Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 12

Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 12
er - nuoAG - reer inqs .e iueBbu[6n«i 12 - DAGUR - Þriðjudagur 9. apríl 1991 íþróttir Arsenal styrkti stöðu sína á toppnum - sigraði Sheffield Wed. 2:0 - fátt annað markvert í 1. deild Tveim leikjum í 1. deild var frestað á laugardag vegna úr- slitaleiksins í Zenith bikarnum á sunnudaginn. Annar þessara leikja var leikur Liverpool gegn Crystal Palace, en einnig leikur Derby gegn Everton og eru þeir báðir í mikilvægari kantinum. En átta leikir fóru fram í 1. deild og lítum nánar á úrslit þeirra. Arsenal heimsótti Sheffield Utd. sem hafði sigrað í sex heimaleikjum í röð, en Arsenal batt enda á þá sigurgöngu. Staða Arsenal er nú orðin mjög góð á toppi deildarinnar og fylgismenn þeirra munu verða fyrir miklum vonbrigðum ef liðið verður ekki meistari. Pað fór ekkert á milli mála að Arsenal var mun sterk- ara liðið í leiknum, sóknarmenn Sheffield komust ekkert áfram gegn sterkri vörn liðsins. Kevin Campell náði forystu fyrir Arsen- al eftir 10 mín. leik er hann afgreiddi sendingu Alan Smith í netið. Campell er í miklum ham um þessar mundir og frammi- staða hans minnir mjög á loka- sprettinn hjá Ronnie Rosenthal fyrir Liverpool í fyrra. Síðara mark Arsenal kom 16 mín. fyrir leikslok, Campell sem sjálfur var í góðu færi sendi til Smith sem lyfti yfir markvörð Sheffield í netið og öruggur sigur liðsins í höfn. Framkvæmdastjóri Chelsea setti fjóra landsliðsmenn úr liði sínu fyrir leikinn gegn Luton vegna slakrar frammistöðu að undanförnu, Steve Clarke, Tony Dorigo, Kerry Dixon og Gordon Durie voru settir út. Um miðjan fyrri hálfleik virtist sem þessi ákvörðun myndi kosta liðið sigurinn, Luton var komið 3:0 yfir og tap blasti við. Lars Elstrup kolrangstæður skoraði fyrst, hann lagði síðan upp næsta mark fyrir Sean Farrell og Farrell átti Úrslit Zenith bikarinn Úrslit. Crystal Palace-Everton 4:1 1. deild Aston Villa-Manchester Utd. 1:1 Chelsea-Luton 3:3 Manchester Citj-Nottingham For. 3:1 Norwich-Coventry 2:2 Sheffield Utd.-Arsenal 0:2 Sunderland-Q.P.R. 0:1 Tottenham-Southampton 2:0 Wimbledon-Leeds Utd. 0:1 2. deild Rarnsley-Hull City BrLstol Rovers-Plymouth Charlton-lpswich Leicester-Brighton Middiesbrough-Bristol City Notts County-Newcastle Oldham-MillwaU Odord-Blackbum Port Vale-West Ham Portsmouth-Sheffield Wed. Swindon-Watford Wolves-W.B.A. Úrslit í vikunni. 1. deild Lceds Utd.-Sundcrland 5:0 Manchester Utd.-W'imblcdon 2:1 Arsenal-Aston Villa 5:0 2. deild Ipswich-Portsmouth 2:2 Brighton-Port Vale 1:2 Millwall-Wolves 2:1 3:1 0:0 1:1 3:0 2:1 3:0 1:1 0:0 0:1 2:0 1:2 2:2 ana. Pað var við hæh að besti maður vallarins, Gordon Strach- an leggði upp sigurmark Leeds Utd. er Lee Chapman skallaði inn frábæra sendingu hans. John Fashanu miðherji Wimbledon fór meiddur útaf í hálfleik og án hans áttu leikmenn Wimbledon ekki möguleika á að jafna í síðari hálf- leiknum. Leeds Utd. er að vonast eftir Evrópusæti næsta vetur og liðið vann mikilvægan útisigur gegn Wimbledon á laugardag með eina marki leiksins. Wimbledon hefur aldrei unnið Leeds Utd. og sem betur fer gerðist það ekki nú, því eina knattspyrnan í leikn- um kom frá Leeds Utd., leik- menn Wimbledon treystu á kraft- Lee Chapmann skoraði sigurmark Leeds Utd. gegn Wimbledon. síðan sendingu á Kingsley Black sem skoraði þriðja mark Luton. Graeme Le Saux minnkaði mun- inn fyrir Chelsea á 30. mín., en var síðan rekinn af velli eftir samstuð