Dagur - 06.07.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. júlí 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
»4— 11 Hfl I H ■ fl
fe
fe
P
fe
»
Byggingafélagið Lind hf. á Akureyri:
Framkvæmdir hafiiar á ný við stórhýsi í miðbæmim
Framkvæmdir eru hafnar að
nýju á lóðinni Hafnarstræti 97
í miðbæ Akureyrar en þar á að
rísa verslunar- og skrifstofu-
hús. Byggingafélagið Lind hf.
stendur að byggingunni en
hluthafar í félaginu eru átta
fyrirtæki á Akureyri. Félagið
byrjaði að vinna við bygging-
una á árinu 1989 en fram-
kvæmdum var hætt í ársbyrjun
1990 vegna þess að ekki var
útlit fyrir mikla sölu og hlut-
hafarnir voru búnir að leggja
fram allt það fé sem þeir gátu.
Þorsteinn Thorlacíus, eigandi
bókaverslunarinnar Eddu, er
einn hluthafa í Lind hf. Hann
- þrjár hæðir afhentar í ársbyrjun 1992
sagði að nú þegar lægju 57 millj-
ónir í byggingunni, miðað við
framreiknað verð, og það fé
hefði allt komið frá hluthöfun-
um. Nú hefur hins vegar fengist
framkvæmdalán upp á 40 millj-
ónir og sagði Þorsteinn að þar
með gæti félagið lokið við fyrsta
áfanga byggingarinnar.
Aðild íslands að EES:
Samtök andstæðinga stofhuð í vikunni
- yfir 80% íbúa í Ljósavatnshreppi hafa lýst andstöðu við inngöngu
Hafínn er undirbúningur að
stofnun samtaka fólks, sem
óskar eftir því að ríkisstjórn
Islands hverfi nú þegar frá við-
ræðum um aðild að hinu fyrir-
hugaða Evrópska efnahags-
svæði. Kynningarfundur var
haldinn í Norræna húsinu í
Reykjavík síðastliðinn mið-
vikudag og mættu um 200
manns á þennan fyrsta fund að
sögn Bjarna Einarssonar hjá
Byggðastofnun, eins af for-
svarsmönnum stofnunar sam-
takanna.
í greinargerð frá stofnendum
segir meðal annars að þeir telji
varðveislu fullveldis og sjálfstæð-
is þjóðarinnar yfir landinu sjálfu,
stærstu auðlindum þess, fiskimið-
um og orkulindum og þróun sam-
félagsins vera grundvallaratriði í
utanríkisstefnu íslands. Bent er á
að umræðan um Evrópubanda-
lagið og Evrópska efnahagssvæð-
ið hafi verið einhliða og einkum
byggst á því að íslendingar eigi
ekki annara kosta völ en fylgja
öðrum EFTA-ríkjum inn í EES
og EB. Bjarni Einarsson sagði að
undirtektir hefðu verið mjög
góðar á fundinum og greinilega
væri mikill áhugi fyrir þeim sjón-
armiðum sem sett hefðu verið
fram. Nú væri unnið að stofnun
formlegra félagssamtaka um
þetta málefni jafnframt því að
afla stuðnings við málstaðinn
með undirskriftum.
Hlöðver Þ. Hlöðversson á
Björgum, formaður byggðhreyf-
ingarinnar Útvarðar, sagði að
gerð hafi verið formleg könnum á
afstöðu manna í Ljósavatns-
hreppi til þáttöku íslands í EES.
Af 175 atkvæðisbærum mönnum,
samkvæmt kjörskrá í sveitarfé-
laginu hefði náðst til 143 eða
81,7% og hefðu allir tekið
afstöðu gegn aðild. Hlöðver
sagði að varast bæri að draga of
ákveðnar ályktanir af þessari
niðurstöðu en áberandi hefði ver-
ið að fólk kvaðst hafa tekið
afstöðu í málinu fyrir nokkru
síðan. Þetta gæfi þó ákveðna vís-
bendingu um að andstaða við
inngöngu íslands í Evrópska
efnahagssvæðið væri nokkuð
ríkjandi á landsbyggðinni. Bjarni
Einarsson kvað of snemmt að
draga ákveðnar ályktanir af góð-
um undirtektum fólks en benti á
að þessi sjónarmið ættu þó veru-
legan hljómgrunn á meðal
Fæðingar á FSA fyrstu sex mánuði ársins:
Jafii margar og á
sama tímabili í fyrra
Hundrað og nítján stúlkur og
hundrað og sautján drengir
fæddust á Fæðingadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
fyrstu sex mánuði ársins.
