Dagur - 27.10.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 27. október 1990
Laugardagur 27. október 1990 - DAGUR - 11
A
„M wk. tvinnuástand í Þingeyjarsýslum er
ótryggt. Helstu atvinnufyrirtæki þar voru rekin árin 1987-
1988 með verulegu tapi og var eigið fé þeirra nær þrotið. Þau
brugðust við með hagræðingaraðgerðum þar á meðal upp-
sögnum á starfsfólki. Bati er orðinn nokkur en önnur afleiðing
hagræðingaraðgerðanna er að framleiðni fyrirtækjanna jókst
svo ekki var þörf á sama starfsmannafjölda þó að afköstin
yrðu jöfn og áður. Nú er orðinn nokkur bati svo líkast til er
jafnvægi í atvinnumálum framundan. Burðarásar atvinnulífs-
ins eru í útgerð, fiskvinnslu, úrvinnslu landbúnaðarvara,
verslun og þjónustu og reynsluheimur staðarmanna í fyrir-
tækjarekstri er í þessum hefðbundnu greinum. Þar getur varla
orðið vöxtur nema hráefni verði aukið, og með aukinni full-
vinnslu. Það verður því að leita í aðrar áttir til að tryggja vöxt
atvinnulífsins. Þessi staða er síður en svo sérkenni Húsavíkur
heldur er þetta einkennandi fyrir landsbyggðina yfirleitt.
Ásgeir Leifsson.
„Það er sjálfsagt meiri ferðamennska í Þingeyjarsýslum en á nokkrum öðrum stað á landinu. Hér eru margir fallegir staðir og mikili straumur Mymi: im
ferðamanna,“ segir Ásgeir m.a. í viðtali við blaðamann Dags.
Hjá vestrænum iðnaðarríkjum er ekki
kreppa í dag. Þvert á móti ríkir þar almennt
góðæri og hagvöxtur. Með myndun innri
markaðar Efnahagsbandalagsins er spáð þar
miklu hagvaxtarskeiði sem getur staðið í
mörg ár.
Það er oft sagt með réttu að ísland sé nú
orðið eitt markaðssvæði en þetta gildir að
verulegu leyti líka um heiminn, að það gild-
ir alþjóðlegt framboð og eftirspurn á vörum
og þjónustu.
Sú leið sem hefur lánast best hjá þjóðum
sem eru að stíga upp velmegunarstigann í
heiminum er að efla útflutningsiðnað sinn.
íslensk framleiðsla vill oft verða dýr enda
eru framleiðslueiningarnar oft mjög smáar
og óhagkvæmar þar eð innlendi markaður-
inn er smár. Framleiðslukostnaðurinn er að
miklu leyti afleiðing ytri aðstæðna svo sem
fáanlegrar tækni og nálægra auðlinda, það
er hvort einhverjir framleiðsluhættir í
umhverfinu séu svo auðfáanlegir að þeir séu
sérlega ódýrir miðað við samkeppnisaðila,
en tekjurnar eru afleiðing markaðs-
aðstæðna.
Það er talað um að helstu auðlindir á ís-
landi séu fiskimið, orka í fallvötnum og
jarðhitasvæðum, staðsetning landsins, stórt
og lítt mengað land og svo innri uppbygging
landsins og menntun fólksins.
Útflutningsatvinnuvegirnir hafa byggt á
fiskimiðum, orku fallvatna og staðsetningu
landsins, en einnig á seinustu árum og í vax-
andi mæli á hönnun og hugviti. Það er á því
sviði sem flestar iðnaðarþjóðir byggja
afkomu sína. Menntun fólksins fer vaxandi
en geta atvinnulífsins til að nota ungt og'
menntað fólk í skapandi störfum er fremur
lítil.
íslenskur mannafli - vannýtt auðlind
Á landsbyggðinni þýðir hvers konar sér-
menntun yfirleitt að ekki er um störf að
ræða í heimabyggð og þýðir þetta því í raun
brottflutning. Launaliðurinn hefur lækkað
svo hann er líklega með lægra móti í Evrópu
um þessar mundir. íslenskur mannafli er
hugsanlega stærsta vannýtta auðlindin á ís-
landi í dag.
Til að auka nýbreytni og fjölbreytni í
atvinnulífinu þarf eins vegar að finna fýsileg
verkefni og svo framkvæmanda sem ræður
yfir markaði, þekkingu, tækni og fjármagni
og hefur frumkvæði í málinu. Ef um verk-
efni er að ræða sem skiptir máli þá er erfitt
að finna innanlandsmarkað sem er nógu
stór því verður útflutningur að koma tii.
