Dagur - 06.07.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. júlí 1991
Fréttir
Innbrotið í Vaglaskógi upplýst:
Fimm imgmenni
voru að verki
- átu sælgæti fyrir 100 þúsund krónur
Innbrotið í verslunina í Vagla-
skógi um þarsíðustu helgi er
upplýst hjá rannsóknarlögregl-
unni á Akureyri. Fimm ung-
menni, 1 stúlka og 4 piltar, á
Rafmagnslínur á
Norðurlandi vestra:
Endanlegur frá-
gangur vegna
óveðra vetrarins
Síðustu nætur hafa menn frá
Rafmagnsveitum ríkisins unn-
ið að endanlegum frágangi á
ýmsum þeim bráðabirgðavið-
gerðum sem gerðar voru í vet-
ur þegar línur slituðu og staur-
ar brotnuðu í óveðrum í janúar
og febrúar. Af þeim sökum
hefur þurft að taka rafmagnið
af nokkrum stöðum frá klukk-
an eitt til sex að morgni.
„Ástæðan fyrir þvf að við erum
að þessu núna eru hinar björtu
sumarnætur sem auðvelda okkur
vinnuna mikið og með því að
vinna þetta á nóttunni verður
fólk ekki fyrir jafnmiklum
óþægindum og ella, en þessar
framkvæmdir eru óhjákvæmileg-
ar,“ segir Haukur Ásgeirsson,
svæðisrafveitustjóri á Norður-
landi vestra.
Línurnar sem þarna er um að
ræða eru Skagastrandarlína á
Skaga og Fellslína sem liggur frá
Blönduósi og til Skagastrandar.
Einnig er í Skagafirði verið að
laga linuna milli Hofsóss og
Sauðárkróks. Að sögn Hauks
felst lagfæringin aðallega í að
strekkja á línum og skipta um
einangrara, en til að hægt sé að
vinna við það þarf að rjúfa
strauminn.
Haukur segir að þeir séu að
auki byrjaðir að leggja töluvert af
jarðstrengjum í stað lína sem
hafa gefið sig tvisvar eða oftar
vegna ísingar. M.a. er verið að
leggja mikið í jörð í Fljótum, en
þar fóru línur mjög illa í óveðr-
um vetrarins. Haukur segir að
fólk verði samt ekki eins vart við
þessar framkvæmdir og hinar,
því þeim fylgi lítið rafmagnsleysi.
SBG
aldrinum 15-18 ára hafa játaö á
sig verknaðinn.
Ungmennin höfðu með sér úr
innbrotinu sælgæti að verðmæti
um 100 þúsund krónur og eitt-
hvað af tóbaki. Nánast ekkert af
þessu fær verslunareigandinn til
baka þar sem krakkarnir höfðu
innbyrt mest allt sælgætið áður en
þau voru gómuð. Einhverju
magni komu þau undan en hafa
ekki getað sagt hvar sá varningur
er niður komin.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur einnig upplýst innbrot
í tvo báta við Torfunefsbryggju
um síðustu helgi. Nokkrir ungir
drengir voru þar á ferðinni af
einskærri forvitni og rótuðu til í
bátunum.
Jón F. Hjartarson, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki, tók sl. miðvikudag fyrstu skóflustunguna að bóknámshúsi
skólans sem byggja skal á næstu árum. Hér að ofan er hann við skóflu-
stunguna, en á innfelldri mynd eru formenn héraðsnefnda Vestur- og
Austur-Húnvetninga og Skagflrðinga, en áður en skóflustungan var tekin
undirrituðu Húnvetningar samning um fulla aðild að FNVáS. Mynd: sbg
Úthlutun átta félagslegra íbúða á Norðurlandi vestra:
„Ef til vill í samræmi við tölur
um atvmnuþróun og manníjölgun“
- segir Jón Karlsson, formaður húsnæðisnefndar á Sauðárkróki
Norðurland vestra fékk útlilut-
að átta íbúðum í félagslega
geiranuni í úthlutun Húsnæðis-
stofunar ríkisins sem birt var
fyrr í þessari viku. Ljóst er að
sex þeirra fara á Blönduós og
óstaðfestar fregnir herma að
sín hvor hafi fallið í hlut
Hvammstangabúa og Skag-
strendinga. Það þýðir að Sauð-
árkrókur fær enga þrátt fyrir
að hafa sótt um leyfi fyrir 20
íbúðum.
