Dagur - 30.05.1991, Side 4

Dagur - 30.05.1991, Side 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 30. maí 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 SjáJfsforræði verði ekki skert Nú stendur yfir lokaáfangi samningaviðræðna ríkja EFTA og Evrópubandalagsins um Evrópskt efnahagssvæði. Ætlunin var að samninganefndir gætu undirritað samn- inginn í lok júní en nú bendir flest til að samningalotan dragist eitthvað á langinn. Ljóst er þó að ganga verður frá samkomulagi og leggja samninginn fyrir þjóðþing við- komandi landa fyrir áramót ef hann á að hljóta afgreiðslu og taka gildi í upphafi árs 1993 eins og stefnt er að. Enn er eftir að leysa úr viðkvæmum ágreiningsefnum varð- andi samstarf ríkja EFTA og Evrópubandalagsins en auk- innar bjartsýni virðist gæta eftir fund ráðherranefndar viðkomandi ríkja í Brussel á dögunum. Ýmsar athuganir benda til að sameiginlegur markaður EFTA og Evrópubandalagsins muni fela í sér aukinn efnahagslegan ávinning fyrir þátttökuþjóðirnar. í svo- nefndri Cecchini skýrslu er meðal annars komist að þeirri niðurstöðu að framleiðsla bandalagsþjóðanna muni auk- ast um 4,5% og verðlag hækka um allt að 6%. í niðurstöð- um nefndar, sem fráfarandi ríkisstjórn íslands skipaði, til að gera athugun á áhrifum Evrópsks efnahagssvæðis er fullyrt að aukin hagsæld í Evrópu muni hafa efnahagsleg áhrif hér á landi. Nefndin telur að viðskiptakjör þjóðar- búsins batni vegna þess að verð á innfluttum vörum og þjónustu lækki og bætt lífskjör í Evrópu leiði af sér aukna eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu. Auk þess komi einnig til áhrif, sem leiði af þátttöku íslands í Evr- ópska efnahagssvæðinu. Þrátt fyrir að þátttaka íslendinga í efnahagslegu sam- starfi Evrópuríkja muni að öllum líkindum færa þeim bætt viðskiptakjör og einhvern efnahagslegan ávinning er margt sem varast verður varðandi inngöngu í svo stóra markaðsheild, sem fyrirhugað samstarf innan EES er. Vegna smæðar þjóðarinnar og einhæfs atvinnulífs hafa þau grundvallaratriði í samskiptum EFTA og EB, sem nefnd eru „frelsin fjögur", ýmsar hættur í för með sér. Spyrja má hvernig íslendingar muni bregðast við brott- námi innflutningshamla varðandi landbúnaðarvörur eða kaupum erlendra aðila á landssvæðum og framleiðslufyr- irtækjum í undirstöðuatvinnuvegunum. Hvernig ætla íslenskir atvinnurekendur að mæta innflutningi fólks þegar búsetu- og atvinnuréttindi eiga að verða jöfn á öllu EES-svæðinu og hvernig verður hamlað gegn rétti Evrópubúa til þess að nýta auðlindir landsins. Flestum ætti að vera ljóst að þátttaka íslendinga í hinu fyrirhugaða Evrópska efnahagssvæði er ýmsum tak- mörkunum háð og gera verður margvíslega sérsamninga eigi einhver ávinningur að nást í því samstarfi. Jón Bald- vin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hefur sagt að frá upphafi hafi verið ljóst að Evrópska efnahagssvæðið gæti ekki eingöngu byggst á grundvelli hagsmuna háþróaðra iðnríkja. Hann hefur einnig bent á hversu háð við séum sjávarútvegi og eigi það enga hliðstæðu meðal væntan- legra aðildarríkja EES. Því er hætta á að við látum meira í té en við þiggjum og að íslendingar muni ekki hagnast jafnmikið á aðgangi að innri markaði EB og önnur ríki. Af þeim sökum hlýtur grundvallaratriðið í þeim samningum, sem íslendingar