðna hefur ennþá bor-
ist Síldarverksmiðjum ríkisins
á Siglufírði, en búast má við að
á næstu diigum verði fyrsta
farminum landað þar. Mörg
skip eru að gera klárt á loðn-
una, en ekki er von á loðnu til
Siglufjarðar fyrr en stærri hluti
flotans er kominn á veiðar.
Þórshamar GK landaði 500
tonnum hjá SR á Raufarhöfn á
mánudaginn, og var það fyrsta
loðnan sem kemur að landi til SR
verksmiðju á þessari vertíð. Þór-
hallur Jónasson, rekstrarstjóri
SR á Siglufirði, segir að verk-
smiðjan sé tilbúin fyrir löngu til
móttöku á loðnu.
Sú loðna sem veiðst hefur á
Málmiðnaðarfyrirtæki stofna samstarfsfyrirtæki:
„Spuming um að vera með í dansimim“
- segir Torfi Guðmundsson hjá Vélsmiðjunni Odda, einu 37 stofnfyrirtækja
„Þetta er fyrst og fremst
spurning fyrir okkur um að
vera með í þessum dansi. Við
teljum að með þessu eigum við
að minnsta kosti betri mögu-
leika á að nálgast verkefni við
stóriðjuna með þátttöku í
þessu en enn á reyndar eftir að
ákveða hvort álverið verður
reist,“ segir Torfi Guðmunds-
son hjá Vélsmiðjunni Odda hf.
á Akureyri um nýstofnað sam-
starfsfyrirtæki 37 málmiðnað-
arfyrirtækja í landinu.
Fyrirtæki þetta ber nafnið
Sameinaðir iðnverktakar hf. og
er fyrst og fremst stofnað vegna
fyrirhugaðra stóriðjufram-
kvæmda á Keilisnesi og virkjun-
arframkvæmda vegna þeirra.
„Nei, þessum verkefnum verð-
ur auðvitað aldrei dreift milli
allra þessara fyrirtækja enda er
það ekki markmiðið. Hér er fyrst
og fremst er verið að hugsa um
heildarhagsmunina en jafnframt
verði leitast við að sem flestir
njóti góðs af þessum verkefn-
um,“ segir Torfi.
Hann segir að Vélsmiðjan
Oddi geti tekið að sér mörg verk-
efni sem til falli í tengslum við
álversbyggingu og stóriðjufram-
kvæmdir. Ljóst sé að vinnukraft
þurfi erlendis frá til að álverið
komist upp á svo skömmum tíma
sem fyrirhugað er en með stofn-
un Sameinaðra iðnverktaka hf.
verði reynt að ná í fleiri verkefni
heldur en einungis uppsetningu á
tækjum og búnaði. Horft sé sér-
staklega til framleiðsluverkefna.
Nánar um Sameinaða iðnverk-
taka hf. á bls. 3. JÓH
þessari vertíð hefur aðallega far-
ið til Neskaupstaðar og Þórshafn-
ar. Súlan EA landaði á Vopna-
firði í gærmorgun.
Þórhallur segir öruggt að engin
loðna komi til SR fyrr en fleiri
skip haldi á veiðar. „Maður von-
ar að það verði sem fyrst. Hins
vegar hef ég grun um að þessi
loðna sé ekki öll eins stór og feit
og menn voru að tala um í upp-
hafi. Hún virðist vera mjög
blönduð, þetta er ekki eingöngu
smáloðna," segir Þórhallur.
Fastir starfsmenn SR á Siglu-
firði eru um 26, en þegar vakta-
vinnan hefst starfa 35 menn þar.
Aukamannskapur vegna vakta-
vinnu hefur ekki ennþá verið
ráðinn. SR er ekki með sérstaka
samninga við loðnuskip um
landanir.
