Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 10

Dagur - 09.04.1991, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 9. apríl 1991 íþróttir Þriðjudagur 9. apríl 1991 - DAGUR - 11 Úrslitá skíðamóti íslands Alpagreinar Svig karlar 1. Valdimar Valdemarsson, A. 84.56 2. Vilhelm Þorsteinsson, A. 84.72 3. Daníel Hilmarsson, D. 85.20 4. Jóhannes Baldursson, A. 85.92 5. Jón Ingvi Árnason, Á. 86.59 Svig konur 1. Ásta Halldórsdóttir, í. 92.41 2. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. 93.22 3. María Magnúsdóttir, A. 93.69 4. Harpa Hauksdóttir, A. 98.24 5. Eva Jónasdóttir, A. 98.32 Stórsvig karlar 1. Kristinn Björnsson, Ó. 110.71 2. Valdimar Valdemarsson, A. 113.47 3. Vilhetm Þorsteinsson, A. 115.32 4. Haukur Arnórsson, R. 116.18 5., Amór Gunnarsson, í. 117.56 Stórsvig konur 1. Ásta Halldórsdóttir, f. 114.68 2. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. 115.61 3. María Magnúsdóttir, A. 115.66 4. Eva Jónasdóttir, A. 117.65 5. Fanney Pálsdóttir, í. 119.30 Aipatvíkeppni karlar 1. Valdimar Valdemarsson, A. 2. Vilhelm Þorsteinsson, A. 3. Daníel Hilmarsson, D. Alpatvíkeppni konur 1. Ásta Halldórsdóttir, í. 2. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. 3. María Magnúsdóttir, A. Samhliðasvig kurlar 1. Örnólfur Valdimarsson, R. 2. Arnór Gunnarsson, í. 3. Jóhannes Baldursson, A. Samhliðasvig konur 1. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. 2. Eva Jónasdóttir, A. 3. Ásta Halldórsdóttir, í. Skíðaganga Ganga 20 ára og e., 15 km F 1. Haukur Eiríksson, A. 49:20 2. Sigurgeir Svavarsson, Ó. 50:16 3. Rögnvaldur D. Ingþórsson, A. 51:31 4. Ólafur H. Björnsson, Ó. 53:51 Ganga 17-19 ára, 10 km F 1. Daníel Jakobsson, í. 32:39 2. Tryggvi Sigurðsson, Ó. 35:16 3. Kristján Ó. Ólafsson, A. 36:02 Ganga 20 ára og e., 30 km H 1. Rögnvaldur D. Ingþórsson, A. 1:44:18 2. Haukur Eiríksson, A. 1:45:04 3. Sigurgeir Svavarsson, Ó. 1:48:38 Ganga 17-19 ára, 15 km H 1. Daníel Jakobsson, í. 50:40 2. Kristján Ó. Ólafsson, A. 57:02 3. Óskar Jakobsson, í. 59:30 Göngutvíkeppni 20 ára og e. 1. Haukur Eiríksson, A. 2,08 2. Rögnvaldur Ingþórsson, A. 5,77 3. Sigurgeir Svavarsson, Ó. 7,38 Göngutvíkeppni 17-19 ára 1. Daníel Jakobsson, í. 1,61 2. Kristján Ó. Ólafsson, A. 24,54 3. Óskar Jakobsson, í. 44,92 Boðganga 16 ára og e., 3x10 km HFF 1. Sveit Akureyrar 1:39:28 Kristján Ó. Ólafsson 36:41 Rögnvaldur D. Ingþórsson 30:56 Haukur Eirlksson 31:51 2. A-sveit Ólafsfjarðar 1:41:07 Ólafur H. Björnsson 35:54 Tryggvi Sigurðsson 33:47 Sigurgeir Svavarsson 31:26 3. Sveit fsafjarðar 1:45:49 Daníel Jakobsson 35:00 Árni Freyr Eiíasson 36:37 GIsli Einar Árnason 34:12 4. B-sveit Ólafsfjarðar 1:48:57 Kristján Hauksson 38:05 Bjartmar Guðmundsson 35:43 Bergur Björnsson 35:09 I r- Kristinn Björnsson: Var í betra formi „Ég ætlaði mér að vinna þetta allt. Ég er hins vegar ekkert vonsvikinn, þó það hafi ekki gengið upp og er ánægður með