Dagur - 14.08.1991, Side 1
74. árgangur Akureyri, miðvikudagur 14. ágúst 1991 151. tölublað
Vel í fc 1 >t 1 klæddur 1 im f M BERNHARDT Ul II II d. Thc Tailor-l .tKik errabodin
1 HAFNARSTRÆTI92 ■ 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Hallarflöt í Dimmu-
borgum lokað:
þörf, aUt er
úttraðkað“
Ferðamönnum er ekki
hleypt lengur inn á Hallar-
flötina í Dimmuborgum.
Landverðir í Mývatnssveit
hafa um nokkurt skeið var-
að við átroðningi ferða-
manna og nú er svo komið
að grípa þarf til aðgerða
ekki aðeins á Hallarflötinni
heldur víðar þar sem allt er
orðið úttraðkað.
„Landgræösla ríkisins a
Dimmuborgir. í fyrra var 'ráð-
gert að verja peningum til lag-
færinga í borgunuin, en í vor
var hætt við þau áform. í raun
er Hallarflötin ekki verr fariti
en margir aðrir staðir Dimmu-
borga. Allt er úttraðkað og
óhrjáiegt. Skaðinn er mikiil.
Hundrað og þrjátíu þúsund
ferðamenn koma tii Mývatns-
sveitar hvert sumar og flestir
koma f Dimmuborgir. Útilok-
að er að fylgjast með öllu
þessu fólki. Landvörður er í
Dimmuborgum þrjá mánúði á
ári sem ekki er nægilegt.
Raunar getur einn maður ekk-
ert gert. Nýtt skipulag verður
að koma til ásamt breyttu
hugarfari til náttúru Mývatns-
sveitar,“ sagði Steinþór Þrá-
insson, yfirlandvörður í Mý-
vatnssveit. ój
)
Svínavatnshreppur í
Austur-Húnavatnssýslu:
Umhverfis- og
hávaðamengun
„Starfsmenn Landsvirkjun-
ar vinna nú að umhverfis-
spjöllum þeim mestu sem
hér hafa orðið í sveit. Þeir
reisa línu sem tekið var
eignarnám fyrir,“ sagði
Björn Björnsson, bóndi að
Ytri-Löngumýri í Svína-
vatnshreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu.
Að sögn Björns eru haistu
ásar sveitarinnar þræddir og
línuna ber við himin víða f
héraðinu.
„Þessum „heiðursmönnum"
er ekkert heilagt. Nú þegar er
búið að reisa 12 möstúr en hér
tekur eignarnámið aðeins til
10 mastra. Ofan á umhverfis-
spjöllin bætíst hávaöamengun.
Vírarnir eru sprengdir saman
og flest hross hér í sveit hafa
fælst og hundar liggja inni í
bæjum eða undir vélum. Ég
heyrði eitt sinn er verið var að
fagna komu Danadrottningar
með fallbyssuskotum og þær
drunur sem af því hlutust voru
ekkert sé litið til raflínu-
hvellanna. Þrjátíu hross
stukku á girðingar hjá mér í
morgun,“ sagði Björn Björns-
son að Ytri-Löngumýri. ój
Pappírspokaverksmiðjan Serkir hf. hefur lengi átt við mikla fjárhagserfiðleika að stríða og gjaldþrot hefur því um
Skeið legið í loftinu. Mynd: -hjh
Blönduós:
Serkir hf. úrskurðaðir gjaldþrota
- að beiðni fyrirtækisins
í byrjun þessa mánaöar var
Pappírspokaverksmiðjan Serkir
hf. á Blönduósi úrskuröuö
gjaldþrota að beiðni forráða-
manna fyrirtækisins. Ekki er
vitað um hversu stórt gjaldþrot
er að ræða en stærstu kröfu-
hafar eiga eftir að lýsa kröfum
í þrotabúið. Meðal væntan-
legra kröfuhafa má nefna Iðn-
lánasjóð, Byggðastofnun, Iðn-
þróunarsjóð og Búnaðarbanka
Islands.
Uppkaup á fullvirðisrétti til
framleiðslu sauðfjárafurða í
Eyjafirði hafa nú náð 12% af
heildarframieiðslurétti, sem er
það magn er sauðfjárfram-
leiðslan á að dragast saman um
á þessu hausti samkvæmt
búvörusamningi. Frestur til
þess að ganga að tilboði ríkis-
ins varðandi fullvirðisréttar-
kaupin rennur út um næstu
mánaðamót og enn eru all
margir bændur að athuga sín
mál að sögn Olafs G. Vagns-
sonar, ráðunautar hjá Búnað-
arsambandi Eyjafjarðar.
Ólafur sagði að þessa dagana
væri búið að ganga frá samning-
um um uppkaup á allt að 12% af
sauðfjárframleiðslunni og því sé
ljóst að ekki komi til flatrar fram-
leiðsluskerðingar í sauðfjárrækt í
Eyjafirði á þessu hausti. Þá séu
allmargir bændur enn að íhuga
sín mál og því megi búast við að
Fyrsti skiptafundur hefur verið
dagsettur þann 11. nóvember nk.
á sýsluskrifstofunni á Blönduósi
þar sem lögð verður fram skrá
yfir lýstar kröfur og ákvarðanir
teknar um málefni þrotabúsins.
Forráðamenn Serkja hf. komu
til sýslumanns á Blönduósi þann
1. ágúst sl. og óskuðu eftir því að
fyrirtækið yrði úrskurðað gjald-
þrota og daginn eftir var það inn-
siglað af sýslumannsembættinu.