Undanfarin ár og ennþá eru miklar fjár-
festingar í gangi til uppbyggingar ýmiss konar
iðnaðar á vegum alþjóðlegra fyrirtækja
vegna góðrar afkomu undanfarinna ára og
bjartsýni með framtíðina. Eitt einkenni
þessarar uppbyggingar er að hún á sér frem-
ur stað í dreifbýli en þéttbýli.
íslensk iðnaðaruppbygging hefur í of
miklum mæli beinst að uppbyggingu lítilla
fyrirtækja sem gera út á hluta hins litla inn-
lenda markaðar og hafa því ekki alþjóðlega
samkeppnishæfni.
Víða út í heimi eru þróunarstofnanir sem
lokka til sín erlenda fjárfestingaraðila. Sem
dæmi má nefna norður-írsku þróunarstofn-
unina sem er með fjárhagsáætlun upp á 13,5
milljarða og er með 330 starfsmenn. Á sein-
asta ári mynduðust um sex þúsund ný störf
fyrir hennar tilverknað. írska þróunarstofn-
unin er enn stærri eða með 650 starfsmenn.
Flest lönd í Vestur-Þýskalandi eru með þess
háttar starfsemi og mörg skíri í Bretlandi.
Það er því algengt alþjóðlegt viðfangsefni
að lokka til sín erlend fyrirtæki. I Banda-
ríkjunum eru 17 þúsund hagþróunarfélög.
Plant Location International er alþjóðlegt
ráðgjafarfyrirtæki með höfuðstöðvar í
Brussel, Belgíu en er með útibú eða fulltrúa
víða um heim. Þeir eru ráðgjafar fyrirtækja,
sem eru að stækka, breyta sér, flytja eða
setja nýja starfsemi af stað, um hvar þau
eiga að koma sér fyrir. Einnig eru þeir ráð-
gjafar landa og svæða með að lokka til sín
hreyfanlega nýja fjárfestingu. Þeir hafa góð-
an orðstír og segjast á undanförnúm 29 ániim'
hafa ráðlagt hvar koma ætti fyrir fjárfest-
ingu upp á 2100 milljarða í Vestur-Evrópu."
Það þarf að vinna þetta
neðan frá og upp úr
Svo segir í inngangi verkefnalýsingar Iðn-
þróunarfélags Þingeyinga fyrir leit á fjár-
festingaraðilum fyrir Þingeyjarsýslur.
Ásgeir Leifsson iðnráðgjafi hefur unnið
verkefnalýsinguna og leiðbeiningar um
vinnubrögð varðandi samstarfsverkefni með
Plant Location International.
Aðspurður segir Ásgeir að ýmsir hags-
munaaðilar hafi áhuga á þessu máli: „Það
má nefna heimamenn hér, atvinnumála-
nefndir á svæðinu, iðnráðgjafa á landinu,
iðnaðarráðuneytið, Byggðastofnun og
umhverfismálaráðuneytið. Þessir aðilar
hafa ekki endilega sömu skoðun á því
hvernig eigi að framkvæma þetta verkefni.
Iðnráðgjafarnir samþykktu t.d. á fundi hér
á Húsavík 21. ágúst að leita eftir tilboði í
verkefni þar sem tekin væru fyrir þrjú svæði
hér á landi og þau borin saman við þrjú
samkeppnissvæði. Þá yrði tekin fyrir könn-
un staðhátta, hvernig þetta hentaði erlend-
um fjárfestingaraðilum, gerður samanburð-
ur á samkeppnishæfni, og svo bein markaðs-
samkeppni á þessum svæðum.
Sumir aðilarnir hafa áhuga á að hafa þetta
heldur minna í sniðum, á þann hátt að við
þyrftum að skilgreina og afmarka nákvæm-
lega hvaða verk við erum að tala um og leita
að aðilum sem hafa áhuga á siíkum verkefn-
um. Líka hafa komið fram pdu sjónarmið
að vinna að verkefninu með Island sem eina
heild, en við erum fremur á móti því og
finnst að það yrði þá miðstýrð könnun sem
mundi enda í skýrslu. Okkur finnst að það
þurfi að vinna þetta neðan frá og upp úr.
Það var haldinn sameiginlegur fundur
atvinnumálanefndar Húsavíkur og stjórnar
Iðnþróunarfélagsins og þar var samþykkt
hvað farið skyldi fram á að tekið yrði fyrir.
Það er staðháttakönnun, samkeppnishæfni
og markaðssetning. Rætt var um tvö svæði,
svæði sem næði frá Vaðlaheiði austur á
Langanes, og annað álíka svæði á landinu,
t.d. við Keflavík. Miðað er við að heima-
menn beri 25% af kostnaðinum en opinber-
ir aðilar 75%. Kostnaður af slíku verkefni
fyrir Þingeyjarsýslur nemur 210 þúsund
dollurum eða 12-13 milljónum, auk þess
sem útlagður kostnaður Plant Location yrði
um ein milljón."
