Dagur - 06.12.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 6. desember 1990
Jól
og
greinar
Sala hefst í göngugötu og Gróðrar-
stöðinni í Kjarna föstudaginn 7. des-
ember kl. 13.00.
Sendum út á land.
Pantanir í síma 24047.
imp
Skógræktarfélag Ey&ðinga
Gróðrarstöðin í Kjama
Jólatilboð
Mortons grænar baunir 430 g 44,50 kr.
Mortons grænar baunir 300 g 33,00 kr.
Mortons grænar baunir smáar 430 g 60,00 kr.
Mortons grænar baunir smáar 300 g 46,00 kr.
Mortons gulrætur heilar 540 g 70,00 kr.
Mortons gulrætur sneiddar 300 g 38,50 kr.
Mortons gulrætur heilar 300 g 41,50 kr.
Mortons gulræður smáar 300 g 46,00 kr.
Mortons saxaður laukur 300 g 48,50 kr.
Mortons selery 300 g 56,00 kr.
Langelands sýrðar gúrkur 580 g 166,50 kr.
Langelands rauðkál 580 g 117,00 kr.
Langelands rauðrófur 580 g 124,50 kr.
Jólasteikin
Lambahamborgarhryggur
Hangilæri úrbeinað
Hangilæri með beini
Hangiframpartur úrbeinaður
Hangiframpartur með beini
Bayonneskinka
Svínahamborgarhryggur
Svínakambur úrbeinaður
Svínabógur úrbeinaður
Kalkún
Rjúpur
Beikon í bitum 350 kr. kg - Kjúklingahlutar 399 kr. kg
Unghænuhlutar 249 kr. kg
Opið mánud.-föstud. 10.30-18.30
ilil
OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 18.
807 kr. kg
1135 kr. kg
887 kr. kg
952 kr. kg
546 kr. kg
998 kr. kg
1098 kr. kg
1150 kr. kg
1098 kr. kg
1075 kr. kg
488 kr. stk.
MARKAÐUR
FJOLNISGOTU 4b
Frídagur í Iffi skólastjóra
- sjálfbær þróun og dansspuni á alþjóðadegi stúdenta
Það var laugardaginn 17. nóvember
sem skólastjórinn kvaddi elskuna
sína með eftirvæntingarfullum kossi í
dyragættinni á gula húsinu með
útskornu tréblúndunni í Hrísey.
Mongólsku dvergljónin, Sjúska og
Sappó Marinovskí, kímdu í tvífættri
kveðjustellingu henni til sitt hvorrar
hliðar. Það var komin helgi en skóla-
stjórinn horfinn út í snjókomuna eins
og dreginn áfram af kynngikrafti fyr-
ir allar aldir með stóra græna möppu
á lofti. Pað hlaut að vera eitthvað
sérstakt í vændum.
Á slaginu níu siglir Sævar yfir til
meginlandsins og skólastjórinn var,
ef að líkum lætur, á fimmtugustu og
níundu mínútunni. Velheppnaðri
umhverfisviku var nýlokið í skólan-
um hans, og ég leyfi mér að fullyrða,
að það hafi verið græna mappan með
margþættum afrakstri nemenda
hans, sem gaf honum þann meðbyr
sem þurfti til að hann stæði á þilfari
Sævars áður en landfestum var
sleppt. Og það mun hann líklega
vera nemendum sínum ævinlega
þakklátur fyrir, því ekki hefði hann
viljað missa af því sem fylgdi í kjöl-
farið þennan dag, sem hann leyfirsér
nú að kalla einn merkasta menning-
ardag í sögu Akureyrar og nágrenn-
is.
Stoltur eins og hvítur norðlenskur
gæðingur klauf Sævar báruna eins og
honum einum er lagið á meðan
skólastjórinn stjáklaði óþreyjufullur
um þilfarið, dró augað í pung og velti
því fyrir sér hvort rauði renóinn
myndi nú fara í gang á milli þess sem
ein af heimsins fegurstu fjallasýnum
gat ekki látið hann í friði. Skólastjór-
inn hefur ferðast um og dvalið í
mörgum af þeim marglofuðustu, svo
það má segja að fjöllótt skapgerð
hans sé á heimaslóðum hér á sex-
tugustu og sjöttu N. En áfram með
smjörið. Rauði renóinn byrjaði að
mala eftir nokkrar hiksta og hósta-
hviður, skólastjórinn setti sig í lang-
keyrslustellingu, gaf Hunsahattinum
selbita að hætti háfjallabúa og ók
glaðbeittur af stað inn fjörðinn fagra
á svellvífuðum vegi.
I göngugötunni stóð á bakaranum,
enda þótt klukkan væri orðin tíu.
