Dagur - 06.07.1991, Side 5
Laugardagur 6. júlí 1991 -"DAGUR - 5
Hönnun fatnaðar fyrir fatlaða:
„Fæ einhvers konar águrtílfinningu í hvert sinn
sem ég er búin aö gera gott snið á einhveija manneskju“
- segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir en hún sótti námskeið í Noregi
í sníðagerð fyrir fólk sem ekki getur notað staðlaðan fatnað
Huldu Ragnheiðar sagði
nemendum á námskeiðinu frá til-
felli þar sem' hún hefði hannað
buxur á 23ja ára gamlan mann
sem hefur verið í hjólastól allt sitt
líf og er auk þess máttlítill í
höndum. Þessi maður hafði
aldrei getað farið á salerni hjálp-
arlaust, fyrr en hann fékk nýju
buxurnar sem pössuðu vel en
voru ekki allar í kuðli umhverfis
rennilás og tölur. Einar buxur
geta sem sagt gjörbreytt aðstöðu
einstaklings til að verða sjálf-
bjarga og minna háður aðstoð
annarra.
ann í Reykjavík. Hún á eftir
hálfs árs nám til að ljúka sveins-
prófi og það hyggst hún gera
næsta vor.
- Hulda Ragnheiður, hvað
kom til að þú dreifst þig til Nor-
egs til að læra sníðagerð fyrir fatl-
aða?
„Ég hugsa að upphafið hafi
verið það að ég var að sauma föt
fyrir konu sem ekki passaði inn í
grunnstaðla. Kennarinn minn
hjálpaði mér að gera snið á hana
úr bók sem er eftir konu sem
heitir Elsa Frost. Hún er norsk
og hefur gert sniðakerfi fyrir
bæklað fólk.
Allir þurfa fatnað. Fjöldi versl-
unareigenda hefur gert sér
grein fyrir þessu, og einnig
þeirri staðreynd að flestir hafa
gaman af að eiga föt til skipt-
anna. En það geta ekki allir
gengið inn í næstu fatabúð og
fengið fatnað við hæfi, það
geta ekki einu sinni allir
gengið. Stórt og feitt fólk hefur
löngum átt erfitt með að fá föt
í yfirstærðum í venjulegum
verslunum, en á síðustu árum
hafa þó sprottið upp sérversl-
anir með yfirstærðir fyrir
konur. Mjög smávaxið fólk fær
oftast ekki fatnað við hæfi og
jafnvel er reynt að breyta
barnafatnaði fyrir það. Fatlað-
ir eiga í mörgum tilfellum erfitt
með að nota fatnað venju-
legrar gerðar og í stað þess að
sauma frá grunni fatnað sem
þeim hentar er yfirleitt verið
að reyna að breyta fötum en
með misjöfnum árangri.
í Noregi munú almannatrygg-
ingar greiða fyrir gerð eins
grunnsniðs fyrir hvern fatlaðan
einstakling í landinu, og einnig
fyrir breytingar á sniðinu ef
breytingar verða á vexti hins fatl-
aða. Engum hefur dottið í hug að
biðja um sambærilega aðstoð á
íslandi, enda hefur ekki verið
auövelt fyrir fatlaða að fá þjón-
ustu af þessu tagi.
Mikilvægt að fatlaðir
fái fatnað við hæfí
Ung kona í Aðaldal, Hulda
Ragnheiður Árnadóttir í
Hraunkoti I, fór í maí sl. til Berg-
en í Noregi á námskeið í sníða-
gerð fyrir fólk sem ekki getur
notað staðlaðan fatnað.
Það skiptir kannski meira máli
en margan grunar að fatlaðir geti
fengið fatnað við hæfi. Þegar
aðili sem er bundinn við hjólastól
fær buxur, skiptir meginmáli að
þær fari vel þegar hann situr, en
það á ekki að sauma þær eins og
buxur sem henta best fólki sem
stendur eða gengur. Kennari
Mínir þakklátustu
viðskiptavinir
Hulda Ragnheiður kom heim af
námskeiðinu full áhuga á að
sníða og sauma fyrir þá sem ekki
geta gengið inn í búð eftir fötun-
um sínum, og hún segir að þessir
aðilar séu sínir þakklátustu við-
skiptavinir og ekki sé eins
ánægjulegt að vinna fyrir nokk-
urn annan hóp. Hulda er nefni-
lega ekki alveg óvön því að
sauma fyrir fólk. Hún hefur
stundað nám í klæðskurði og
kjólasaum í þrjú ár við Iðnskól-
Hulda Ragnheiður Árnadóttir.
