Dagur - 30.05.1991, Blaðsíða 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Iðandi líf í Mývatnssveit:
Húsin loðin af rykmýi
- vart hægt að hafast við utandyra
Mikil veðurblíða var 1
Mývatnssveit í gær en erfitt að
njóta hennar fyrir rykmýinu
sem svo sannarlega er vaknað
til lífsins. Húsfreyja ein í
Rcykjahlíöarhverfinu sem
ræddi við okkur í gær sagði að
sjaldan eða aldrei hefði verið
eins mikið af rykmýi í sveit-
inni.
„Við erum alveg að kafna í
rykmýi og getum varla drukkið
kaffi úti í sólinni. Petta er svo
mikið að húsin niðri við vatnið
Flugfélag Norðurlands hf.:
Nýjar flugleiðir
gefast vel
Keflavíkurflugið og Húsavík-
urflugið hefur gengið sem til
stóð. Tólf flugmenn starfa hjá
Flugfélagi Norðurlands hf., og
nú er verið að ráða þrettánda
flugmanninn til að geta mætt
auknu álagi.
Að sögn Friðriks Adólfssonar,
afgreiðslustjóra Flugfélags
Norðurlands hf., tekur alltaf viss-
an tíma að fá fólk til að nýta nýja
valkosti til ferðalaga. Beina flug-
ið á Keflavík hefur gefist vel.
Flogið er til Keflavíkur frá Akur-
eyri á mánudögum, fimmtudög-
um, föstudögum og sunnudög-
um. í Keflavík vantar aðstöðu
fyrir innanlandsflugið þ.e. til
afgreiðslu vélanna og fleira og
ekkert bólar á úrbótum sem lofað
var þegar Flugfélag Norðurlands
hf. hóf ferðir til Keflavíkur.
„Sé litið til áætlunarferðanna
frá Húsavík til Reykjavíkur þá
erum við einnig nokkuð ánægðir
með undirtektir. Við fljúgum
þrisvar í viku á laugardögum,
sunnudögum og mánudögum,"
sagði Friðrik Adólfsson, af-
greiðslustjóri. ój
eru alveg loðin. Það er langt síð-
an við höfum séð eins mikið af
rykrnýi,1' sagði húsfreyjan.
Mýið náði sér vel á strik í
fyrrasumar en magnið nú slær því
sumri við. Tvær tegundir rykmýs
eru einkum mikilvægar fyrir líf-
ríkið í Mývatni, litla og stóra
toppfluga, og að sögn húsfreyj-
unnar er stóra toppflugan nú
mjög áberandi.
Þess má geta að alls eru til um
fimm þúsund tegundir rykmýs í
heiminum og lifa nokkrir tugir
þeirra hér á landi. Lirfurnar geta
skipt þúsundum á hverjum fer-
metra í vatni. Rykmýið er smá-
vaxið og stingur ekki, en öðru
máli gegnir um bitmý; algengasta
tegund þess hér á landi er
mývargur. SS
I gær var togarinn Þorsteinn EA færður frá Torfunefsbryggjunni norður í Fiskihöfnina. Myndin er tekin er Guð-
mundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri, leysti landfestar og mörgum Akureyringnum létti að losna við skipið úr hjarta
bæjarins. Mynd: Golli
Deila N.L.F.Í. og Læknafélags íslands:
Framtíð Kjamalundar í húfi
Framtíð Kjarnalundar, tilvon-
andi heilsuhælis Náttúrulækn-
ingafélags Akureyrar, er í mikill
óvissu eftir þá atburði sem
gerst hafa kringum Náttúru-
lækningafélag íslands og heilsu-
hæli félagsins í Hveragerði
undanfarið. Margir hafa af því
áhyggjur að framkvæmdir við
Kjarnalund muni stöðvast eða
tefjast af þessum sökum.
í gær var haldinn stjórnarfund-
ur í Náttúrulækningafélagi
íslands, sá fyrsti á Akureyri. Vil-
hjálmur Ingi Árnason, formaður
félagsins, sagði fyrir fundinn í
gær að ljóst væri að ekkert væri
athugavert við bókhald N.L.F.Í.,
en við könnun Ríkisendur-
skoðunar hefði bókhaldið reynst
vera til fyrirmyndar. „Þetta er
deila við ríkið um hvort við eig-
um að afskrifa um eitt prósent
eins og sjúkrahús, eða um 4,7
Orlofshúsin á Illugastöðum í Fnjóskadal:
Mér sýnist aðsóknin
í sumar slá öll met
segir Jón Óskarsson, umsjónarmaður
„Mér sýnist aðsóknin í sumar
ætla að slá öll met,“ segir Jón
Óskarsson, umsjónarmaður
orlofshúsanna á Illugastöðum í
Fnjóskadal.
Venjulega er ekki bókað í
nema örfá hús fyrstu tvær vikur
júnímánaðar, en nú bregður svo
við að bókað er í 10-12 hús fyrstu
vikuna. Jón segir að ekki sé nóg
með að nýtingin verði betri fyrstu
vikurnar, líflegra sé yfir bókun-
um í haust en undangengin
haust.
Á bilinu 20-30 verkalýðsfélög
eiga hús eða hlut í húsum á
Illugastöðum. Jón segir að gestir
komi víða að af landinu, mest
fjölskyldufólk. Húsin eru leigð í
viku í senn, frá föstudegi til
föstudags.
Árið 1988 var byggð sundlaug
á Illugastöðum. Jón segir að til-
koma hennar hafi breytt miklu
fyrir gestina. Segja megi að hún
sé troðfull frá því hún opni kl. 10
á morgnana til kl. 19 á kvöldin.
