Dagur - 15.08.1991, Side 7
Fimmtudagur 15. ágúst 1991 - DAGUR - 7
ngur bfla fer í endurskoðun
ðaskoðunar íslands hf. á Sauðárkröki og Blönduósi heimsóttir
koma í skoðun settir í endur-
skoðun þar sem eitt og annað
vantaði upp á. Fáir bílar eru
teknir úr umferð sem koma til
BSÍ enda til lítils að koma með
ónýtan bíl í skoðun en Þórólfur
nefndi dæmi um bíla sem hann
hafði tekið úr umferð þar sem
búið var að breyta þeim á ólög-
legan hátt.
Númerið JB 007 á
Lödu 1200!
í tölvukerfi BSÍ er að finna allar
upplýsingar um bifreiðaflota
landsmanna og hægt að sjá lista
yfir alla eigendur á hverjum bíl.
Bjarki sagði að sumir bílar fylltu
fjórar skjámyndir á tölvunni en
það gerir nokkra tugi eigenda á
eina og sama bílnum. Gagnrýnis-
raddir hafa komið fram á nýja
bílnúmerakerfið en Bjarki sagði
að þær raddir væru að dofna því
föstu númerin væru búin að
sanna gildi sitt.
Blaðamaður stóðst ekki freist-
inguna og bað Bjarka að slá upp
í tölvunni nokkrum þekktum
númerasamsetningum, s.s. eins
og JB 007 eða númeri njósnarans
fræga úr kvikmyndunum, James
Bond. I ljós kom að þetta góða
númer er á Lödu 1200 í eigu
Reykvíkings og hlýtur sá Lödu-
eigandi að vera stoltur með það
númer! -bjb
Þórólfur Óli Aadnegaard á Blönduósi skoöar Ijósabúnað einnar bifreiðar en
skoðunarstöðin er til húsa við hliðina á slökkvistöðinni. Fyrir var gryfja, sem
kom sér vel, en á Sauðárkróki er bílalyfta.
Bjarki Sigurðsson fyrir framan skoðunarstöðina á Sauðárkróki. Hann var
stoltur yfir því að hafa komist í eigið húsnæði 6 mánuðum fyrr en kollegar
hans á Akureyri og inerkið var einnig komið upp löngu á undan! Myndir: -hjb
Guðríður Sigurbjörnsdóttir og Halldór Halldórsson, starfsmenn Upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn í Varma-
Mynd: -bjb
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Varmahlíð:
Alls hafa um 3500 manns
leitað eftir aðstoð
Rekstur Upplýsingamiðstöðv-
ar fyrir ferðamenn í Varmahlíð
hefur gengið vel í sumar en
miðstöðin var opnuð í húsnæði
Kaupfélagsins um miðjan júní
sl. Alls hafa um 3500 inanns
leitað eftir upplýsingum hjá
starfsmönnunum tveim, þeim
Guðríði Sigurbjörnsdóttur og
Halldóri Halldórssyni.
í júnímánuði komu um 500
manns en langflestir komu í júlí.
eða nákvæmlega 2133 manns.
Útlendingar eru þar í meirihluta
eða 1494 og 640 íslendingar leit-
uðu eftir aðstoð. Fram til 12.
ágúst höfðu rúmlegá 800 manns
litið við hjá Halldóri og Guðríði
en upplýsingamiðstöðin verður
opin í nokkra daga í viðbót en
ekki verið tekin ákvörðun um
hvenær nákvæmlega verður
lokað.
Aðspurð sögðu Halldór og
Guðríður að erindi ferðamanna
væru af öllum toga en mest væri
um leiðbeiningar á athyglisverða
staði og ferðaleiðir um Skaga-
fjörðinn. Mörg furðuleg erindi
koma frá erlendum ferðamönn-
um og einn þeirra kom og spurði
hvar væri hægt að sjá eldgos.
Halldór sagðist hafa sagt mannin-
um að til allrar hamingju væru
engin eldgos í gangi! -bjb
Auglýsing frá ungmennafélögum Skriöuhrepps og
Möðruvallasóknar.
Hinn árlegi útimarkaður félaganr.a
verður haldinn í Freyjulundi laugar-
daginn 24. ágúst.
Nánari upplýsingar og básapantanir veita et'tir-
farandi: Bjarni í síma 26824 og Róbert í síma
26887 á kvöldin.
Básapantanir berist í seinasta lagi sunnudaginn
18. ágúst.
KEA Sunnuhlíð
Tilboð
helgarinnar
í raspi:
Lambakjöt
á lágmarksverði
kr. 515 kg.
Sjáumst í Sunnuhlíð
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 09.00 til 20.00,
laugardaga frá kl. 10.00 til 20.00
KÉÁ Sunnuhlíð