Dagur - 14.08.1991, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 14. ágúst 1991
Fréttir
Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit.
Yfirlýsing Kísiliðjunnar hf. um Mývatnsrannsóknaskýrsluna:
Framtíð fyrirtækisins er björt
Útibú KÞ á Fosshóli:
Meiri sala eftii’
breytingamar
- glerkaffihús með út-
sýni yfir Goðafoss hefur
stóraukið kaffisöluna
Nokkur söluaukning hefur
orðið í útibúi Kaupfélags Þing-
eyinga á Fosshóli við Goðafoss
undanfarin tvö sumur síðan
útlitsbreytingar voru gerðar á
búðinni í fyrravor. Þá bættist
við kaffísala í glerskála með
útsýni yfír fossinn auk þess
sem nýtt útibú Sparisjóðs Suð-
ur-Þingeyinga dregur að ferða-
menn og þar með viðskipta-
vini.
„Veltan hefur farið vaxandi en
það er kannski ekki hægt að tala
um neina stökkbreytingu. Ferða-
mannastraumur fer vaxandi og
sparisjóðurinn hefur dregið að
hérna líka þannig að heimafólk
er farið að versla hér meira,“
sagði Gísli Sigurðsson, útibús-
stjóri KÞ á Fosshóli, þegar Dagur
innti hann eftir áhrifum breyting-
anna.
„Við byggðum glerhús hérna
austan við þar sem fólk situr og
drekkur kaffi og horfir á fossinn
og síðan það kom hefur kaffisala
aukist,“ sagði Gísli. Hann játti
því að vöruúrval hefði aukist
með meiri verslun sem einnig
skilaði sér í lækkuðu vöruverði.
„Þetta hangir allt saman. Salan
jókst mikið fyrstu sumarmánuð-
ina en júlí stóð í stað frá því í
fyrra enda var veður í júlímánuði
mjög gott fyrir sunnan líka,“
sagði Gísli og bætti við að sölu-
aukningin væri viðbót við sams-
konar aukningu í fyrrasumar eftir
breytingarnar um vorið. GT
Ákveðið hefur verið að setja af
stað átaksverkefni í atvinnu-
málum í Mývatnssveit. Stofnað
verður félag um þetta verkefni
og hefur þegar verið auglýst
eftir starfsmanni er taki til
starfa í haust en ætlunin er að
verkefnið standi yfír næstu tvö
árin. Átaksverkefnið er sam-
vinnuverkefni Skútustaða-
hrepps og Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga og segist
Sigurður R. Ragnarsson, sveit-
arstjóri Skútustaðahrepps,
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands íslands fjall-
aði á fundi sínum í fyrradag um
nýlegar vaxtahækkanir og seg-
ir hún í ályktun sem samþykkt
var á fundinum að verkalýðs-
hreyfíngin muni ekki sætta sig
við þá röngu og siðlausu tekju-
skiptingu sem verði afleiðing
af þeirri vaxtastefnu sem nú sé
látin viðgangast. Stjórnvöld
verði að knýja viðskiptabank-
ana til lækkunar vaxta.
„Fundur framkvæmdastjórnar
Verkamannasambands Islands
skorar á ríkisstjórnina að grípa til
aðgerða og lagasetningar gegn
þeim skefjalausu vaxtahækkun-
í yfírlýsingu frá Kísiliðjunni hf.
vegna skýrslu sérfræðinga-
nefndar um Mývatnsrannsókn-
ir segir að niðurstaða hennar
sé ánægjuleg, því ekki hafi tek-
ist að tengja sveiflur í dýra-
stofnum vatnsins við starfsemi
Kísiliðjunnar hf. í Ijósi
jákvæðrar niðurstöðu sé
ástæða til að ætla að framtíð
fyrirtækisins sé björt.
Um mengunarþáttinn segir að
áhrif aukinna næringarefna í
lindarvatni er streymi í Mývatn
séu vart mælanleg, ef tekið sé
tillit til heildarumsetningar
vonast til að þetta samstarf geti
eflt atvinnuuppbyggingu í Mý-
vatnssveit sem og Atvinnu-
þróunarfélag Þingeyinga.
Sigurður segir að samkvæmt
fyrirliggjandi fjárhagsáætlun
muni kostnaður af verkefninu
verða um 4 milljónir á hvoru ári
um sig. Hann segir fjármögn-
unina að mestu frágengna en
Byggðastofnun mun greiða 50%
kostnaðar, Skútustaðahreppur
25% og um fjármögnun á 25%
hefur verið leitað til fyrirtækja og
um sem átt hafa sér stað á undan-
förnum vikum.