mótið,“ sagði Kristinn Björns- son sem sigraði með miklum yfirburðum í stórsvigi. Kristinn hafði langbesta tím- ann eftir fyrri ferð í sviginu en krækti og féll úr keppni. „Petta var bara óheppni sem má alltaf búast við. Ég átti góða fyrri ferð og hún bætti þetta svolítið upp, maður veit þá hvað maður getur. Ég er í þokkalegu formi núna en var í betra formi fyrr í vetur. Ég er aðeins farinn að dala enda búinn að vera mikið á skíðum og orðinn svolítið þreyttur. Ég hef æft við mjög góðar aðstæður í Noregi í vetur, maður er í skólanum fyrir hádegi og á skíð- um eftir hádegi. Ég kann mjög vel við mig og reikna með að verða þarna a.m.k. tvö ár í viðbót.“ Kristinn tekur þátt í heims- meistaramóti unglinga sem hefst í Noregi um næstu helgi. „Mér líst vel á það og hlakka til. Ég hef ekki sett mér nein markmið enda veit ég ekki hvaða startnúmer ég fæ og geri mér heldur ekki grein fyrir því hvar ég stend. Maður mætir bara og gerir sitt besta,“ sagði Kristinn Björnsson. Guörún H. Kristjánsdóttir: Ég ætlaði mér þetta „Ég æfði mjög vel í fyrra og bý ennþá að því. Svo var ég í Júgóslavíu og Austurríki í þrjár vikur í janúar og það hef- ur haft sitt að segja,“ sagði Guðrún H. Kristjánsdóttir sem sigraði í samhliðasvigi og varð önnur í svigi, stórsvigi og alpatvikeppni, þrátt fyrir að hún hafi lítið æft í vetur. Guðrún hefur verið við nám í íþróttakennaraskólanum á Laug- arvatni í vetur og hefur lítið æft af þeim sökum. „Ég æfði mjög vel úti og svo kom ég aðeins heim um páskana. Þetta er það eina sem ég hef gert í vetur,“ sagði Guðrún. Árangurinn kom henni þó ekki á óvart. „Ég ætlaði mér að gera þessa hluti og það tókst. Ég er sátt við mitt.“ Guðrún hafði forystuna eftir fyrri ferðirnar í svigi og stórsvigi en missti forystuna niður í bæði skiptin. „Ásta var mjög góð en ég var líka taugaóstyrk og gerði mistök. Ég misreiknaði markið í stórsviginu en það réði samt ekki úrslitum. í sviginu var ég svo bara léleg í seinni ferðinni. Pað var hins vegar gaman að vinna samhliðasvigið því ég hef aldrei gert það áður á landsmóti." Guðrún lætur engan bilbug á sér finna og ætlar að reyna að samræma nám og æfingar betur næsta vetur. „Ég er ekkert að hætta strax," sagði Guðrún H. Kristjánsdóttir. Valdemar Valdemarsson: ekki nógu vel Skíðaði „Ég er nokkuð ánægður með mótið þrátt fyrir að mér hafi ekki gengið jafn vel og ég hafði vonað. Þrátt fyrir að ég hafi náð titlum skíðaði ég ekki alveg nógu vel,“ sagði Valde- mar Valdemarsson sem sigraði í svigi karla, var í 2. sæti í stór- svigi og sigraði í alpatvíkeppni. „Ég átti mjög lélega fyrri ferð bæði í sviginu og stórsviginu en ágætar seinni ferðir. Eftir fyrri ferðina í sviginu fannst mér þetta eiginlega vera búið en ég lét vaða, tók áhættuna og var mjög heppinn." - Voru keppinautarnir erfiðir að þessu sinni? „Já, sérstaklega Kristinn Björnsson sem er í geysilega góðri æfingu enda hefur hann verið að æfa