Dagur - 27.10.1990, Blaðsíða 17
efst í huga
í frumskógi
eyfirskra byggða
Ekki endilega af því aö mér sé þaö efst
í huga en mér fannst hún dálítið skondin
sagan sem ég heyrði af sölukonu úr
Reykjavík nú í vikunni. Sú hin sama
þurfti nefnilega að bregða sér bæjarleið
norður til Ólafsfjarðar og Dalvíkur og
það kostaði að sjálfsögðu að nú þyrfti að
komast leiðar sinnar í frumskógi lands-
byggðarinnar þarna hinum megin við
hana Esju. Sennilegast af því að konan
vissi ekki að annað flugfélag væri til en
Flugleiðir þá komst hún aldrei að því að
hægt væri að fljúga beina leið til Ólafs-
fjarðar. Og ekki eru nú Dalvíkingar þeir
stórkallar að hafa yfir að ráða flugvelli.
Svo blessuð konan afréð að fljúga til
Akureyrar og taka þar á leigu bíl til aö
hossast á út Árskógsströnd og fyrir
Múlann.
Nú var ekið sem leið lá. Ekki kippti
konan sér upp við það þó að vegur gerð-
ist holóttur og illur yfirferðar en þegar
skyndilega kom að hliði þvert yfir veginn
varð þeirri fyrrnefndu allri lokið. Fram um
veginn gat að líta hálfgerðan torfæru-
slóða og umhverfið vart þesslegt að í
nágrenni leyndust einhverjir útvegsbæir
eða Múlagöng. Jú, rétt var það að sjó
hafði hún ekki séð lengi. Konan játaði
sig sigraða og hélt aftur sama veg til
Akureyrar þar sem hún komst að hinu
sanna. Hún hafði þá verið komin hálfa
leið inn á hálendi í stað þess að fara út
með honum Eyjafirði í átt til Ólafsfjarðar
og Dalvíkur.
Sagan af blessaðri konunni er ágæt
en hún minnti mig á þann tíma sem ég
hef á ævinni búið í höfuðborginni okkar.
Á stundum þótti mér innfæddir vita
óþægilega lítið um þetta land sem við
búum öll í. Þrátt fyrir að okkur hér úti á
hjaranum þyki sem Reykjavíkin sé and-
stæðingur annað veifið þá viljum við flest
eiga góða höfuðborg og að þeir sem þar
búa telji sig eiga góða landsbyggð. Auð-
vitað er það áhyggjuefni ef höfuðborgin
ætti sem mest að einangrast frá öðrum
hlutum landsins. Á því er nefnilega
hætta, fyrst og fremst vegna þess að
margir þeirra sem þar búa vilja einangra
sig frá þessari illræmdu landsbyggð.
Satt besta að segja er mörgum nákvæm-
lega sama hvort Ólafsfjörður er þar hann
er eða bara upp undir Hofsjökli.
Jóhann Ó. Halldórsson
I kýrhausnum
gamansogur, sannar og
uppdiktaðar
Enginn garðyrkjumaður
Arnulf Överland, hið fræga
norska skáld, var handtekinn af
Þjóðverjum 1941 og sendur til
Grinifangelsisins. Dag nokkurn
var öllum föngunum stillt í eina
röð og tilkynnt var að sá af þeim
sem væri garðyrkjumaður skyldi
stíga fram úr röðinni. Enginn
hreyfði sig.
- Er þá enginn garðyrkjumað-
ur meðal ykkar? öskraði þýski
foringinn.
Enginn fanganna mælti orð.
En allt í einu heyrðist hin rólega
rödd Överlands:
- Væri ekki hægt að handtaka
garðyrkjumann?
Rotþró
Dag nokkurn 1941 sat Överland
inni á Leikhúskaffihúsinu í Ósló
nteð kunningja sínum, rithöfund-
inum Finn Bö. Þeir ræddu um
svikarana norsku og hvað gera
skyldi við þá er Þjóðverjarnir
væru farnir úr landinu.
- Hver er tillaga þín í málinu?
spurði Bö.
Överland hugsaði sig um sem
snöggvast og sagði svo:
- Niðri við Skarpsno er víst
eitthvað sem kallað er rotnunar-
tanki eða rotþró. Hvernig væri að
koma þeim þar fyrir og láta vatn-
ið úr klóökunum þvo þá hreina?
Málstríðið
Löngum hefur ríkt málstríð í
Noregi sem helgast af mismun-
andi mállýskum. Arnulf Över-
land tók mikinn þátt í þessu stríði
og í fyrirlestri senr hann hélt í
Danmörku vorið 1956 lýsti hann
baráttunni á heimavígstöðvunum
þannig:
- Við höfum þrjú mál í Noregi:
Ríkismál, landsmál og slagsmál
(rigsmaal, landsmaal og slagsma-
al).
Málaferlin
í hinum nafntoguðu málaferlum
gegn Oscar Wilde reyndi ákær-
andinn við yfirheyrslurnar sífellt
að láta líta svo út sem Wilde væri
mjög spilltur maður. Hann kom
með ótal spurningar sem Wilde
svaraði óðara af hinni mestu
snilld og oft af gamansemi, svo
að ákærandinn átti erfitt með að
stjórna skapi sínu. Lítum á
dæmi:
Ákærandinn: Drekkið þér
kampavín?
