Dagur - 03.01.1991, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 3. janúar 1991
,yilji er allt sem þarf ‘
- áramótaávarp Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra
Góðir íslendingar.
í ávarpi mínu við síðustu ára-
mót kvað ég forspáan mann sjá
ljóma yfir íslandi seinni hluta
þessa árs. Að þessu hentu ýmsir
gaman og vildu vita hver spá-
maðurinn væri. Spámaðurinn
var í raun þjóðin sjálf, fólkið í
landinu: Fólkið var augljóslega
orðið uppgefið á Hrunadansi
verðbólgunnar. Það vildi stöðug-
leika og öryggi í stað óviss-
unnar. Nú mátti það takast, því
grunnurinn hafði verið lagður.
Og enn reyndist það rétt, sem
skáldið sagði:
„Vilji er allt sem þarf.“
Með framsýnum samningum
um kaup og kjör, með stöðug-
leika að markmiði reisti fólkið „í
verki viljans rnerki".
Til þess að ná því, sem að var
stefnt, varð margt að bæta, og í
því skyni varð ekki hjá því kom-
ist að fórna ýmsu um sinn.
Atvinnuvegina varð að styrkja,
þótt á kostnað kaupmáttar væri,
enda verður aldrei velferð reist á
rústum atvinnulífs. Það er stund-
um svo að jafnvel miklir hags-
munir verða að víkja fyrir
öðrum, sem enn stærri eru.
Stöðugieiki er orðinn þessari
þjóð lífsnauðsyn. Aðeins í
stöðugleika verður þjóðarbúið
heilbrigt, þjóðin sterk og lífskjör-
in góð. Fyrsti áfanginn hefur
náðst. Þvf er nú ljómi yfir land-
inu.
Nú eru tímar mikilla breyt-
inga, ekki aðeins hér á landi,
heldur um heim allan. Að vísu er
það ekki í fyrsta sinn. í heimssög-
unni eru tímamótin mörg. Að
sumu leyti eru þau lík, en þó í
mikilvægum atriðum ólík, eink-
um þau sem við lifum nú.
Allt frá því að þjóðir urðu til,
hefur ein lagt undir sig aðra og
stórveldi myndast. En stórveldin
hafa ætíð sundrast um síðir. Sag-
an geymir ótal dæmi um slíkt. Og
enn endurtekur sagan sig. A
þessum síðustu tímamótum er þó
grundvallarmunur.
Áður voru það ætíð hin hörðu
vopnin sem réðu. Þau skópu stór-
veldin og sundruðu þeim svo. Nú
eru það auðurinn og fjármagnið,
sem leggja undir sig löndin. Nú
eru það efnahagsveldin sem
myndast. Og þegar hagvöxturinn
bregst, sundrast þau einnig.
Hvötin hefur hins vegar oftast
verið að safna auði og drottna,
eða ná orku og hráefni fyrir fram-
leiðsluna, sem stöðugt þarf
meira. Og svo er enn.
Við íslendingar höfum verið í
útjaðri slfkra sviptinga. Lengi
þótti eftir litlu að leita á þessari
harðbýlu eyju. Það er ekki fyrr
en hin fengsælu fiskimið finnast á
15. öld, að erlendar þjóðir girn-
ast landsins auð. En síðan má
segja, að hvert þorskastríðið reki
annað. Þau voru áður á milli
erlendra þjóða, sem vildu sitja
ein að íslandsmiðum. Aðeins þau
síðustu háðum við sjálfir, og það
er fyrst eftir að við íslendingar
erum orðnir fullvalda og sjálf-
stæð þjóð. Þá fyrst eru það lífs-
hagsmunir þjóðarinnar sjálfrar
sem lagðir eru á vogaskálarnar,
og þó er Jrað ekki fyrr en árið
1974 sem Islandsmið verða okkar
eigin.
En því er ég að rekja þessa
sögu nú? Vegna þess að hún má
ekki gleymast. Eins og sagan sýn-
ir munu erlendar þjóðir eða efna-
hagssamsteypur aldrei láta
stjórnast af hagsmunum hinnar'
örsmáu íslensku þjóðar, ef þær
mega ráða landsins auði. Minn-
umst þess jafnframt að alþjóðleg
fyrirtæki, sem velta árlega marg-
földum þjóðartekjum okkar
íslendinga, eiga hægt með að
eignast það sem þau girnast, ef
landamærin eru ekki vel varin.
Við Islendingar fögnum þeim
tímamótum sem nú eru í Evrópu.