við allt aðrar aðstæður en við hinir. Þessi vetur hefur verið hræðilegur fyrir okkur. Maður hefur nánast ekk- ert getað æft af neinu viti og þetta hefur verið hálfgert moð. Það hafa kannski verið 5-6 æfingar af einhverju viti frá þvf í byrjun febrúar. En það er gott að koma heim með verðlaun og ég get ver- ið sáttur við þetta,“ sagði Valde- mar Valdemarsson. Rögnvaldur Ingþórsson: Ég er sáttur við minn hlut „Ég er mjög sáttur við minn hlut. Þetta byrjaði ekki vel en sigurinn í 30 km göngunni bætti það alveg upp,“ sagði Rögnvaldur Ingþórsson en hann sigraði í 30 km göngu og var auk þess í sigursveit Akur- eyrar í boðgöngunni. Rögnvaldur hefur æft við góð- ar aðstæður í Svíþjóð í vetur og margir álitu hann sigurstrangleg- an í 15 km göngunni. „Ég bjóst nú ekki við sigri þar þrátt fyrir að ég hafi vonast eftir honum. Ég var búinn að eiga í kvefi og leiðindum þannig að ég var ekki í neinu keppnisformi. Ég var hins vegar búinn að keyra mig upp fyrir 30 kílómetrana.“ Rögnvaldur sagði að 30 km gangan hefði verið mjög erfið, sérstaklega þar sem það var þriðja gangan í röð., „Mér fannst ég ganga fyrstu 15 km mjög vel en upp úr því var ég farinn að finna fyrir þreytu og máttleysi. 15 km gangan var einnig mjög erfið þar sem maður sá ekki neitt vegna blindu. Færið var hins veg- ar gott í 30 km göngunni." Segja má að Rögnvaldur, Haukur, Sigurgeir og Ölafur séu í nokkrum sérflokki meðal göngumanna. Allir idvelja þeir erlendis og Rögnvaldur sagðist telja það jákvætt. „Ég hef æft nokkuð vel í vetur og er í ágætu formi þótt það sé auðvitað alltaf hægt að gera betur. Hins vegar held ég að ég hafi jafnvel verið í betra formi á landsmótinu í fyrra,“ sagði Rögnvaldur Ing- þórsson. Haukur Eiríksson: Veit hvernig á að hitta á formið „Ég get ekki annað en verið ánægður. Ég get varla sagt að ég hafi átt von á þessu þar sem ég hef ekki æft mikið í vetur en þó gerði ég mér einhverjar vonir,“ sagði Haukur Eiríks- son. Hann sigraði í 15 km göngu og göngutvíkeppni og var í sigursveit Akureyrar í boðgöngunni. „Eg æfði mjög vel síðustu þrjár vikurnar og keyrði mig bókstaf- lega í form. Maður er farinn að þekkja sjálfan sig svo vel eftir æfingarnar undanfarin ár að maður veit hvernig maður á að hitta á formið. Samt kom árang- urinn mér nokkuð á óvart, ég hélt að strákarnir yrðu sterkari.“ Haukur átti góðan endasprett í 30 km göngunni en náði ekki að vinna upp forskot Rögnvaldar. „Ég held að ég hafi byrjað of rólega. Ég var líka orðinn nokk- uð þreyttur eftir tvær fyrstu göng- urnar en síðan losnaði um eitt- hvað. Ég sá að Sigurgeir var að missa af mér og Rögnvaldur að slaka á og þá æstist maður aðeins upp. 15 km gangan var auðveldari en ég bjóst við. Reyndar gerði blinda og laus snjór manni erfitt fyrir en ég bjóst við harðari bar- áttu. Ég byrjaði með réttu hugarfari og hitti á góðan takt og náði að síga hægt og rólega fram- úr þeim.