Dagur - 06.07.1991, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 6. júlí 1991
Ferðamál
Óli G. Jóhannsson
Hestaferðir með Pólarhestum:
„Fagurt er í Fjörðum“
- segir Stefán Kristjánsson, bóndi að Grýtubakka
„Við viijum gera þér sumar-
daginn að ævintýri,“ segir í
auglýsingabæklingi frá Pólar-
hestum í Grýtubakkahreppi.
Blaðamaður Dags skrapp út í
Höfðahverfi í vikunni til að
kynna sér starfsemi þá er
Stefán bóndi Kristjánsson að
Grýtubakka II rekur fyrir
ferðamenn. Stefán Kristjáns-
son, hóf rekstur Pólarhesta
fyrir sjö árum. Strax í upphafi
gekk reksturinn vel. Boðið er
upp á ferðalög á hestum um
næsta nágrenni Grýtubakka og
einnig lengri ferðir í Fjörður
og á Flateyjardal. Fjörður er
dulafull eyðibyggð yst á
skaganum austan Eyjafjarðar.
Þessi fjöllum lukta sveit hefur
Stefán Kristjánsson, bóndi að
Grýtubakka II, hefur staðið að
hestaferðalögum í Fjörður í sjö
SUmur. Mynd: dj
verið nær lokaður heimur í 40
ár, en er nú að opnast ferða-
fólki.
Bóndabýlið Grýtubakki II er
45 km frá Akureyri, austan
Eyjafjarðar í Höfðahverfi. Hér
er blómleg sveit í skjóli hárra
fjalla, veðursæld mikil og vin-
gjarnlegt fólk. Engir sérhæfðir
fararstjórar taka við ferða-
manninum, heldur bændurnir
sjálfir, sem þekkja sitt land og
koma til dyranna eins og þeir eru
klæddir.
í hlaðinu á Grýtubakka II var
mikið um að vera er blaðamann
bar að garði. Fimm ungar konur
frá Þýskalandi voru að búa sig út
til ferðar í Fjörður. Stefán gekk á
milli þeirra til að fullvissa sig um,
hvort útbúnaðurinn væri réttur.
Löng ferð er fyrir höndum þar
sem farangurinn er hafður í
hnakktöskum og á trússhestum.
„Við ferðumst upp á gamla
mátann. Gamla gatan er okkar
Ieið og við höldum í fornar venj-
ur í þessum hestaferðum. Þessar
stúlkur, jafnt sem aðrir, fara í
þessar hestaferðir til að upplifa
eitthvað nýtt og framandi. Ég er
með 24 hesta á járnum, sem allir
eru valdir sérstaklega til þessa
verkefnis. Hestarnir verða að
vera traustir, en jafnframt þægi-
lega viljugir, þannig að allt
blessist. Oft er svo, að viðskipta-
vinurinn er vanur hestum og þá
eru gerðar meiri kröfur til reið-
skjótans. í annan stað kemur fólk
_ 'f'
Tdumjih
, N T r~ r~i M . A T I N. I A I
Merkið sem
tryggir gæðin
Verslið þar sem úrvalið er
Á hlaðinu að Grýtubakka. Þýskar valkyrjur ásamt meðreiðarfólki albúnar
til brottfarar á vit ókunnra slóða. Mynd: ój
hingað, sem aldrei hefur riðið
hesti og því verð ég að hafa
hestaúrvalið mikið. Annað geng-
ur ekki. Markmiðið er að allir
séu ánægðir," sagði Stefán bóndi.
Þennan morgun sem ég var í
Höfðahverfi var hitinn kominn í
24 gráður og búast mátti við að
enn hlýrra yrði er á daginn liði.
Kaldbakur ljómaði í norðri í sól-
inni og Eyjafjörður var sem speg-
ill á að líta. Stefán var að fara yfir
dagskipanina því bregða þurfti af
leið vegna vatnavaxta. Ég gaf
gær fórum við í þriggja tíma ferð
til að reyna hestana og velja okk-
ur þá hesta sem hæfa best í löngu
ferðinni, sem nú er að hefjast.
Landið ykkar er dásamlegt.
