Dagur - 06.12.1990, Qupperneq 3
Fimmtudagur 6. desember 1990 - DAGUR - 3
Ferðaþjónusta bænda:
Gagnrýnin byggð á misskilningi
- segir Paul Richardson framkvæmdastjóri um þær raddir að
forysta Ferðaþjónustu bænda reyni að útiloka smærri bæi
Húsnæöisnefnd Sauðárkróks afhenti sl. föstudag tvær almennar kaupleigu-
íbúöir og tvær félagslegar eignaríbúðir. Kaupleiguíbúðirnar eru í Freyju-
götu, um 100 fermetrar og byggingaverktaki Friðrik Jónsson. Hinar tvær eru
í þriðja raðhúsinu sem Byggingafélagið Hlynur afhendir á u.þ.b. mánaðar-
tíma og eru í Kvistahlíð. A myndinni sem var tekin við afhendingu í Freyju-
götu eru f.v.: Friðrik Jónsson verktaki, Baldur Sigurðsson og Margrét Pét-
ursdóttir hinir nýju íbúar og Jón Karlsson formaður húsnæðisnefndar. SBG
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Sala Jólatrjáa
hefst a morgun
Ferðaþjónusta bænda er vax-
andi starfsgrein og í bæklingi
samtakanna fyrir árið 1991
kemur í Ijós að 126 sveitabæir
um allt land bjóða ferðamönn-
um upp á margvíslega þjón-
ustu. Breytt vinnubrögð
stjórnenda samtakanna köll-
uðu hins vegar á nokkra gagn-
rýni á nýafstöðnum aðalfundi
samtakanna.
í bæklingnum er nú í fyrsta
sinn stuðst við nýtt gæðaflokkun-
arkerfi sem veitir nákvæmar upp-
lýsingar um þá aðstöðu og þjón-
ustu sem boðið er upp á á hverj-
um bæ. Þar er tegund gistirýmis
raðað niður í sjö flokka; getið er
um fjölda gistirýma og gerð (td.
Siglufjörður:
Atviimurekstur 1
Húseiningahúsinu
Guðmundur Skarphéðinsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sigló hf. á Siglufirði, hyggst
stofna til atvinnurekstrar í
húsnæði Húseininga á Siglu-
firði, sem hann keypti nýverið
af Iðnþróunarsjóði. Guð-
mundur er enn þögull sem
gröfin um hverskonar rekstur
hann hafi í huga, en segir það
skýrast á næstu dögum.
Guðmundur stýrði sem kunn-
ugt er rækjuverksmiðjunni Sigló
hf. á Siglufirði, sem úrskurðúð
var gjaldþrota. Hann hefur ekki
lagt árar í bát og sækir nú á önnur
hvort um er að ræða eins,
tveggja eða þriggja manna her-
bergi); tekið er fram hvort eld-
unaraðstaða er fyrir hendi og
hvort gestir geti fengið máltíðir
keyptar; tíunduð er hvers konar
afþreying stendur ferðamönnum
til boða á bænum og í nágrenni
hans (svo sem sundlaugar, golf-
vellir, jöklaferðir, hestaleiga eða
veiði); og loks er skýrt frá því
hvort verslun er á staðnum, fjar-
lægð frá bensínsölum, flugvöll-
um, og hvort búskapur er rekinn
á staðnum.
Paul Richardson framkvæmda-
stjóri Ferðaþjónustu bænda sagði
í spjalli við Dag að samtökin
hefðu verið gagnrýnd fyrir að
koma á þessum stöðlum, með því
væri verið að útiloka smærri og
afskekktari bæi frá því að veita
ferðamönnum þjónustu. Pessi
gagnrýni hefur einkum heýrst frá
Austurlandi en þeir sem hana
höfðu uppi voru í miklum minni-
hluta á fundinum.
„Pessi gagnrýni er á misskiln-
ingi byggð,“ segir Paul. „Við hjá
Ferðaþjónustu bænda eruni ekki
að koma þessum stöðlum á, þeir
eru gefnir út af samgönguráðu-
neytinu og samkvæmt reglugerð
er heilbrigðisfulltrúum gert skylt
að fylgjast með því að eftir þeim
sé farið. Það er hins vegar í lög-
uin Ferðaþjónustu bænda að við
eigum að sjá til þess að lögum og
reglutn sé fylgt.
I öðru lagi er það ekki rétt að
við séuni. að útiloka neinn. Ég er
ábyrgðarmaður bæklingsins og í
fyrra neitaði ég að taka þrjá bæi
nteð vegna þess að þeir uppfylltu
ekki öll skilyrði. Tveir þessara
bæja komu inn aftur í ár en sá
þriðji er genginn úr samtökun-
um. Það hefur því enginn bær
dottið út vegna flokkunarinnar.
