Dagur - 06.12.1990, Page 1
Súlan EA 300 landaði í gær 300 tonnum af loðnu í Krossanesi. Súlan hefur nú hætt veiðum, sem og allir loðnubátar,
vegna ástands loðnustofnsins. Mynd: Goiii
Loðnuflotinn kominn í land:
Bræðslumar verkefiialausar og
undirmeim á skipunum atvinnulausir
Allir loðnubátar hafa nú hætt
veiðum vegna ástands loðnu-
stofnsins. Útgerðir skipanna
stefndu þeim til hafnar eftir til-
mælum sjávarútvegsráðuneyt-
isins, en útgerðarmenn ætla að
bíða þar til eftir áramót með
að senda skipin á veiðar á ný.
Þessi ákvörðun hefur í för með
sér að hundruð undirmanna á
loðnuflotanum fara á atvinnu-
leysisbætur, og margar loðnu-
bræðslur munu einnig senda
starfsmenn heini vegna hráefn-
isskorts.
Loðnuveiði hefur verið treg
allt haustið og það sem af er
vetri, og aldrei komið varanlegur
kippur í hana. Ástandið er mjög
Akureyri:
Vinnuslys í
Viking brugg
- piltur skarst á höfði
Vinnuslys varð í ölverksmiðj-
unni Viking brugg á Akureyri
um miðjan dag í gær.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri féll 17 ára piltur, starfsmaður
verksmiðjunnar, af vinnupalli við
álímingarvél og hlaut höfuð-
áverka af. Sjúkrabifreið var köll-
uð til, sem flutti hinn slasaða á
Fj órðungssjúkrahúsið.
„Pilturinn var með skurð á
höfði sem mikið blæddi úr, en
missti aldrei meðvitund. Þetta
var ekki alvarlegt sem betur fer,
en þegar fólk verður fyrir höfuð-
höggi er vissara að fara með gát,“
sagði Kristinn G. Lórenzson,
varaslökkviliðsstjóri. ój
mismunandi hjá loðnubræðslun-
um á Norðurlandi, mest hefur
borist til Þórshafnar en minnst til
Siglufjarðar. Hjá Krossanesi var
búið að taka á móti 1.200 tonnum
í gærdag, en þar áttu menn jafn-
vel von á 300 tonnum til viðbót-
ar. Starfsmönnum í Krossanesi
verður ekki sagt upp vegna hrá-
efnisskorts, því næg verkefni eru
við ýmislegt sem þar þarf að gera
á næstunni, að sögn Jóhanns Pét-
urs Andersen, verksmiðjustjóra.
Til Siglufjarðar hafa aðeins
borist 1.200 tonn, en engin
ákvörðun lá fyrir í gær um frekari
uppsagnir starfsmanna en þegar
hafa orðið. Hjá S.R. á Raufar-
höfn er búið að landa 6.000
tonnum, og ekki búið að ákveða
neitt með uppsagnir. Engin loðna
hefur borist til Ólafsfjarðar á
vertíðinni. Á Pórshöfn hefur ver-
ið landað 13.900 tonnum, sem er
mesta magn hjá verksmiðju á
Norðurlandi. Björg Jónsdóttir
losaði sig við 110 tonn þar í gær,
og var sú loðna feit og vel útlít-
andi. Á Vopnafirði var búið að
bræða 5.500 tonn af loðnu þegar
veiðum var hætt, og auk þess 500
tonn af síld. Haldið verður áfram
við síldarbræðslu þar á næstunni.
Undirmenn á loðnuskipum
hafa viku uppsangarfrest þar til
þeir fara á atvinnuleysisbætur,
yfirmenn halda kauptryggingu og
hafa lengri uppsagnarfrest. Kon-
ráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, sagði í
samtali við Dag að þetta væri
slæmt ástand, engin loðna og
undirmenn atvinnulausir fram
yfir áramót, eftir lélega loðnu-
veiði í vetur og haust sem hefði
þýtt að flestir hefðu aðeins haft
kauptrygginguna. „Petta er
auðvitað afar slæmt ástand, en við
vonum að þetta lagist eftir ára-
mót,“ sagði hann.
Hreiðar Valtýsson, útgerðar-
maður Þórðar Jónassonar EA,
segir að skipið hafi hætt veiðum
um síðustu mánaðamót og hafi
þá verið ákveðið að leggja því
fram yfir áramót. Hann lagði
áherslu á að mikilvægt væri að
halda loðnuleit áfram, þótt
loðnuskipin væru bundin við
bryggju. Bjarni Aðalgeirsson,
útgerðarmaður Bjargar Jónsdótt-
ur ÞH, sagði í spjalli við Dag að
það kæmi sér afar illa, bæði fyrir
útgerðir og áhafnir, að leggja
skipunum nú, þar sem svo iítið
hefði veiðst af kvótanum. Við-
mælendur Dags voru flestir þeirr-
ar skoðunar að kvóti yrði ekki
aukinn eftir áramótin, þótt veið-
ar yrðu líklega leyfðar aftur í jan-
úarbyrjun. EHB
59
Veðrið á Norðurlandi:
Norðanhvellur í dag“
sagði Unnur Ólafsdóttir, veðurfræðingur
„Ég verð verulega vond við
ykkur Norðlendinga, set á
ykkur hvassa norðanátt með
snjókomu,“ sagði Unnur Ól-
afsdóttir, veðurfræðingur á
Veðurstofu íslands.
