Dagur - 15.08.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. ágúst 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Óvissa um framkvæmdir Akureyrarbæjar rædd í bæjarstjórn
„Getum ekki staðið að frestun framkvæmda“
- segir Úlíhildur Rögnvaldsdóttir en tillaga um óbreytta framkvæmdaáætlun var felld
Tillaga bæjarfulitrúa Fram-
sóknarflokksins um að unnið
verði samkvæmt samþykktri
framkvæmdaáætlun ársins í ár
var felld á fundi bæjarstjórnar
í þriðjudag með sex atkvæðum
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags gegn fjórum
atkvæðum flutningsmanna.
Bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
sat hjá. Röksemd framsókn-
armanna fyrir tillögunni var sú
að vegna margvíslegra þreng-
inga í atvinnulífinu á Akureyri
mætti bæjarstjórn ekki verða
til að rýra atvinnutækifærin
enn frekar en orðið er með því
að fresta framkvæmdum án
þess að vitað væri hvert tap
bæjarins yrði af gjaldþrotum
fyrirtækja undanfarna mánuði.
Eins og fram hefur komið er
endurskoðun fjárhagsáætlunar
ekki lokið, og verklegar fram-
kvæmdir bíða á meðan. Ný dag-
vist er stærsta verkefnið en frá-
gangur á nýju slökkvistöðinni er
einnig inni í dæminu. Tillaga
framsóknarmanna hljóðaði
þannig: „Bæjarstjórn felur
bæjarráði að vinna samkvæmt
samþykktri framkvæmdaáætlun
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.
ársins 1991, enda er ekki-fyrirséð
hver tekjumissir bæjarsjóðs verð-
ur á árinu.“
„Sá grunur læðist að manni að
verið sé að láta tímann vinna
með sér,“ sagði Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir, sem mælti fyrir tillög-
unni. Hún minnti á að sumarið
væri tími margvíslegra fram-
kvæmda á vegum bæjarins, og
mikilvægt væri að nota hann vel.
Hún spurði hvort ætlunin væri að
fresta mörgum stórum verkefn-
um á vegum bæjarins. „Okkur
fulltrúum Framsóknartlokksins
finnast þessi vinnubrögð vera fyr-
ir neðan allar hellur. Við getum
ekki staðið að því að fresta þess-
um fnmikvæmdum. Hvenær á að
taka ákvörðun? Það er ekki fyrir-
séð hver tekjumissir bæjarins
verður á árinu, og okkur finnst
skynsamlegra að bærinn haldi sig
við samþykkta áætlun þegar
komið er fram á þann tíma þegar
huga þarf að fjárhagsáætlun
næsta árs,“ sagði Úlfhildur. Hún
mælti með að tekið yrði tillit til
tekjumissis bæjarins á næstu fjár-
hagsáætlun og reynt yrði að
dreifa vandanum á næstu ár.
„Vinnubrögðin í bæjarráði gefa
okkur ekki tilefni til að treysta
því að farið verði í að endur-
skoða fjárhagsáætlunina í þessari
eða næstu viku,“ sagði Úlflúldur
að lokum.
Heimir Ingimarsson sagði á
fundinum að ekki væri vitað
nákvæmlega hver tekjumissir
bæjarins yrði vegna ýmissa áfalla
og gjaldþrota á árinu. Hann
Hólmsteinn Hólmsteinsson:
Óæskilegt að skera
bæjarframkvæmdir
mikið niður
telur Qárfestingarsjóð til eílingar
atvinnulífmu góðan kost
Hólmsteinn Hólmsteinsson
sagði á fundi Bæjarstjórnar
Akureyrar á þriðjudag að
mikilvægt væri að allir bæjar-
fulltrúar stæðu saman um að
styrkja atvinnulífið á erfið-
leikatímum. Áhugamannahóp-
ur um eflingu atvinnulífs á
Akureyri og nágrenni hefði
áhuga á að koma á fót fjárfest-
ingarsjóði á Eyjafjarðarsvæð-
inu og væru þeir í samstarfi við
Kaupþing Norðurlands um
það mál.
Að sögn Hólmsteins er hug-
myndin sú að sveitarfélög, fyrir-
tæki og einstaklingar sameinist
um slíkan sjóð. Margir einstakl-
ingar ættu fé aflögú og keyptu
hlutabréf í fyrirtækjum, og ástæða
væri til að ætla að fólk hefði
áhuga á að kaupa bréf í fjárfest-
ingarsjóði til að efla atvinnulíf á
svæðinu og uppbyggingu á Akur-
eyri. Um tillögu framsóknar-
manna til eflingar atvinnulífi á
Akureyri, sem áður hefur verið
geint frá hér í blaðinu, sagði
Hólmsteinn að hún gengi
skemmra en hugmyndir áhuga-
mannahópsins, en hún væri þó
Hann varð eftir í Húnaveri
Eins og allir vita er Húnavershátíðin afstaðin og síðustu daga
hefur svæðið verið fínkembt og sviðið tekið niður. Eins og með-
fylgjandi mynd sýnir þá eru ekki allir farnir af svæðinu, a.m.k.
var þessi bíldrusla enn í Húnaveri þegar Dagur var þar á ferð-
inni nýlega.
Ekki eru miklar líkur á að þessi bíll fari nokkuð og örlög hans
ráðast sennilega í brotajárnsverksmiðju. Hann er búinn að
sinna sínu síðasta hlutverki, þ.e. að koma eigendum sínum í
Húnaver um verslunarmannahelgina. Mynd: -bjb
Hólmsteinn Hólmsteinssun.
ágætis vísir að því sem koma
skyldi.