Þetta er einfalt mál en því iniður
hefur reynst erfitt að koma þess-
urn staðreyndum inn hjá sumum.
Þessi umræða getur verið skað-
leg vegna þess að nú stendur yfir
uppbyggingartínri hjá Ferðaþjón-
ustu bænda og þá ríður á að
standa saman. Svo ég nefni dæmi
frá Norðurlandi þá var nýlega
nefnt í sjónvarpsþætti að ferða-
jrjónusta væri vænlegasti kostur-
inn til eflingar atvinnulífi eftir að
álverið brást. Á því sviði er
Ferðaþjónusta bænda eini aðilinn
sem hefur gert eitthvað áþreifan-
legt og skilað verulegum árangri.
Á þessu ári varð sprenging í
fjölda ferðamanna og ef við ætl-
unt að gera okkur vonir um að
halda í þennan fjölda skiptir
gæðaeftirlit með ferðajrjónustu
gífurlegu máli,“ sagði Paul Ricli-
ardson.
Á aðalfundinum kom frant að
hagur ferðaþjónustubænda hefur
vænkast verulega á undanförnum
árum. Framundan væri hins veg-
ar að reyna að lengja ferðamanna-
tímann og fjölga möguleikum á
afþreyingu fyrir ferðamenn. Paul
Richardson sem verið hefur for-
maður gaf ekki kost á sér en í
hans stað var kjörinn Ingi
Tryggvason á Narfastöðum. Aðr-
ir í stjórn eru Valgeir Þorvalds-
son, Vatni á Höfðaströnd, Ingi-
björg Bergþórsdóttir, Fljóts-
tungu, og Ágúst Sigurðsson.
Geitaskarði. -ÞH
„Tvö þúsund jólatré eru kom-
in í hús. Jólin nálgast og því er
eins gott að hafa allt tilbúið,“
sagði Hallgrímur Indriðason,
framkvæmdastjóri Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga. Starfs-
menn félagsins hafa að undan-
förnu unnið að skógarhöggi
barrtrjáa, en sala jólatrjáa
hefst á morgun í göngugöt-
unni á Akureyri.
Að sögn Hallgríms er unt
þriðjungur trjánna innfluttur en
það sem á vantar er höggvið á
Eyjafjarðarsvæðinu og í Suður-
Þingeyjarsýslu. „Flest Jressara
trjáa eru rauðgrenitré. Á síðari
árum hefur sala á stafafuru vaxið
mjög ntikið sem og blágreni.
Blágrenið er afar fallegt tré og
barrheldið. Normannsþinur er
fluttur inn frá Danmörku, en
hann getum við ekki ræktað á Is-
landi. Innfluttar jafnt sem inn-
lendar grenigreinar fást á sölu-
stöðum okkar í göngugötunni og
í Kjarnaskógi, en ár hvert seljurn
við um 3 tonn greina," sagði
Hallgrímur Indriöason. ój
inið.
Fyrir stuttu festi hann kaup á
verksmiðjuhúsi Húseininga af
Iðnþróunarsjóði, ásamt þeim
tækjabúnaði sem þar er. Lager-
húsnæði Húseininga fylgir ekki
með í kaupunum.
„Það skýrist á næstu dögum
hvað ég geri,“ sagði Guðmundur,
þegar hann var inntur eftir því til
hvers hann ætlaði að nýta húsið.
Er hann ef til vill að stofna til
nýrrar rækjuvinnslu? „Ég vil
engu svara um það. Þetta skýrist
eins og ég segi á næstu dögum.“
óþh
Nóvembermánuður:
Þurr, hlýr
og sólríkur
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Islands var
nóvembermánuður hlýr á
landinu öllu. Raunar fjórði
hlýi nóvembermánuðurinn í
röð. I fyrra var nóvcmbermán-
uðurinn ögn kaldari, en árið
áður ámóta. Nóvembermán-
uður ársins 1987 var talsvert
hlýrri en nú.
„Nóvember var þurr, hlýr og
sólríkur um land allt. Sjaldan er
að slíkt fari saman á þessum
árstíma,“ sagði veðurfræðingur-
inn á veðurfarsdeild Veðurstof-
unnar.
Samkvæmt veðurathugunum var
meðalhiti nóvembermánaðar á
Akureyri 1,7 gráður, sem er 1,5
gráðum yfir meðallagi. Úrkoman
var 20 mnt, sem er nálægt 4/io
hlutum úr meðalúrkomu. Sól-
skinsstundir urðu 25, sent eru 13
fleiri en í meðalári. ój