Dagur - 14.08.1991, Síða 12

Dagur - 14.08.1991, Síða 12
Uppgröfturinn að Granastöðum: Tvö samhliða, skeifulaga hús vekja áímga Vinna við lokauppgröft að Granastöðum í Eyjafirði er að hefjast en það er Bjarni Ein- arsson fornleifafræðingur sem hefur veg og vanda af þeim rannsóknum sem þar hafa far- ið og eiga eftir að fara fram. Grafa á til hlítar í kjallara eða búr, komast á að raun um stærð á öskuhaug og skeifulaga hús sem ekki hafa fengið neitt sérstakt nafn á íslandi verða rannsökuð til hlítar. Ef um þessa gerð af húsum er að ræða er þetta fyrsti fundur sinnar tegundar á íslandi en þessi gerð húsa er aðeins til á tveimur stöðum í veröldinni. Ekki er vitað til hverra nota þessi hús voru ætluð en hér er um frekar lítil hús að ræða, tvö samhliða hús sem eru um 5 metr- ar í þvermál og deila með sér ein- um vegg eða eins og tvær hesta- skeifur sem liggja saman. Húsin gætu hafa verið notuð sem grip- ahús, verslunarhús, hergeymslur eða í öðrum ókunnum tilgangi. Aldur þessara skeifulaga húsa er talin vera fyrir víkingaöld, þ.e. á bilinu 600 til 800 e.Kr. en húsin á Granastöðum eru hins vegar frá víkingaöld þ.e. árið 1000 til 1100 e.Kr. Auk Bjarna Einarssonar verða 2 til 3 aðstoðarmenn en fyrirhug- að er að ljúka verkefninu um miðjan septembermánuð. Skýrsla um jarðhýsin verður birt í ársbyrjun 1992 í Noregi og greinakorn verða birt erlendis áður en lokaskýrsla á íslensku verður gefin út. Bjarni Einarsson starfar í Gautaborg en hyggur á búferla- flutninga til íslands á næsta ári en þá verða lausar til umsóknar nýj- ar stöður fjórðungsminjavarða auk stöðu við Þjóðminjasafn íslands. GG Framkvæmdir í miðbæ Akureyrar: Umferð um Ráðhústorg og Brekkugötu breytist - stefnt að hellulögn torgsins á næstunni Bæjarstjórn Akureyrar og skipulagsnefnd hafa samþykkt tillögur tæknideildar Akur- eyrarbæjar um umferðarmerkingar á Ráö- hústorgi og í Brekkugötu. í tillögunum er m.a. kveöiö á um hámarkshraða í þessum götum og bann við bifreiðastöðum á torginu. I Brekkugötu sunnan Oddeyrargötu verður tekinn upp tvístefnuakstur, en Brekkugatan hefur lengi verið einstefnuakstursgata. Eins og kunnugt er hafa undirbúningsfram- kvæmdir vegna breytts skipulags og útlits á Ráð- hústorgi farið fram í sumar. Áætlað er að hellu- leggja torgið, en akstur um það verður að mestu óheimill nema á austanverðu torginu. Tillögurnar sem samþykktar voru eru á þessa leið: Hámarkshráði á austurhluta Ráðhústorgs skal vera 30 kílómetrar á klukkustund. Annars staðar á torginu á að vera 10 kílómetra hámarks- hraði og umferð um þann hluta þess takmörkuð við vörulosun og umferð fatlaðra. Bifreiðastöð- ur verða bannaðar á torginu. Biðskylda verður á umferð úr Strandgötu á akstursleið um torgið, og einnig frá svæðum sunnan og norðan torgsins inn á sömu akstursleið. Tvístefna er tekin upp í þeim hluta Brekkugötu sem liggur sunnan Odd- eyrargötu, eins og áður sagði, en akstur frá Brekkugötu inn á Ráðhústorg verður óheimill. Bifreiðastöður í Brekkugötu verða einungis leyfðar í merktum bílastæðum. Bannað verður að taka hægri beygju úr Oddeyrargötu inn á Brekkugötu til suðurs. „Ákvæði þessi skulu taka gildi þegar fram- kvæmdir hefjast við hellulögn torgsins," segir í bókun skipulagsnefndar, en samkvæmt upplýs- ingum frá tæknideild er rniðað við að breyting- arnar taki smám saman gildi þegar farið verður að leggja snjóbræðslulögn og ganga frá undirlagi fyrir hellurnar. Útboð fór fram fyrir skömmu á verkinu og bárust tilboð frá þremur aðilum. Tveir þeirra eru verktakar á Akureyri en þriðja tilboðið er sameiginlegt frá verktökum í bænum og utan lians. Bæjarráð tekur afstöðu til tilboð- anna á fimmtudag, en tæknideild hefur ekki mátt ganga frá nýjum verksamningum um skeið vegna endurskoðunar á fjármálum bæjarins. Að öðru óbreyttu var miðað við að framkvæmdum við hcllulögn torgsins skuli lokið í haust. EHB Laugaskóli: Mikil aðsókn og þurft að vísa frá Mikil aðsókn hefur verið að Laugaskóla fyrir næsta skólaár og nú hefur orðið að vísa nokkrum nemendum frá þar sem heimavist skólans tak- markar fjölda nemenda hverju sinni. Skólinn starfrækir nú þrjár námsbrautir og vekur ferðamálabrautin mestan áhuga mjá nemendum að sögn Hannesar Hilmarssonar, ný- ráðins skólameistara. í vetur er áætlað að 129 nemendur stundi nám við Lauga- skóla. Af