Dagur


Dagur - 31.08.1991, Qupperneq 8

Dagur - 31.08.1991, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 31. ágúst 1991 Aðalbjörg Ingvarsdúttir, fyrrum umsjónarmaður safnsins, með forláta jólatré sem varla sést lengur í jólahaldi okkar í dag. Tréð smíðaði Skarphéð- inn nokkur Einarsson fyrir um 80 árum fyrir dætur sínar en jólatré á borð við þetta voru í notkun alveg fram undir 1940. Langflestir munanna í safninu eru þó unnir af konum. eftir aldursröð, sá elsti lengst til vinstri. Heimilisiðnaðarsafnið og Halldórustofa á Blönduósi eru í gömlu fjósi og hlöðu við Kvennaskólahúsið. Myndir: -bjb Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi heimsótt: Eina sinnar tegundar í heiminum - um 2000 munir hafa safnast og húsrými er sprungið í gömlu fjósi og hlööu við Kvennaskólahúsið á Blönduósi hefur verið starfrækt merkilegt safn í 15 ár. Fjósið var uppgert og þar sett upp heimilisiðnað- arsafn og munir í eigu Hall- dóru Bjarnadóttur. Eftir undirbúning í nokkur ár var safnið opnað formlega árið 1976. Safnið nefnist Halldóru- stofa og er orðið einn vinsæl- asti viðkomustaður ferða- inanna sem leið eiga um Blönduós, enda eina safn sinn- ar tegundar í heiminum. Á síð- asta ári skrifuðu um 600 manns sig í gestabók og í ár hefur ver- ið metaðsókn. Nú er svo kom- ið að heimilisiðnaðarsafnið er komið í þrot með húsnæði því þeir tæplega 2000 munir sem eru í eigu safnsins komast eng- an veginn fyrir í Halldórustofu og margir munir eru í geymsl- um víðs vegar á Blönduósi. Safnið er rekið af Blönduósbæ og kvenfélögunum í A-Húna- vatnssýslu, með smá styrk frá rík- inu, en mikil sjálfboðavinna hjá kvenfélagskonum hefur aðallega haldið safninu gangandi. Eins og nafn safnsins gefur til kynna er það kennt við Halldóru Bjarna- dóttur en hún gaf alla sína hús- muni og hluti sem hún hafði safn- að úr sögu heimilisiðnaðar í gegnum tíðina, alls um 500 muni. Síðan hefur fjöldi muna bæst við af öllu landinu og eins og áður sagði eru þeir um 2000 talsins, þeir elstu frá því á 18. öld en flestir eru frá síðustu hundrað árum. Safnið komið í þrot með húsnæði Elísabet Sigurgeirsdóttir, umsjón- armaður safnsins, sagði í samtali við blaðið að eins og staðan væri í dag væri varla hægt að halda rekstri safnsins gangandi, bæði vegna húsnæðisskorts og skorts á fjármagni. Viðræður hafa staðið yfir við Héraðsnefnd A-Hún- vetninga um þátttöku hennar í rekstrinum en ekki borið árangur til þessa. Mestur áhugi hefur ver- ið hjá Blönduósbæ og nærliggj- andi hreppum og vonast Elísabet eftir því að málefni safnsins fái farsæla niðurstöðu. Húsnæði safnsins er ekki stórt og sagði Elísabet að erfitt væri að taka á móti stórum hópi fólks í einu, í mesta lagi kæmust 30 manns. Það merkilega er að útlendingar, einkum Norður- landabúar og Þjóðverjar, hafa sýnt safninu meiri áhuga heldur en íslendingar. Elísabet sagði að safnið fengi yfirleitt mjög góða dóma og aðdáun þeirra sem kæmu. „Ég hef fengið bréf frá útlendingum eftir að þeir hafa komið og í þeim lýsa þeir mikilli hrifningu sinni með þetta litla safn,“ sagði Elísabet. Heimsóknir skólakrakka ánægjulegar Inni í aðsóknartölum eru ekki þeir fjölmörgu skólakrakkar sem hafa heimsótt safnið og sagði Elísabet þær heimsóknir vera mjög ánægjulegar. „Okkar draumur er að fá betri aðstöðu til að sýna gömul vinnubrögð, eins og t.d. hvernig var spunnið. Þeg- ar við höfum fengið konur til að spinna í Halldórustofu þá hefur það vakið mikla hrifningu og ánægju,“ sagði Elísabet. Heimilisiðnaðarsafnið er opið á vissum tímum yfir sumarmán- uðina og síðan bara eftir óskum hvers og eins. Þegar blaðamaður Dags var á ferðinni á Blönduósi á dögunum vildi svo til að þær þrjár konur sem sjá um safnið voru ekki í bænum. En með aðstoð Sturlu Bragasonar, ferða- málafulltrúa, tókst að fá Aðal- björgu Ingvarsdóttur, fyrrum umsjónarmanns safnsins, til að opna safnið fyrir blaðamann Dags. Aðalbjörg var greinilega öllum hnútum kunnug og sýndi blaðamanni hvern krók og kima í safninu. En látum myndirnar tala. -bjb Meðal muna á þessari mynd er gömul spunavél sem enn er í nothæfu ástandi. Lengst til hægri er upphlutur, settur saman úr ýmsum áttum. Herbcrgið í Halldórustofu lítur nánast eins ót og herbergi Halldóru Bjarnadóttur var þar sem hún dvaldist síðustu æviár sín á Héraðshælinu á Blönduósi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.