Fjórar af íbúöum þeim sem
Blönduós fékk í úthlutuninni eru
upp í umsóknir héraðsnefndar
Austur-Húnvetninga vegna
íbúða aldraðra. Ófeigur
Gestsson, bæjarstjóri á Blöndu-
ósi, sagði í gær að ljóst væri að til
viðbótar við þessar fjórar kæmu
aðrar fjórar því að einingar þær
sem byggðar eru á Blönduósi til
handa öldruðum eru átta íbúða.
Blönduósbær sótti um úthlutun
til fjögurra íbúða í félagslega
kerfinu en fékk tvær að sögn
Ófeigs og sagðist hann vera sátt-
ur við þá niðurstöðu auk hinna
átta íbúða aldraðra.
Hvammstangahreppur sótti
um fjórar og Höfðahreppur
einnig, en útlit er fyrir að hvort
sveitarfélag um sig hafi fengið
úthlutað einni íbúð þó að þær
fréttir séu óstaðfestar. Siglfirð-
ingar sóttu hinsvegar ekki um
neinar íbúðir þetta árið og segir
Björn Valdimarsson, bæjarstjóri,
að aðalástæðan fyrir því hafi ver-
ið sú að í byggingu voru kaup-
leiguíbúðir sem enn hafa ekki
gengið út.
Sauðárkróksbær sendi inn
umsókn fyrir 20 íbúðum, en svo
virðist vera sem engin úthlutun
hafi fallið bænum í skaut þetta
árið. Dagur hafði samband við
Jón Karlsson, formann húsnæðis-
nefndar á Króknum.
„íbúðarhúsnæði er náttúrulega
byggt yfir fólk þar sem það vill
vera og fólksfjölgun er eðlilega í
samræmi við atvinnuástand. Að
Norðurland vestra skuli ekki fá í
sinn hlut nema átta íbúðir er þess
vegna nokkuð í samræmi við
tölur um atvinnuþróun og mann-
fjölgun í kjördæminu. Það sem
mér gremst aðallega varðandi
þessa úthlutun er hversu seint
hún kemur því að mjög erfitt er
orðið fyrir framkvæmdaaðila að
láta hanna hús til byggingar á
þessu ári vegna tímaskorts. Ég er
auðvitað ekkert hress með það,
ef Sauðárkrókur fær engri íbúð
úthlutað, en það breytir ekki því
að við getum afhent íbúðir bæði á
þessu ári og því næsta vegna þess
að við fluttum úthlutun síðasta
árs á framkvæmdaárið ’91. Þetta
ætti því ekki að breyta neinu
varðandi þá stöðugu uppbygg-
ingu félagslegs húsnæðis sem ver-
ið hefur undanfarin ár hér á
Sauðárkróki, þó að eftirspurn
sýni e.t.v. að við þyrftum að hafa
fleiri íbúðir til úthlutunar.“ sagði
Jón Karlsson. SBG
Ferðaskrifstofan Nonni:
Sólarferðir með Sæfara
Ákvörðun um lánveitingu til fiskeldisfyrirtækja í lok næstu viku:
„Þröng staða í fiskeldinu“
- segir Ingimar Jóhannsson, formaður nefndar sem yfirfer
umsóknir 27 fiskeldisfyrirtækja
Reiknað er með að í lok næstu
viku verði tekin afstaða til
umsókna 27 fiskeldisfyrirtækja
um lán sem ríkisstjórnin ákvað
að veita til fiskeldisins. Að
þessu sinni er um að ræða 150
milljónir en áætlað er að veita
aðra eins upphæð síðar, hvort
heldur verður síðar á þessu ári
eða því næsta.