Það ríkir velvild í garð verkefnisins
- Hver er staða þessa máls í dag?
„Það er búið að kynna þetta fyrir atvinnu-
málanefnd Húsavíkur, þingmönnum
Norðurlandskjördæmis eystra, iðnaðarráð-
herra, umhverfisráðherra, Byggðastofnun,
ríkisstjórninni og flestum hagsmunaaðilum.
Það ríkir velvild í garð verkefnisins, svo ef
það verður ákveðið að gera þetta hérna þá
er mjög líklegt að af þessu verði. Þó er ekki
búið að finna út hvað kostur verður val-
inn, þannig að endanleg stefnumótun
liggur ekki fyrir í dag.“
- Ertu bjartsýnn á að af þessu verkefni
verði og ef svo er geturðu svarað hinni
brennandi spurningu; hvenær fær fólkið
vinnuna?
„Þetta er náttúrlega áhættuverkefni, en
varðandi líkurnar á að það komi eitthvað út
úr þessu dettur mér í hug draumur sem mig
dreymdi fyrir nokkru. Ég var að veiða
með kunningja mínum við á, í stórum hyl.
Það var mikið af stórum og fallegum silungi
í hylnum. Ég kastaði út færi og það beit á
hjá mér stór fiskur sem ég þreytti út um all-
an hyl en landaði svo loksins. Þá kom í ljós
að þetta var erlendur fiskur, líklega gedda,
en hann var ansi horaður. Ekki veit ég hvort
þessi draumur er táknrænn en mér fannst
þetta ansi gott, það er ekki alltaf gott að
ráða drauma því kannski merkir horaður
fiskur feitan drátt.
En í alvöru talað þá er það verkefni sem
við erum að tala um í þessu, viðurkenndar
alþjóðlegar aðferðir. Þetta er það sem menn
eru að gera í öllum löndum og alls staðar.
Við þurfum að gera þetta hérna og þurfum
að komast á kortið í svona áformum.“
Menn þekkja útgerð og fískvinnslu
- Þú talar um reynsluheim fólksins hér í
atvinnulífi í verkefnislýsingunni.
„Atvinnulífið á svona stöðum byggir á
hefð og þessi hefð mótast af staðháttum.
Menn þekkja hvað er útgerð og fiskvinnsla,
verslun og þjónusta, og það að reka slátur-
hús. En heimurinn er stór og það er örugg-
lega margt hægt að gera sem menn koma
ekki auga á hér á staðnum. Menn eru ekki
tilbúnir að leggja út í einhver ævintýri á sviði
sem þeir þekkja ekki vel til. Á seinasta ári
lagði ég fyrir ýmsa möguleika á kaupum á
fyrirtækjum og kaupverð þeirra átti að greið-
ast með söluvirði varanna sem yrðu fram-
leiddar. í engu þessara tilfella gat ég fengið
nokkurn mann til að líta á þetta og þó virtist
mér að sumt af þessu gæti gengið upp. Það
sem vantar til að setja af stað svona rekstur
er að finna fyrirtæki þar sem er fyrir hendi
markaður, þekking, fjármagn og vilji til að
gera hlutina.
Það sem upp á er boðið hér er dálítið sér-
stætt umhverfi, fremur afvikinn staður þar
sem er hreint og tært vatn, hreint loft, ódýr
orka sem er jarðhiti og rafmagn og svo
úrvinnsla á einhverjum gæðum héraðsins,
t.d. steinefnum. Svo er boðið upp á aðgang
að mannlegri auðlind. Á ráðstefnu forsætis-
ráðuneytisins í Borgarnesi kom fram að það
eru næstum eins margir að afla sér
menntunar á háskólastigi eins og þeir sem
fyrir eru á landinu með slíka menntun.
Þetta fólk fer héðan burtu en við þurfum að
fá þetta fólk eða fólk á svipuðu stigi hingað
aftur. Þá er spurningin að setja á stað eitt-
hvað sem við getum kallað þekkingariðnað,
en greinar hans eru t.d. rafeindasmíði,
tækjasmíði, hugbúnaðargerð og svo fram-
vegis.
Ég held að það sé nauðsynlegt að skoða
þetta mál og vinna það síðan eins og Plant
Location leggur til; leita eftir aðilum sem
gætu hagnýtt sér þessar sérstæðu aðstæður.
Það gæti verið að þær hentuðu akkúrat ein-
hverjum sem væru að leita fyrir sér. Þær
gætu hentað fyrir heilsuhæli eða hressingar-
hæli. Fallegt og gott umhverfi gæti líka verið
kostur fyrir hugbúnaðarfyrirtæki."