Veðrið er miklu betra en ég þorði
að vona. Hestarnir eru góðir,
aðbúnaðurinn góður. og fólkið
hjálplegt. Tungumálaerfiðleikar
eru engir, því hér talar fólk bæði
þýsku og ensku. Allt er útskýrt
sem best,“ sagði stúlkan frá
Stuttgart.
Þegar búið var að leggja á hest-
ana var ein hestaskál tekin að
fornum sið og þá var stigið á bak.
Stefán fór í fararbroddi. Ekki
leyndi sér eftirvæntingin í andliti
útlendinganna. Fyrir höndum var
þriggja daga reið um óbyggðir
framandi lands.
Þegar ferðalangarnir voru
riðnir úr hlaði gaf ég mig á tal við
húsfreyjuna að Grýtubakka II,
Jónínu Dúadóttur, sem hafði
staðið í ströngu við að útbúa mat
til ferðarinnar. Ég spurði Jónínu,
hvernig þessum hestaferðum Pól-
arhesta væri háttað.
„Pólarhestar bjóða í sumar
átta ferðir á hestum í
óbyggðum. Nú þegar er búið að
fara tvær og viðskiptavinirnir eru
að mestum hluta erlendar konur.
Við tökum átta það mesta í ferð-
irnar og sækjum fólkið til Akur-
eyrar við komu þess á flugvöllinn
á mánudagsmorgni. Eftir að fólk-
ið er búið að koma sér fyrir og
hefur snætt hádegisverð er farið
að huga að hestunum og ganga úr
skugga um, hvað hver og einn
kann og getur í hestanennsku.
Um kvöldið er farið í þriggja
tíma reiðtúr um næsta nágrenni
Grýtubakka. Reiðleiðirnar eru
góðar og fólk dásamar náttúruna
og bjarta sumarnóttina, sem
flestir eru að kynnast í fyrsta
sinn. Á þriðjudag er haldið í
Fjörður. Leiðin liggur um Leir-
dalsheiði, að Gili, heiðarbýli
fremst í Hvalvatnsfirði. Þar er
gist, en á miðvikudag er riðið um
kjarrivaxnar hlíðar Hvalvatns-
fjarðar að Þönglabakka í Þor-
geirsfirði þar sem gist er síðari
nóttina. í Þorgeirsfirði rís hver
tindurinn öðrum fegri og hin dul-
úðga fegurð eyðibyggðarinnar
gleymist engum. Á fimmtudag er
riðið heim á leið og áfangastað í
Höfðahverfi er náð seint um
kvöld. Á föstudag er svo farið
akandi í Mývatnssveit með kunn-
ugum leiðsögumanni. Deginum
er varið í að skoða allt það sem
„Perla norðursins" hefur að
bjóða. Á sjötta degi er haldið til
Akureyrar og hver fer til síns
heima,“ sagði húsfreyjan að
Grýtubakka II.
Að framansögðu er ljóst að
ferð með Pólarhestum svíkur
engan. Hestaferðalög um
óbyggðir íslands eru öllum
ógleymanleg sem reyna og raun-
ar er mjög undarlegt að flestir
viðskiptavinir Pólarhesta séu er-
lendar konur. Hver ástæðan er
veit ég ekki, en hinsvegar skora
ég á íslendinga að kynna sér
þann möguleika að eyða einni
viku af sumarleyfinu í ferð með
Pólarhestum í Fjörður. ój
í nátthaganum. Nú er að finna hcstinn. Mynd: ój
mig á tal við eina stúlkuna, sem
sagði mér, að hún væri frá Stutt-
gart í Þýskalandi.
„Ég er búin að ferðast vítt og
breitt um Evrópu og raunar
miklu víðar. Heima í Þýskalandi
á ég hest að vísu stóran af ensku
kyni. Stöðugt fjölgar þeim lönd-
um mínum sem eiga íslenska
hesta og hestarnir njóta vinsælda.
Ég hef séð fólk ríða þessum liest-
um og fundist þeir snotrir og
ganghæfnin er miklu meiri en í
stóru hestunum í Evrópu. Þegar
ég las um þann möguleika sem
Pólarhestar bjóða upp á, þótti
mér rétt að kaupa viku ferð til
ísiands til að reyna eitthvað nýtt
og framandi. Ævintýrið er rétt að
byrja. Við erum fimm saman. í
I straumvatni á góðum degi Mynd: ff