Dagur - 06.07.1991, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 6. júlí 1991
Matarkrókur
Lamb og lax, með
salati og eplaköku
- uppskriftir frá Súsönnu Hammer
Súsanna Hammer, húsmóðir
á Akureyri, leggur okkur til
spennandi uppskriftir fyrir
helgina. A borðum verður
lamb og lax með salati ogfær-
eyskri eplaköku í eftirrétt.
Súsanna hefur gaman af að
elda, prufa nýjar uppskriftir
og gera tilraunir. Hún segir að
uppskriftirnar séu fljótlegar
og þœgilegar, en ekki sé hér
um fínan mat að rœða. Á
þessum árstíma á ekki að
skorta laxinn og margir vilja
líklega eyða sem skemmstum
tíma í eldhúsinu. Við vonum
þó að þeir sem hafa eldað
kanínu eftir uppskrift í síðasta
matarkrók, hafi ekki flýtt sér
of mikið og áttað sig á því að
kanínan á að malla í ofni í 30
mínútur en ekki 3, eins og
misritaðist í blaðinu. En hér
koma uppskriftirnar hennar
Súsönnu Hammer:
Kótelettur í grœnmeti
4-6 kótelettur
1 púrrulaukur
4 tómatar
2 bananar
1 egg
4-5 msk rasp
1 tsk salt
'/2 tsk pipar
V2 tsk aromat
Kóteletturnar eru barðar og
dýft ofan í þeytt eggið en síðan
velt upp úr raspi, salti, pipar og
aromat sem búið er að blanda
saman. Kóteletturnar eru
brúnaðar í smjörlíki á pönnu í
tvær mínútur á hvorri hlið og
settar í eldfast mót. Grænmetið
er skorið í litla bita og sett á
pönnu í 2-3 mínútur en síðan er
því hellt yfir kóteletturnar og
þetta bakað við 170 gráður í
miðjum ofni í 30-40 mínútur.
Steiktur lax
1 kg lax
1-2 egg
4 msk rasp
1 msk salt
Sósan:
30 gr smjörlíki
1 dl vatn
V/2 dl rjómi
2 laukar
2 tsk karrý
2 epli
1 súputeningur
salt eftir smekk
Laxinn er verkaður og flakaður
og velt upp úr eggi og raspi sem
salti er blandað í. Hann er
steiktur í smörlíki á pönnu í
átta mínútur á hvorri hlið.
Sósan: Smjörlíkið er brætt í
potti og karrý sett útí. Laukur-
inn er verkaður og brytjaður
smátt og settur útí. Látið
krauma í fimm mínútur, en
ekki brúnað. Síðan er vatn,
súputeningur, rjómi og rifin epli
sett útí, suðan látin koma upp
og sósujafnari notaður. Kartöfl-
ur og hrásalat er gott að bera
fram með þessum rétti.
Salat
'A melóna
2 kiwi
100 gr vínber
lítill haus kínakál
100 grjarðarber
'A dós ananasbitar
appelsínusafi eftir smekk
Ávextir brytjaðir og settir í
skál. Ananas og safa hellt yfir
og látið bíða í ísskáp um stund.
Fœreysk eplakaka
3-4 epli
4'/2 dl vatn
3A dl hrísgrjón
V2 tsk salt
2 tsk kanel
2 tsk ferskur sítrónusafi
6 msk púðursykur
25 gr smjörlíki
Eplin eru flysjuð og skorin í
báta og raðað í smurt eldfast
mót. Vatnið sett í pott og látið
sjóða, hrísgrjónin sett útí og
soðið í 20 mín. Síðan er salti,
kanel, sítrónusafa og púður-
sykri hrært útí og suðan látin
koma upp. Þessu er síðan hellt
yfir eplin og smjörlíkið mulið
ofaná. Bakað neðarlega í ofnin-
um við 180 gráður í 20 mínútur.
Best volg með þeyttum rjóma.
Súsanna hefur tilnefnt konu
sem henni finnst vera lagin við
matreiðslu í næsta matarkrók,
Nancy Georgsdóttur á Akur-
eyri. IM
VÍSNAÞÁTTUR
Fyrir mörgum árum var Jónas
Þorbergsson úthrópaður fyrir
að hafa ásótt Jórunni skrif-
stofumey, en hún varðist að
sögn eftir föngum. Þá orti
Þorsteinn frá Gilhaga:
Ef skoðum við mannkynsins
eðli innst
og allt í þess háttum og fari,
á jörðinni margur Jónas finnst
en Jórunnir sjaldgæfari.
Ingibjörg Ágústsdóttir hjúkr-
unarkona annaðist Jóhann
Magnússon frá Mælifellsá á
sjúkrahúsi. Jóhann kallaði oft
lítilla erinda, eða engra.
Ingibjörg kvað:
Fyrir að narra konukind
kraftlitla og mjóa
drottinn lætur deyja í synd
drullusokkinn Jóa.
Jóhann svaraði:
Allvel drottinn þó hún þekki
og þykist skilja vilja hans
mér er sagt hann óski ekki
eftir dauða syndugs manns.