Bússtjóri þrotabúsins hefur verið
um einhver frekari uppkaup
verði að ræða. Ólafur kvaðst eiga
eftir að fá nákvæmar fréttir úr
Svarfaðardal en þar væru bændur
enn að ákveða sig hvort og hvað
miklu af fé þeir ættu að koma sér
upp nú í haust þegar fullvirðis-
réttur þeirra verður aftur virkur
að loknum niðurskurði sauðfjár
vegna riðusýkingar. Margir
bændur ætluðu sér að hefja ein-
hvern fjárbúskap að nýju en
flestir myndu selja hluta réttar
síns. Að öðru leyti skiptast upp-
kaupin nokkuð jafnt um héraðið
að sögn Ólafs og engin sveit sker
sig úr annarri fremur.
Samkvæmt framkvæmd bú-
vörusamnings á hvert svæði inni
það magn fullvirðisréttar, sem
selt er umfram 12% heildarfram-
leiðslu þess. Sú inneign kemur
því til góða á næsta hausti þegar
annar áfangi fækkunar sauðfjár
samkvæmt búvörusamningi á að
skipaður Þorsteinn Hjaltason,
lögfræðingur á Akureyri.
Þar sem um mjög sérstæða og
flókna framleiðslu er að ræða hjá
Serkjum hf. er talið hagstæðast
að henni verði haldið áfram.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru þreifingar i gangi hjá Blöndu-
ósingum um að halda verksmiðj-
unni gangandi og kaupa þar með
þrotabúið en það á eftir að koma
í ljós. -bjb
fara fram og lækkar þann hluta er
skerða verður að ári.
Bæjarfulltrúar á Akureyri
lýstu áhyggjum sínum vegna
erflðleika Niðursuðuverk-
smiðju K. Jónssonar & Co. á
fundi bæjarstjórnar í gær.
Fram kom að Landsbankinn
hefði synjað fyrirtækinu um
ábyrgð á 78 milljóna króna
erlendu láni vegna ónógra
veða, og bæjarráð hefði tekið
sömu afstöðu til bráðabirgða.
Þetta kom fram í svari Hall-
dórs Jónssonar bæjarstjóra við
fyrirspurn Huldu Eggertsdóttur
um hvort bæjarráð ætlaði ekki að
taka afstöðu til erindis fyrirtækis-
Lokafrágangur
ílugbrautarinnar í
Grímsey:
Fleiri
hundruð
tonn af efiii
flutt út í ey
Framkvæmdir við lagningu
slitlags á flugbrautina í Gríms-
ey eru hafnar. Síðustu ár hefur
verið unnið að því að lengja
brautina upp í um 1100 metra,
en nú er komið að lokafrá-
gangi hennar. Það sem gerir
erfitt fyrir með lagningu slit-
lagsins er að úti í Grímsey er
ekkert nýtanlegt efni í ofaní-
burðinn og því þarf að fá það
með Sæfara úr landi.
Sprengingum vegna lengingar
flugbrautarinnar lauk á sl. hausti.
Efnið sem við þær fékkst var nýtt
til hafnargerðar í höfninni í
eynni.
Að sögn Gunnars Odds Sig-
urðssonar, umdæmisstjóra Flug-
málastjórnar á Norðurlandi, er
ekkert efni nýtanlegt í Grímsey
lil að leggja á flugbrautina og því
þurfti að fá það úr landi. Niður-
staðan varð að blanda saman efni
úr tveim malarnámum á
Árskógsströnd og sér Sveinn
Jónsson og hans menn um það.
Einnig sjá þeir um að koma efn-
inu uni borð í Sæfara, sem síðan
flytur það til Grímseyjar. Sæfari
flutti fyrsta malarfarminn til
Grímseyjar sl. sunnudag.
Að vonum gengur þetta verk
seint því skipið getur ekki tekið
nema lítið í einu, en eftir að
sumaráætlun þess lýkur verður
brúin tekin af skipinu, sem þýðir
að það getur flutt mun meira.
Gunnar Oddur sagði að áætla
mætti að þyrfti um 2000 rúm-
metra af efni í brautina. „Það er
meiningin að Ijúka við slitlag
flugbrautarinnar fyrir haustið, en
ég þori ekki að segja hvenær lok-
íð verður við uppsetningu
merkja og ljósaútbúnaðar við
brautina,“ sagði Gunnar Oddur.
Um lagningu slitlagsins í
Grímsey annast Sigurður Bjarna-
son. óþh
ins frá 18. júlí um bæjarábyrgð.
Bæjarstjóri sagði m.a. að for-
svarsmenn K. Jónssonar ættu í
viðræðum við Landsbankann og
ekki væri útséð um niðurstöðu
málsins. Hann kvaðst telja eðli-
legt að bæjarstjórn færi varlega í
að veita umbeðna ábyrgð gegn
tryggingum sem Landbankinn
telur ófullnægjandi, bærinn gæti
varla gert minni kröfur að þessu
leyti en bankinn. Bæjarráð væri
tregt til að veita þessa ábyrgð
nema gegn fullnægjandi trygg-
ingu. Mál þetta væri því fyrst og
fremst milli bankans og K. Jóns-
sonar. EHB
Kaup fullvirðisréttar:
Tilskilinni fækkun náð í Ejjafirði
- „stefnir í frekari uppkaup á svæðinu,“
segir Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur
Ábyrgðarbeiðni K. Jónssonar hf:
Tryggingar taldar ónógar