eiga aðild að varðandi Evrópska efna- hagssvæðið, að vera að sjálfsforræði þjóðarinnar verði ekki skert og íslendingar ráði áfram yfir auðlindum sín- um til lands og sjávar. £1 Vorpistill VI: Vorið góða grænt og hlýtt.... Mikil er veðurblíðan, sem við erum aðnjótandi á þessu blessaða vori. Bara að við eigum nú þetta skilið. Ætli við verðum ekki bara að treysta því, að svo sé. Tún og flatir eru orðin iðagræn og „Lömbin skoppa hýrt með hopp / hugar-sloppin-meinum“. Þessi vísufyrripartur er meinleysislegur og lýsir rétt vorlambinu, ímynd æsku og yndis. Svo kemur seinni- parturinn og er ekki síður falleg- ur og raunsær: „Bera snoppu að • blómsturtopp / blöðin kroppa af greinum“. Því er nú ver og miður, þarna hitti skáldið nagl- ann á höfuðið. Það er einmitt það, sem þessir yndislegu litlu skaðvaldar gera, ef þau komast að blómum eða smátrjám, sem ekki eru orðin „sauðheld“. Þau éta blóm og knúppa eins og börn éta konfekt og rýja litlu trjá- plönturnar blað fyrir blað og brum fyrir brum. Svona eru sauð- kindur, það þýðir ekkert að neita því. Og nú eru trén einmitt að laufgast sem mest þau mega. Það er allt á fleygiferð í trjágörðum og lundum. Var það ekki ásinn Heimdallur, sem heyrði grös gróa? Hann ætti ekki örðugt með að heyra vaxtarþytinn hér og nú þessa dagana. Ég gæti best trúað, að hann þyrfti að ganga með heyrnarhlífar, ef hann væri kom- inn nú. Það er alveg stórkostlega heill- andi að koma í skógarlundi ein- mitt þessa dagana, þegar tré eru svo sem hálflaufguð. Litskrúðið er ennþá fjölbreytilegra og ilmur- inn ennþá skarpari en seinna verður, þegar allaufgað er. Ég ók í fyrradag (23. maí) til Akureyr- ar, gegnum bæinn og áfram inn í Kjarnaskóg. Og ég verð að segja það, að ég var stórhrifinn. Akur- eyri er fögur borg og margbreyti- leikinn í byggð og gróðri og landslagi er geysiskemmtilegur. Það er t.d. hreint ótrúlegt, hvað gamli innbærinn er heillandi fag- ur og fjölbreytni trjágróðursins Hjörtur E. Þórarinsson. ævintýraleg, ég held það sé rétta orðið. Og alstaðar er öspin að teygja sig upp yfir nábúana. Mikill heilladagur var það þegar fræ hennar var flutt hingað frá Alaska í pokaskjatta fyrir einum 40-50 árum síðan. Hin sérkenni- lega, áfenga angan af laufgandi ösp er nýr munaður á Islandi. Það er best að halda áfram að tala um trjágróður. Hafa ekki all- ir tekið eftir því, hvernig víði- runnar eru að vaxa og verða stór- ir út og inn um allt hérað, þar sem engin hrísla sást fyrir nokkr- um árum? Við sjáum þetta glöggt bæði utan og innan við Akureyri. Meðfram Flugvellinum og áfram inn eftir er allt að verða löðrandi í hinum fegursta víði, bæði þeim gula og þeim gráa. Utan við Lónslækinn í friðaðri skák er enn annað sýnishorn. Skammt utan Hörgárbrúar neðan vegar er enn eitt til og utar í Arnarneshreppi líklega mest í landi Baldurs- heims, langt austur á mýrum milli skurða, eru að vaxa upp víði- lundir. Ennfremur sjáum við þetta náttúrufyrirbæri á Hörgár- eyrum inn með allri Þelamörk. En allramest er víðikjarrið þó orðið að vexti og útbreiðslu í Svarfaðardal. Á uppvaxtarárum okkar sjötugra var aðeins á ein- um stað hægt að sjá vöxtulegan, villtan víði - í Víðihólmanum í Svarfaðardalsá ofan við Árgerð- isbrúna. Nú er hið fegursta víði- kjarr á fleiri hekturum lands í Grundarmýrum og -bökkum og teygir sig út í