Dagur - 03.01.1991, Qupperneq 9
Fimmtudagur 3. janúar 1991 - DAGUR - 9
Mynd: Golli
•i Ragnarssyni JMJ-bikarinn
Mynd: JHB
JMJ-mótið í handbolta:
S ko m m us t e m ni n ingin rifjuð upp
2. ílokkur Þórs sló „þeim gömlu“ við
Hið árlega JMJ-mót í hand-
knattleik fór fram í íþrótta-
skemmunni á Akureyri sl. laug-
ardag. Fjögur lið mættu til
leiks, þrjú frá Þór og eitt frá
KA, og stóð 2. flokkur Þórs
uppi sem sigurvegari. Það voru
margir gamlir kappar sem
drógu fram skóna á laugardag
og rifjuðu upp snilldartakta frá
fyrri árum en mesta athygli
vakti sennilega þátttaka
Alfreðs Gíslasonar með „Old
Boys“ liði KA og Þorbjörns
Jenssonar með „Old Boys“
liði Þórs.
Töluverður fjöldi áhorfenda
lagði leið sína í skemmuna á
laugardaginn og fylgdist með því
sem fram fór. Þar gaf að líta
marga af þeim köppum sem
gerðu garðinn frægan á árum
áður og var ekki að sjá að þeir
hefðu neinu gleymt þrátt fyrir að
flestir væru komnir í annan
þyngdarflokk. Eitthvað virðist þó
hafa látið undan því í gær fréttist
af gamalli kempu úr herbúðum
Þórs sem var á leið til læknis.
Taldi hann líðan sína svo slæma
að hann hlyti að vera brotinn en
samkvæmt öruggum heimildum
var aðeins um harðsperrur að
ræða.
Liðin sem tóku þátt voru
meistaraflokkur og 2. flokkur
Þórs, „Old Boys" lið KA og lið
Ragnars Þorvaldssonar sem var
skipað yngri „Old Boys“ leik-
mönnunr Þórs. 2. flokkur Þórs
gerði sér lítið fyrir og vann, tap-
aði aðeins einu stigi eins og sést
hér á eftir.
Ýmsar uppákomur vöktu
kátínu áhorfenda, t.d. þegar
Halldór Rafnsson færði Ragnari
Sverrissyni, kaupmanni og Þórs-
ara, KA-handklæði og KA-glas
með því skilyrði að þetta yrði
mikið notað. Sagðist Ragnar ætla
að standa við það loforð og er
hann þegar farinn að sjást í sundi
með gult og blátt handklæði.
Urslit á mótinu urðu þessi:
Þór mfl.-Þór 2. fl. 8:8
R.L.-Þór O.B. 7:9
KA O.B.-Þór mfl. 10:9
Þór 2. fl.-R.L. 11:5
Þór O.B.-KA O.B. 8:7
Þór mfl.-R.L. 14:11
Þór 2. fl.-Þór O.B. 10:7
R.L.-KA O.B. 9:8
Þór O.B.-Þór mfl. 10:17
KA O.B.-Þór 2. fl. 9:13
Lokastaða:
1. Þór 2. fl. 7 stig
2. Þór mfl. 5
3. Þór O.B. 4
4.-5. KA O.B. 2
4.-5. R.L. 2
Það var handknattleiksdeild
Þórs sem sá um framkvæmd
mótsins í samvinnu við Ragnar
Sverrisson í JMJ en hann gaf
einnig öll verðlaun í mótið.
Það voru nokkrir af yngri kynslóðinni sem þurftu að sýna feðrum sínum í tvo heimana. 6 feðgar tóku þátt í mótinu
og þeir eru frá vinstri: Jóhann Einarsson og Árni Páll, Ragnar Sverrisson og Sverrir, Benedikt Guðmundsson og
Guðmundur, Páll Sigurgeirsson og Aðalsteinn. Sigtryggur Guðlaugsson og Rúnar og loks Guðmundur Svansson og
Ingólfur. Mynd: Golli
Enska knattspyrnan:
Einvígi Iiverpool og Arsenal
- C. Palace og Leeds töpuðu - Paul Gascoigne rekinn útaf
Ekki fengu leikmenn í Eng-
landi langan tíma til að jafna
sig eftir áramótin því heil
umferð var leikin á nýársdag.
Þó var leikur Norwich gegn
Nottingham For. í 1. deild á
dagskrá 2. janúar. En lítum þá
á leiki nýársdagsins.
Liverpool tók á móti Leeds
Utd. á Anfield og þar var búist
við jöfnum leik. Liverpool hafði
tapað gegn Crystal Palace á laug-
ardaginn, en Leeds Utd. hafði
leikið 14 leiki í röð án þess að
tapa. Það fór þó á annan veg og
Liverpool sigraði 3:0, en leikur-
inn var þó jafn og vel leikinn.
Liverpool fékk óskastart í leikn-
um, strax á 7. mín. sendi David
Burrows fyrir mark Leeds Utd.
þar sem John Barnes tók við
boltanum og skoraði úr þröngu
færi. Á eftir fylgdi besti kafli
Liverpool í leiknum og Ronnie
Rosenthal bætti við öðru marki
liðsins með skoti í stöng og inn.
Rosenthal lagði síðan upp þriðja
mark Liverpool á síðustu mín.
leiksins fyrir Ian Rush. Leik-
menn Leeds Utd. hefðu þó átt að
skora í leiknum, Bruce Grobb-
elaar markvörður Liverpool
varði mjög vel frá Gary McAllist-
er, þrumuskot Glynn Snodin af
löngu færi small í þverslá og
Steve Nicol bjargaði á línu frá
Lee Chapman. En Leeds Utd.
varð að játa sig sigrað og Liver-
pool hefur nýja árið með glæsi-
brag.
