Dagur - 31.08.1991, Blaðsíða 9

Dagur - 31.08.1991, Blaðsíða 9
Laugardagur 31. ágúst 1991 - DAGUR - 9 Jóhann Ólafur Halldórsson Einkarekinn tónlistarskóli að taka til starfa á Akureyri: Góð viðbót við tónlistarlíf bæjaríns - segir Örn Viðar Erlendsson, tónlistarmaður og skólastjóri Hljómskólans Einkarekinn tónlistarskóli, Hljómskólinn, tekur formlega til starfa á Akureyri eftir helgi. Þetta er fyrsti einkarekni tón- listarskólinn á Akureyri og raunar er aðeins einn einka- rekinn tónlistarskóli fyrir í landinu, þ.e. Tónskóli Sigur- sveins en hann var á sínum tíma stofnaður sem einkaskóli þó í dag njóti hann styrks frá ríki og Reykjavíkurborg. Hljómskólinn er rekinn af Erni Viðari Erlendssyni en hann hefur kennt við gítardeild Tónlistarskólans á Akureyri síðustu átta ár en hætts þar störfum síðasta vor. Sjálfur segist hann njóta stuðnings nemenda og foreldra í þessu framtaki og fyrir hvatningu þessa fólks hafi draumurinn orðið að veruleika „Við erum bjartsýn á fram- haldið. Eg nýt andlegs og félags- lcgs stuðnings af foreldrum og nemendum en ég hélt á sínum tíma fund með foreldrum þar sem ég gerði þeim grein fyrir að annað hvort væri fyrir mig að fara frá Akureyri eða stofna einka- skóla. Foreldrarnir lýstu þá yfir fullum stuðningi við einkaskóla og þá sá ég mér fært að fara út í þetta. Annars hefði þetta aldrei orðið,“ segir Örn Viðar um aðdragandartn að stofnun Hljóm- skólans. Lagt upp með fimm námsbrautir Hugtakið einkaskóli hefur haft þann stimpil á sér að slíkir skólar séu dýrir og ekki á hvers manns færi að senda börn sín í einka- skóla. Örn Viðar segir að hvað þetta atriði varði sé gjaldskrá sambærileg við Tónlistarskólann á Akureyri en skólinn verði fyrst og fremst frábrugðinn á þann hátt að meira verði um hóptíma nemenda. „Ég hef reynt þetta á síðustu tveimur árum í Tónlistar- skólanum og ég held að þetta sé skemmtilegra form heldur en vera með stöðuga einkatíma. Með þessu spila nemendurnir meira saman,“ segir Örn. Áhersla þessa nýja skóla verð- ur fyrst og fremst á gítarkennslu enda eru þeir nemendur sem þeg- ar hafa innritast í skólann fyrrum nemendur í gítardeild Tónlistar- skólans. Þrátt fyrir þetta er á dagskránni þegar í upphafi að kenna á hljómborðsbraut ef næg þátttaka fæst. Hljómskólinn mun bjóða fimm brautir, þ.e. fornámsbraut, þar sem aldur nemenda er miðaður við 4-7 ára, einleikarabraut, dæg- urlagabraut, rafgítarbraut og hljómborðsbraut. Þessi uppbygg- ing segir Örn Viðar að gefi mögu- leika á sveigjanleika og fjöl- breytni fyrir nemendur. Verður fjölbreytt skólastarf Örn Viðar mun annast kennslu í skólanum ásamt ívari Aðalsteins- syni og Jóni Rafnssyni. Þá munu Tryggvi Már Gunnarsson og Halldór Már Stefánsson, tveir af nemendum skólans, aðstoða við kennslu. Örn Viðar óttast ekki að fjölbreytnina og hugmyndirn- ar muni skorta í skólastarfið. „Nei, það kemur margt til greina. Við gætum hugsað okkur samspil með einhverjum auka- kennurum, stutt námskeið með t.d. góðum rafgítarleikurum og rra og meo i. sepiemoer verður nýtt símanúmer * %* * á Akureyri 996200 Orn Viðar Erlendsson ásamt nokkrum verðandi nemendum sínum í Hljómskólanum sem öll segjast hlakka til að taka þátt í fyrstu skrefum þessa nýja skóla á Akureyri. Frá vinstri: Elma Dröfn Jónasdóttir, Gísli Jóhann Grétars- son, Örn Viðar, Tryggvi Már Gunnarsson, Lýður Ólafsson, Sölvi Antonsson, Jóhanna Hreinsdóttir. Þessir nemendur hafa lært á gítar hjá Erni í 2-5 ár og raunar mun einn þeira, Tryggvi Már, aðstoða við kennslu í Hljóin- skólanum. Mynd: Golli Og ekki munu Akureyringar ein- ir fá að kynnast nemendum skól- ans í vetur því á dagskrá vetrar- ins eru tónleikaferðir í önnur héruð. „Já, við ætlum okkur að fara með lengra komna nemendur á einleikarabraut til Reykjavíkur í vor þar sem þau taka stigspróf og halda eina eða tvenna tónleika á höfuðborgarsvæðinu og storka þannig sunnlenskum tónlistar- mönnum með tilveru sinni,“ segir Örn Viðar og brosir. „Hér heima verðum við með fullt af tónleikum og nefna má að nú þegar erum við byrjuð að liuga að jólatónleikum í Grund- arkirkju í Eyjafjarðarsveit sem er yndisleg og falleg kirkja. Þarna er gott liljóð og raunar sé ég fyrir mér og er stuðningsmaður jiess að Grundarkirkja veröi nokkurs konar Skálholt Norðurlands, þ.e. þjóni sama hlutverki í menning- arlífi á Norðurlandi eins og Skál- holt á Suðurlandi. Þessu til við- bótar verðum við með tónleika með nútímatónlist í Akureyrar- kirkju í vor og haldnir verða almennir jólatónleikar einleik- aradeildar og fornámsbrautar. Þetta