Ýmsir óttast að loðnan fari að
ganga austur fyrir land miklu fyrr
en venjulega. Gerist það, verður
dýrara að sigla með hana til
Norðurlandshafna en ef loðnan
hefði farið að veiðast djúpt úti
fyrir Norðurlandi eða Vestfjörð-
um. EHB
Nýútkomið kort af Svarfaðardal í mælikvarðanum 1:50.000:
Úir og grúir af fúrðulegum villum
- leiðréttingar skiluðu sér ekki í lokavinnslunni, segir forstjóri Landmælinga
Nýtt kort Landmælinga
Islands og Kortastofnunar
bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins af Svarfaðardal er
allt morandi í villum. Bæjar-
nöfn vantar eða eru á vitlaus-
um stað. Vötn, t.d. Tjarnar-
tjörnina neðan Tjarnar, vant-
ar á kortið og eyðibýli eru
sýnd í byggð og byggðir bæir í
eyði.
Árni Hjartarson, jarð-
fræðingur frá Tjörn í Svarfað-
ardal, skýrir frá þessu í grein
sem hann ritar í októberblað
Norðurslóðar, sem kom út í
gær.
Landmælingar hafa gefið út
að undanförnu nákvæm kort af
landinu. Ætlunin er að gefa út
um 300 kortablöð og er um
þriðjungur þeirra kominn út.
Kortin eru í helmingi stærri
mælikvarða en fyrri kort, eða
1:50.000.
Orðrétt segir Árni í grein
sinni: „Á kortabhðinu stendur
á einum stað: „Gert 1989 eftir
bestu fáanlegum heimiidum."
Þessi fullyrðing er því miður
ekki rétt því kortið úir og grúir
af villum stórum og smáum.
Prófarkaiestur virðist hafa
gleymst og kunnugur maður
hefur ekki verið látinn líta yfir
kortblaðið áður en það var
prentað. Undirrituðum sárnar
t.d. að Tjarnartjörnin er ekki
sýnd á þessu korti. Bæjarnöfn
eru víða á röngum stað og vant-
ar sumstaðar alveg. Hánefsstað-
ir eru t.d. komnir vestur fyrir á
og tróna á inilli Húsabakka og
Jarðbrúar. Eyðibýli eru sýnd í
byggð og byggðir bæir í eyði.
Vegakerfið er full endasleppt.
Kot og Atlastaðir eru sam-
kvæmt kortinu ekki í þjóðvega-
sambandi við byggðina.“
Ágúst Guömundsson, for-
stjóri Landmælinga íslands,
sagði að villurnar hefðu ekki
komið í Ijós fyrr en kortið kom
úr prentun og nú væri unnið að
því að fá botn í hvernig þær hafi
orðið til.
Að sögn Ágústs cru umrædd
kort unnin í samvinnu NATO-
ríkjanna, en vinnsla þeirra hófst
fyrir nokkrum árum. „Við feng-
um handrit árið 1987 og þá
hafði þessi vinna legið að mestu
leyti niðri frá 1983. Við gerðum
töluvert miklar athugasemdir
við kortin og óskuðum eftir að
vinnutilhögun við þau yrði
önnur. Farið var um umrædd
svæði og gerðar á þeim leiðrétt-
ingar. Þessar leiðréttingar send-
urn við út, en því miður kemur í
Ijós að þær hafa ekki skilað sér,
nema á þennan hátt. Við fórum
norður um daginn og unnum
svæðið frá austanverðum Eyja-
firði og vestur í Húnavatnssýslu
og tókum inn margar leiðrétt-
ingar. Við erum að fara yfir
þetta mál í heild sinni núna og
spurningin er hvort við tökum
eitthvað af þessum kortum af
markaðinum,'- sagði Ágúst.
Hann sagði þessi mistök stað-
festa nauðsyn þess að Land-
inælingar hefðu átt að koma
mun fyrr inn í vinnslu kortanna.
„Við fengum próförk af kortinu
af Svarfaðardal og öðrum land-
svæðum og leiðréttum hana.
Hins vegar skiluðu þær sér ekki
í lokavinnslunni vestur í Banda-
ríkjunum. Þetta kennir okkur
það að við eigum sjálf að vinna
okkar kort. íslendingar hafa
aldrei þurft að kortleggja
landið, það hafa erlendir aðilar
alltaf gert. Spumingin er hvort
erlendir aðilar eigi að sjá um
okkar bókhald. Þetta er pólitísk
spurning," sagði Ágúst. óþh