Tjarnarland. Og víðar og víðar í dalnum er það sama að ske. Skýringin er augljós, aflagning sláttar og heyskapar á útengi og léttari sauðbeit og útilokun hrossa frá stórum skákum lands, því ekki eru þau betri í ungu skóglendi. Nú hefur einhverjum dottið í hug, að líklega sé aldeilis gráupplagt að koma upp espi- skógi í sumum af þessum sjálfala víðihólfum. Bara stinga niður asparteinungum milli víðirunn- anna og bíða svo rólegur í 10-20 ár, sjá bara um, að varsla sé í lagi. Og sjá! Þú opnar augun einn góðan vordag og þarna er kom- inn hávaxinn, ilmandi skógur og gæsir, endur, stelkar, hrossa- gaukar og m.a.s. rjúpur liggja á hreiðrum sínum í víðirunnum á milli trjánna. Tíminn og rúmið (í blaðinu) eru búin og ég er enn staddur úti í miðri Kræklingahlíð á lykkju- ferðinni, sem ég gerði hér á dögunum. Það er hægt að fara a.m.k. eina góða lykkju enn, áður en til Akureyrar kemur. í Svarfaðardal eru svona lykkjur á leið kallaðir Guðnavinkir eftir karli, sem þar var í byrjum aldar- innar. Eitt sinn ætlaði hann að fara frá Skáldalæk yfir í Helgafell handan ár. Það var snemma morguns og Guðni sá, að það var ekki farið að rjúka í Helgafelli, svo hann tafði tímann með því að bregða sér aðeins til hliðar og koma við í Dæli í Skíðadal. Ætli við tökum ekki einn Guðnavinkinn, þegar við komum rétt inn fyrir Samtúnin á morgun. HEÞ. Soroptimistaklúbbur Húsavíkur: Þýskur myndlistarmaður í heimsókn síðan vinnur hún myndir sínar út frá þeim áhrifum. Ulrike er þýsk og meðan á dvöl hennar í Þingeyjarsýslu stóð dvaldist hún hjá þýskum Þingey- ingi, Úrsúlu Pétursdóttur á Tjöm. Þær eru báðar Soroptimist- ar. Á fundinum á Húsavík dáðust Soroptimistasystur mjög að sýn- ishornum og myndum af lista- verkum Ulrike og jafnframt að heillandi framkomu og dugnaði listakonunnar. Hún ferðast t.d. ein um fáfarnar slóðir og hefur dvalið alein dögum saman út í eyðimörkum, er hún vinnur að listsköpun sinni. Á fundinum sýndi Ulrike skyggnur frá dvöl sinni á frumbyggjaslóðum í Ástralíu og myndband frá dvöl í Miklagljúfri í Bandaríkjunum. Hún hefur m.a. sótt jarðefni og myndefni í Saharaeyðimörkina og komið til íslands nokkrum sinnum áður sömu erinda. Þess má geta að auk venjulegra fundarstarfa voru þrjár konur sæmdar sérstakri orðu á þessum félagsfundi. í klúbbnum eru 25 félagar og má því telja til tíðinda að þrjár þeirra urðu ömmur fyrsta sinni á milli mánaðarlegra funda í klúbbnum. Svala Her- mannsdóttir, formaður klúbbs- ins, sló því á léttu strengina og sæmdi hópinn snudduorðunni. IM Góður gestur kom á félagsfund hjá Soroptimistaklúbbi Húsa- víkur og nágrennis í síðustu viku. Það var myndlistarkonan Ulrike Arnold sem ferðast víða um heim og safnar jarð- efnum sem hún síðan vinnur myndir sínar úr. I Listasafni ASÍ stendur yfír sýning á verk- um hennar og er sýningin opin daglega frá 14-19. Sýningunni lýkur sunnudaginn 2. júní. Ulrike Arnold dvaldist nokkra daga í Þingeyjarsýslu og fór m.a. í Námaskarð til að safna jarðefn- um til að vinna úr. Hún blandar engum litum í jarðveginn, en ferðast vítt og breitt um heiminn til að safna litríkum jarðefnum á stöðum sem jafnframt verða henni að myndefni. Staðirnir hafa mismunandi áhrif á hana og Ulrike Arnold, myndlistarmaður ásamt klúbbsystrum á Húsavík.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.