“ Haukur sagði að sér líkaði vel í Svíþjóð og hann yrði þar eitthvað áfram. En ætlar hann að æfa af krafti næsta vetur? „Ég veit það ekki en það væri ekki leiðinlegt að komast á ólympíuleikana. Það er hins veg- ar ómögulegt að segja hvað skíðasambandið gerir í sambandi við sín landsliðsmál og erfitt að eiga við það. Það er því ekki hægt að segja að maður stefni á ólympíuleikana en það er óneit- anlega draumurinn þar sem ég hef aldrei komist þangað áður,“ sagði Haukur Eiríksson. Blak, 1. deild kvenna: Völsungur náði öðru sætinu Keppni í 1. deild kvenna í blaki lauk um helgina. Völs- ungur náði þeim glæsilega áfanga að hafna í 2. sæti deildarinnar eftir 3:0 sigur á ÍS og 3:1 sigur á Breiðabliki. KA hafnaði í 5. sæti, eins og raunar var vitað fyrir leiki helgarinnar, en liðið sigraði HK 3:2 og tapaði 0:3 fyrir Víkingi. Þrátt fyrir 3:0 lokatölur var mikið fjör í leik ÍS og Völsungs og hart barist. Völsungur sigr- aði 17:15, 15:11 og 17:15 og máttu leikmenn liðsins hafa sig alla við í síðustu hrinu en ÍS komst þá í 10:0. Völsungar gáf- ust þó ekki upp og náðu að knýja fram sigur. Ekki var minni barátta í leik UBK og Völsungs daginn eftir en Húsvíkingar náðu þá að hefna ófaranna síðan í bikar- leiknum á dögunum. Leikurinn stóð hátt í tvo tíma og vann Völsungur fyrstu tvær hrinur 15:11 og 15:12, Breiðablik vann þá þriðju 15:1 en.Völsungur þá síðustu 15:13. Völsungar léku vel enda vel hvattar af handknattleiksliði félagsins sem var á pöllunum. Eyrún Sveinsdóttir og Jóhanna Guðjónsdóttir áttu báðar mjög góðan dag en annars var liðið jafnt. KA sigraði HK 3:2 í afar köflóttum en skemmtilegum leik á föstudagskvöldið. KA vann fyrstu 15:10, HK aðra 15:7, KA þriðju 15:5, HK fjórðu 15:11 og KA þá fimmtu 15:10. Leikurinn tók einn og hálfan tíma og var mjög fjörug- ur en HK-liðið hefur verið mjög vaxandi í síðustu leikjum. Daginn eftir tapaði KA í þremur hrinum fyrir Víkingi, 11:15, 12:15 og 11:15. Þrátt fyr- ir lokatölur var leikurinn jafn en í lið KA vantaði þær Birgittu Guðjónsdóttur og Sigurhönnu Sigfúsdóttir. Fjórar stúlkur sem lítið hafa fengið að spreyta sig í vetur léku með að þessu sinni og stóðu sig mjög vel, þær Aðalheiður Sigursveinsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Ingibjörg Heiðarsdóttir og Hulda Stefáns- dóttir. Lyftingar: Tryggvi meistari í 82 kg flokki Akureyringurinn Tryggvi Heimisson varð um helgina íslandsmeistari í 82 kg flokki í lyftingum á Islandsmótinu sem fram fór í Borgarnesi. í öðru sæti varð annar Akur- eyringur, Snorri Arnaldsson, en hann keppti í sama flokki. Tryggvi og Snorri voru einu Akureyringarnir sem kepptu á mótinu og stóðu þeir sig mjög vel. Tryggvi snaraði 110 kg og jafnhattaði 125 kg, samtals 235 kg. Snorri snaraði 107,5 kg, sem er hans besti árangur hingað til, og jafnhattaði 120 kg, samtals 227,5 kg. Garpsmótið í kraflyftingum: Verðandi jötnar í ham A laugardaginn fór fram svo- kallað Garpsmót í