Hólmsteinn kvaðst sammála
Þórarni E. Sveinssyni um að
þrátt fyrir mörg gjaldþrot væru
þau fyrirtæki sem betur fer enn
fleiri sem hefðu traustan fjárhag
og væru vel rekin. Menn mættu
því ekki fyllast svartsýni. Bærinn
ætti ýmsa möguleika, einn þeirra
væri sala á eignarhlutnum í
Landsvirkjun. Hann vildi láta
skoða þann kost mjög vel en ekki
mætta kasta höndunum til
ákvörðunar um hvað gera skyldi
við fjármagnið sem fengist fyrir
eignarhlutinn. Hugsanlega mætti
skoða sölu á fleiri eignum bæjar-
ins. Um Útgerðarfélag Akureyr-
inga hf. væri það að segja að þar
ætti bærinn mikilvægan varasjóð,
57 prósent hlutafjárins sem væri
metinn á 1,2 til 1,3 milljarða
króna. Ef 5 til 6 prósent af þessu
hlutafé væru seld væri bærinn
kominn mcð yfir 100 milljónir
sem hægt yrði að nota til að halda
fullurn dampi á framkvæmdum,
en mjög óæskilegt væri að þurfa
að skera mikið niður af bæjar-
framkvæmdum vegna þeirra
lægðar sem atvinnulífið væri í.
Hann benti að lokum á að ekkert
hefði verið ákveðið um niöur-
skurð í framkvæmdum bæjarins í
ár. EHB
ræddi um að sér finndist það
óábyrgur málflutningur að tala
um að skekkjur kæmu ekki að
sök og menn mættu ekki velta
vanda líðandi stundar yfir á fram-
tíðina.
Birna Sigurbjörnsdóttir sagði
búast hefði mátt við að fram-
sóknarmenn létu verulega í sér
heyra þegar þrír varabæjarfull-
trúar frá meirihlutanum sætu
fundinn. Bæjarfulltrúum minni-
hlutans væri vel kunnugt um að
ákvörðun um frestum fram-
kvæmda hefði verið tekin með
tilliti til endurskoðunar fjárhags-
áætlunar og að sá frestur ætti
aðeins að standa skamman tíma.
Hún benti á að margir starfs-
menn bæjarins væru í sumarleyfi
og því hefðu hlutirnir e.t.v. geng-
ið dálítið á afturfótunum. „Mér
finnst þessi tillaga alls ekki tíma-
bær og geri það að tillögu minni
að henni verði vísað frá," sagði
Birna, og minnti á að þrátt fyrir
margvíslega erfiðleika fyrirtækja
á Akureyri bæru bæjarfulltrúar
þá ábyrgð að þeir mættu ekki
setja bæjarsjóð á kaf í skuldir.
Betra væri að staldra við en veru-
lega yrði tekið á málinu á næsta
fundi bæjarráðs, cn hann verður
haldinn í dag.
Kolbrún Þormóðsdóttir gerði
athugasemd við ummæli Birnu
um varabæjarfulltrúana, og
kvaðst treysta þeim fullkomlega
til að hafa sjálfstæða skoðun á
málunum, þótt þeir sæktu að
jafnaði ekki fundi bæjarstjórnar.
Gunnar Jónsson, várabæjarfull-
trúi, þakkaði Kolbrúnu fyrir
þessi ummæli. EHB
Valgerður Hrólfsdóttir um
atvinnumálin á Akureyri:
Nauðsynlegt að
stuðla að bjartsýni
í atvinnumálum
- og grípa til aðgerða til að bæta ástandið
Valgerður Hrólí'sdóttir (S)
kvaðst geta tekið heilshugar
undir niargt af því sem minni-
hluti Franisóknarflokksins hafði
fram að færa varðandi atvinnu-
málin á síðasta fundi Bæjar-
stjórnar Akureyrar. Hún sagði
að þrátt fyrir skiptar skoðanir
væru bæjarfulltrúar allir að
starfa fyrir sinn bæ og stefndu
að sama inarki.
í máli Valgerðar kom fram að
hún telur nauðsynlegt að stuðla
að bjartsýni í atvinnumálum, en í
viðræöum ntanna á meðal gætti
mjög ótta við slæmt atvinnu-
ástand þegar styttist í að vetur
gengi í garð. Hún sagði að fólk
velti fyrir sér hvað framtíðin bæri
í skauti sínu því margir væru
atvinnulausir. „En það er ekki
nóg að tala um að við verðum að
vera bjartsýn, það verður að gera
eitthvað,“ sagði hún.
Valgerður brýndi fyrir bæjar-
fulltrúum nauðsyn þess að ala á
jákvæðum hugsunarhætti. Hún
varaði við þeim hugsunarhætti að
atvinnulífið væri í volæði á Akur-
eyri og að fáir þyrðu að flytja til
bæjarins af þeim sökum. Hún
kvaðst gleðjast yfir hverju
atvinnufyrirtæki sem risi upp í
bænum, en kvaðst eiga erfitt með
að líta framhjá þeirri staðreynd
að mörg fyrirtæki heföu átt erfitt
uppdráttar undanfarið. Uni til-
lögur minnihlutans sagði Val-
gerður að þær væru um margt
ágætar og í svipuðum anda og
umræður hefðu verið á bæjar-
málafundi Sjálfstæðismanna sl.
mánudagskvöld, þótt vissulega
væru mismunandi áherslur á ýms-
um málum. Að lokum undirstrik-
aði Valgerður að hún vildi fá
send gögn frá bænunt um ntikil-
væg mál, ekki síst sem snerta
nefndir sem hún á sæti í. en hún
taldi skorta upp á að afhending
slíkra gagna hefði verið fullnægj-
andi. EHB
*
Valgerður Hrólfsdóttir.
Snjóbræðslurör,
mátar
og tengi.
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360