Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 9. apríl 1991 fréttir h RARIK kaupir raíveitu og hitaveitu Siglufjarðar - kaupverðið er 450 milljónir króna og gengur til að greiða skuldir bæjarfélagsins og veitnanna Rafmagnsveitur ríkisins og SigluQarðarbær gengu form- lega frá sölu á eignum rafveitu og hitaveitu Siglufjarðar á sunnudag. RARIK eignast Skeiðsfossvirkjun og hitaveit- una auk flutnings-, aðveitu- og dreifikerfi, einnig átta jarð- eignir í Fljótum og vatnsrétt- indi þriggja annarra jarða. RARIK tekur við rekstri eign- anna 20. aþríl. Kaupverðið er 450 milljónir króna, sem greið- ist með yfirtöku lána. Tildrög sölunnar eru þau að á fundi bæjarstjórnar 4. desember í fyrra var kosin 4 manna nefnd, sem ræða skyldi við RARIK um fyrirhugaða sölu. í nefndinni voru Sverrir Sveinsson, veitu- stjóri, Björn Valdimarsson, bæjarstjóri, Björn Jónasson sparisjóðsstjóri og Kristján L. Möller, forseti bæjarstjórnar. Af hálfu RARIK voru Kristján Jónsson forstjóri, Eiríkur Briem og Steinar Friðgeirsson deildar- stjórar. Björn Valdimarsson bæjar- stjóri segir að samdóma álit allra bæjarfulltrúa hafi verið fyrir hendi á nauðsyn þess að lækka skuldir, til að bæta fjárhagsstöðu Siglufjarðarkaupstaðar. Björn tók fram að fjárhagsleg staða bæjarfélagsins eigi að vera komin í viðunandi horf um næstu ára- mót, og fljótlega úr því megi vænta þess að menn fari að taka til höndunum við ýmsar fram- kvæmdir í bænum sem séu orðn- ar löngu tímabærar, en verkefna- listinn sé langur. RARIK hefur annast raforku- sölu á Norðurlandi vestra, ef frá eru talin bæjarfélögin Sauðár- krókur og Siglufjörður. „Rekstur rafveitu og hitaveitu Siglufjarðar fellur vel að rekstri RARIK á Norðurlandi vestra og ljóst er, að aukið hagræði næst með sam- rekstri þessara veitukerfa. Þá eykur Skeiðsfossvirkjun hag- kvæmni í orkuöflun RARIK. Kaupverð rafveitu og hitaveitu Siglufjarðar er byggt á viðskipta- legu mati á verðmæti eignanna, þannig að tekjur af eignunum standi undir kaupverðinu, auk þess rekstrarhagræðis sem af samrekstri hlýst. Aðilar eru sam- Frá undirritun samningsins um sölu orkufyrirtækjanna á Siglufirði. Mynd: Á.S. mála um að með þessu hafi verið stigið mikið heillaspor og að verulegt hagræði fylgi þessum aðgerðum fyrir báða samningsað- ila,“ segir í sameiginlegri frétta- tilkynningu RARIK og Siglu- fjarðarbæjar. Samkvæmt samningi þessum halda allir starfsmenn hitaveitú og rafveitu Siglufjarðar störfum sínum áfram hjá RARIK. Allmargar jarðir í Austuf- Fljótum fylgja með í kaupunum til RARIK. Um er að ræða jarE\- irnar Skeið ásamt Fosshjáleígu, Stóru-Þverá, Bakka, Bergland, Berghyl, Hólakot, Reykjarhóí, auk vatnsréttinda jarðanna Minni-Þverár, Hvamms og Hafnar. EHB Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju: ; Fjölbreytt dagskrá með um 300 þátttakendum Kirkjulistavika 1991 verður haldin í Akureyrarkirkju 21.- 28. apríl og er þetta í annað sinn sem efnt er til slíkrar lista- viku í kirkjunni. Þar munu sameinast kraftar margra aðila sem standa að menningarmál- um í bænum og má þar nefna Kór Akureyrarkirkju, Tónlist- arfélag Akureyrar, Leikfélag Akureyrar og Kammerhljóm- sveit Akureyrar. Þá mun Sin- fóníuhljómsveit íslands halda tónleika. Ýdalir: Tónleikar þriggja kóra Rúmlega 150 söngmenn, af báðum kynjum, munu koma fram á söngskemmtun að Ýdölum í Aðaldal sem Karla- kórinn Hreimur býður til nk. laugardag 13. aprfl. Auk Hreims ntunu Lizzí, kór Kvenfélagasambands Suður- Þingeyinga, og Karlakór Akur- eyrar Geysir koma fram á skemmtijninni. Fyrst munu kór- arnir syngja sitt í hvoru lagi, síðan karlakórarnir saman og að lokum allir kórarnir sameig- inlega. Að lokinni söngskemmt- uninni verður haldinn dansleik- ur. Starfsemi kóranna í Suður- Þingeyjarsýslu hefur verið mikil að undanförnu. Hreimur hefur unnið að upptöku á plötu og hyggst á næstu vikum halda tón- leika víða um Norðaustur- og Austurland. Lizzíarkórinn mun einnig halda tónleika í Þing- eyjarsýslu en síðan á Akureyri og í Reykjavík, og í byrjun júní