Þessar lánveitingar eiga að
koma til hjálpar þeim fiskeldis-
fyrirtækjum sem komin eru í þrot
en talin eru eiga framtíð fyrir sér
í rekstri. Þriggja manna nefnd
var skipuð til að meta umsóknir
og gera tillögur um lánveitingar.
„Þetta eru mjög takmarkaðir
fjármunir og því lítið til skipt-
anna. Umsóknir komu frá 27
fyrirtækjum víða að af landinu og
við erum að fara yfir þær. í þess-
ari vinnu er farið grannt ofan í
ársreikninga og rekstur þessara
fyrirtækja,“ sagði Ingimar
Jóhannsson, formaður nefndar-
mnar.
Ingimar sagði að væntanlega
fái fá fyrirtæki fyrirgreiðslu með
þessum hætti og að sama skapi
verði um hærra lán að ræða til
hvers þeirra. „Auðvitað er gífur-
lega erfitt að skipta svo lítilli upp-
hæð þannig að hún nýtist eitt-
hvað en það er rétt að væntan-
lega verða þetta ekki mörg fyrir-
tæki. Staðan er þröng í fiskeldinu
en ástandið er misvont eftir fyrir-
tækjum,“ sagði Ingimar. JÓH
Ferðaskrifstofan Nonni á
Akureyri býður nú upp á
miðnætursólarferðir með Sæ-
fara eitt kvöld um helgar.
Þessar ferðir eru þó ekki
tryggilega njörvaðar niður því
forsenda þeirra er góð veður-
spá en ekki hefur verið hægt
að kvarta undan veðri eða
kvöldsólarleysi til þessa.
Að sögn starfsmanns hjá
Ferðaskrifstofunni Nonna er
þetta um fimm klukkustunda
útsýnissigling um Eyjafjörð til
Hríseyjar og er kvöldsólarinnar
notið í grennd við eyna. Hann
sagði að sólarferð Sæfara um síð-
ustu helgi hefði verið ákaflega vel
heppnuð og vonandi yrði fram-
hald á góða veðrinu. Ónnur ferð
var auglýst í gær.
Sú nýbreytni að bjóða upp á
útsýnisferð um Eyjafjörð hefur
mælst vel fyrir, ,ekki bara hjá
ferðamönnum því Akureyringar
voru í meirihluta í sólarferðinni
um síðustu helgi.
Brottför í þessar sólarferðir
eru frá Torfunefsbryggju. í nýrri
áætlun til Hríseyjar og Grímseyj-
ar er brottför Sæfara einnig frá
Torfunefsbryggju á þriðjudögum
og fimmtudögum en frá
Árskógssandi á laugardögum.
SS
Laxdalshús á Akureyri:
Dans og tónleikar
Mikið verður um að vera í
Laxdalshúsi á Akureyri um
helgina. Á laugardag verða
tónleikar í bakgarði hússins,
en á sunnudag er boðið upp á
þjóðdansasýningu.
Eins og kunnugt er hefur
Minjasafnið á Akureyri Laxdals-
hús, elsta hús bæjarins, á leigu í
sumar. í Minjasafninu stendur
yfir sýning á mannamyndum
Hallgríms Einarssonar, Ijós-
myndara, og í Laxdalshúsi er
sýning á ýmsu er tengist verslun-
arsögu Akureyrarkaupstaðar.
Hljómsveitin „Helgi og hljóð-
færaleikararnir“ heldur tónleika í
garði Laxdalshúss kl. 17.00 á
laugardag. Á sunnudag verður
boðið upp á þjóðdansasýningu
Þjóðdansahóps frá Dalvík. í
hópnum eru þrettán ára ungling-
ar sem æfðu dansa sl. vetur undir
stjórn hjónanna Margrétar
Brynjólfsdóttur og Gunnars
Smára Björgvinssonar. EHB