Fékk styrki frá mörgum
félagasamtökum
Ég sýndi þessu svo mikinn áhuga
að kennarinn hjálpaði mér til að
fá heimilisfang þessarar konu. Ég
skrifaði henni og fékk svar um að
ég væri velkomin á námskeið,
sem var það síðasta sem hún ætl-
aði að halda. Ég hafði 10 daga til
stefnu og skellti mér bara, með
aðstoð góðra manna, því ég fékk
styrki til fararinnar frá Sjálfs-
björgu á Akureyri, Styrktarfélagi
vangefinna á Akurcyri, Foreldra-
félagi barna með sérþarfir á
Akureyri, Sjálfsbjörgu í Reykja-
vík og Öryrkjabandalaginu.“
- Stóð námskeiðið lengi?
„Það stóð ekki nema í fjóra
daga. En ég var svo heppin að
vera eina aðkomumanneskjan og
bjó því á sama hóteli og kennar-
inn. Henni þótti ég áhugasöm og
því stóð ekki á henni að miðla
mér af fróðleik sínum, stóran
hluta sólarhringsins. Ég lærði eig-
inlega ekki minna af henni heima
á hótelinu en á námskeiðinu.
Mundi reyna við hvaða
tilfelli sem væri
Það var mikið rætt um ýmiskonar
vandamál, en þetta eru í rauninni
vandamál sem mér finnst gaman
að glíma við og leysa. Ég fékk
það mikið út úr þessu námskeiði
Frá námskeiðinu hjá Elsu Frost sem Hulda Ragnheiður fór á.
Hulda tekur mál af fötluðum manni á námskeiðinu í Noregi. Elsa Frost,
kcnnari fylgist með.
að ég held að ég mundi reyna við
hvað tilfelli sem væri.
Þess má geta að ég keypti
grunnsnið fyrir hjólastólafólk í 24
stærðum og auðvelt er fyrir mig
að nýta þau fyrir mikinn hluta
þeirra sem eru bundnir við hjóla-
stóla.“
- Hvað er algengast að glíma
við í þessum geira?
„Fólk með herðakistil, eða
misháar mjaðmir, misháar axlir,
sumir eru með kistil framan á
bringu, smávaxið fólk, fólk sem
er stórt og feitt, allt fólk sem
passar ekki inn í hrein númer.
Sérstaklega er þó lögð áhersla á
buxur fyrir fólk sem situr í hjóla-
stólum, það er pirrandi fyrir það
að sitja í venjulegum buxum sem
ná ekki upp í mitti að aftan en
svo er það með heilmikið efni í
fanginu allan daginn. Við reyn-
um líka að hafa fötin þannig að
fólk geti sem mest bjargað sér
sjálft.
Hver vill hafa barnið sitt
í íþróttagalla á jólunum?
Varðandi t.d. spastískt fólk, þá
hefur stundum gleymst við hönn-
un fatnaðar að það þurfi að koma
fólkinu í fatnaðinn, en hann eigi
ekki bara að hanga uppi á herða-
tré. Foreldrar spastískra barna
hafa spurt mig hvort hægt sé að fá
eitthvað annað en joggingfatnað
sem hægt sé að koma börnunum
í. Hver vill hafa barnið sitt í
íþróttagalla á jólunum?“
- Það er líklega nokkuð stór
þjóðfélagshópur sem ekki passar
í föt no 38-42.
„Já, hann er stór. Það hjálpar
mér mjög mikið að sníðagerð í
Iðnskólanum er mjög góð. Við
lærum sníðagerð fyrir kvenfatnað
í tíu tíma á viku og sníðagerð fyr-
ir karlfatnað í aöra 10 tíma. Þetta
er mér nauðsynleg undirstaða
fyrir sníðagerðina fyrir fatlaða.
í haust mun ég fara í starfsnám
til Leðuriðjunnar Teru á Greni-
vík og vinna þar frá september og
fram að jólum, vonandi get ég
eitthvað unnið fyrir Akureyringa
á þeim tíma. Að loknu námi í vor
ætla ég að koma heim og taka til
starfa, ef einhver markaður verð-
ur fyrir mína vinnu. Ég er tilbúin
að koma á staði, dvelja nokkia
daga meðan ég vinn grunnsnið
fyrir hópa sem þess óska. Þ^gar
ég er komin með rétt grunnsnið
get ég saumað eftir þeim heima
hjá mér, hvaða flík sem er.“
Fæ einskonar
sigurtilfmningu
- Er ögrandi að takast á við
svona verkefni?
„Þetta er alveg rosalega spenn-
andi. Ég fæ einhvers konar sigur-
tilfinningu í hvert sinn sem ég er
búin að gera gott snið á einhverja
manneskju. Eins og gerist og
gengur er fólk misjafnt, en ég
finn aldrei eins mikið þakklæti
frá þeim sem ég vinn fyrir eins og
frá þeim hópi fólks sem fatlaður
er. Það er mjög gaman að vinna
fyrir þetta fólk og ég finn að ég er
að gera eitthvað sem fólki finnst
hreinlega ekki sjálfsagt að sé
hægt að fá gert fyrir sig.“ IM
_