Við viljum taka þátt í þeim breyt-
ingum sem eru að gerast. Við
viljum stuðla að því að gjöreyð-
ingarvopnum verði eytt, og við
taki samstarf og samvinna, sem
hafi manninn sjálfan, velferð
hans og réttindi að leiðarljósi.
Stórkostlegt var að mega sem
fulltrúi þessarar litlu, óvopnuðu
þjóðar skrifa undir griðasáttmála
Evrópulandanna og heita því að
leysa engar deilur með ófriði.
Sjálfsagt er jafnframt fyrir
okkur íslendinga að taka þátt í
samningum um víðtæka efna-
hagssamvinnu í Evrópu. Við eig-
um stórra hagsmuna að gæta. En
minnumst þess að mikilvægast er
þó að ráða ætíð sem mestu af eig-
in málum sjálfir. Það eru í raun
okkar stærstu hagsmunir. En þó
bjart sé yfir ýmsu á þessum síð-
ustu tímamótum, eru þó einnig
stórar blikur á lofti.
Aldrei hefur gjáin verið svo
djúp á milli þjóða norður- og
suðurhvels jarðar. Aldrei hafa
svo margir farist úr hungri og
örbirgð, aldrei fyrr hafa tug-
þúsundir barna látist á degi
hverjum.
Hlutur okkar Islendinga er
afar lítill í þeirri aðstoð sem auð-
ugu þjóðirnar hafa heitið. Það er
að vísu góðra gjalda vert að
framlag okkar til barnahjálpar
Sameinuðu þjóðannna var meira
en þrefaldað við afgreiðslu fjár-
laga nú fyrir jólin og þróunarað-
stoðin aukin nokkuð. Einnig er
það ánægjulegt, að margir láta
töluvert af hendi rakna í frjálsri
söfnun hjálparstofnana. Engu að
síður er það staðre^nd, að okkar
hlutur er magur. Ur því þarf að
bæta. Við höfum af mörgu að
miðla, meðal annars dýrmætri
þekkingu, sem getur orðið van-
þróuðum þjóðum mikils virði á
leiðinni til sjálfsbjargar.
Þegar griðasáttmálinn var
undirritaður í París í nóvember
síðastliðnum, stóðu hersveitir
gráar fyrir vopnum, tilbúnar til
stríðs við Persaflóa. Átök þar
með nútíma ógnarvopnum geta
haft meiri og víðtækari afleiðing-
ar en nokkurn grunar. Ég tek
undir með þeim íslendingum,
sem skora á þjóðir heims að leita
allra leiða til að koma í veg fyrir
hernaðarátök. En klukkan geng-
ur hratt og tíminn virðist illa
nýttur. Við skulum vona, að úr
því rætist strax á nýju ári.
Stærst er þó að öllum líkindum
sú blikan, sem boðar eyðingu
umhverfisins, ef hugsunarlaust er
sótt fram á braut efnishyggjunn-
ar. Á þeirri vegferð hefur ekki
verið að því gáð, að græða sárin.
Þvert á móti, í sárin hefur iðulega
salti verið stráð.
Um það er ekki lengur deilt,
en eiturefnin eyða hinu vernd-
andi ósónlagi himinhvolfsins og
eitra andrúmsloftið svo, að
gróðurinn gulnar og eyðist, og í
sjóinn safnast úrgangsefni svo að
sýkist og deyr hin lifandi auðlind
hans. Þeir eru hins vegar ótrúlega
margir, sem telja ekki sannað, að
út á ystu nöf sé komið, og því
megi enn knýja af krafti Grótta-
kvörn efnishyggjunnar, til bættra
Iífskjara, eins og það er gjarnan
orðað.
Þeim fjölgar þó sem telja að
ekki verði lengur frestað að
greiða tollinn.
Sá tollur verður hár, á því er
enginn vafi, jafnvel svo, að hag-
vöxtur kann að verða lítill á
næstu árum eða áratugum. Sér-
staklega er hætt við að svo fari, ef
kappið verður ekki beislað og
forsjá látin ráða mannsins
gerðum.
Þannig eru þau tímamót sem
við lifum nú. Á þau fellur bæði
ljómi og skuggi. Gatan um þau
verður ekki bein og breið heldur,
að öllum líkindum, vandratað
einstigi.
Við íslendingar stöndum að
ýmsu leyti vel að vígi.
Við búum við tiltölulega hreint
umhverfi. Það sem hefur spillst
getum við bætt. Uppblásnu börð-
in getum við grætt og víða klætt
landið skógi á ný. Á þessu er,
sem betur fer, vaxandi skilningur
og vilji, sem ég efa ekki, að muni
skila miklu í verki á næstu árum.
