Dagur - 31.08.1991, Side 7

Dagur - 31.08.1991, Side 7
Laugardagur 31. ágúst 1991 - DAGUR - 7 Efst í huga Geir Guðsteinsson Skynsamleg nýting auðlinda hafsins er forgangsverkefni Einkennileg utanríkisstefna er nú rekin af hálfu íslendinga sem og margra annarra Evrópuríkja. Eftir að sovésk- um afturhaldsseggjum mistókst við- hald alræðis sósíalismans hefur mikið kapphlaup farið fram um það hvaða þjóð yrði fyrst að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og Oþna þar sendiráð. Islenski utanríkisráðherrann varð óumdeilanlega fyrstur til að setj- ast að undirskriftum með starfsbræðr- um sínum í lýðveldunum þremur en óneitanlega finnst mér að sjálfstæðis- yfirlýsing Eystrasaltslandanna sé mergurinn málsins. Yfirlýsingar danska utanríkisráðherrans og þögn danskra fjölmiðla um frumkvæði íslendinga er lítilsvirðing við okkur og er þetta hreint ekki í fyrsta skipti sem framkoma Dana í okkar garð ber vott um að herraþjóðartilfinningin er rík í mörgum dönskum brjóstum þrátt fyrir að íslenska lýðveldið sé orðið 47 ára gamalt. Liðlega 70% af útflutningstekj- um okkar fást af auðlind hafsins kring- um okkur, fiskinum. Tekjur af fiskveið- um og fiskafurðum hafa verið nokkuð stöðugar en það sama er ekki hægt að segja um stóriðjuafurðirnar ál og ál- blendi, en heimsmarkaðsverðið sveifl- ast mjög mikið auk þess sem markaðs- öryggið er nokkuð brokkgengt og háð ýmsum duttlungum. Nú þegar nýtt kvótaár er að hefjast í fiskveiðum með það mikilli skerðingu að kvóti næstu 12 mánaða verði nær sá sami og hann var síðustu 8 mánuði verðum við að leggja aukna áherslu á að fullnýta allar þær sjávarafurðir sem hér eru veiddar til þess að skapa aukna atvinnu fyrir landverkafólk. Með eða án setu í Alþjóða hvalveiðiráðinu eiga íslending- ar skilyrðislaust að hefja að nýju veiðar á þeim hvalategundum sem ekki eru í útrýmingarhættu en áróðursherferð með skynsamlegri nýtingu hvalastofna án afskipta erlendra öfgahópa gerir hvalaveiðar á ný að viðurkenndum og arðbærum atvinnuvegi á íslandi. Með minnkandi ásókn hvala í þorskstofninn hér við land mætti jafnframt auka þorskveiðikvótann um allt að 20% frá því sem nú er og þannig yrðu íslend- ingar enn frekari fyrirmynd annarra þjóða um skynsama nýtingu á auðlind- um hafsins. FJÖLMIÐLAR Þröstur Haraldsson Munurinn á flokksblöðum og pólitískum blööum í síöasta pistli mínum viöraði ég þá skoöun aö litlu flokksblööin þrjú í Reykjavík, Tíminn, Þjóöviljinn og Alþýöublaöiö, heföu hingaö til komiö [ veg fyrir að upp risi nýtt félagshyggju- blaö, nógu öflugt til þess aö bjóöa DV og Morgunblaðinu byrginn. Um leiö lét ég fjúka nokkur orö um flokksblöð, miöur vinsamleg. Ég ætla aö klappa þann steininn dálítiö meira f þessari viku. Fyrst þessi tugga hér: flokksblöö eru og hafa veriö á undanhaldi bæöi hér og í ná- grannalöndum okkar. Á hinn bóginn hafa blöö lifaö góðu lífi og samt tekið pólitíska af- stööu. Á því er nefnilega reginmunur hvort blaö er yfirlýst málgagn einhvers flokks eöa yfirlýstur málsvari tiltekinnar stefnu, ihalds, frjálslyndis, sósíalisma. Síöarnefndu blööin geta veriö gagnrýnin og tekiö sjálfstæða af- stööu til þeirra stjórnmálamanna sem í orði kveönu aöhyllast sömu stefnu og blaöið. Flokksblöö verða hins vegar fljótt málgögn forystumanna þess flokks sem þau styöja og verða, hvaö sem tautar og raular, aö elta þá um víðan völl í pólitískum hrossakaupum og hagsmunagæslu. Hér á landi eru dæmi um hvort tveggja. Stjórnendur Morgunblaösins hafa á síðustu árum stigiö mörg skref frá Sjálfstæðisflokki og leggja áherslu á það aö blaðið sé ekki málgagn flokksins heldur málsvari sjálfstæö- isstefnunnar (hvernig svo sem hún er skil- greind hverju sinni). Meöal þess sem þeir hafa gert er aö skipa þingfréttaritara blaösins aö hætta aö sitja þingflokksfundi Sjálfstæöis- flokksins, taka auglýsingasamning viö flokk- inn til endurskoðunar og síöast en ekki síst hefur blaöiö hvaö eftir annaö gengiö þvert á skoöanir forystumanna flokksins í leiöurum og Reykjavfkurbréfi. Þar eru ferskust dæmi af skrifum blaösins um sjávarútvegsmál og rekstrarform Ríkisútvarpsins. Svipaöa sögu er aö segja af okkur hér á Degi. Vitaskuld á Framsókn (tök í blaðinu, enda flokksfélögin í Eyjafiröi stórir hluthafar í því. En í tveim síðustu kosningabaráttum tókst Degi aö vera í senn umræðuvettvangur fólks og frambjóðenda úr öllum flokkum, mál- svari landsbyggðarinnar