Dagur - 30.05.1991, Page 7

Dagur - 30.05.1991, Page 7
Fimmtudagur 30. maí 1991 - DAGUR - 7 um stafa herja á þjóðina eða ekki? Sígarettureykingar eru stærsta einstaka dánarorsökin sem hægt er að afstýra og því er óhætt að segja að ábyrgð okkar sé mikil. Fyrir margt löngu þegar það var til siðs að taka í vörina og tyggja tóbak viðgekkst sá ósiður að menn hræktu innan dyra sem utan og voru þá lagðir sérstakir hrákadallar fyrir menn. Sem bet- ur fer tókst að uppræta þennan ósið og vonandi verða öskubakk- ar jafn óþarfir í framtíðinni og hrákadallar eru í dag. En fyrst ber okkur að gera tilveruna reyk- lausa fyrir þá sem ekki reykja. Enginn hefur rétt til að baka öðrum heilsutjón Mig langar að vitna aðeins í liinn mæta mann Níels Dungal pró- fessor er hann skrifaði í Frétta- bréf um heilbrigðismál árið 1954: „Reykingamaðurinn verður að finna það að hann hefur ekki rétt til þess að eitra andrúmsloftið fyrir öðrum og sóða út hýbýli fólks. Menn verða að læra það að það er jafn ósæmilegt að óhreinka andrúmsloftið hjá öðr- um eins og gólf, húsgögn og veggi, og enginn hefur rétt til þess að baka öðrum heilsutjón.“ Vissulega eru þetta orð sem eiga vel við í dag. Flestum okkar þykir nóg um mengunina í ver- öldinni og flest erum við sam- mála um að það þarf að spyrna við fótum ekki seinna en strax ef ekki á illa að fara. Byrjum á okkur sjálfum En hafa menn hugleitt þá miklu mengun sem framleidd er í heimahúsum og víðar og stafar af reykingum? Er ekki skynsam- legra að við byrjum á því að líta í eigin barm og hreinsa fyrst til í eigin garði? Það er gamalkunn staðreynd að framtíð einstakl- inga og þjóða batnar ekki nema maðurinn batni. Langi okkur til að bæta heiminn verðum við að byrja á okkur sjálfum. Það hlýtur að vera orðið tímbært að við för- um að vakna til vitundar um þá ábyrgð sem fylgir því að taka þátt í þjóðfélaginu og áttum okkur á því að við getum ekki endalaust hagað okkur eins og okkur sýnist. Til þess að við fáum notið okkar sem best í samfélaginu verðum við að fara að bera virð- ingu fyrir lífinu, ekki bara líta á það sem sjálfsagðan hlut sem engu skiptir hvernig við förum með. Áhættuþættir heilsuleysis Við nútímamenn erum einkar kærulausir margir hverjir gagn- vart áhættuþáttum heilsuleysis og það er viðkvæðið hjá mörgum okkar að engu skipti hvað við lát- um ofan í okkur, hvort við reykj- um, hvort við fáum næga hreyf- ingu eða hverjir lífshættir okkar almennt eru: Öll drepumst við einhvern tímann hvort sem er. En það er nú einu sinni svo að heilbrigði fáum við ekki í vöggu- gjöf; heilbrigði okkar hlýtur ávallt að endurspegla lifnaðar- hætti okkar, góða eða slæma. í þessu sambandi er mikilvægt að við þekkjum orsakasamhengi lifnaðarhátta og heilbrigðis og fræðsla mætti að ósekju vera meiri um þessi mál, og er sjón- varpið tilvalinn miðill hvað það varðar. Ég hef orðið var við að menn taki það óstinnt upp ef þeim hefur verið bent á hvað bet- ur mætti fara í mataræði og varð ég sérstaklega var við þetta þegar Manneldisráð kynnti niðurstöður könnunar um neysluvenjur okkar íslendinga nú í vetur. Það er gamla sagan að við viljum ekki hlusta á tal um holla lífshætti, brjóti það í bága við venjur okk- ar og langanir. Við erum þrælar vanans á æði mörgum sviðum og þá ekki hvað síst hvað fæðuvalið varðar. „Enginn harðstjóri jafnast á við vanann“ Ameríski rithöfundurinn Cristian N. Boyee sagði: „Enginn harð- stjóri jafnast á við vanann og frelsið finnst aðeins þar sem reynt er að sporna gegn veldi hans.“ Oft á tíðum þurfum við ekki að breyta svo miklu til að snúa við blaðinu í þessum efnum. Athyglisverð var sú niðurstaða að beint samband reyndist á milli þess hversu þykkt menn smyrja brauðið sitt og hins vegar hvað hníga rök að því að óbeinar reyk- ingar kunni að flýta fyrir tíða- hvörfum. Sex hópar vísinda- manna hafa fundið að þeir sem ekki reykja en búa við tóbaks- mengun eru í meiri hættu en aðrir á að deyja úr hjartasjúk- dómum. Skert lungnastarfsemi Niðurstöður nokkurra rannsókna sýna að langvarandi tóbaksmeng- un veldur skertri lungnastarf- semi, þeir sem ekki reykja en vinna á reykmenguðum vinnu- stöðum fá svipaðar breytingar á slímmyndun í lungum og fólk með langvarandi lungnasjúk- dóma. Hjá þeim sem reykja ekki en vinna í reykmenguðu lofti, sljóvga óbeinar reykingar bifhár- in í lungnapípunum og hægja á slímlyftunni sem bifhárin knýja. Þannig minnkar