Dagur - 03.01.1991, Side 8

Dagur - 03.01.1991, Side 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 3. janúar 1991 íþróttir Sl. laugardag boðaði íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar til samkomu á Hótel KEA. Þar voru veittir styrkir til íþróttafélaga og afreksfólks í íþróttum en eins og fram hefur komið er hefur verið rætt um að stofna sérstakan afreks- og styrktarsjóð á Akureyri. A samkomunni á Hótel KEA fengu fjórir cinstaklingar fjárstyrk en það voru júdómaðurinn Freyr Gauti Sigmundsson og skíðamennirnir Guðrún H. Kristjánsdóttir, Haukur Eiríksson og Valdi mar Valdemarsson. 5 félögum var einnig veittur styrkur, Golfklúbbi Akureyr- ar, Sundfélaginu Óðni, Júdódeild KA, Skíðaráði Akureyrar og Akri, íþróttafélagi fatlaðra. Myndin er tekin þegar Gunnar Jónsson, formaður ráðsins, greindi frá styrkveitingunum. Þá var öllum akureyrskum íþróttamönnum sem urðu Islandsmcistarar á síðasta ári veittar sérstakar viðurkenningar. Nánar verður sagt frá þessu í blaðinu á morgun. Mynd: Golli 2. flokkur Þórs Júlíus Tryggvason, fyrirliði b-liðs Þórs hampar sigurlaununum. Mynd: jhb B-lið Þórs. Ragnar Sverrisson afhendir syni sínum, Sveri Bautamótið í innanhússknattspyrnu: B-lið Þórs reyndist sterkast - sigraði a-liðið 1:0 í úrslitaleik B-lið Þórs vann nokkuð óvæntan sigur á Bautamótinu í innanhússknattspyrnu sem fram fór í íþróttahöilinni á Akureyri sl. sunnudag. Liðið lagði a-Iið Þórs 1:0 í úrslitum og það var Axel Vatnsdal sem skoraði eina mark leiksins. A- lið KA hafnaði í 3. sæti, sigraði b-lið KA 11:5 í úrslitaleik. 16 lið mættu til leiks og stóð mótið yfir allan daginn og fram á kvöld. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína í höllina og fylgd- ust með og tókst mótið að flestu leyti vel. Þó hitnaði vel í kolun- um þegar a-lið KA og b-lið Þórs áttust við og fékk einn leikmanna. KA að sjá rauða spjaldið fyrir brot skömmu fyrir leikslok. Sá dómur var í meira lagi hæpinn og í framhaldinu fékk annar leikmaður KA að sjá rauða spjaldið eftir grófa framkomu við dómara. Spillti þessi uppákoma fyrir annars ágætlega heppnuðu móti. Úrslit í einstökum leikjum urðu þessi: D-riðiII Leiftur-Þór b 2:3 TBA-Reynir b 3:2 Þór b-Reynir b 3:1 Leiftur-TBA 6:1 TBA-Þór b 2:4 Reynir b-Leiftur 1:7 8 iiða úrslit Þór a-Magni 6:2 HSÞ b-KA b 1:3 KA a-Leiftur 7:1 Reynir a-Þór b 2:4 4 liða úrslit Þór a-KA b 3:2 KA a-Þór b 2:3 Úrslit um 3. sæti KA b-KA a 5:11 Úrslit um 1. sæti Þór b-Þór a 1:0 A-riðiII UMSE-HSÞ b 3:6 Þór a-SM 4:2 HSÞ b-SM 5:0 UMSE-Þór a 2:3 Þór a-HSÞ b 3:2 SM-UMSE 2:5 B-riðill Magni-Dalvík 3:0 KA b-Allir sem 1 4:1 Dalvík-Allir sem 1 4:1 Magni-KA b 0:2 KA b-Dalvík 8:3 Allir sem 1-Magni C-riðill 2:1 KA a-VMA 3:1 Reynir a-Norðanáttin 5:2 VMA-Norðanáttin 2:4 KA a-Reynir a 5:1 Reynir a-VMA 3:2 Norðanáttin-KA a 2:7 Skautasvellið á Akureyri: Opið kl. 13-16 út þessa viku Mjög góð aðsókn hefur ver- ið að skautasvellinu á Akur- eyri um jólin. Af þeim sök- um hyggst Skautafélagið hafa svellið opið fyrir almenning frá kl. 13-16 út þessa viku. Þá verða kvöld- tímarnir óbreyttir sam- kvæmt dagskrá. Opnunartími skautasvells- ins er að sjálfsögðu háður veðri og vindum. Ef veður er tvísýnt getur fólk aflað sér upplýsinga um opnunartíma á svellinu í símsvara Skauta- félagsins, 27740.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.