mun kórinn halda í söngferða- lag til Þýskalands og Frakklands. IM Akureyri: Jón skrifar áfram Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur endurnýjað ráðningar- sanining við Jón Hjaltason, sagnfræðing, sem vinnur að ritun Sögu Akureyrar. Jón sagði upp störfum fyrr á þessu ári vegna óánægju með launakjör og í kjölfar uppsagn- arinnar voru teknar upp viðræð- ur við hann. Samningsaðilar hafa nú náð saman um kaup og kjör og Jón situr því sem fyrr á Amtsbókasafninu á Akureyri og skrifar sögu bæjarins. Fyrsta bindi Sögu Akureyrar kom sem kunnugt er út fyrir síðustu jól, en stefnt er að því að þau verði þrjú. óþh Dagskrá kirkjulistavikunnar er fjölbreytt og vegleg og skal hér getið um nokkur atriði. Hátíðin verður formlega sett sunnudag- inn 21. apríl og um leið verður myndlistarsýning fimm kvenna opnuð í Safnaðarheimilinu. Sama dag heldur Sinfóníuhljóm- sveitin tónleika og flytur m.a. verk fyrir sinfóníuhljómsveit og orgel og kemur þá stærsta orgel landsins að góðum notum. Þriðjudaginnn 23. apríl verður efnt til hringborðsumræðna um tengsl hinna ýmsu greina lista við kirkju og guðfræði. Miðvikudag, fimmtudag og föstudag sýnir Leikfélag Akureyrar Skrúðs- bóndann eftir Björgvin Guð- mundsson, tónskáld, í samvinnu við Akureyrarkirkju. Laugardaginn 27. apríl er boð- ið upp á ljóðatónleika og á sunnudaginn verður hátíðar- messa í Akureyrarkirkju. Flutt verður Missa brevis eftir Mozart fyrir kór, einsöngvara og hljóm- sveit. Þetta er aðeins lauslegt yfirlit yfir nokkur atriði sem eru á dagskrá Kirkjulistayik.u í Akur1 eyrarkirkju en alls munu um 300 manns taka þátt í henni. SS Blönduós: Útbod við heilsugæslustöðina - Þorvaldur Evensen með lægsta tilboðið Opnuð voru í gær hjá Inn- voru i gær kaupastofnun ríkisins tilboö í framkvæmdir við lóð heilsu- gæslustöðvarinnar á Blöndu- ósi. Lægsta tilboðið kom frá Þorvaldi Evensen en það hljóðaði upp á 7.936.640 krónur. Tvö önnur tilboð bár- ust einnig í verkið. Steypustöðin á Blönduósi og Höfðaverk voru með næst lægsta tilboðið en það var upp á 9.788.240 krónur. Þriðja tilboðið var frá Þór Snorrasyni Reykjavík og var upp a 13.014.863 krónur. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 9.675.174. Eftir er.að kanna og yfirfara öll tilboðin og ekki verður tekTþ ákvörðun um hvaða tilboði verð- ur tekið fyrr en því er lokið. Áætluð verklok við heilsugæslu- stöðina eru 15.júní næstkom- andi. Framkvæmdirnar felast í jarð- vatnslögnum og grófjöfnun lóð- arinnar. Einnig verður skipt um jarðveg alls um 2500 rúmmetra. kg Athugasemd vegna fréttar um gólfið í íþróttahúsinu á Sauðárkróki: Um hefðbundið gólf að ræða segir Aðalsteinn Jónsson forstjóri Sjafnar í síðasta laugardagsblaði Dags er frétt um að þeir sem stundi íþróttir í íþróttahúsinu á Sauðár- króki kvarti undan eymslum í ökklum og hnjám og álitið að örsokin kunni að vera sú að gólf hússins sé of hart. Þá er þess einnig getið að gólfið sé frá fyrir- tækinu Sjöfn á Akureyri. Vegna fréttarinnar hafði Aðal- steinn Jónsson forstjóri Sjafnar samband við blaðið og vildi koma á framfæri athugasemd vegna hennar. Aðalsteinn segir að hér sé um hefðbundið gólf með gúmmíundirlagi að ræða og að um 80-90% gólfum íþróttahúsa hér á landi sé með slíku undir- lagi. „Hér er um að ræða gúmmí- undirlag frá þýsku fyrirtæki og þykktin á því í íþróttahúsinu á Sauðárkróki var ákveðin af bygg- inganefnd hússins. Við höfum sent menn til Sauðárkróks og rætt þar við eftirlitsmann hússins. Hann lét alls ekki illa af gólfinu sem slíku og taldi ástæður þeirra meiðsla sem um getur í fréttinni, vera þær að verið er að leika körfubolta jöfnum höndum á malbiki utanhúss og svo innan- húss,“ sagði Aðalsteinn. Hann sagði jafnframt að gólfið á Sauðárkróki væri samskonar og í flestum íþróttahúsum á Norðurlandi, m.a. á Akureyri og undirlagið frá þessum sama þýska framleiðanda. Þá hefur ekki verið kvartað yfir þeirri framkvæmd sem starfsmenn Sjafnar sáu um við gólfið á Sauð- árkróki.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.