Ekki venjulegt fólk
sem hingað kemur
- Strjálbýl svæði með lítilli mengun eru
búin kostum sem ekki eru alls staðar fyrir
hendi á jörðinni. Fer kannski að verða eftir-
sóknarvert að hefja ýmsa starfsemi hér í
slíku umhverfi?
„Fyrir suma. Ég veit t.d. að í sumar jókst
ferðamannastraumur út á Langanes. Það er
ekki venjulegt fólk sem hingað kemur, held-
ur fólk sem er tilbúið að verja töluverðum
tíma, fjármunum og erfiði í ferðalagið."
- Erum við of þröngsýn og vanaföst til að
sjá ný atvinnufækifæri?
„Mér finnst það mjög eðlilegur hugsunar-
háttur að menn séu ekki tilbúnir að hætta
sínu í eitthvað sem þeir þekkja ekki neitt.
En ef traustir aðilar standa að góðu verkefni
er minni vandi í dag að fá peninga heldur en
oft áður.
Það er nauðsynlegt fyrir okkur að komast
inn í þessa mynd alþjóðlegs rekstrar; að
vera gjaldgeng ásamt almennum fyrirtækj-
um úti í heimi. Að vera með í leiknum því
þetta alþjóðlega rekstrarumhverfi er alltaf
að vaxa og stækka og við verðum að vera
þátttakendur í því.“
- Hafa ekki komið fram margar hug-
myndir um atvinnuuppbyggingu undanfarin
misseri?
„Við héldum fundi í mörgum sveitarfé-
lögum í Þingeyjarsýslum og gerðum auð-
lindakönnun, ræddum við heimamenn um
hvað þeir gætu nefnt af slíku á sínu svæði.
Það sem kom fram var að ýmis steinefni sem
eru verðmæt finnast í töluverðum mæli. í
Öskju eru sennilega milljarðar rúmmetra af
vikri. Þetta er nálægt Jökulsá á Fjöllum en
skammt frá ósum hennar er háhitasvæði í
Öxarfirði. Kannski cru þarna aðstæður til
að vinna vikur í miklum mæli í einhverjar
vörur.
Víða er gjall fáanlegt, t.d. í Mývatnssveit
og þar er líka jarðhiti. Kaólínleir er í Krók-
óttuvötnum, en hann er hægt að nota til að
framleiða postulínsvörur. í Jörundi er fáan-
legur perlusteinn. Hann er hægt að nota til
að framleiða ýmsar vörur en þessi náma er
næst vegi af öllum þekktum perlusteinsnám-
um á íslandi. í Mývatni er kísilgúr, en það
er líka allstór náma við Árnes í Aðaldal.
Kísilgúrinn er vinnanlegur samkvæmt
skýrslu. Hann er leirblandaður og gæti verið
með svipaða efnasamsetningu og kísilgúr
sem unninn er á Jótlandi, en úr honum eru
gerðir hitaþolnir steinar. Danirnir eru með
rannsóknastofu þar sem vinna 12 manns og
með 5 verksmiðjur sem selja framleiðsluna
til 60 landa.
Að auka verðmætasköpun
í matvælaiðnaði
Annað svið sem er áhugavert og víða var
minnst á á þessum fundum er ferðamál.
Það er sjálfsagt meiri ferðamennska í Þing-
eyjarsýslum en á nokkrum öðrum stað á
landinu. Hér eru margir fallegir staðir og
mikill straumur ferðamanna. Spurningin er
hvort hægt er að nýta þetta betur; lengja
ferðamannatímann, hagnýta jarðhitann til
að gera einhvers konar vinjar sem fólk sækti
í um vetrartímann. Hvort hægt er að reisa
heilsu- og hressingarhæli, við Mývatn, í
Reykjahreppi eða hér á Húsavík.
Þriðja sviðið gæti verið matvælaiðnaður,
frekari úrvinnsla á hráefni sem hingað
kemur. Það er mikil matvælavinnsla fyrir og
ekki er hægt að reikna með að magnið auk-
ist en maður getur hugsað sér að hægt sé að
auka verðmætasköpunina. Þetta er mjög
spennandi svið.
Orkufrekur iðnaður af minna taginu. Þá
er ég ekki að tala um nein stóriðjuver held-
ur eitthvað sem veitti fáum mönnum vinnu
en tengdist kannski steinefnaiðnaðinum.
Að síðustu er það svo þekkingariðnaður-
inn.
Þetta eru þau fimm svið sem rætt var um
í þessari hugmyndakönnun. Við höfum að
vísu ekki skoðað allan heiminn með þessu,
og kannski væri full ástæða og mjög
skynsamlegt að fara að líta á það með opn-
um huga hvaða verkefni gætu hentað og
gera þetta á þann hátt sem Plant Location
leggur til.“ IM
Heimurinn er stór- og margt hægt að gera
- viðtal við Ásgeir Leifsson, iðnráðgjafa á Húsavík