við Graham Rodger sem fékk áminningu. Einum færri í síðari hálfleik barðist Chelsea af miklum krafti, Graham Stuart skoraði með skalla og .Dennis Wise jafnaði síðan úr vítaspyrnu fyrir Chelsea sem hann fiskaði sjálfur. Alec Chamberlain í marki Luton varði að vísu spyrn- una, en Wise skoraði er boltinn barst til hans aftur. Sunderland og Q.P.R. mættust í mikilvægum fallbaráttuleik sem Q.P.R. vann með eina marki leiksins. Leikmenn Sunderland léku illa og fengu fá tækifæri, en gestirnir með Roy Wegerle, Ray Wilkins og Andy Sinton sem bestu menn spiluðu oft ágætan fótbolta. Það var Andy Tillson sem skoraði sigurmark Q.P.R. á 40. mín. úr þvögu, en Wegerle og Sinton hefðu einnig átt að skora fyrir liðið' og úrslitin hefðu þá gefið réttari mynd af gangi leiks- ins. Eftir þessi úrslit er staða Sunderland að verða vonlítil, en Q.P.R. ætti ekki að þurfa að hafa frekari áhyggjur af sæti sínu í 1. deild. Leikur Aston Villa og Man. Utd. fór fram við erfiðar aðstæð- ur, foráttuveður og völlurinn sem svað. Pað var því vonlaust fyrir leikmenn liðanna að leika góða knattspyrnu. Tilviljanir réðu því mestu, en mörkin komu eftir klukkutíma leik með 5 mín. millibili. Tony Cascarino skoraði fyrst fyrir Villa með dæmigerðu skallamarki fyrir hann, en Lee Sharpe jafnaði síðan fyrir Utd. eftir sendingu frá Dennis Irwin. Að mörkunum undanskildum gladdi fátt augað, annað en þegar David Platt reyndi tvívegis að fá dómarann til að hætta við að bóka leikmenn Utd. Leikmenn Utd. hafa eflaust haft hugann við Evrópuleikinn gegn Legia Warsaw í Póllandi nú í vikunni. Man. City vann góðan sigur gegn Nottingham For. þar sem Scott Gemmill lék sinn fyrsta leik fyrir Forest, en hann er sonur Archie Gemmill þjálfara Forest. Prátt fyrir mikla yfirburði Forest í upphafi tókst þeim ekki að koma boltanum framhjá Tony Coton í marki City sem varði oft mjög vel, sérstaklega frá Nigel Clough tvívegis, Ian Woan og Roy Keane. City komst yfir strax á 7. mín. er Keane handlék bolt- ann í teignum og Mark Ward skoraði úr vítaspyrnunni. Niall Quinn bætti öðru marki City við á 28. mín. eftir mistök Steve Chettle og Steve Redmond skall- aði inn þriðja mark City rétt fyrir hlé. Eina mark Forest skoraði Stuart Pearce eins og honum ein- um er lagið 15 mín. fyrir leikslok með þrumuskoti beint úr auka- spyrnu. Leikmönnum Forest lærðist því í leiknum að ekki er nóg að skapa sér færi, það verður að skora úr þeim. Gary Lineker kom nú aftur inní lið Tottenham eftir að hafa verið hvíldur að undanförnu og lék af miklum krafti í leiknum gegn Southampton. Hann skor- aði bæði mörk Tottenham og fékk tækifæri til að skora þrennu, en Tim Flowers í marki Southampton varði mjög vel góða vítaspyrnu hans sem hann fisk- aði sjálfur. En tvö mörk er ekki slæmt, mörkin komu á 4 mín. kafla rétt fyrir hlé og voru bæði góð. Southampton átti ekkert Ian Wright tryggði Palace Zenith-bikariiin Á sunnudag léku Crystal Palace og Everton til úrslita um Zenith bikarinn á Wembley. Þetta er keppni 1. og 2. deildarliða sem komið var á þegar ensku liðin voru dæmd úr Evrópukeppn- inni fyrir nokkrum árum. Yfir 50.000 áhrofendur sáu úrslitaleikinn sem Crystal Palace vann með þrem mörkum á 12 mín. kafla í framlengingu. Ian Wright hinn snjalli miðherji Palace var seinn í gang, en það var þó hann sem tryggði liði sínu sigurinn að lokum. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 1:1, Geoff Thomas náði forystu fyrir Palace með skalla á 67. mín., en Robert Warzycha jafn- aði fyrir Everton skömmu síðar eftir sendingu Mike Newell. Markverðir liðanna Neville Southall Everton og Nigel Martyn Palace vörðu báðir vel í lokin og tryggðu framlenginguna. Palace var mun sterkari aðilinn í fram- lengingunni, Wright gerði vel er hann tók við langri sendingu fram og skoraði framhjá Southall með góðu skoti fyrir Palace. John Salako skallaði síðan inn góða sendingu frá Eddie McGoldrick og kom Palace 3:1 yfir. Wright átti síðan lokaorðið með fjórða marki Palace í leiknum. Everton liðið barðist vel í leiknum og lengst af mátti ekki á milli sjá hvort liðið væri sterkara, Ian Wright var maðurinn á bakvið sigur Crystal Palace á Everton í Zenith-bikarnum á Wembley. en lokasprettur Palace var sterk- ur og liðið stóð að lokum uppi sem sigurvegari í leiknum. Þ.L.A. svar og sigurinn gefur leikmönn- um Tottenham sjálfstraust fyrir undanúrslitaleikinn í FA-bikarn- um. Norwich og Coventry gerðu 2:2 jafntefli í leik sínum sem ekki var mikilvægur fyrir liðin. Coven- try náði forystu er Kevin Gallac- her kastaði sér fram og skallaði inn af stuttu færi, en Tim Sher- wood jafnaði fyrir Norwich með öðru skallamarki. Robert Fleck náði síðan forystunni fyrir Nor- wich er hann potaði í markið af stuttu færi í upphafi síðari hálf- leiks. Jöfnunarmark Coventry skoraði síðan Micky Gynn með góðu skoti gegnum þvögu af leik- mönnum. 2. deild • Andy Ritchie jafnaði fyrir Oldham gegn Millwall eftir að Malcolm Allen hafði skorað fyrst fyrir Millwall. • Ian Bishop skoraði sigur- mark West Ham gegn Port Vale og West Ham er nú efst í 2. deild. • Sheffield Wed. er enn í þriðja sæti 2. deildar þrátt fyrir tap gegn Portsmouth þar sem Guy Whittingham skoraði fyrir heimamenn. • Brighton tapaði einnig illa gegn Leicester 3:0, þeir Tommy Wright, Kevin Russell og Gary Mills skoruðu. • Ossie Ardiles hefur nú stjórn- að Newcastle í tveim leikjum og hafa þeir báðir tapast. • Glenn Hoddle tók við stjórn- inni hjá Swindon af félaga sínum Ardiles og hann hóf framkvæmda- stjóraferil sinn á tapi heimagegn Watford. Þ.L.A. Staðan 1. deild Arsenal 32 21-10- 160:13 71 Livcrpool 31 19- 6- 6 60:29 63 Crystal Palace 3217- 7- 8 43:38 58 Leeds Utd. 31 16- 7- 8 49:3155 Manchester Utd. 33 13-11- 8 51:36 52 Manchester City 32 13-10- 9 50:45 49 Wimbledon 32 11-12- 9 47:39 45 Tottcnham 31 11-12- 8 43:38 45 Everton 31 11- 8-12 39:36 41 Chelsea 33 11- 8-14 46:54 41 Coventry 33 10- 9-14 36:40 39 Q.P.R. 32 10- 9-13 38:46 39 Norwich 31 11- 6-14 35:48 39 Nottingham For. 32 9-11-12 45:45 38 Sheffield Utd. 33 11- 5-18 29:49 38 Southampton 33 10- 7-16 49:59 37 Aston Villa 31 8-12-1137:4136 Luton 34 9- 7-18 40:57 34 Sundcrland 33 7- 8-18 33:53 29 Derby 30 4- 9-17 27:58 21 2. deild West Ham 38 21-13- 4 52:26 76 Oldham 38 21-11- 6 71:43 74 Sheffield Wed. 37 17-14- 6 64:42 65 Millwall 39 17-12-10 58:42 63 Middlesbrough 39 17- 9-13 58:42 60 Brighton 38 18- 6-14 59:60 60 Notts County 37 17-10-10 60:50 58 Bristol City 39 17- 6-16 59:59 57 Barnsley 36 15-10-11 55:3855 Wolves 39 12-17-10 57:53 53 Oxford 39 12-16-1160:59 52 Bristol Rovere 4113-12-15 50:52 51 Charlton 39 12-14-13 50:49 50 Ipswich 3711-16-10 49:54 49 Port Vale 39 13- 9-17 48:54 48 Ncwcastle 37 12-12-13 37:44 48 Portsmouth 4011-11-18 50:63 44 Blackburn 39 12- 8-1941:54 44 Swindon 39 10-13-16 52:58 43 Plvmouth 39 9-14-16 44:58 42 Lcicester 3912- 6-2152:72 42 W.B.A. 40 9-12-19 44:54 39 Watford 39 8-14-17 35:52 38 Hull Cily 39 8-12-19 50:77 36

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.