Dagur - 27.10.1990, Blaðsíða 4

Dagur - 27.10.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 27. október 1990 Að móta hugarfóstur í leir - litið inn á Keramikverkstæði Kolbrúnar Ólafsdóttur á Hauganesi Yfir Hauganesi við Eyjafjörð hvílir ró smá- þorpsins. Ró sem er vel til þess fallin að skapa og móta. Einstaka maður á ferli - kona að bera heim poka fullan af nauðþurftum til heimilis- ins. Fátt rýfur kyrrðina nema gargið í múkkan- um. í þessu andrúmslofti situr Kolbrún Ólafs- dóttir leirkerasmiður löngum stundum og mót- ar hugarfóstur sín í leir. Einangrar sig með leir- inn á milli fingranna í kjallara undir hverf- isversluninni, hvar áður var verslun kaupfé- lagsins, en nú rekin af þrem dugmiklum konum. Hún lætur sér vel líka að sitja ein með leirnum. Viðskiptavinirnir láta ekki á sér standa. Keramikið frá Kolbrúnu hefur spurst út um allt land og hún annar vart eftirspurn. Leirinn sem Kolbrún inótar í er breskur og fær hún hann í litlum sekkjum. Hér er hún að móta litla skó, vettlinga og sokka, sem hugsanlega verða ■ ein- hverjum jólapökkum í ár. „Núna í nóvember eru sex ár síðan ég byrjaði á þessu,“ sagði Kolbrún þegar hún var beðin um að lýsa aðdraganda þess að hún helgaði sig leirnum. „Ég fór á kvöldnámskeið í Myndlista- skólanum, síðan í inntökupróf og fékk 10 í því. Ætli ég hafi ekki ofmetnast,“ sagði hún og hló. Úr bflskúr í kjallara Kolbrún er Akureyringur, en fluttist út á Hauganes fyrir 15 árum. Eiginmaðurinn er frá Árskógsströnd, stýrir nú Árskógarskóla. „Það var annað- hvort að hanga heima, eða skapa sér sjálf atvinnu. Þetta var það sem mig langaði helst að gera,“ útskýrði Kolbrún. Hún kom sér fyrst fyrir í bíl- skúrnum heima, en með tíð og tíma varð hann of lítill og nú hef- ur verkstæðið fært sig um set í kjallarann undir verslun staðar- ins. Þar er allt mun rýmra en áður, en Kolbrún segist ekki enn hafa komið sér þar almennilega fyrir. „Mér fannst í sjálfu sér ekki mikið átak að hefja þénnan atvinnurekstur. Ofninn er að vísu dýr, en að öðru leyti er kostnað- urinn ekki mjög mikill. Ég vissi auðvitað ekki út í hvað ég var að fara, en þetta hefur gengið alveg ótrúlega. Ég hef ekkert þurft að auglýsa mig. Þetta hefur spurst út.“ Kolbrún sagðist vinna upp í pantanir, aldrei gæfist tími til að vinna á lager. Þetta gæfi vísbend- ingu um að eftirspurn eftir „þessu smádóti“, eins og hún vill kalla það, sé mikil. Plattarnir hittu í mark í byrjun sagðist Kolbrún hafa prófað sig áfram með postulín, en það væri vandmeðfarið og af- föllin meiri en í keramikinu. Síðar einbeitti hún sér að smærri hlutum, vösum, litlum skraut- munum til að hengja upp á vegg og ekki síst plöttum með áletrun. Þeir hittu svo sannarlega í mark og renna út eins og heitar lummur. „Áletrunin virðist hafa mikið að segja. Svo virðist sem áletrunin hafi ekki minna að segja en sjálfir plattarnir." En út á hvað gengur vinna á keramikverkstæði? „Fyrst þarf að móta í leirinn og síðan er hann látinn þorna við stofuhita. Leir- inn er að stærstum hluta tví- brenndur Fyrst er hraðbrennsla og að því búnu glerjað og síðan Plattar með áletrunum eru langvinsælustu hlutirnir úr hugskoti Kolbrúnar. Hún skrifar á þá málshætti eða önnur stutt spakmæli, sem gefur þeim gildi. Hér gefur að líta nokkur sýnishorn af plöttunum. í matvöruverslun SofRu Jónsdóttur, Soffíu Ragnarsdóttur og Bjarkar Brjáns- dóttur er horn með keramikvörum Kolbrúnar. Reyndar er stutt að ná í keramikið, því Kolbrún hefur aðsetur í kjallara undir versluninni. Myndih óþh brennt aftur. Vinnslutíminn á hverjum hlut er mismunandi langur, en vika að meðaltali er ekki fjarri lagi,“ sagði Kolbrún. Hlutirnir eru mislengi í brennsluofninum, það fer eftir hitastigi. Átta tíma brennsla er ekki óalgeng, en um tíu tíma tek- ur að kæla þá niður. Jólavertíðin að hefjast Það þarf hugmyndaflug til þess að móta allskyns furðuverur í leir. Kolbrún segist oftast teikna furðuverkin fyrst á blað og síðan taki mótunin við. „Ég hef stund- um selt þessar keramikvörur í göngugötunni á Akureyri og heyri á viðskiptavinunum hvað þeim líkar og hvað ekki. Ég tek að sjálfsögðu mið af óskum þeirra. Málsháttaplattarnir eru langvinsælastir og þá selst tölu- vert af litlum samstæðum flíkum.“ Af öllum þeim minnisblöðum um pantanir, sem hanga uppi á vegg, má ráða að Kolbrún hafi nóg að gera. Hún dregur ekki úr því og segir að bæði verslanir, fyrirtæki og einstaklingar vfðs vegar um land hafi samband við sig og biðji um hinar ýmsu keramikvörur. Þær eru að sögn Kolbrúnar langmést keyptar til gjafa, jólagjafamarkaðurinn er ekki síst gjöfull. „Jólavertíðin er að byrja. Það er alltaf mest að gera fyrir jólin, allan nóvember og fram í miðjan desember. Janúar er síðan frekar rólegur, en segja má að aðrir mánuðir séu jafn erilsamir," sagði Kolbrún. Langur vinnutími Vinnutíminn er langur yfirleitt situr hún við frá hádegi og fram eftir kvöldi. í jólavertíðinni er vinnutíminn lengri, allt að 12-14 tímar. En hvernig gengur að samræma svo langan vinnutíma heimilishaldi? „Þetta er að koma. Á þessum sex árum hefur heim- ilisfólk lært að bjarga sér sjálft. Herrarnir eru farnir að strauja skyrturnar sjálfir,“ sagði Kolbrún og hló. Eins og áður segir selja versl- anir víðs vegar um land keramik frá Kolbrúnu, en hér á Eyjafjarð- arsvæðinu er einungis ein verslun sem selur það, staðarverslunin á Hauganesi. Þar er eitt horn helg- að keramiki Kolbrúnar. í stað þess að hafa umboðsverslun á Akureyri segist hún heldur vilja selja keramikið þar sjálf. Þannig nálgist hún viðskiptavinina, eins og nauðsynlegt sé. óþh Eftir að þrjár konur á Hauganesi tóku matvöruversiun KEA á leigu nú á haustdögum flutti Kolbrún sig úr bílskúrnum í kjallara verslunarhússins. Þar er mun rýmra um alla starfsemi en áður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.