Dagur - 19.12.1990, Blaðsíða 20

Dagur - 19.12.1990, Blaðsíða 20
Jólatré 02 skógræktarstarfíð. greinar ð* Sölustaðir í göngugötu og Kjarnaskógi Sk^ræktarféiag Opið á sunnudaginn frá kl. 13-18 í Kjarna. Eyfirðinga. Miklilax hf. Boranimar báru árangur „Við hefðum svo sem viljað fá ennþá meira, en fengum á endanum 30 sekúndulítra af 75 stiga heitu vatni og það er t.d. meira en Siglfirðingar hafa,“ sagði Reynir Pálsson, fram- kvæmdastjóri Miklalax í Fljótum, en borunum eftir Kaldbakur hf.: Nægur fiskur út þessa viku - skólafólk hleypur undir bagga Gert er ráð fyrir að vinnslu Ijúki hjá Kaldbaki hf. á Greni- vík nk. föstudag. Frosti land- aði um 60 tonnum í fyrradag og verið er að vinna þann afla. Þetta var síðasti túr skipsins fyrir jól. Sjöfnin fór í sinn fyrsta róður á línu í vikunni og var væntanleg inn til löndunar í gærkvöld. Hrafnhildur Áskelsdóttir, verkstjóri í vinnslusal Kaldbaks, sagði að mikil og jöfn vinna hafi verið að undanförnu og í raun hafi ekki nema einn og hálfur dagur fallið úr í vinnslunni allt frá því sl. vor. Vinnslusalurinn er nú fullmannaður og að auki hefur skólafólk, sem komið er í jólafrí, hlaupið undir bagga síðustu daga. Hrafnhildur sagði ekki alveg Ijóst hvort unnið yrði milli jóla og nýárs, það myndi koma í Ijós undir lok vikunnar. óþh góð sala þetta árið heitu vatni að Lambareykjum með bori Jarðborana ríkisins er nú lokið. Þetta heita vatn verður tengt inn á kerfi matfiskeldisins, en hingað til hefur ekkert heitt vatn verið notað við það. Að sögn Reynis eykur það vaxtarhraða fisksins að hækka hitastigið í kerunum og bætir þar með fram- leiðslugetu stöðvarinnar. Sölu lax á þessu ári frá Mikla- laxi er nú lokið og segir Reynir allt hafa selst sem átti að seljast og ágætis verð fengist fyrir. „Þetta kemur ekki út sem neitt stórgróðaár, enda eruni við á miðri leið með að ná fullri fram- leiðslu og ekki nema 18 mánuðir síðan við hófum áframeldi. Næsta ár verður framleiðslan u.þ.b. helmingi meiri en í ár og ’92 verðum við komnir í fulla framleiðslu," sagði Reynir. SBG 1 Búnaðarbanki Islands á Akureyri varð 60 ára í gær. Viðskiptavinir fengu léttar veitingar og konfekt í tilefni dagsins og var það ekki síst vinsælt hjá yngstu kynslóðinni. Mynd: Golli Loðnuleiðangur Árna Friðrikssonar RE fyrir Norðurlandi: Dökkt útlit með veiðar eftir áramót Mikið þarf að bætast við loðnustofninn við ísland svo óhætt sé að hefja veiðar eftir áramót. Niðurstaða loðnu- leiðangurs Árna Friðrikssonar RE er að hrygningarstofninn fyrir norðan land sé um 370 þúsund tonn, og telur Sveinn Sveinbjörnsson leiðangurs- stjóri útilokað að veiðar hefjist eftir áramót nema mikil viðbót komi til sögunnar. Árni Friðriksson fór yfir stórt hafsvæði fyrir norðan land, og fannst loðna á svæði sem nær 10 til 15 mílur austur af Kolbeinsey vestur undir Strandagrunn. Loðnan var stór og falleg austast á svæðinu, en mjög blönduð og nánast eintóm smáloðna vestast. Rannsóknarskipið fór yfir stærsta hluta göngunnar. og ættu niður- stöður því að vera áreiðanlegar. Leit er lokið fyrir áramót. „Þetta staðfestir fyrri niður- stöður um að stofninn virðist vera lítill. Ef ekkert nýtt bætist við líst mér ekki á veiðar eftir áramótin. Það mældist ekki einu sinni eins stór stofn og við viljum láta hrygna. Það er hugsanlegt að eitthvað svipað gerist og í fyrra, að loðnan hafi ekki öll fundist, en aðstæður hafa þó verið betri en síðasta vetur, þá komumst við Konráð Alfreðsson um fiskverðsákvörðun yfirnefndar Verðlagsráðs: „í algjöm andstöðu við vilja sjómanna“ - félagar í Sjómannafélagi EyjaQarðar greiða atkvæði um sjómannasamningana 28. desember nk. „Þetta er í algjörri andstöðu við vilja sjómanna. Mér flnnst skrítið að skuli vera frjálst flsk- verð á sumum tegundum, en ekki öðrum,“ segir Konráð Alfreðsson hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar, í tilefni af ákvörð- un yflrnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins um nýtt lág- marksverð á fiski fyrir tímabil- ið 1. desember sl. til 15. sept- ember nk. Sjómenn höfðu lagt mikla áherslu á að fiskverö yrði gefið frjálst og því segir Konráð að þessi ákvörðun sé þeim ekki að skapi. Ákveðin var 2,83% hækkun á lágmarksverði frá 1. desembersl. og 2,5% hækkun 1. márs 1991. Síðan er gert ráð fyrir 2% hækk- un 1. júní, þó með þeim fyrirvara að ef laun hækka þá meira en nemur 2% áskilur yfirnefndin sér rétt til að endurskoða fiskverðs- hækkunina frá sama tíma. Konráð segist fastlega gera ráð fyrir að sjómenn hafi þessa fisk- verðsákvörðun yfirnefndar í huga þegar þeir greiða atkvæði um sjómannasamningana á félagsfundi í Sjómannafélagi Eyjafjarðar 28. desember nk. á Akureyri. Atkvæði þeirra, sem eru á bátakjarasamningum, verða talin í Reykjavík 4. janúar en atkvæði sjómanna á stóru tog- urunum, Kaldbaki, Harðbaki og Svalbaki, verða talin hér nyrðra. Konráð segir að um 370 sjó- menn hafi rétt til að greiða atkvæði um samningana á félags- svæði Sjómannafélags Eyjafjarð- ar. Hann segist vonast eftir góðri fundarsókn, en þó geti sett strik í reikninginn að skip verði send á sjó strax að kvöldi annars dags jóla. „Við erum ekkert sáttir við það, að minnsta kosti ekki hvað varðar frystiskip sem hafa ekki komið í land síðan í nóvember," sagði Konráð. Þeir sjómenn af svæðinu sem verða á sjó 28. desember munu eiga þess kost að greiða atkvæði úti á sjó og senda þau inn á fund- inn á Akureyri. óþh Ný og betri slysadeild við FSA: „Ekki þarf að hlaupa með bráðatilfelli um ailan spítala“ Ný slysadeild verður tekin í notkun við Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri 1. apríl á nýju ári. Húsnæðið er nýtt og einnig verður breyting á starfs- sviði deildarinnar. Fjórðungs- sjúkrahúsið anglýsir því nokkr- ar nýjar stöður við deildina til að geta annast stórum um- fangsmeira verksvið. Að sögn Inga Björnssonar, framkvæmdastjóra FSA, er hér um að ræða 400 fermetra hús- næði í nýju viðbyggingunni, sem er það síðasta sem verður tekið í notkun undir sjúkradeildir. „Nýja slysadeildin verður mun sjálfstæðari en sú gamla og verið er að kaupa ný tæki að upphæð kr. 4 miljónir til að gera hana betur úr garði. Mönnun á deild- inni í dag er sem hluti af mönnun á öðrum deildum, en þá er hún verður komin á nýja staðinn verður hún mönnuð sérstaklega. Allir möguleikar breytast til hins betra og ekki þarf að hlaupa með bráðatilfelli um allan spítala. Júlíus Gestsson, yfirlæknir bækl- unardeildar, verður yfirlæknir nýju slysadeildarinnar jafnframt því að gegna stöðu yfirlæknis á bæklunardeild. Stöður við nýju slysadeildina verða fimmtán og því koma til 6-7 nýráðningar á hjúkrunarfræðingum, aðstoðar- lækni, starfsstúlkum og móttöku- riturum,“ sagði Ingi Björnsson. ój ekki yfir eins stórt svæði vegna hafíss," segir Sveinn. I samtali við Svein kom fram að oftast mældist meira af loðnu í janúar en á haustin, en til að veiðar geti hafist eftir áramót verður mikil viðbót að koma til, eigi veiðar aö geta hafist í ein- hverjum mæli. Síðasta vetur veiddust rúmlega 600 þúsund tonn af loðnu eftir áramót við ísland. Það sem af er vetrinum hafa um 80 þúsund tonn komið á land, en á sama tíma í fyrra brást haustloðnan einnig að mestu leyti. „Það þarf verulega mikið að bætast við svo við fáum einhverja umtalsverða vertíð. Miðað við reynslu fyrri ára er best að segja sem minnst um hvað geti gerst, en það sem við höfum komist að í descmber staðfestir fyrri niður- stöður. Við höfum ekki fundið neina viðbót, en þann 2. janúar verður farið til leitar á báðum skipum Hafrannsóknastofnunar. Ef ekkert bætist við munum við ekki leggja til frekari veiðar, því við viljum ekki ganga nærri hrygningarstofninum svo mögu- leiki verði aö fá árganga síðar. Ef við ætlum að veiða 800 þúsund tonn þurfa um 700 þúsund tonn að bætast við það sem fyrir er,“ segir Sveinn. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.