Samkvæmt upplýsingum
Guðrúnar Eggertsdóttur, yfir-
ljósmóður við Fæðingardeild
FSA, fæddust 236 börn í 231 fæð-
ingu á Akureyri fyrstu sex mán-
uði þessa árs, þar af voru fimm
tvíburafæðingar. Sé litið í eldri
skýrslur voru fæðingar jafn marg-
ar á sama tíma í fyrra, en árið
1989 aðeins 194. Á Akureyri
fjölgaði fæðingum mjög mikið
milli áranna 1989 og 1990. Fæð-
ingar ársins 1989 voru 398 en árs-
ins 1990 461.
„Sem sjá má af tölum er mikið
annríki á Fæðingardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Akureyringar og nærsveitamenn
eru mikið barneignafólk. Á fæð-
ingardeild FSA eru stöðugildi
ljósmæðra/hjúkrunarfræðinga
10,8 og 10,5 hjá sjúkraliðum.
Þrír fæðingarlæknar starfa við
deildina og einn aðstoðarlæknir,“
sagði Guðrún Eggertsdóttir, yfir-
ljósmóðir, en hún tók við stöð-
unni 9. júní sl. Guðrún gegndi
áður stöðu aðstoðaryfirljósmóð-
ur við Fæðingardeild Landspítal-
ans í Reykjavík. ój
Kartöflur:
Engarákvarðanir
um innflutning
Komi til innflutnings á kartöfl-
um á þessu sumri má Ijóst vera
að hann verður óverulegur.
Enn eru eingöngu innlendar
kartöflur á markaðnum.
Að sögn Guðmundar Sigþórs-
sonar, í landbúnaðarráðuneyt-
inu, hefur innlend framleiðsla oft
komið á markað á tímabilinu 10,-
15. ágúst en vegna þessa sólríka
veðurfars sem verið hefur í sum-
ar megi reikna með framleiðslu
fyrr á markað nú. Engin ákvörð-
un hefur verið tekin um innflutn-
ing á kartöflum. JÓH
ísíendinga,
byggðinni.
ekki síst á
lands-
ÞI
í þessum fyrsta áfanga verða
þrjár hæðir, verslunarhúsnæði á
1. og 2. hæð og skrifstofuhúsnæði
á 3. hæð. Gengið verður frá
byggingunni með bráðabirgða-
þaki og allar hæðirnar afhentar á
sama tíma. En hvernig skyldi
ganga að selja húsrými og hvenær
verður lokið við áfangann?
„Við höfum þegar selt um 60%
af rýminu á þessum þreniur hæð-
um en við gátum enguð lofað um
hvenær húsnæðið yrði afhent. Nú
hafa málin hins vegar tekið aðra
stefnu og miðað við stöðuna í dag
mun framkvæmdum ljúka í byrj-
un næsta árs,“ sagði Þorsteinn.
Byggingin
ennþá og því
er ekki veðhæf
verður Lind að
treysta á fyrirgreiðslu meðan á
uppsteypu stendur. Þorsteinn
segir að slík fyrirgreiðsla sé í
höfn og í ljósi hennar hafi verið
hægt að hefja framkvæmdir að
nýju.
Byggingin verður alls sex hæðir
og stendur á milli KEA og
Amaro. Þorsteinn kvaðst vilja
skoða þann möguleika að hafa
innangengt frá Kaupfélagsbygg-
ingunni að nýbyggingunni og inn
í Amaro og mynda þannig sam-
fellda verslunar- og þjónustu-
blokk. Hann sagðist ekki trúa
öðru en að rými í nýja húsinu
yrði eftirsótt enda verslunarhús-
næði af skornum skammti í mið-
bænum og bygging Lindar á besta
stað. SS
Hvað
ég að borga
fyrir Min?
Upplýsingabæklingur liggur frammi í lyfjabúðum,
læknastofum, heilsugæslustöðvum og víðar.
TRYGGINGASTOFNUN «7 RÍKISINS