Eins og venjulega sagði konan, sem
seldi skólastjóranum filmu í staðinn
fyrir bobbing bakarans. Hún kitlaði
kvörnina nornin með randaflugugler-
augun, sem stóð fyrir utan Amaro í
morgunfrostinu á gulum og svörtum
fótum. Hann spurði hana um klukk-
una og fékk sér svo kaffi í glas í
Súlnabergi í návist áldraugs, sem
misst hafði eitt hundrað og sextán
sinnum af rútunni suður í Straumsvík
og talaði eins og kirkjan sem átti
afmæli væri Keilisnes. Það fannst
skólastjóranum sorglegt, gaf Hunsa-
hattinum annað selbitið þennan
daginn, kvaddi og ók á vit sjálfbærar
þróunar í Hrafnagili.
Sjálfbær þróun
„Þróunar- og umhverfismáladeild
Sameinuðu þjóðanna hefur gert
sjálfbæra þróun að markmiði fyrir
samfélag þjóðanna og fyrir aðildar-
ríki SÞ. Það þýðir í stuttu máli að
framtíðarþróun verður að vera þann-
ig að hún fullnægi þörfum núlifandi
jarðarbúa án þess að draga úr mögu-
leikum komandi kynslóða til hinna
sömu lífsgæða. Boðskapurinn er sá,
að það sé nauðsynlegt að breyta bæði
efnahagslegum og stjórnmálalegum
áherslum í alþjóða samhengi, þannig
að efnahagsvöxtur fái nýja og breytta
skilgreiningu. Eins og heimsmyndin
blasir við í dag er umhverfi mannsins
stefnt í voða vegna rányrkju og þess
þróunarmynsturs sem haldið er uppi
bæði af iðnríkjuni og þróunarríkj-
um." (Tilvitnun úr dagskrá Land-
verndar sem hélt þessa ráðstefnu um
sjálfbæra þróun.)
Hugtakið sjálfbær þróun (á ensku
„sustainable development") er nýtt í
Einar Már Guðvarðarson.
íslenskri umhverfis- og efnahags-
umræðu og því hafa fáir áttað sig á
hvað felst í þessum orðum. Eru
íslenski umhverfisráðherrann, sem
því miður var ekki á þessari ráð-
stefnu, en hann hefði mátt sitja þar
sem skussagestur, og einn fyrirlesar-
anna á ráðstefnunni, Ágúst Valfells
kjarneðlisfræðingur, sem kom til að
tala um íslenska orku og sjálfbæra
þróun, en talaði þess í stað um nauð-
syn álvers og annarrar mengandi
stóriðju í landinu eins og hann væri á
mála hjá útlenskum álköllum, dæmi
sem styðja þessa staðhæfingu. Áliðn-
aður í núverandi mynd er rányrkja á
báxíti og orku, auk þess að vera
mengandi iðnaður sem er í andstöðu
við þá sýn sem felst í hugtakinu sjálf-
bær þróun. Sjálfbær þróun ber sig
sjálf, eins og orðin gefa til kynna, án
þess að menga og eyða auðlindum.
Utúrsnúningar umhverfisráðherra,
Ágústs Valfells og fleiri álsinna um
réttmæti þess að framleiða ál hér á
landi, þar sem vatnsorka sé hrein
orka, eru því út í hött. Rányrkjan
minnkar ekkert við það, nema síður
sé, þar sem ætlunin er m.a. að selja
þessa orku undir kostnaðarverði og
þar nieð á kostnað landsmanna, þess
sjálfbæra iðnaðar sern fyrir er í land-
inu og koma skal og þeirra sem
kaupa og neyta afurða þessa iðnaðar
hérlendis og erlendis. Rányrkjan er
margföld.
Á1 er ekki frumefni, með öðrum
orðum finnst það aðeins í sambönd-
um við önnur efni. Þegar þessi sam-
bönd eru rofin skapast ójafnvægi,
sem hefur bæði fyrirsjáanlegar og
ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Það er
notagildi efnisins sem hefur verið og
er enn í hávegum haft. Ágúst Val-
fells nefndi flugvélina úr áli sem flutti
hann frá Reykjavík til Akureyrar, en
hann nefndi ekki að Bandaríkja-
menn urða rneira af áli (álúrgangi)
árlega en þeir nota í alla sína flug-
vélaframleiðslu sama árið.
Það sem mér finnst einkenna
álsinnana er skortur á hugmynda-
flugi, trú og trausti. Þessi skortur lýs-
ir sér í örvæntingu og rökfærslum
sem bera vott um skammsýni og von-
leysi þessara fortíðarhyggjumanna.
Vissulega kalla þeir sjálfa sig frani-
farasinnaða og jafnvel bjartsýna, en
hvaða maður með framtíðarsýn,
frjóar hugmyndir og trú á sjálfan sig,
sem hlut af órofa heild, lætur sér
detta í hug aðra eins vitleysu (reynd-
ar gömul úrelt hugmynd, sem hefur
afsannað gildi sitt) og að reisa álver
eða aðra mengandi stóriðju hér á
landi ídag. Ég leyfi mér að kalla slíkt
arga og svartsýna afturhaldshyggju.