og áreiöanlegt fréttablað. Enda var uppskeran eftir því: áskrifendum fækkaöi ekki eins og raunin var í fyrri kosningum. Þaö er ekkert undarlegt við þaö aö fólk missi áhugann á aö kaupa blaö sem segir svo vikum skiptir ekki aörar fréttir en þær sem veröa í næsta nágrenni viö fram- bjóöendur flokksins. Á hinum kantinum höfum viö gleggstu dæmin af Tímanum sem skartaöi forsíðu- mynd af flokksformanninum á hverjum degi síöustu vikuna fyrir kosningar. Ef einhver ætlar í fúlustu alvöru aö halda því fram aö slík útgáfa sé vænleg til árangurs i síharön- andi samkeppni á íslenskum fjölmiðlamark- aöi þá melda ég pass. Vitaskuld hafa bæöi Dagur, Mogginn og DV stigið feilspor á þeirri braut sem þau hafa markaö sér. Því veröur ekki neitaö aö sjónar- miö Framsóknarflokksins eiga greiöari aö- gang aö lesendum Dags en annarra blaöa. Mogginn sprakk á limminu síöustu dagana fyrir kosningar í vor og birti gamalkunnar æsifréttir sem voru eins og eftir pöntun frá forystumönnum flokksins. Sömuleiöis geng- ur afar hægt aö gera blaðið viöræöuhæft um utanríkis- og öryggismál, einkum og sérílagi samskipti íslenskra og bandarískra stjórn- valda. Og DV fer sér alltaf afar hægt í ná- munda viö tiltekin fyrirtæki sem eigendur blaösins eru hluthafar í. En þeim hefur þó tekist aö smokra fram af sér flokksbeislinu aö verulegu leyti. Þaö hef- ur ekki tekist á hinum blöðunum þremur. Á Þjóöviljanum voru gerðar tilraunir til þess aö reka ritstjórnarpólitík sem ekki samræmdist alltaf hagsmunum allra forystumanna flokks- ins. Þeim tilraunum er löngu lokið og fyrir vik- iö er blaðið ekki lengur málsvari og umræðu- vettvangur allrar vinstrihreyfingarinnar eins og því tókst aö vera þegar best lét. Götuleikhúsið Auðhumla: Uppákoma í göngugöt- unni á Akureyri í dag Götuleikhúsið Auðhumla efnir til uppákomu í göngugötunni á Akureyri í dag, laugardaginn 31. ágúst kl. 17. Efni sýningarinnar er í sem stystu máli „elskhugaveiðar" á skemmtistöðum. Greint er frá ellefu persónum sem allar eiga það sameiginlegt að fara út að skemmta sér, flestar með það að leiðarljósi að „veiða“ eða verða „veiddar“. í kynningu Auðhumlu á sýningunni segir að verkið sé ekki hugsað sem „alvarleg ádeila á skemmtanalíf Islendinga", heldur miklu fremur sem tilraun til að sýna hve mannlífið geti orð- ið geggjað. Guðjón Sigvaldason er leik- stjóri sýningarinnar og skrifaði handrit að henni ásamt leikhópn- um. Búninga- og leikmyndahönn- un var í höndum Lindu Guð- laugsdóttur. Skrifstofiitækni Lög'ð er áhersla á tölvur og notkun þeirra I»ú getur vallð uin: * Morgunnám..........frá kl. 08.00 til 12.00 flnun daga í viku * Eftirmiðdagsnám....frá ld. 13.00 Lil 17.00 fimm daga í viku * Kvöldnám ..........frákl. 18.00 til 22.00fjögurlcvöld í viku Cxreiöslu hjör viö ullrn hæfi. Innrltun og upplýsingar í síma 27899. Ath. Haílð samband og við sendum bælding ()|iiú um helgina írá 18.00 til 17.00 Tölvufræðslan Akureyri hf. Glerárgötu 34, III. hæð, Akureyri, sími 27899 || I^TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Frá Tónlistarskólanum á Akureyri Innritun nýrra nemenda og staöfesting eldri nemenda fer fram í skólanum dagana 4. 5. og 6. september kl. 13.00 til 18.00. Skólagjöld skulu greidd á skrifstofu skólans við innritun. Um staögreiöslu eöa Visa/Euro raögreiöslu er aö ræða. Á haustönn 1991 verður boðið upp á frítt nám fyrir byrjendur í túbuleik, á fagott, selló og kontrabassa. Skólasetning verður í Akureyrarkirkju sunnudaginn 15. september kl. 17.00. Skólastjóri. Menningarsjóður íslands og Finnlands Tilgangur sjóösins er aö efla menningartengsl Finn- lands og íslands. í því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og annan fjárstuöning. Styrkir veröa ööru fremur veittir einstaklingum, stuöningur viö samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sér- staklega stendur á. Aö þessu sinni verður lögö áhersla á aö styrkja þýðingar á finnskum og íslensk- um bókmenntum. Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir áriö 1992 skulu sendar stjórn Menningarsjóös íslands og Finnlands fyrir 30. september nk. Áritun á íslandi: Mennta- málaráöuneytiö, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Æskilegt er aö umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eöa norsku. Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands. 29. ágúst 1991.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.