Hér skal gerð undantekning
og birt fimmhendinga vísa.
Höf. óvís:
Þegar Gróur á Leiti eru
grafnar
og glatkistan Mörðunum
safnar
er það svolítil fró
fyrír siðlausan róg
að Svarthöfði lifir og dafnar.
Sagt var mér að Sigfús
Axfjörð hafi ort þessa mann-
lýsingu:
Hans var brautin bein að þörf.
Burt frá þrautum stakk hann.
Oft hans naut við óþörf störf.
Allt sem flaut, það drakk
hann.
Hér kveður við annan tón hjá
Friðjóni Ólafssyni og mildari:
Hvergi er fjallafegurð meiri.
Faðmar bára sand.
Eyjafjörður, Akureyrí.
Æskudraumaland.
Heimagerð vísa um þjónustu-
konurnar í Dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri:
Það ég finn að léttir lund
og leiðum stundum fargar
að geta enn á einni stund
elskað svona margar.
K.N., sem allir kannast við,
nefnir næstu vísur sínar
Ávarp:
Mfn eru Ijóð ei merkileg,
mfnir kæru vinir.
En oft á tíðum yrki ég
öðruvísi en hinir.
Veit ég Ijóðin varla mín
verða kviðfyllandi,
og kannski þjóðin kostafín
kalli þau siðspillandi.
K.N. launar illt með góðu:
Einlægt þú talar illa um mig,
aftur ég tala vel um þig.
En það besta af öllu er
að enginn trúir þér - né mér.
Ja, því ekki það?
Flesta kitlar orð í eyra,
ef eitthvað mergjað finnst,
því vill ekki þjóðin heyra
þá, sem Ijúga minnst.
Langt er nú síðan ungur mað-
ur sendi Þuru í Garði fyrri-
hluta vísu. Hún botnaði
þegar:
Oft hafa svalað sárum þorsta
súr og freðin krækjuber.
Er þér sama hvað þau kosta
og hver þau tínir handa þér?
Næstu vísur orti Sigfús
Þorsteinsson í hópferð til
Austurlands:
Sólin á Leginum leikur
og Ijúfur ilmur í blænum.
Uti er andvarí veikur.
Einnig f Fellabænum.
Þar flugurnar alsælar una
hjá allskonar fiskahausum
og ilmi sem allir muna
alveg hreint dæmalausum.
Heimagerðar vísur.
„Partý“:
Andann þvingar erfiðið
allt í kringum náttúruna.
Seinna víngarðs - vökulið
virðist ringlað ekkert muna.
Hjúkrunarlið:
Maður sem er hjúkrun háður
hefur fundið margan dag
að skiptir meir en skólagráður
skaphöfn góð og hjartalag.
Skammdegið:
Rfður svörtu svartur knapi
svartan veg um skammdegið.
Lýðum verður létt í skapi
loks er sólin blasir við.
Jón Bjarnason fró Garðsvík
Mislukkun:
Margir honum lögðu lið
lífs svo gæti notið.
Ekkert gekk, því innrætið
er svo spillt og rotið.
Góði drengurinn:
Ég hugsa vel um sál og
sóma minn.
Ég sé þeir stóru virða slíkt
og meta.
Og umbunin, effullorðinn ég
finn
við fágað háborð meir en nóg
að éta.
Lífsskóli minn:
Ég hefannast ær og kýr og svín
og afþeim hefég lært aðgæta
mín.
Nú forðast ég það glannalega
grín
að ganga í kirkju og drekka
brennivín.
Þá birti ég nokkrar vísur eftir
Kolbein í Kollafirði, Högna-
son.
Afsökun til lesandans:
Oft hefég saman orðum hnýtt
einum mér til gleði.
Það er annars ekki nýtt
að íslendingur kveði.
Vormorgunn:
Ægir kringum eyjarnar
ótal hríngi setti.
Geislafingur glóeyjar
gull að lyngi rétti.
Sléttubönd. Tregi:
Svíða undir. Þungar þrár
þýða sprundið gladdi.
Líður stundin sorgarsár,
síðan hrundin kvaddi.
Eirðarleysi:
Aldrei frið ég öðlast má,
auðnu svo ég hrósi.
Alltaf vakir einhver þrá
eftir meira Ijósi.
Baldur Eyjólfsson að Gils-
fjarðarmúla kvað.
Sannleikurinn:
Sannleikurínn sagður hreinn
sigrar falska dóma.
Honum þjónað hefur einn
himni og jörð til sóma.
Við jarðarför:
Nú er holdið hulið mold,
hnikars- goldin -beðju skuld.
Sálin voldug fyrr á fold
foríög þoldi heimi duld.
Við skál:
Vermist sál mín víns í ál
- vex það bál sem kynt er ótt -.
Störfin hál við stuðlamál
stansa. - Skál. - Oggóða nótt.
Jósep Húnfjörð kvað.
Góða konan:
Illan bræðir andans snjó
yls með gæðum hlýjum.
Sólin klæða sýnist þó
svífa í mæðuskýjum.