Sjálfsagt er einnig að fjarlægja
allt það sem spillir umhverfinu,
og ganga þannig frá öllum úr-
gangi, að ekki valdi tjóni. Ekki
verður heldur hjá því komist að
setja atvinnulífinu, og okkur
sjálfum sem einstaklingum,
ströngustu kröfur um mengunar-
varnir og góða umgengni.
Vissulega er þetta mikið átak,
en ekki nema smámunir þó hjá
því, sem aðrar þjóðir eiga við að
stríða. Og verkið er hafið. Á
umhverfismálum er nú skipulega
tekið, enda verður að skipa þeim í
öndvegi. Fátt mun reynast þjóð-
inni meiri auður en hreint og
fagurt land.
Við íslendingar erum einnig
svo lánsamir að hér á landi svelt-
ur enginn þótt kjörin séu
misjöfn. Við framleiðum sjálfir
um það bil helming af okkar fæðu
og reyndar langtum stærri hluta
af því, sem nauðsynlegast er. Ég
efa að nokkur þjóð njóti hollari
og betri afurða síns lands og sjáv-
ar en við íslendingar.
Á tiltölulega fáum árum hefur
tekist að koma á fót velferðar-
kerfi, sem veitir ungum
menntun, þeim lið sem minni
máttar eru, og aðhlynningu öldr-
uðum og sjúkum. Ég hygg að allt
sé þetta með því besta, sem
þekkist. Undan því er að vísu
kvartað, að velferðarkerfið sé
dýrt. Það gera einkum þeir, sem
eru svo lánsamir að hafa þurft lít-
ið á því að halda. Vissulega verð-
ur að hagræða og spara og láta
það njóta forgangs sem nauðsyn-
legast er. Ég vil þó treysta því, að
aldrei verði menntun og þjónusta
við þá, sem sjúkir eru eða eiga á
brattann að sækja, Iátin ráðast al
efnum og aðstæðum einstaklings-
ins.
Þegar ég ferðast um friðsælar
byggðir þessa lands, eða geng um
fjölfarnar götur, verður mér oft
til þess hugsað hve mikils virði
það er, að hér á landi berumst við
ekki á banaspjótum eða stundum
hryðjuverk. I Austurstræti taka
menn mig tali, þakka sumt en
lasta annað, en skilja ætíð sem
vinir. Fáar þjóðir geta státað af
slíku.
Það er margt sem þessari þjóð
hefur gott hlotnast eða hún sjálf
skapað, margt sem verður að
varðveita.
Enginn má þó skilja orð mín
svo að enga sjái ég erfiðleikana.
Þeir eru margir, meðal annars
ýmsir sem virðast fylgja nútíma
þjóðfélagi.
Lífskjarakapphlaupið hefur til
dæmis veikt fjölskylduna svo að
heill barnanna gleymist æði oft.
Lyklabörnin svonefndu eða þau
veglausu eru smánarblettur á
velferðarþjóðfélagi. Úr þessu má
eflaust bæta með dagheimilum og
heilsdagsskólum, en slíkt kemur
aldrei í stað fjölskyldunnar.
Það er orðið brýnt að setja
manngildið ofar auðgildinu,
fagurt og gott mannlíf ofar efnis-
hyggjunni.
Sönn og góð lífskjör eru sjald-
an falin í söfnun eigna og auðæfa.
Miklu fremur fylgja þau góðu lífi
fjölskyldunnar sem nýtur þess
saman, sem lífið og landið hefur
fagurt að bjóða. Góð lífskjör
speglast ekki síst í hamingju og
velferð barnanna. Þeir unglingar
sem þannig njóta fjölskyldunnar
í sínu uppeldi láta sjaldan freist-
ast.
Til þess að það megi takast
sem við setjum okkur, er nauð-
synlegt að atvinnulífið sé öflugt.
Á framleiðslunni hvílir flest það,
sem við viljum gera. Ef stöðug-
leiki ríkir eru kostirnir margir.
Sjórinn og landið er auðugt.
Orkulindirnar eru mikils virði og
ber að nýta þær af skynsemi. Þó
hygg ég að fátt muni reynast
þjóðinni meiri uppspretta vel-
megunar, en sú þekking sem
fólkið aflar sér, ekki síst æskan.
Því verður að kappkosta að
skapa atgervismönnum aðstöðu
til starfa og efla þann þekking-
arbrunn sem þá fæðir, vísindin.