Wilde: Já, ískalt kampavín er
einn af eftirlætisdrykkjum mín-
um þó að læknir minn ráði mér
frá því að drekka það.
Ákærandinn: Rétturinn hefur
engan áhuga á að vita hvað lækn-
ir yðar segir.
Wilde: Ekki ég heldur.
Gegnum nefið
Á ferðalagi sínu um Bandaríkin
var Wilde sýnd fræg myndastytta
af Washington.
- Þetta var sannarlega mikill
maður, sagði leiðsögumaðurinn.
Aldrei heyrðist af vörum hans
eitt einasta ósatt orð.
- Nú, hann hefur þá bara talað
í gegnum nefið eins og allir aðrir
Ameríkumenn, sagði Wilde.
Fullkominn hálfviti
Lincoln forseti gagnrýndi mjög
ýmsar ákvarðanir eins hershöfð-
ingja síns. Að lokum missti hers-
höfðinginn stjórn á skapi sínu og
sagði:
- Forsetinn álítúr auðsjáan-
lega að ég sé fullkominn hálfviti.
- Nei, það held ég nú ekki,
sagði Lincoln, en bætti svo við
eftir dálitla þögn:
- En mér getur auðvitað
skjátlast.
Hneturnar
Lincoln gekk einu sinni á götu í
Springfield og leiddi stráka sína
tvo, sem báðir hágrétu.
- Nei, herra Lincoln, sagði
kunningi sem mætti þeim, hvað
gengur að blessuðum drengjun-
um?
- Nákvæmlega það sama og
gengur að öllum heiminum, svar-
aði Lincoln. Ég á þrjár hnetur og
hvor um sig vijl fá tvær.
Brúðkaupsnóttin
Bruun Juul Fog, Sjálandsbiskup
(d. 1896), var nafntogaður fyrir
það hve gleyntinn hann var og
utan við sig. Sagt er að morgun-
inn eftir brúðkaupsnóttina hafi
hann risið upp við dogg og horft
skelfingar- og undrunaraugum á
stúlkuna í rúminu.
- Hamirigjan góða! Hvernig í
ósköpunum stendur á því að þér
eruð komnar hingað, ungfrú
Munter?
SS tók saman
Laugardagur 27. október 1990 - DAGUR - 17
Athugið!
Aður boðaður aðalfundur Knattspyrnudeildar Þórs
verður þriðjudaginn 6. nóvember í Hamri, félags-
heimili Þórs, kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Sala - kynning
Umboðsaðili fyrir hágæða franskar snyrtivörur óskar
eftir áhugasömu fólki um land ailt sem vill starfa
sjálfstætt við að selja og kynna snyrtivörur á heima-
kynningum á kvöldin og um helgar. Há sölulaun.
Umsóknir sendist í pósthólf 9333,129 Reykjavík.
Akureyri - Húsavík - Sauðárkrókur
Húsfélög athugið!
Hinn reglubundni háþrýstiþvottur og sótthreinsun á
sorpgeymslum og sorprennum verður framkvæmdur
dagana 26. okt. - 4. nóv.
Vinsamlegast staðfestið áframhaldandi þjónustu í
síma 91-687995 og 96-27785.
Með kærrí kveðju,
Benedikt Ólafsson,
Hermann H. P. Aspar,
Róbert Ólafsson.
BÍLASALA
Opnum bílasölu fyrir nýja og notaða bíla að
Glerárgötu 36, 1. nóvember nk. kl. 13.00.
Vantar bíla á skrá.
BILASALA
Akureyri-Dalvík-Ólafsfjörður
Sérleyfishafi: Ævar Klemensson
VETRARÁÆTLUN 1990-1991
1.október-14. maí: S M Þ M F F
Frá Ólafsfirði til Akureyrar 19.30 08.30 08.30 08.30
Frá Dalvík til Akureyrar 20.00 13.00 09.00 09.00 09.00 09.00
Frá Dalvík til Akureyrar 06.30 15.00
Frá Árskógssandi til Akureyrar 20.15 13.15 09.15 09.15
Frá Akureyri til Dalvíkur 21.00 15.30 08.00 12.30 12.30
Frá Akureyri til Dalvíkur og 12.30 12.30
Ólafsfjarðar 1700
15. maí-30. júní:
Frá Ólafsfirði
Frá Dalvík
Frá Árskógsströnd
Frá Akureyri
Frá Akureyri
08.30
09.00
09.15
12.30
08.30
09.00
12.30
08.00X
08.30
09.00
09.15
12.30
08.30
09.00
12.30
08.30
09.00
09.15
12.30
Afgreiðsla á Akureyri: ( Umferðamiðstöðinni Hafnarstræti 82.
Upplýsingar um ferðir í síma 24442. Vörumóttaka í síma 24729.
Opin alla virka daga frá kl. 09.00 til 17.00 á vörum til Hríseyjar,
Grímseyjar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar.
Ferðir til Ólafsfjarðar breytast eftir að göngin opnast.
Afgreiðsla á Dalvík:
Ævarog Bóas sf. Sandskeiði 14.
Sími vöruafgreiðslu 61597.
Sérleyfis- og hópferðir
símar 61124 og 61654.
x Aðeins ekið til Dalvíkur.
Afgreiðsla Óslafsfirði:
Söluskálinn við Ægisgötu
simi 62272.
Ólafsfirðingar þurfa að
panta far í ferðina kl. 19.30.
Á sunnudag fyrir kl. 18.00.