hæfileiki þessa hreinsikerfis til þess að flytja bakteríur og ryk upp úr lungun- um. í sígarettureyk eru á annan tug efna sem hindra starfsemi þessara bifhára. Þetta veldur svo því að slím, ryk og bakteríur safnast fyrir í lungunum. Niðurstöður sautján rann- sókna hafa sýnt fram á tengsl á milli óbeinna reykinga og lungna- krabbameins. í venjulegri skrif- stofu þar sem reykingar eru leyfðar eru 250-1000 sinnum meira af krabbameinsvaldandi efnum í andrúmsloftinu en bandarísk heilbrigðisyfirvöld leyfa mest í andrúmsloftinu innanhúss. Tengsl á milli óbeinna reykinga og krabbameins Óháðir hópar vísindamanna hafa komist að þeirri niðurstöðu að beint samband sé á milli óbeinna reykinga og krabbameins. í samantekt frá bandaríska lungnalæknafélaginu var reiknað meðaltal úr rannsóknum um samband óbeinna reykinga og lungnakrabbameins og var áhætt- an 1,8 föld. Maður sem ræður sig í vinnu á stað þar sem reykingar eru leyfðar lendir því í tæplega tvöfaldri hættu á að fá lungna- krabbamein. í niðurstöðum 8 rannsókna hafa óbeinar reyking- ar einnig verið tengdar öðrum krabbameinum. Nokkur þessara krabbameina hafa verið tengd reykingum mæðra á meðgöngu- tímanum. Tvöföld dánartíðni Athyglisverð rannsókn var gerð í Japan fyrir nokkru. í fjórtán ár var fylgst með rúmlega 91 þúsund giftum konum sem reyktu ekki. í ljós kom tvöföld dánartíðni úr lungnakrabbameini meðal þeirra sem giftar voru mönnum sem reyktu pakka á dag eða rneira, miðað við hinar sem áttu reyk- lausa eiginmenn. Samantekt: Björn Jónsson. Upplýsingar um skaðsemi óbeinna reyk- inga eru fengnar úr bæklingi Krabba- meinsfélagsins „Óbeinar reykingar" og grein Sig. Árnasonar „Að reykja ekki en reykja samt“, sem birt var í tímaritinu Heilbrigðismálum. fita er stórt hlutfall af heildar- orkuneyslu þeirra. Við ættum að vera þakklát fyrir að fá ábending- ar um hvað betur mætti fara í fæðuvali okkar og reyna að nýta það sem best, okkur til góða. Flest viljum við allt til þess vinna að endurheimta heilsuna á ný þegar syrta tekur í álinn og okkur finnst það sjálfsagt að fá alla þá þjónustu sem sjúkrastofnanir bjóða upp á. En er ekki til of mikils ætlast að opinberir aðilar bæti heilsu okkar? Ber okkur ekki að axla þá ábyrgð sem við berum á eigin heilsu og gera það sem í okkar valdi stendur til að varðveita heilsu okkar? Það er nefnilega langtum auðveldara að koma í veg fyrir marga sjúk- dóma, en að lækna þá á lokastigi. Þannig hlýtur það að varða þjóð- arhag að lifa heilbrigðu lífi. Gallinn við mörg okkar er sá að við fljótum sofandi að feigðar- ósi. Öll hljótum við að hafa gott af því að setja öðru hverju spurn- ingarmerki við lífshætti okkar og viðhorf og hugleiða hver til- gangurinn sé með þessu öllu sam- an hér í þessum lífsins táradal. Heill barnanna Mig langar svo í lokin að varpa þeirri spurningu til allra foreldra sem reykja hvort þeim þyki ekki það vænt um börn sín að þeir væru tilbúnir að fórna þessum hættu- lega ósið sem reykingarnar eru fyrir heill barnanna. Engum er mikilvægara en börnunum að fá að alast upp í hreinu andrúmslofti. Til þess eiga þau fullan rétt sem skylt er að virða og verja. Verð- andi foreldrar ættu að hugleiða hvort þeir séu virkilega tilbúnir að fórna heilbrigði barnsins fyrir eigin hégómaskap. Lesandi góður. í þessari grein hef ég leitast við að sýna fram á skaðsemi óbeinna reykinga og gert grein fyrir skoðunum mínum hvað þær varðar. Það er von mín að augu almennings fari að opn- ast fyrir þessum málum og heilsu- rækt almennt. Lifið heil. Björn Jónsson. Höfundur er landbúnaðarverkaniaður og er áhugamaður um holla lífshætti. AKUREYRARB/íR UTBOÐ Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í frágang útisvæðis við Sundlaug við Glerárskóla. Byggja skal útibúningsklefa og vaðlaug, setja upp tvo plastpotta og tilheyrandi kerfi. Hellulagt svæði með snjóbræðslulögn og niðurföllum er um 280 m2. Þá skal malbika stíg og girða, tyrfa og sá í kring. Verkinu skal Ijúka eigi síðar en 2. ágúst 1991. Útboðsgögn verða afhent á Byggingardeild Akur- eyrarbæjar, Kaupangi v/Mýrarveg, Akureyri frá kl. 13.00 mánudaginn 3. júní gegn skilatryggingu kr. 10.000,-. Tilboð skulu hafa borist Byggingardeild Akureyr- arbæjar, Kaupangi við Mýrarveg, 600 Akureyri eigi síðar en kl. 13.15 föstudaginn 7. júní 1991, en þá verða þau opnuð þar í viðurvist bjóðenda. I

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.