Vaxtahækkanir þessar ganga
tvímælalaust gegn þeim mark-
miðum síðustu kjarasamninga að
knýja niður fjármagnskostnað og
skapa atvinnulífinu rekstrarskil-
yrði og skapamöguleika til aukn-
ingar kaupmáttar,“ segir í álykt-
uninni.
Þar segir einnig að líkur bendi
nú til að verðbólga verði innan
við 10% að meðaltali yfir árið en
þrátt fyrir það hafi lánastofnanir
aukið vaxtamun þannig að hann
sé nú orðinn yfir 10 af hundraði.
Hér verði stjórnvöld að taka á
málum. Benda megi á að ríkið sé
næringarefna í vatninu. Þá geti
íblöndunarefni, sem notuð eru
við framleiðslu kísilgúrs, ekki
borist í skaðlegu formi til
Mývatns.
Varðandi umsögn skýrslunnar
um fuglalíf við Mývatn segir í
yfirlýsingu Kísilijunnar hf. að
þrátt fyrir að tæpur þriðjungur af
flatarmáli Ytriflóa hafi verið
dýpkaður, mælist ekki breyting á
dreifingu fugla milli Ytriflóa og
annarra hluta vatnsins. Eina
undantekningin sé flórgoði, sem
fækkaði milli talninga 1974 og
1980. Sú fækkun hafi ekki verið
annarra á svæðinu. Nú þegar
hafa fengist jákvæð viðbrögð frá
t.d. verkalýðsfélögum og héraðs-
nefnd.
„Verkefnið verður unnið eftir
norður-norsku kerfi sem reynt
hefur verið í Átaksverkefni V.-
Húnavatnssýslu og sú fyrirmynd
verður notuð að verulegu leyti.
Uppbygging verkefnisins er
þannig að reynt er að laða fram
hugmyndir og frumkvæði íbú-
anna og hvetja þá og aðstoða til
að vinna þeim framgang í stað
stærsti lántakandi á peninga-
markaðnum og þær vaxtaákvarð-
anir sem ríkið og bankar hafi
framkvæmt, hafi nú þegar sett í
gang kostnaðarverðbólgu sem
auki á vanda ríkissjóðs, bitni á
atvinnulífinu og rýri lífskjör
almennings.
„Sú milljarða millifærsla á fjár-
munum, sem nú á sér stað er með
öllu óásættanleg og bein aðför að
þeim kjarasamningum sem í gildi
eru og möguleikum til þess að
hægt verði að gera nýjan kjara-
samning án þess að til verulegra
átaka komi í þjóðfélaginu,“ segir
í ályktun framkvæmdastjórnar
VMSÍ. JÓH
rakin til starfsemi Kísiliðjunnar
hf.
Um þann hluta skýrslunnar
sem fjallar um fiska segir í yfir-
lýsingunni að veiði í net og
holdafar fisks í Ytriflóa sé síst
lakari en í öðrum hlutum
Mývatns. Silungurinn virðist því
geta aðlagað sig að breyttu fæðu-
framboði. í skýrslunni sé bent á
að aðstæður til að nýta Ytriflóa
til veiða hafi batnað við dýpkun
flóans. Einnig komi fram í skýrsl-
unni að enn sé spurningum ósvar-
að, er varði áhrif breyttra set-
flutninga og sé það talið tilefni til
frekari rannsókna. óþh
þess að hugmyndirnar verði til
inni á skrifborði og einhverjum
aðilum falið að framkvæma þær,“
segir Sigurður Rúnar.
„Við vonumst til að út úr þessu
komi betri og markvissari skil-
greining á hvað þetta svæði hefur
uppá að bjóða og hvernig hægt er
að tengja það raunveruleikanum,
gera það að raunverulegum kosti
til atvinnuaukningar. Auk þess
eru hér fyrirtæki sem ef til vill
gætu eflst ef fagleg ráðgjöf og
aðstoð er fyrir hendi. Við horfum
hér á ýmsa vaxtarbrodda í sveit-
inni sem leggja þarf vinnu í að
setja fram sem kosti, t.d. ferða-
þjónustuna sem við teljum að
talsverðir möguleikar felist í til
fleiri starfa. Hér er líka tiltölu-
lega lítið nýttur jarðhiti og í
kringum hann ýmislegt sem má
hugsa sér að nýta,“ sagði Sigurð-
ur Rúnar og bætti við að í þessu
sambandi sé einnig horft til smá-
iðnaðarverkefna enda á staðnum
vannýtt vinnuafl yfir vetrartím-
ann, 20-40 konur að jafnaði á
atvinnuleysisskrá á þeim tíma.
