Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 17

Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 17
kvikmyndarýni Þriðjudagur 9. apríl 1991 - DAGUR - 17 t Umsjón: Jón Hjaltason Æ, æ, kvennalistakonur Borgarbíó sýnir: Ekki segja til inín (Dont Tell Her It’s Me). Leikstjóri: Malcolm Movbray. Aðalhlutvcrk: Steve Guttenberg, Jami Gertz og Shelley Long. Ég segi nú bara: Úff, úff og æ, æ, kvennalistakonur! Rauðsokkur í ykkar hópi ættu að forðast þessa kvikmynd. (Er ég kannski á villi- götum, eru allar kvennalistakon- ur líka rauðsokkur?) Ég er ekki frá því að þið mynduð kalla þá mynd sem dregin er upp af kven- fólki í Ekki segja til mín lítil- lækkandi fyrir gjörvallt veikara kynið. Að vísu skal ég viður- kenna að þetta er ekki einhlít túlkun þar sem heilinn á bak við ráðabruggið er kvenkyns. Steve Guttenberg leikur mann sem barist hefur langri baráttu við dauðann og ber þess glögg merki. Jami Gertz er systir hans og frægur ástarsögu rithöfundur. Shelley Long er „fórnarlambið”. Gertz vill fyrir alla mundi koma bróður sínum út en hann er óframfærinn og sjúkdómurinn hefur ekki beint fegrað hann. Long er ung og falleg blaðakona er sækist eftir að eiga viðtal við Gertz en rithöfundurinn grípur tækifærið til að reyna að koma þeim saman, bróður sínum og blaðakonunni með heldur léleg- um árangri til að byrja með. Snemma sögunnar lýsir Long frati á karlhetjurnar er spretta út úr hugskoti Gertz; þær séu reig- ingslegar og einþykkar, fámálug- ar en þó allt að því fullkomnar í karlrembu sinni. Og til að gera langa sögu stutta breytir Gertz bróður sínum í eina slíka sögu- persónu og skipar honum að leggja út net sín fyrir Long. Ekki segja til mín er lauflétt gamanmynd, sagan hvílir á snjallri hugmynd en ég er ekki alveg viss um að þær Gertz og Long séu jafnokar Guttenbergs á leiksviðinu. Pústþjónusta Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðin sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri. Atvinna! Bandaríska flugfélagið Borgarbíó sýnir: Bandaríska flugfélagið (Air America). Aðalhlutverk: Mel Gibson og Robert Downey Jr. Víetnamstríðið er aftur á dagskrá í þessari bráðsmellnu kvikmynd um flugfélagið sem CIA setti á laggirnar í Suðaustur-Asíu, ég veit þó ekki ennþá til hvers þeir stóðu í þessum stórræðum. Þessi fáfræði mín er vafalaust merki þess að aðstandendum Banda- ríska flugfélagsins hefur tekist sæmilega upp. Markmið þeirra með myndinni, fyrir utan að skemmta bíóförum, er greinilega að draga upp niynd af fáránleika þessarar aðgerðar CIA. Við fáum að sjá flugmenn drekka sig fulla að kvöldi og fljúga að rnorgni; verkefni þeirra er að varpa lifandi svínum, korni og jafnvel smokkum yfir meintan óvin. Það seinast talda átti víst að draga baráttukjarkinn úr Víetnömskum hermönnum þar sem þeir þrömmuðu Ho Chi Minh-leiðina frá Noður- Víetnam, eftir endilöngu Laos yfir til Suður-Víetnams. Bandaríska flugfélagið er þó ekki fyrst og fremst um asnastrik CIA í Laos; hún segir frá sam- bandi þeirra Billy Covington, sem Robert Downey leikur, og Gene Ryacks (Mel Gibson). Billy er ungur og nýkominn til Laos, Gene er eldri og búinn að vera ótiltekinn tíma í landinu. Annar er ungur og ekki alveg laus við hugsjónir, hinn er reynd- ari og hugsar um það eitt að tryggja sér þægileg eftirlaun. Spillingin er allt í kring og sá ungi á í vök að verjast. Vantar fólk til Upplýsingar veitir verslunarstjóri frá 10-11 fh. næstu daga. Ekki í síma. HAGKAUP Akureyri Nýjar bandarískar rannsóknir: Sala víns í matvöruverslimum stuðlar að