Dagur - 14.08.1991, Síða 5

Dagur - 14.08.1991, Síða 5
Miðvikudagur 14. ágúst 1991 - DAGUR - 5 Silfurstjarnan í Öxarfirði: Góður árangur í eldi og markaðs- málum bleikjunnar - fitusýrumælingar gefa mjög jákvæðar niðurstöður Silfurstjarnan í Öxarfirði er ein þeirra fískeldisstöðva þar sem tekist hefur að byggja upp framleiðslu á laxi og bleikju án þess að til ófyrirsjáanlegra rekstrarerfíðleika hafí komið eins og svo víða er þekkt á árdögum fískeldis á Islandi. Nú er físki slátrað í stöðinni tvisvar til þrisvar í viku, bæði fyrir innlendan og crlcndan markað. Erlendi markaðurinn er mikilvægur og morguninn sem undirritaður hafði viðdvöl í fískeldisstöðinni á Núpsmýri hafði skeyti borist frá væntan- legum kaupanda í Bretlandi, sem ekki hafði áður átt við- skipti við Silfurstjörnuna. Samkvæmt skeytinu vildi hann kaupa allt að 200 tonn af bleikju á ári og á þessum góð- viðrisdegi í júlílok var verið að slátra í prufusendingu til hins breska kaupanda. „Hann hefur keypt bleikju í Þorlákshöfn og síðan kaupir hann einnig rækju frá íslandi," sagði Björn Benediktsson í Sand- fellshaga, sem að öðrum ólöstuð- um má kalla manninn á bak við þessa öflugu fiskeldisstöð í Öxar- firði. Björn sagði að ef samningar tækjust við þennan aðila væri um mjög stóran samning að ræða fyrir fyrirtækið og einnig hag- stæðan að því leyti að þessi kaup- andi vildi fá sama magn í hverri viku þannig að um jafnar sölur yrði að ræða. Björn sagði að Evrópubúar væru smám saman að fá áhuga fyrir bleikjunni sem gæðavöru. Peir spyrðust mikið fyrir um rauðleitan lit á fiskinum, sem stafar af seltu þegar hann vex upp í sjó og hefur þannig á sér annað yfirbragð en vatna- bleikja, sem Evrópubúar eiga að venjast. Nú fara um 500 kíló af bleikjuflökum í hverri viku frá Silfurstjörnunni til kaUpanda í Sviss svo dæmi sé nefnt. Björn Benediktsson sagði að fyrir nokkru hefðu verið send sýnishorn af bleikju frá Silfur- stjörnunni til fitusýrumælinga. Niðurstöður þeirra gæfu til kynna að bleikjan innihaldi um fimm sinnum meira magn af Omega 3 btusýru, sem meðal annars er tal- in hefta myndum kólesterols í blóði. „Pessar niðurstöður mælinganna virðast leiða í ljós að um mjög heilsusamlega fæðu sé að ræða og því nauðsynlegt að koma þeirri vitneskju á framfæri til kaupenda,“ sagði Björn. í upphafi var fyrst og fremst ætlunin að ala lax í eldisstöð Silf- urstjörnunnar en síðan var einnig hafist handa um eldi bleikjunnar og nú er um helmingur alls fiskjar í stöðinni bleikja. „Við höfum orðið að draga saman í laxinum," sagði Björn um leið og við geng- um framhjá eldiskeri þar sem 40 tonn af bleikju synti sífellt á móti straumnum. Björn sagði að fiskur, sem elst upp í straumvatni verði mun stæltari og því ákjós- anlegri markaðsvara. Ákveðið hefur verið að slátra 150 tonnum af bleikju til loka þessa árs en um 500 tonn eru nú í stöðinni til sölu og markaðssetningar á næsta ári. Skýrsla um mataræði íslendinga komin út Manneldisráö hefur birt skýrslu um könnun á mataræði íslcndinga sem fram fór síðast- liðið ár. I skýrslunni er greint frá aðdraganda þessara fram- kvæmda, aðferðum sem beitt var við könnunina og helstu niðurstöðum. Birtar eru töfíur um neyslu matvara og næring- arefna el'tir aldri og kyni og dregin fram helstu sérkenni íslensks mataræðis. í skýrslunni kemur meðal ann- ars fram að fáar þjóðir borða próteinríkara fæði en íslending- ar. Fiskur, kjöt, mjólk og mjólk- urmatur skipa veglegri sess í mataræði okkar en flestra annarra þjóða, en á hinn bóginn er hér minna borðað af grænmeti, ávöxt- um, brauði og öðrum kornmat en víðast hvar annars