I dag verður því hvöss norðan-
átt með snjókomu og frosti um allt
Norðurland. „Þið sleppið með
þennan hvell. Á morgun gengur í
hæga vestanátt og léttir til. Á
laugardag ríkir vestanáttin áfram
með éljagangi við ströndina,"
sagði Unnur. ój
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Breytt fyrirkomulag á
vöktum aðstoðarlækna
„Aðstoðarlæknar við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri
leituðu eftir breyttu vaktafyr-
irkomulagi og í beinu fram-
haldi viðræðna hefur sjúkra-
hússtjórnin breytt vaktastöðu
þeirra. Breytt vaktastaða ætti
að minnka vinnuálag aðstoðar-
lækna og þannig gerir breyt-
ingin þeim lífíð bærilegra. Að
vísu standa aðstoðarlæknar við
FSA miklu fleiri vaktir í hverj-
um mánuði en kröfugerðin í
Reykjavík gengur út á,“ sagði
Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins.
Stjórn Fjórðungssjúkrahússins
kom að hluta til móts við kröfur
aðstoðarlækna, sem þeir höfðu
sett fram.
Fallist var á að komið verði á
tveim bundnum vöktum aðstoð-
arlækna eins fljótt og kostur er og
framvakt K- og F-deilda samcin-
uð þeim. Gert er ráð fyrir að
önnur bundna vaktin verði fyrir
L- og K-deildir og hin fyrir slysa-
deild, O-, H- og F-deildir. Báðar
þessar vaktir verð eftirleiðis fjór-
skiptar. Þá var samþykkt að ef
ekki fæst full mönnun aðstoðar-
lækna á þessar vaktir skipti sér-
fræðingar viðkomandi deilda
með sér framvöktum, sem
afgangs verða.
„Nei, við höfum ekki nægilega
marga aðstoðarlækna við FSA til
að vinna eftir þessu breytta fyrir-
komulagi og því konta sérfræð-
ingarnir inn til vaktavinnu.
Vissulega verður leitast við að
fjölga aðstoðarlæknum og manna
allar stöður á næstu mánuðum,“
sagði Ingi. ój
Flugleiðir hf. og FN:
Veður hamlar
flugsamgöngum
Erfiðlega hefur gengið með
flug til og frá Akureyri að
undanförnu. Kvöldflug Flug-
leiða hf. til Akureyrar á þriðju-
daginn féll niður svo og morg-
un- og miðdegisflugið í gær.
„Flugvél lendir á Akureyrar-
flugvelli kl. 16.20 og önnur í
kvöld. Veðurguðirnir hafa verið
að skaprauna okkur Flugleiða-
mönnum. Hér bíða um 80 far-
þegar eftir flugi til Reykjavíkur,"
sagði Kristján Bjarnason, starfs-
maður Flugleiða hf. á Akureyri,
um miðjan dag í gær.
Flugfélag Norðurlands hf.
aflýsti í gær flugi til Ólafsfjarðar,
Siglufjarðar og Grímseyjar vegna
veðurs, cn hins vegar var flogið
til ísafjarðar, Vopnafjarðar,
Raufarhafnar og Þórshafnar. ój
„Glasaþríburar“ fæddust á Landspítalanum í gær:
Bamabömunuin fjölgaði
í þrettán á einu bretti
- segir amma drengjanna, en móöir þeirra er frá Akureyri
í gærmorgun fæddust þríbur-
ar á Landspítalunum í
Reykjavík, sem teljast vera
Akureyringar að hálfu. For-
eldrar þeirra eru Þóra Karls-
dóttir frá Akureyri og Rúnar
Russel frá Grundarfirði. Þau
eru búsett í Grundarfirði.
Um er að ræða svokallaða
„glasaþríbura". Glasafrjóvgun-
in var framkvæmd í London.
Drengirnir voru tcknir með
keisaraskurði og gekk aðgerðin
í alla staði vel. Tveir þeirra voru
tæpar 10 mcrkur og sá þriðji 9
merkur.
Foreldrar Þóru og amma og
afi drengjanna eru Karl Hjalta-
son og Guölaug Pétursdóttir
Kantbsmýri 12 á Akureyri.
Guðlaug, hin nýbakaða þrí-
buraamma, var mjög ánægð
þegar Dagur hafði tal af henni í
gær. „Þetta er mjög spennandi.
Það er ánægjulegt að þetta gekk
allt vel. Við áttum fyrir tíu
barnabörn, en þau fóru upp í
þrettán á einu bretti," sagði
Guðlaug.
Þríburarnir eru fyrstu börn
þeirra Þóru og Rúnars, en Þóra
átti fyrir eina döttur.
Dagur óskar foreldrum
drengjanna, systur og aðstand-
endum til hamingju með þetta
ríkulega framlag til fjölgunar
landsmanna. óþh