Leigan fyrir húsin verður í
lægri kantinum í sumar. Flest
þeirra kosta sjö þúsund krónur
fyrir vikuna, sem er óbreytt verð
frá því á árinu 1989.
í sumar verða 6-7 starfsmenn
við orlofsbyggðina á Illugastöð-
um, þ.m.t. umsjón með sundlaug
og verslun. óþh
prósent eins og önnur fyrirtæki,
og hvort við megum taka auka-
daggjöld af sjúklingum. í lækna-
deilunni ber hæst að Læknafélag-
ið er að stilla okkur upp við vegg,
en engar ásakanir hafa komið
fram um hvað sér rangt hjá
okkur. Landlæknir er búinn að
skoða reksturinn og fann ekkert
óeðlilegt. Þetta er því stríð milli
náttúrulækningahreyfingarinnar
og Læknafélags íslands," segir
Vilhjálmur Ingi.
Svo virðist sem Læknafélagið
vilji taka rekstur heilsuhælisins í
Hveragerði undan N.L.F.Í. og
reka það á öðrum forsendum.
Vilhjálmur Ingi segir að ef það
gerist sé framtíð Kjarnalundar
einnig vægast sagt óljós. „Eftir
allt sem á undan er gengið stend-
ur eftir ágreiningur um hvernig á
að afskrifa eignirnar, og hvort
félagið eigi að greiða fyrir upp-
bygginguna eða láta rekstrarfé
duga til þess,“ segir Vihjálmur
Ingi Árnason. EHB
Tillögur samgönguráðherra um niðurskurð vegaframkvæmda á Norðurlandi:
Hafa ekki afgerandi áhrif
að mati talsmanna Vegagerðarinnar á Akureyri og Sauðárkróki
Samkvæmt niðurskurðartillög-
um Halldórs Blöndal, sam-
gönguráðherra, nemur niður-
skurður í vegaframkvæmdum
á Norðurlandi á þessu ári 31
milljón króna, 19 milljónum í
Norðurlandskjördæmi eystra
og 12 milljónum í Norður-
landskjördæmi vestra. Tals-
menn Vegagerðarinnar á
Norðurlandi segja að niður-
skurðurinn eigi ekki að koma
harkalega niður á framkvæmd-
um í sumar.
í Norðurlandskjördæmi eystra
er annars vegar gert ráð fyrir 12
milljóna króna niðurskurði á
framkvæmdum við Eyjafjarðar-
braut (Þverá) og hins vegar 5
milljóna króna niðurskurði á
Hjalteyrarvegi.
Guðmundur Svafarsson, um-
dæmisverkfræðingur Vegagerð-
arinnar á Akureyri, segir að ráð-
ist verði í byggingu brúar yfir
Þverá í október í haust, eins og
gert hafi verið ráð fyrir. Hins
vegar sé talað um að slá á frest
tengingu brúarinnar með um
kílómeters löngum vegarkafla.
Þá segir Guðmundur að gert
hafi verið ráð fyrir að leggja slit-
lag á um 800 metra kafla á Hjalt-
eyrarvegi fyrir 5 milljónir króna,
en þeim lið verði frestað sam-
kvæmt fyrirliggjandi tillögum.
Heimir Guðmundsson, um-
dæmistæknifræðingur Vegagerð-
arinnar á Sauðárkróki, segir að
þegar hafi verið samið við verk-
taka um kaflann við Grjótá á
Öxnadalsheiði og ekki sé ætlunin
að rifta þeim samningum. Þær sjö
milljónir króna, sem rætt sé um
að spara við gerð þessa kafla, sé í
raun sparnaður vegna hagstæðs
útboðs. Hann segir að það sama
gildi um einnar milljónar króna
sparnað við annars vegar Vatns-
nesveg (Skarð) og hins vegar
Svínvetningabraut (Hnjúkahlíð).
Gert er ráð fyrir að spara 3
milljónir vegna brúar yfir Hjalta-
dalsá. Heimir segir að þarna sé
um að ræða frestun á þessari
fyrirhuguðu brúargerð. óþh
Fjallahreppur:
Vilja frekast sam-
einast Öxarfjarðarhreppi
„Ef við verðum neyddir til
þess að sameinast einhverjum,
þá viljum við sameinast Oxar-
fjarðarhreppi,“ segir Bragi
Benediktsson, bóndi Gríms-
tungu á Fjöllum.
Undanfarið hafa fulltrúar
nefndar, sem félagsmálaráðherra
skipaði til þess að kanna mögu-
leika á sameiningu sveitarfélaga,
rætt við sveitarstjórnarmenn á
Norðurlandi og kannað hug
þeirra til þess að fækka sveitar-
félögum með sameiningu þeirra.
Eitt þeirra sveitarfélaga, sem er
nokkuð ljóst að muni sameinast
öðru sveitarfélagi fyrr en síðar,
er Fjallahreppur, en þar búa
aðeins 12 manns. Bragi Benedikts-
son segir ekkert ákveðið með
viðræður um þessi mál milli full-
trúa félagsmálaráðuneytisins og
íbúa í Fjallahreppi. „Þetta verð-
ur kannað áfram, enn sem komið
er hafa einungis könnunarvið-
ræður farið fram,“ segir Bragi.
Björn Benediktsson, oddviti
Öxarfjarðarhrepps, segir að enn
hafi ekkert formlegt erindi borist
um þetta mál, en hann segist fast-
lega búast við að ef til komi gangi
Öxfirðingar til viðræðna um sam-
einingu með opnum huga. óþh