Sigurður Rúnar segir átaks-
verkefni af þessu tagi ekki
galdralausn í atvinnumálum en
hins vegar verði að taka á málinu
frá grunni með það að markmiði
að hvetja einstaklingana til að
nýta þau tækifæri sem kunni að
vera fyrir hendi.
Starfsmaður átaksverkefnisins
verður staðsettur í Mývatnssveit
en umsóknarfrestur um starið er
til ioka þessa mánaðar. JÓH
Akureyri:
■ Stjórn veitustofnana hefur
heimilað veitustjóra að veð-
setja jarðhitaréttindi Hita-
veitu Ákureyrar að Lauga-
landi í Glæsibæjarhreppi
vegna lántöku hjá Örkusjóði
að fjárhæð allt að kr. 9 milljón-
ir.
■ Umhverfísnefnd leggur til
að leigulöndum í landi Nausta
verði úthlutað til eftirfarandi:
Naust 1 - Baldvin Guðlaugs-
son og Heimir Guðlaugsson,
Naust 2 - Elfa Ágústsdóttir og
Höskuldur Jónsson, Naust 3 -
Björn Sigurðsson, Naust 4 -
Sigurður Hjaltason, Naust 5 -
Jóhannes Mikaelsson, Naust
6a - Svanberg Þórðarson, 6b -
Jarðeignir, Naust 7 - Lúðvík
Magnússon og Haukur
Ármannsson.
■ íþrótta- og tómstundaráð
samþykkir að ráða Einar
Gylfason, Hjallalundi 13i, sem
umsjónarmann félagsmið-
stöðvarinnar í Lundarskóla og
Gísla Baldvinsson, Smárahlíð
lc, sem umsjónarmann félags-
miðstöðvarinnar í Síðuskóla.
Um er að ræða hálft starf í
Lundarskóla í 12 mánuði og
hálft starf í Síðuskóla í 9 mán-
uði.
■ íþrótta- og tómstundaráð
hafnar beiðni handknattleiks-
deildar Þórs um fjárstyrk
vegna keppnisferðar meistara-
flokks Þórs til Randers dagana
23. til 25. ágúst nk.
■ Iiúsnæöisncfnd sanrþykkir
að verða við beiðni húsnæðis-
samvinnufélagsins Búseta um
byggingu raðhúsa við Drekagil
og Tröllagil. í framhaldi af
þessari samþykkt fellir stjórn-
in úr gildi bókun frá 5. júlí
(þ.e. að ganga til verksamn-
inga við S.S. Byggi um 6 íbúð-
ir við Drekagil nr. 1-11).
Stjórnin samþykkir þess í stað
að somu aðilum verði falið
með somu fyrirvörum að
ganga til samninga við S.S.
Byggi um 5 íbúðir við Vestur-
síðu 16-18.
■ Kjaranefnd samþykkir að
veita Árna Steinari Jóhanns-
syni, umhverfisstjóra, styrk
allt að 48 þúsund krónur til
þess að sækja ráðstefnu um
stjórnun skrúðgarða og úti-
vistarsvæða í Orleans í Frakk-
landi 2.-5. séptember.
■ SS. Byggir hefur lýst yfir
áhuga á að byggja 3-4 íbúða
hús á lóðinni Hjallalundur 14
og 16. Bygginganefnd sam-
þykkti á fundi sínum nýverið
að hún gæti fallist á að byggt
verði 3ja íbúða raðhús á einni
hæð á bygggingarreit þar sem
gert var ráð fyrir parhúsi. í
bókun bendir bygginganefnd á
að þar sem um frávik frá sam-
þykktu skipulagi svæðisins er
að ræða ber að ieggja frani
samþykki tbúðareigenda á
svæðinu áður en byggingar-
leyfi er veitt.
Mývatnssveit:
Blásið tíl átaksverkefiiis í atvmniunálum
- „verður reynt að laða fram hugmyndir og frumkvæði íbúanna,“
segir sveitarstjóri Skútustaðahrepps
Framkvæmdastjórn Verkamannasambands íslands:
Stjómvöld knýi bankana tíl vaxtalækkunar
- segir ranga og siðlausa tekjuskiptingu
afleiðingu af núverandi vaxtastefnu