staðar. Einu kolvetnaríku fæðuteg- undirnar sem íslendingar neyta í ríkunt mæli eru gosdrykkir, sæt- indi, kex og kökur. Sérstaklega er áberandi hve gosdrykkja- neysla ungs fólks er mikil. Það er athyglisvert að meira er drukkið af gosdrykkjum en af vatni hér á landi og er vatn raun- ar fremur neðarlega á lista yfir vinsæla drykki, hafnar í fjórða sæti á eftir kaffi, nýmjólk og gos- drykkjum. Of mikil fita er þó tvímælalaust helsti ókostur á fæðuvenjum margra íslendinga, ekki síst karla. Karlmenn borða almennt feitara fæði en konur. Þeir nota meiri fitu með heitum mat, smyrja brauðið sitt meira og velja oftar nýmjólk í stað léttmjólkur eða undanrennu. Hjartasjúk- dómar eru tíðari meðal karla en kvenna en mikil fituneysla eykur enn frekar líkur á þessum vá- gesti. Pví er jafnvel enn brýnna fyrir karla en konur að huga að þessum þætti mataræðis. Skýrsla um könnunina er fáan- leg á skrifstofu Manneldisráðs Árntúla la, pósthólf 8415, 128 Reykjavík. Bifhjólamenn hafa enga heimild til að aka hraðar en aðrir! ||UMFERÐAFI Slátrun í Silfurstjörnunni. Fyrir tveimur árum leit mjög illa út með atvinnulíf í Öxarfirði og í ársbyrjun 1990 var haldinn almennur Fmdur á Kópaskeri með þingmonnum kjördæmisins og fleiri aðilum um framtíð byggðarlagsins. Dökkt hljóð var í mörgum og í blöðum mátti lesa fyrirsagnir á borð við að hnífur- inn væri yfir Kópaskeri. Nú hefur þessum hníf byggðaniðurskurðar verið bægt í burt. Um fjörutíu manns starfa nú hjá Silfurstjörn- unni, sem er stærsti atvinnu- rekandi í héraðinu. Björn Benediktsson sagði að rekstur stöðvarinnar væri í jafnvægi og framleiðslan stæði orðið undir öllum föstum kostnaði. Hann benti síðan á að í Öxarfirði væri lögð megináhersla á hágæða- framleiðslu á matvælum og vísaði þá til Silfurstjörnunnar og einnig til Fjallalambs hf. á Kópaskeri þar sem unnið hefur verið að sér- hæfingu í úrvinnslu á lambakjöti. Trúlega er ekki ofsögum sagt þótt fullyrt sé að hvergi á landinu hafi orðið jafn mikill viðsnúning- ur í atvinnumálum á skömmum tíma síðan síldin kom og síldin hvarf og orðið hefur í byggðun- um við Öxarfjörð á síðastliðnu einu og hálfu ári. ÞI Húsbyggj- endur Frárennslisrör PVC (rauð) 100 og 150 mm ásamt til- heyrandi tengistykkjum. Drenrör 100 mm PVC. Gólfniðurföll og vatnslás- ar úr plasti í mörgum gerðum. Verslið vití UTJJlllí ,a9mann‘ DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SIMI (96)22360 '-----------------------------\ Lokað vegna sumarleyfa firnmtudaginn 15. og föstudaginn 16. ágúst. DIESEL-VERK VÉLASTILUNGAR OG VtÐGERÐtR DRAUPNISGO'nj 3 600 AKUREYRI SlMI (96)25700 Slender you leikfimi fyrir fólk á öllum aldri. Höfum opnað eftir sumarleyfi. Tímapantanir virka daga frá kl. 13.00-15.00. Æfingastofan Mínus Kaupangi sími 25848. Félag málmiðnaðarmanna Akureyri Takið eftir í samræmi við samþykktir aðalfundar Félags málm- iðnarmanna Akureyri þann 23. febrúar 1991 er ráð- gert að fara af stað með tölvunámskeið fyrir félags- menn 20. ágúst nk. Enskunámskeiðin hefjast í október. Námskeiðin verða haldin í Verkmenntaskólanum og fer innritun fram á skrifstofu skólans sem er opin frá kl. 8-16 virka daga, sími 11710. Þá viljum við minna á að vaxtarræktarstöð Sigurðar Gestssonar er opin og Heilsuræktarstöðin að Bjargi opnar eftir sumarleyfi um miðjan september. Félagsmenn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri eiga þess kost að notfæra sér þjónustu þessara aðila án endurgjalds einu sinni. Stjórn félagsins hvetur félagsmenn sína til að notfæra sér þessa möguleika. Stjórnin.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.