þeim verða 23 nemend- ur í 10. bekk og 10 í svonefndu fornámi, sem er millistig á milli grunnskóla og framhaldsskóla. í framhaldsskólanum sjálfum munu síðan 96 nemendur stunda nám og skiptist fjöldi þeirra nokkuð jafnt á þær þrjár náms- brautir, sem í boði eru. Ferða- málabraut er nú starfrækt í þriðja sinn við Laugaskóla. Áhugi á henni fer stöðugt vaxandi sem sést best á því að helmingi fleiri nemendur sækja nú um nám á þeirri braut en á síðastliðnu hausti. Hannes Hilmarsson, hefur nú tekið við starfi skólameistara af Páli Dagbjartssyni, sem haldið hefur til Skagafjarðar. Hannes starfaði áður sem námsráðgjafi við Menntaskólann við Sund. Hann sagði að mikil aðsókn væri að skólanum fyrir næsta skólaár og hefði nú þegar orðið að vísá nokkrum nemendum frá vegna þrengsla. Hannes sagði að tölverð ásók væri í að koma unglingum til náms í 10. bekk þar sem ekki væri öruggt með kennslu á heimaslóð. Hann nefndi Vest- firði sérstaklega í því sambandi þar sem víða hafi reynst erfitt að ráða kennara til starfa. Tekist hefur að manna allar kennara- stöður á Laugum með háskóla- menntuðum starfsmönnum. ÞI Bæjarstjórn Akureyrar: Möguleikar til eflingar atviimulífs kannaðir Miklar umræður urðu um atvinnumál á fundi Bæjar- stjórnar Akureyrar í gær í kjölfar tillögu framsóknar- manna sem Þórarinn E. Sveins- son flutti. Efni hennar er á þá leið að bæjarráð kanni nú þeg- ar möguleika á að útvega stór- aukið fjármagn til Fram- kvæmdasjóðs Akureyrar og aðgerðum til að auka verulega hlutafé í Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar. Fjármögnun fari fram með sölu eigna og eða lántöku. Bæjarstjórn samþykkti sam- hljóða að vísa ofangreindri til- lögu til bæjarráðs en flutnings- maður lýsti því yfir að hann væri ósáttur við þá málsmeðferð, því hann vildi láta afstöðu bæjarfull- trúa til málsins koma fram með nafnakalli og flutti tillögu um það. Heimir Ingimarsson flutti tillöguna um að vísa tillögu Þór- arins til bæjarráðs. Ágreiningur varð þá um fundarsköp og þurfti bæjarritari að leita lögfræðilegs álits á því hvor tillagan hefði forgang. Niðurstaða lögfræðings- ins var að tillaga Heimis væri frávísunartillaga, og hefði hún forgang. Þórarinn sagði að alvarlegar blikur í atvinnumálum á Akur- eyri krefðust skjótra viðbragða. Fyrirtæki leituðu mjög til bæjar- yfirvalda um ábyrgðir og hlutafj- árframlög, en nauðsynlegt væri að bæta eiginfjárstöðu þeirra með öllum tiltækum ráðum af hendi bæjarins. Lægi því beint við að efla IFE og Framkvæmda- sjóð til að koma til móts við þarf- ir atvinnulífsins. Hólmsteinn Hólmsteinsson kvaðst á fundinum taka undir margt í þessari tillögu en hún gengi skemmra en það sem áhugamannahópur um uppbygg- ingu atvinnulífs á Akureyri hefði á prjónunum. Valgerður Hrólfs- dóttir og Gunnar Jónsson voru jákvæð gagnvart tillögunni. Val- gerður sagði að bæjaryfirvöld mættu ekki sofna á verðinum og yrðu að auka bjartsýni fólks á Blómahúsið á Akureyri hefur sótt um lóð til byggingar um 1000 fermetra gróðurhúss í Glerárhverfi á Akureyri. Unisókn þessa efnis hefur ver- ið tekin fyrir í bygginganefnd þaðan sem málinu var vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd. möguleikum atvinnulífsins. Gunnar Jónsson gagnrýndi að ekki skyldu liggja frammi upplýs- ingar um yfirvofandi tap bæjarins vegna gjaldþrota fyrirtækja undanfarið. Heimir Ingimarsson taldi ýmislegt í málflutningi Þór- arins vera óábyrgt og sagði að til- Sú lóð sem óskað er eftir er á svæði því er markast af Undir- hlíð, Langholti, Miðholti og Krossanesbraut. Að sögn Steinþórs Sigurðsson- ar, eiganda Blómahússins, er hug- myndin sú að í þessu húsi verði fyrst og fremst blómaverslun með lagan væri nú þegar fyrir hendi í stefnumótun atvinnumálanefnd- ar. Jakob Björnsson mótmælti þessu og kvað það óábyrgt hjá meirihlutanum að láta tímann líða án þess að leggja fram neinar raunhæfar úrbótatillögur í atvinnumálum. EHB líku sniði og t.d. hjá Blómavali í Reykjavík og Eden í Hveragerði. Steinþór sagði ekki hugmyndina að framleiða í slíku húsi blóm heldur skapi húsnæði sem þetta meiri möguleika varðandi blóma- sölu enda þrífist mörg blóm illa í venjulegu húsnæði sökum birtu- leysis. JÓH Blómahúsið á Akureyri: Óskar eftir lóð undir gróðurhús

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.