aukrnni áfengisneyslu Tveir bandarískir vísindamenn, Wagenaar og Holder, benda á í Journal of Studies in Alcohol að sala veikra vína í matvörubúðum auki áfengisneyslu. í ýmsum ríkjum vestra er Samver tapaði upptökuvél Samver á Akureyri tapaði dýru upptökutæki á Norðurlandi vestra um hádegisbilið sl. föstudag. Tækið var skilið eftir við vegkant skammt frá Blönduvirkjun, þar sem Ólaf- ur E. Jóhannsson fréttamaður og tveir starfsmenn Samvers voru við upptöku á kosninga- þætti fyrir Stöð 2. Aðeins örfáum mínútum eftir að þetta gerðist, hugðust Sam- versmenn sækja tækið en þá hafði einhver vegfarandi tekið það til handargagns. Hér er um mjög sérhæfðan upptökubúnað að ræða sem ekki nýtist nema fyrirtækjum sem framleiða sjón- varpsefni. Tækið er merkt Samver hf. og sá er það tók, er vinsamlegast beðinn að hafa samband við fyrirtækið á Akureyri hið fyrsta. Tvær leiðir eru hentugar til þess að verja ungbarn í bíl Látiö barniö annaöhvort liggja i bílstól fyrir ungbörn eöa barnavagni sem festur er meö beltum. uÉUMFERÐAR Vráð einkasala á áfengi eins og á Norðurlöndum, í nokkrum fylkj- um Kanada og víðar. í Iowa og Vestur-Virginíu var leyft að selja veik vín og bjór í vissurn mat- vörubúðum. Vísindamennirnir fylgdust með áhrifunum af því. Niðurstaðan var sú að ekki ein- ungis víndrykkja jókst heldur og heildarneysla áfengis. í Vestur- Virginíu jókst víndrykkja um 48% og í Iowa um 93%. .t Konan mín, SUSANA SIGRÍÐUR BALDVINSDÓTTIR, andaðist 5. apríl á Dvalarheimlinu Hlíð. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju kl. 13.30, föstudaginn 13. apríl. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Páll Þórðarson. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinsemd við fráfall og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KATRÍNAR FRIÐBJARNARDÓTTUR, Hallbjarnarstöðum, Tjörnesi. Guð blessi ykkur öll. Árni Kárason, synir og fjölskyldur. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur vin- semd og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, BJÖRNS ÓLASONAR, Selaklöpp, Hrísey. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri og Krabbameinslækningadeildar Land- spítalans. Fyrir hönd aðstandenda, Sigfríður Jónsdóttir og börn. Sjúkrahúsið í Húsavík sf. Hjúkrunarfræðingar óskast til sumarafleysinga. Uppl. gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða hjúkrunarfræðing á Bæklunar- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sem fyrst, eða eftir samkomulagi. Deildin er 13-15 rúma, sinnir almennum bæklunar- lækningum, þ.m.t. gerviliöaaögeröum auk móttöku bráðatilfella frá Noröur- og Austurlandi. Upplýsingar gefa Guömunda Óskarsdóttir deildar- stjóri og Svava Aradóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 96-22100 kl. 13-14 virka daga. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Arkitekt Húsafriðunarnefnd ríkisins óskar að ráða arkitekt til starfa. Starfiö er fólgiö í ráðgjöf viö viðgerðir gamalla húsa, heimildasöfnun og skráningu eldri bygginga. Starfs- aöstaöa verður á Þjóöminjasafni íslands. Ráðiö verður í starfið til reynslu í eitt ár. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir meö upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist Húsafriðunarnefnd, Þjóöminjasafni íslands, Pósthólf 1489, 121 Reykjavík, fyrir 22. apríl n.k. Umsækjendur þurfa aö geta hafið störf sem fyrst en eigi síöar en 1. júní nk. Upþlýsingar veitir Lilja Árnadóttir, ritari Húsafriöun- arnefndar, Þjóðminjasafni íslands.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.