kraftlyft- ingum í jötunheimum, æf- ingastað akureyrskra kraft- lyftingamanna í íþróttahöll- inni. Mótið var haldið fyrir nýliða og aðra sem vildu halda keppnisforminu fram að Akureyrarmótinu sem fram fer í júlí. Jóhann Sigurðsson náði hvað bestum árangri en hann setti þrjú íslandsmet í drengjaflokki í 125 kg flokki. Aðrir sem vöktu mikla athygli voru þeir Stefán Jónsson, sem keppti á sínu fyrsta móti og sýndi mikið keppnisskap, og Grétar „garpur“ Hrafnsson sem setti 6 Akureyrarmet unglinga í 100 kg flokki. Hann náði mjög athygl- isverðum árangri í hnébeygj- unni en þar fjórbætti hann met- ið og lyfti mest 190 kg í aukatil- raun. Helgi Jónsson, sem hefur haf- ið æfingar á ný eftir nokkurt hlé, bætti 9 ára gamalt Akureyr- armet fullorðinna í hnébeygju í 56 kg flokknum. Jóhann Guð- mannsson var með langmestu þyngdina í bekkpressunni en þar virðist hann hafa mikla hæfileika til að ná langt. Mótið tókst í alla staði vel og sýnir að gróska er í unglinga- starfi Kraftlyftingafélags Akur- eyrar og ýmsir verðandi krafta- jötnar að vaxa úr grasi. Úrslitin fara hér á eftir. Töl- urnar standa fyrir árangur í hnébeygju, bekkpressu, rétt- stöðulyftu og samanlögðu. ÍD þýðir íslandsmet drengja, AM Akureyrarmet og AU Akureyr- armet unglinga. 52 kg flokkur Sigurjón Pálmason 80-45-80-205 56 kg flokkur Helgi Jónss., 110,5(AM)-80-120-310 Stefán Jónsson 70-52,5-90-212,5 67.5 kg flokkur Stefán Jóhannsson 60-55-90-205 82.5 kg flokkur Jóhann Guðmannss., 100-107,5-175-382,5 Páll Árdal 120-77,5-165-362,5 100 kg flokkur Grétar Hrafnss., 185(AU)-87,5-180(AU)-452,5(AU) Jóhann Sigurðsson 141(ÍD)-72,5-140-352,5(ÍD) (Jóhann lyfti einnig 145 kg í aukatilraun í hnébeygju). Handknattleikur: Völsungur steinlá fyrir HK Völsungur reið ekki feitum hesti frá viðureignum sínum gegn toppliðunum í úrslita- keppni 2. deildar í handknatt- leik um helgina. Á föstudags- kvöldið lék liðið gegn Breiða- bliki í Kópavogi og tapaði 22:27 og daginn eftir stein- lágu Völsungar fyrir HK, 39:21. Völsungar léku ágætlega gegn Breiðabliki og var jafn- ræði með liðunum framanaf. í leikhléi var staðan 13:11 en Breiðablik byrjaði vel í seinni hálfleik og náði þá 5 marka mun. Völsungar gáfust ekki upp, minnkuðu muninn í 21:20 en þá hrundi leikur liðsins og Breiðablik sigraði örugglega. Mörk Völsungs: Ásmundur Arnarsson 6, Haraldur Haraldsson 5, Tryggvi Guðmundsson 3, Skarphéðinn ívarsson 2, Jónas Grani Garðarsson 2, Vilhjálm- ur Sigmundsson 2, Örvar Sveinsson 1, Arnar Bragason I. Markahæstir Blika voru Björn Jóns- son með 8 mörk og Björgvin Björgvins- son með 7. Völsungar byrjuðu einnig vel gegn HK en þegar staðan var 5:5 urðu kaflaskil.. Völsungar fylltust vantrú á eigið ágæti, léku nánast allir undir getu og það þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Staðan í leikhléi var orðin 17:9 en í leikslok 39:21. Mörk Völsungs: Ásmundur 8, Jónas Grani 3, Skarphéðinn 2, Kristinn