Arsenal fylgir Liverpool eftir
sem skugginn og liðið náði mjög
mikilvægum sigri á útivelli gegn
Man. City. Eftir markalausan
fyrri hálfleik þar sem Niall Quinn
var óheppinn að ná ekki forystu
fyrir City, náði Alan Smith að
skora eina mark leiksins fyrir
Arsenal á 59. mín. eftir horn-
spyrnu. Leikurinn var frekar
slakur, en sigur Arsenal góður
þar sem liðið leikur án Tony
Adams og David O'Leary varð
að fara útaf meiddur í fyrri hálf-
leik. Dave Hillier kom inná í
hans stað og lék vel.
Eftir gott gengi að undanförnu
varð Crystal Palace að láta í
minni pokann fyrir Aston Villa.
David Platt og Paul McGrath
léku mjög vel fyrir Villa í leikn-
um. Platt náði forystu fyrir Villa
með marki úr vítaspyrnu rétt eft-
ir hlé og hann bætti síðara mark-
inu við 10 mín. fyrir leikslok eftir
langa markspyrnu varamarkvarð-
ar Villa Lee Butler. Butler lék
vel í markinu hjá Villa og greip
oft vel inní leikinn.
Everton vann sinn þriðja sigur
í röð er liðið lagði Chelsea að
velli og Everton virðist vera að
komast í sitt gamla form. Kevin
Wilson náði þó forystunni fyrir
Chelsea á 10. mín. með góðu
marki, en Graeme Sharp jafnaði
fyrir Everton aðeins 3 mín. síðar.
Sigurmark Everton kom síðan á
5. mín. síðari hálfleiks er Jason
Cundy miðvörður Chelsea sendi
boltann í eigið mark eftir fasta
sendingu Pat Nevin fyrir markið.
Chelsea sótti mjög það sem eftir
var leiks, en Everton stóðst allar
árásir liðsins af öryggi.
Sheffield Utd. er enn á botni
deildarinnar þrátt fyrir góðan sig-
ur gegn Q.P.R. sem nú er að
komast í alvarlega fallhættu.
Sheffield-liðið var þó heppið í
leiknum og Roy Wegerle misnot-
aði þrjú dauðafæri fyrir Q.P.R.
þar af vítaspyrnu 5 mín. eftir að
Brian Deane hafði náð forystu
fyrir Sheffield á 7. mín. með
Paul Gascoigne, stjarna Totten-
ham, var rckinn útaf gegn Man.
Utd.
skalla. Þetta mark Deane reynd-
ist sigurmark leiksins og ekki eru
öll sund lokuð fyrir Sheffield
Utd. að bjarga sér frá falli.
Derby og Coventry gerðu 1:1
jafntefli í sínum leik þar sem
Mick Harford náði forystu fyrir
Derby á 5. mín. og liðið hafði
yfirburöi í upphafi leiks. Cyrille
Regis náði að jafna fyrir Coventry
á 33. mín. og Derby missti undir-
tök sín í leiknum. I síðari hálfleik
lék Coventry undan sterkum
vindi og Kevin Gallacher lagði
upp hvert færið af öðru fyrir mið-
herja Coventry, en Mark Wright
var sem klettur í vörn Derby og
kom í veg fyrir að Coventry næði
að skora sigurmarkið.
Wimbledon bar sigurorð af
Luton á heimavelli sínum 2:0.
John Fashanu skoraði fyrra mark
Wimbledon rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks, en Alan Cork bætti því
síðara við um miðjan síðari hálf-
leik. Cork lék sinn 400. leik með
Wimbledon og því var við hæfi
að hann skoraði í leiknum.
Kevin Ball tryggði Sunderland
sigurinn gegn Southampton með
marki úr vítaspyrnu á fyrstu mín.
síðari hálfleiks eftir að brotið var
á Colin Pascoe.
Leikur Tottenham gegn Man.
Utd. hófst ekki fyrr en öðrum
leikjum var lokið og þar var um
hörkuleik að ræða. Tottenham
náði forystu snemma í fyrri hálf-
leik er Gary Lineker skoraði úr
vítaspyrnu sem dæmd var á hendi
Mike Phelan eftir skot Paul
Allen. En leikmenn Man. Utd.
gáfust ekki upp og náðu tökum á
leiknum. Steve Bruce náði að
jafna fyrir Utd. fyrir leikhlé úr
vítaspyrnu eftir að brotið hafði
verið á Mark Hughes. Erik
Thorstvedt varði mjög vel í
marki Tottenham, tvívegis frá
Hughes og einnig frá Lee Sharpe.
Á 20. mín. síðari hálfleiks var
Paul Gascoigne rekinn útaf hjá
Tottenham fyrir kjafthátt við
dómara leiksins er leikmenn
Tottenham vildu fá vítaspyrnu
fyrir brot á Lineker. Þrátt fyrir að
lið Tottenham væri manni færri
virtist liðinu ætla að takast að
halda jafnteflinu, en er 5 sek.
voru komnar yfir venjulegan
leiktíma tókst Brian McClair að
skora sigurmark Utd. af stuttu
færi eftir undirbúning Hughes.
2. deild
• Jimmy Quinn tryggði West
Ham sigur á útivelli gegn Bristol
Rovers nreð marki undir lok
leiksins.
• David Hirst og Paul Williams
tryggðu Sheffield Wed. sigurinn
gegn Middlesbrough.
• Oldham varð að sætta sig við
1:1 jafntefli heima gegn New-
castle. Þ.L.A.