Umhverfið, kyrrðin, hreint loft
og vatn getur einnig skapað
mikla atvinnu og tekjur. Það
mun draga að fjöldann sem holl-
ustu leitar. Vandinn verður að
velja og gera það vel sem við
kjósum.
Ef til vill þykir þér, hlustandi
góður, að ég dragi upp of fagra
mynd af framtíð hinnar íslensku
þjóðar. Rétt er að framtíðin mun
verða önnur, ef kylfa er látin
ráða kasti. Hver hún yrði vitum
við að sjálfsögðu ekki, því réði
kylfan.
Þótt við ráðum, sem betur fer,
ekki veðrum og vindum eða hita-
stigi sjávar, er flest annað af
mannanna gerðum. Því getum
við stjórnað og eigum að gera af
hagsýni og visku. Það er ekki síst
nauðsynlegt nú, þegar landið
opnast og samskipti við erlendar
þjóðir fara vaxandi. Þá mun leik-
sviðið stækka og umsvif og frelsi
einstaklingsins aukast. Það getur
bæði orðið til góðs og ills. Það er
undir okkar eigin verkum komið.
Þá er mikilvægt að við stöndum
traustum fótum á traustum
grunni á heimaslóðum. Barlómur
og uppgjöf eru ekki íslendingsins
eðli. Það sæmir okkur betur að
bretta upp ermar og taka til
hendi. Með samtakamætti þjóð-
arinnar mun Grettistakinu verða
lyft og framtíðin verða björt.
Að vísu er því gjarnan
mótmælt, ef nefnt er að hafa beri
stjórn á ýmsum þáttum efnahags-
mála. Rétt er að þess ber að gæta
að einstaklingarnir njóti frelsis til
heilbrigðra athafna. Ékkert þjóð-
félag er sterkara en einstakling-
arnir sem það byggja. Hins vegar
er það skylda stjórnvalda að
skapa aðstöðuna og setja leik-
reglurnar þannig, að sem flestir
fái notið sín og þjóðfélagið allt
uppskerunnar, að einhverju
leyti.
Góðir íslendingar.
Mér hefur orðið tíðrætt um
atriði sem mikilvæg eru í okkar
lífi og starfi en þó ekki það sem
gerir okkur að þjóð. Eigin saga,
eigin menning og tunga og eigið
land, skipa okkur til sætis með
fullvalda og sjálfstæðum þjóðum.
Án þess værum við í raun ekki
til.
Þegar landið opnaðist fyrir er-
lendum fjölmiðlum var ég í hópi
þeirra sem óttuðust áhrifin á
menningu okkar og tungu. Það
geri ég ekki lengur. Mér er ljóst
að æskan metur arfinn engu
minna en við sem eldri erum.
Hann er í góðum höndum og
mun varðveitast ef vel er að æsk-
unni búið.
Einn fagran dag í haust átti ég
leið upp undir hæstu björg fjalls
eins norðanlands. Ég settist þar í
veglegt klettasæti og sat góða
stund. Svo iangt sá ég sem fjöllin
leyfðu og fyrir neðan lá dalurinn
fagur og friðsæll. Um hann rann
áin í bugðum til sjávar. Allt var
þetta eins og Jónas Hallgrímsson
lýsir þegar hann hyllir íslandsvin-
inn Pál Gaimard:
„Þú stóðst á tindi Heklu hám
og horfðir yfir landið fríða
þar sem um grænar grundir líða
skí'nandi ár að ægi blám. “
Og við öll sem njótum, hljót-
um að svara játandi spurningu
skáldsins:
„Þótti þér ekki ísland þá
yfirbragðs-mikið til að sjá?“
En þar sem ég sat og horfði yfir
þennan fagra dal, gat ég ekki var-
ist þeirri hugsun að margur
þreyttur, erlendur athafnamað-
urinn myndi vilja eignast slíkan
griðastað. Ekki skortir þá auð né
efni, væri dalurinn falur. Það má
aldrei verða. Minnumst þess sem
skáldkonan; Hulda segir í Þjóð-
hátíðarljóði sínu:
„Hver dagur líti dáð á ný.
Hver draumur rætist verkum í,
svo verði íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð. “
Rétt er það, að framtíðin mun
ráðast af okkar eigin verkum.
Góðir íslendingar.
Ég þakka ykkur gott og árang-
ursríkt samstarf á liðinu ári. Megi
nýjar árið verða okkur farsælt.
Guð varðveiti og blessi hina
íslensku þjóð.