Það eru fáar konur í þeim hópi af
þeirri einföldu ástæðu að þær þekkja
hina sönnu hringrás lífsins af eigin
raun. Þær eru sífellt í snertingu við
hana en ekki læstar í línuritum, sem
eru byggð á fölskum forsendum.
Vissulega finnast undantekningar
meðal bæði karla og kvenna. En það
var tvímælalaust konunum að þakka
að það var samþykkt áskorun til
ríkisstjórnarinnar á aðalfundi Land-
verndar sunnudagirtn 18. nóv., um
að hafna byggingu nýs álvers hér á
landi. Og er ekki kvennalistinn eini
íslenski stjórnmálaflokkurinn sem
hefur sýnt raunsæi í þessu máli?
Skólastjórinn veit allavega hvaða
stjórnmálaflokk hann kýs í næstu
kosningum.
Spunadans í spunasalnum
Skólastjórinn var örþreyttur að lokn-
um þessum átökum um þá blindu og
sýn sem fyrirlestrarnir og umræðurn-
ar um sjálfbæra þróun endurspegl-
uðu. En hann hafði ekki fyrr hitt
elskuna sína inni á Akureyri en
hjartnæmar tilfinningar og gagn-
kvæmur skilningur tók yfirhöndina
og þreytan hvarf eins og óveðurský
frá sólu. Og um leið og brýrnar lyft-
ust fékk Hunsahatturinn þriðja og
síðasta selbitið þennan daginn.
Við vorum á leiðinni út í spunasal-
inn, sem man sinn fífil fegurri, til að
sjá hana Önnu Richardsdóttur
fremja dansgjörning ásamt félögum.
Ekki vorum við fyrr komin inn á
svæði Álafoss í rauða renóinum en
kertaljósin vöktu athygli okkar og
vísuðu okkur veginn. En það voru
laðandi hljómar saxófónsins sem
drápu á renóinum áður en hann var
kominn í hlað. Opnuðu dyrnar og
leiddu okkur út í froststilluna. Staður
og stund voru upphafin og hugurinn
vitjaði ókunnra staða á meðan hjart-
að hló. Samt tókst mér að skrifa ávís-
un, sem ég hefði örugglega stungið í
stimpilklukkuna, sem hékk svo ein
og yfirgefin á veggnum, ef ég hefði
ekki verið búinn að afhenda hana
stúlkunni við borðið þar sem einu
sinni sat maður sem kurraði í. En nú
stóð hann upplýstur í hávaðaroki í
órafjarlægð í hinum enda salarins og
hélt þrumuræðu án þess að frá hon-
um kæmi nokkurt hljóð. Aftur á
móti sveimaði um salinn kona íjokk-
ur í undurfögrum tónum. Skynfærin
stóðu á haus svo ég valdi þann kost
sem vænstan að setjast í stofu ömmu
og afa í einu horni spunasalsins og fá
mér kakó í hvítan bolla, sem bragð-
aðist eins og rúsínur í gómsætum
vökvanum. Én hvorki amma né afi
voru þar, en snjóhvít kona sem hall
aði sér upp að veggnum eins og hún
væri smeik við að detta. Var það hún
sem söng, hver var það sem söng?
Svo komu allt í einu tveir trúðar og
léku listir sínar. Og köttur en ég sá
enga rnús, aðeins stól sem líkaði
ósköp vel við köttinn. Allavega
klappaði allt fólkið af fögnuði.
Örugglega 150 manns eða meira.
Hvað voru þau öll að gera þarna?
Kötturinn og stóllinn liurfu en inn á
gólfið steig Kleópatra í líki Ragn-
hildar Gísladóttur. Ég held reyndar
að hún Kleópatra hafi villst í fata-
skápnum, en þegar hún brýndi raust-
ina á gljándi stálinu fylltist rýmið af
glaðlegri hrollvekju. Konan var ein
en samt var hún tvær, svona eins og
margar konur eru, allavega innst inni
og einnig úti, þegar þær fá ekki ham-
ið sköpunarkraftinn en leyfa honum
að streyma í gegnum sig. Éru undur-
samleg og hryllileg, blíð og villt
hljóðfæri hans. Þær börðust hat-
rammri baráttu og elskuðust af trega-
blandinni, angurværri og glaðlegri
blíðu, þegar þær gáfu sig sköpunar-
kraftinum fullkomlega á vald, þær
Anna og Ragnhildur.
Galdur listarinnar opinberaðist
skólastjóranum enn einu sinni þetta
„skynvillta", eða liitt þó heldur,
kvöld í spunasalnum hennar Iðunn-
ar. Missið ekki af þeim ef annað
tækifæri býðst.
Það var urn einni og hálfri stundu
fyrir miðnætti að konan tók skóla-
stjórann í fangið og bar hann eins og
lítið barn uni borð í Sævar á heim-
leið. Það fylgir ekki sögunni hvort
hann var með þumalinn í munninum.
Hrísey, aðfaranótt 23.11.
Einar Már Guðvarðarson.
Höfundur er skólastjóri grunnskólans í
Hrísey.