Wium 2, Arnar 2, Vilhjálmur 1, Tryggvi 1, Örvar 1 og Jónas Emilsson 1. Piniktar 1‘rá Þýskalandi ■ Stuttgart sigraði St. Pauli 2:1 á heimavelli um helgina. Leikurinn var afar slakur og lítið fyrir augað. Eyjólfur Sverrisson var í byrjunarliði Stuttgart og lék hvorki betur né verr en aðrir á vellinum. Frontzeck kom Stuttgart í 1:0 á 72. mínútu en Zander jafn- aði á 80. mínútu. Það var svo Allgöwer sem tryggði Stutt- gart sigurinn á 88. mínútu. ■ Stuttgart varð fyrir miklu áfalli þegar Buchwald sleit vöðvafestingu og varð að yfir- gefa völlinn. Hann verður frá í 6-7 vikur og menn velta því fyrir sér hvaða áhrif það eigi eftir að hafa á liðið. Buchwald meiddist í fyrra og Stuttgart vann ekki sigur í næstu 10 leikjum á eftir. ■ Kaiserslautern situr enn á toppnum eftir 2:0 sigur á Uerdingen. Fyrra markið var í stíl Maradona, Hotia skoraði það og var sterklega grunaður um að hafa notað hendina. Labbadia skoraði siðan annað markið og virðist vera á skot- skónum þessa dagana. ■ Werder Bremen fékk Hertha Berlin í heimsókn og lokatölurnar, 6:0, segja flest það sem þarf um þá viðureign. Rufer, Nýsjálendingurinn í liði Brernen skoraði þrennu í leiknum. ■ Bayern Munchen vann 2:1 útisigur á Bochum. Bochum er í baráttu um UEFA-sæti og þurfti nauðsynlega á stigunum að halda en Bæjarar halda enn í vonina um meistaratitilinn, eru í þriðja sæti, þremur stig- um á eftir Kaiserslautern. ■ Köln sigraði Frankfurt 2:1 á heimavelli. Litbarski lék með Köln en liðið hefur ekki tapað síðan hann byrjaði að leika eftir meiðslin. Hann hef- ur reyndar ekki leikiö sérstak- lega vel en nærvera hans hefur engu að síður haft góð áhrif á leik liðsins. ■ Mönchengladbach sigraði Dortmund 2:1 og styrkti þann- ig stööu sína í botnbaráttunni. Að venju var Dortmund yfir framanaf, hafði 1:0 forystu f hléi, en missti síðan sigurinn út úr höndunum. ■ Karlsruher sigraði Leverk- usen 2:0 og voru flestir sam- mála um að um algeran þjófn- að hefði verið að ræða. Leverkusen átti allan leikinn og skoraði mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. í sjón- varpi mátti hins vegar sjá að það var rangur dómur. Þýska pressan hélt því fram að Karls- ruher ætti að snúa sér að því að spila lottó því sigurinn hefði verið eins og lottó- vinningur. ■ Dusseldorf sigraði Nurn- berg 3:0 og staða Nurnberg versnar sífellt á botninum. Einn leikmanna liðsins, Kasalo, hefur átt í miklum vandræðum að undanförnu. Hann er sakaður um að hafa skorað tvö sjálfsmörk með vilja, m.a. mark gegn Stutt- gart á dögunum eftir baráttu við Eyjólf. Til að bæta gráu ofan á svart var hann handtek- inn á föstudag fyrir að keyra án ökuskírteinis og einnig fyrir að taka þátt í ólöglegu fjár- hættuspili. ■ Hamborg og Wattenscheid gerðu jafntelli 0:0. Hamborg- arar voru slappir þrátt fyrir að þeir hafi styrkt stöðu sína í baráttunni um UEFA-sæti.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.