Dagur - 06.12.1990, Síða 11

Dagur - 06.12.1990, Síða 11
bœkur Fimmtudagur 6. desember 1990 - DAGUR - 11 Van Gogh og list hans Komin er út hjá Vöku-Helgafelli listaverkabók um hollenska list- málarann Vincent van Gogh (1853-1890) og heitir hún Van Gogh og list hans. Hún kemur út samtímis í átta Evrópulöndum. Van Gogh er almennt talinn einn stórfenglegasti listmálari sögunn- ar. í þessari glæstu bók kynnumst við honum í lífi og list. Litmyndir af heillandi og áhrifamiklum listaverkum hans tala sínu máli og sendibréf Van Goghs, sem höf- undur bókarinnar Hans Bronk- horst studdist við, veita einstæða innsýn í hugmyndaheim lista- mannsins. Ólafur Bjarni Guðnason þýddi bókina en dr. Gunnar B. Kvaran, listfræðingur, veitti sérfræðilega ráðgjöf við íslenska gerð hennar. Hvergi var til sparað við gerð bókarinnar og prýða hana 140 þekktustu verk Vincent van poghs. Bókin er 200 blaðsíður í stóru broti. Raggi litli í jólasveinalandinu Iðunn hefur gefið út barnabók eftir Harald S. Magnússon, og nefnist hún Raggi litli í jólasveina- landinu. í bókinni eru allmargar teikningar eftir Brian Pilkington. Þetta er fjörug og skemmtileg saga af honurn Ragga litla, sem fékk að kynnast jólasveinafjöl- UUMFERÐAR RÁÐ skyldunni, Grýlu, Leppalúða og strákunum þeirra þrettán. Þegar Raggi vaknar veit hann ekkert hvert hann er kominn - en svo sér hann að hann er í helli, og þar er gömul kona að kynda stórt bál, og niður úr hellisloftinu hanga þrettán pokar. Hvað skyldi vera í pokunum? Forvitni Ragga vaknar þegar hann sér að út úr þeim standa stór, rauð nef. Hinumogin við sólskinið Iðunn hefur gefið út nýja ljóða- bók eftir Elías Mar og nefnist hún Hinumegin við sólskinið. í kynningu útgefanda á bók- inni segir: Ný ljóðabók frá Elíasi Mar er gleðiefni öllum þeim sem fylgjast með íslenskri ljóðagerð. í þessari bók reynist Elías enn sem fyrr vanda ljóðsins vaxinn með sínum sérstæða hætti. Hann er nærgöngull við ljóðpersónur sínar, yrkir um angistarblandna sælu þeirra, rninnir sífellt á að ekki er allt sem sýnist. Orðkerar munu finna margt við sitt hæfi í Ijóðum Elíasar Marar og jafnvel enn eina og nýstárlega heimsmynd þar sem ekki er allt með kyrrum kjörum. Vilt þú fá kort frá jólasveinunum? Jólasveinarnir hafa áhuga á að senda krökkum kort um jólin. Þeir krakkar sem vilja fá kort verða að fylla út eftirfarandi: Nafn: ____________________________ Heimili: _________________________ Staður: __________________________ Aldur: ___________________________ Staðfesting foreldra/forráðamanns: Ath! Að sjálfsögðu getur fólk ljósritað þetta eyðublað. Vinsamlega sendið útfyllt eyðublað til: KEA aðalskrifstofa Fulltrúi jólasveinanna 602 Akureyri ...og/eða taka þátt í myndlistarsýningu? í tilefni jólanna og komu jólasveinanna mun Vöruhús KEA efna til myndlistarsýningar á verkum eftir börn. Helst af öllu þurfa myndirnar að vera af jólasveinum. Myndirnar verða hengdar upp í Vöruhúsi KEA þriöjudaginn 18. desember og sýndar fram til jóla. Þær verður að nterkja rneð nafni og heimili og senda á heimilisfangið sem kom fram hér að ofan. 25 böm fá jólagjöf! r'-'' »ið verður úr nöfnuni 25 barna sem senda myndir og þau fá jólagjafir sendar heim! kEh afalsknfstofa. F'AAÍnu jólasotiWMO. bOZ cftkureyn Síðasti dagur! Síðasti póstlagningardagur vegna óska um kort eða til að senda mynd er 12. desember. m í( fimmtudag, föstudag, laugardag Hljómsveitin „Namm ATH. FRÍTT /AA 77L KL. 12IAUGARDAG Frítt inn fgrir matargesti Frí heimsendingarþjónusta Sími 24199

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.