er dæmi um það sem bæjar- búar geta séð opinberlega af nemendum skólans en margar hefðir eiga eftir að skapast um tónleika á vegum skólans. Skól- inn verður því góð viðbót við tónlistarlífið hér, ég er ekki í vafa um það,“ segir Örn Viðar Erlendsson. JÓH tónleikahald í bænum og utan hans. Nú þegar hefur Einar Ein- arsson, gítarleikari héðan frá Akureyri, boðist til að halda námskeið á einleikarabraut skól- ans og leggja sína vinnu fram sem styrk til skólans þannig að margt mun lífga upp á starfið,“ segir Örn. Undirbúningur að stofnun Hljómskólans hefur staðið yfir í sumar og verður skólinn til húsa í Gránufélagsgötu 6 á Akureyri. Kynn- ingarbæklingur um þetta framtak hefur verið gefinn út og hefst skráning nemenda í skólann í næstu viku og stendur til 18. sept- ember. Ljóst er að áhugi er á þessum skóla því áður en innrit- un hefst hafa 18 nemendur þegar óskað eftir að innritast á einleik- arabraut. Örn Viðar segir unnt að taka við talsverðum fjölda nemenda þannig að ekki verði sett ströng takmörk varðandi stærð, strax í upphafi. Áhersla lögð á yngstu börnin En hvað mun einkenna þennan fyrsta einkarekna tónlistarskóla umfram aðra tónlistarskóla? „Ég legg mikla áherslu á for- skólann,“ svarar Örn Viðar. „Ég ætla mér að fara nýjar leiðir í for- skólamálum en hingað til hefur yngstu nemendunum verið kennt mest á blokkflautu. Mörgum þykir hún leiðinleg og því ætla ég að fara út í fleiri hljóðfæri og gefa nemendunum sjálfum kost á því að velja sér hljóðfæri í stað þess að þeir séu settir á ákveðinn bás hvað þetta varðar. Mér finnst forskólinn misskil- inn. Þar er verið að undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám en ég tel forsendur fyrir for- skóla vera þær að kynna börnun- um tónlist þannig að þau fái jákvæðar og skemmtilegar hug- myndir um hana. Þetta má t.d. gera með því að fara í heimsókn- ir í útvarp og sýna þeim hvernig hægt er að nota tónlistina og hvar. Kynna þeim hvernig tón- listin nær til fólksins. Ef við víkjum aftur að þessu með blokkflautuna þá er það svo að maður hittir marga sem liafa verið í forskóla og þeir fara strax að tala um hvað blokkflautan hafi nú verið leiðinleg. Og af hverju þá að berjast við að kenna krökkum á hana ef þeim leiðist? Ég held því að einhæfnin hafi spillt fyrir og tcl að börnin hafi gott af því í forskólanum að fá að taka hin ýmsu hljóðfæri með sér heim, skoða þau og kynnast þeim.“ Örn segir langt í frá að fjög- urra ára börn séu of ung til að koma í tónlistarskóla. í raun séu þau einna skemmtilegustu tón- listarnemendurnir vegna þess hve óhindruð þau eru á þessum aldri. „Þrettán ára börnin rengja alltaf takt vegna þess að þau eru spé- hrædd og halda að þau séu að gera vitleysur. Hjá litlu krökkun- um er þetta ekki til, þau vita að þau eru að gera rétt og hika því ekki.“ Kcnnsla myrkranna á milli Örn segir að í Hljómskólanum komi til með að verða nemendur á öllum aldri. Dægurlagadeild skólans muni taka við hlutverki Gítarskóla Viðars sem hann hafi rekið í námskeiðaformi flest undanfarin ár. í þessi námskeið hafi skráð sig fólk frá 13 ára upp undir áttrætt og búast megi við að svo verði áfram. En hvað með tíma dagsins? Verður auðvelt fyrir almennan launamann sem vinnur fullan vinnudag að sækja sér tónlistarmenntun í þessum skóla í frístundum? „Já, við verðum að nær allan sólarhringinn. Dægurlaga- og hljómborðsbrautirnar koma til með að starfa mest á kvöldin en forskólinn verður á morgnana og eftir hádegi. Ég veit því að vinn- an verður mikil og ég geri mér grein fyrir að ég get allt eins verið launalaus en ég vildi ekki missa gítardeildina út úr höndunum eftir að hafa unnið að uppbygg- ingu hennar í átta ár hjá Tónlist- arskólanum og því varð þetta framhald á starfinu. Auðvitað saknar ntaður Tón- listarskólans og vinnufélaganna eftir átta ára starf en þetta eru kaflaskipti og nýtt verkefni fram- undan.“ Margar tónleikahugmyndir á teikniborðinu Örn Viðar segist líta svo á að Hljómskólinn verði hrein viðbót við tónlistarlífið á Akureyri enda verði tónleikahald og aðrar uppá- komur í tengslum við skólann. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Skólasetning verður í Akureyrarkirkju þriðjudaginn 3. september kl. 10 árdegis. Skólameistari. Eiginmaður minn og faðir okkar, VIGFÚS ÞORSTEINSSON, Dvalarheimilinu Hlíð, lést 28. ágúst síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ragnheiður Sigfúsdóttir, Steingrímur Vigfússon, Regína Vigfúsdóttir, Sigfríð Dóra Vigfúsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.