Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 9. apríl 1991
Svarfdælingar
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
verður með viðtalstíma
miðvikudaginn 10. apríl
kl. 14.00-16.00
í Þinghúsinu Grund.
Framsóknarflokkurinn.
Listamannalaun:
Verulegar breytingar á
launakerli listamanna
Verulegar breytingar hafa verið
ákveðnar á launakerfi lista-
manna. Þetta gerist samkvæmt
nýjum lögum um listamannalaun
sem samþykkt voru á Alþingi í
lok þingsins.
Meginbreytingarnar sam-
kvæmt lögunum eru sem hér
segir:
Fjórir sjóðir listamanna verða
starfræktir.
1. Launasjóður rithöfunda.
2. Tónskáldasjóður.
3. Starfslaunasjóður myndlist-
armanna.
4. Listasjóður sem er almenn-
ur sjóður í þágu allra listamanna.
Leiklistarfólk, á rétt á helmingi
starfslauna úr listasjóði. Jafnramt
verða veitt sérstök framlög úr
þessum sjóði, m.a. til þeirra sem
hafa notið listamannalauna
undanfarin ár og náð hafa 60 ára
aldri. Listasjóðurinn nemur 240
mánaðarlaunum.
Starfslaun listamanna munu
10°/<
staðgreiðslu
O afeláttur
á „pakkavöru“ M 9.-13. aprO
Það eina sem er undanþegið afslætti
eru mjólkurvörur, kjötvörur, fiskvörur
og tóbak.
Okkar hraðvirka og örugga
strikmerkjakerfi sér þér fyrir
réttum afslætti.
□
MARKAÐUR
FJÖLNISGÖTU 4b
Opið virka daga kl. 10.30 til 18.30
Opið laugardaga kl. 10.00 til 14.00
Verslun allra Norðlendinga. Opin alla daga til kl. 22.00
MATVÖRUMARKAÐURINN
KAUPANGi
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 22.00
MM
li,ili,il
Styrkjum norðlenskt athafhalíf!
Sækjum þjónustu tíl heimamanna!
Verið velkomin!
nema samanlagt 900 mánaðar-
launum, en núverandi lista-
mannalaun, almenn starfslaun og
starfslaun úr Launasjóði rithöf-
unda nema nú 764 mánaðarlaun-
um. í lögunum er síðan gert ráð
fyrir því að bæta við 60 mánaðar-
launum á ári næstu fimm árin.
Sett verður upp sérstök stjórn
listamannalauna sem hefur yfir-
umsjón með kerfi listamanna-
launa og annast úthlutun úr lista-
sjóði. Úthlutunarnefndir sér-
greindu sjóðanna verða tilfnefnd-
ar af viðkomandi samtökum lista-
manna.
„Á elleftu stund“
- 5. úrvalsbókin
komin út
Út er komin bókin „Á elleftu
stund“ sem er fimmta bókin í
bókaflokki sem Úrvalsbækur -
Frjáls fjölmiðlun hf. gefa út. Eins
og fyrri bækurnar fjórar er þetta
úrvals spennusaga eftir valinn
höfund.
í kynningu frá útgefanda segir
m.a.:
„A elleftu stund er mjög
óvenjuleg spennusaga sem gerist
á hjúkrunarheimili fyrir aldraða.
Aðalhetjan, Henry, þykist verða
var einkennilegra mannaferða
um það leyti sem dauðinn ber að
dyrum allt í kringum hann. Hon-
um þykir heldur ekki einleikið
hvernig vistmennirnir týna töl-
unni einn af öðrum.
Hann fer að hafa orð á þessu
við aðra og þá líður ekki á löngu
þar til honum sjálfum er sýnt til-
ræði. Hann strýkur þá í skyndi af
heimilinu með Dixie vinkonu
sinni og þau lenda í ævintýrum
sem í senn eru rómantísk, hættu-
leg og fyndin, uns leiðin liggur
aftur heim á hjúkrunarheimilið
og stund uppgjörsins nálgast."
Eyðilandið
- fne Waste Land
eftir T. S. Eliot
IÐUNN hefur gefið út ljóðabálk-
inn Eyðilandið eftir bandaríska
skáldjöfurinn T.S. Eliot í þýð-
ingu Sverris Hólmarssonar. Þetta
er það verk Nóbelsskáldsiná sem
mest jók hróður þess og varð
þegar við útkomu sína afar
umdeilt, hneykslaði marga og
heillaði aðra, og er eitthvert
þekktasta bókmenntaverk síðari
tíma á sviði ljóðlistar.
Eyðilandið eða The Waste
Land hefur haft meiri og langærri
áhrif á skáldskap nútímans en
flest önnur ljóð. Ljóðmál bálks-
ins þykir einkar margrætt og auð-
ugt og skáldið seilist víða til
fanga í tíma og rúmi. Ljóðunum
fylgja athugagreinar skáldsins,
þar sem tilvísanir eru skýrðar og
raktar til bókmennta fortíðar og
samtíðar.
Þýðing Sverris Hólmarssonar
birtist hér ásamt enskum frum-
texta ljóðanna, auk þess sem
Sverrir ritar um skáldið og ljóð
þess og gerir ítarlega grein fyrir
hvorutveggja.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
l|iðSB,OAB